Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRETTUM SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 B 19 Ingimundur Jónsson átti 40 ára leikaraafmæli og þakkaði Þor- kell Björnsson honum fyrir hönd Leikfélagsins fyrir gott og mikið starf í þágu félagsins. Fyrsta hlutverk Ingimundar var Gvendur smali í Skugga-Sveini, í leikstjórn Júlíusar Havsteen sýslumanns, árið 1953. LEIKSÝNING Ronia á Húsavík Leikfélag Húsavíkur frum- sýndi síðastliðinn laugar- dag sjónleikinn Ronju í ræn- ingjahöndum eftir Astrid Lind- gren í þýðingu Einars Njálsson- ar. Brynja Benediktsdóttir hefur vandað mjög til sýningarinnar bæði með leikstjórn og leik- mynd, sem hún gerði ásamt Manfreð Lemke. Tónlistin var frumsamin af Helga Péturssyni, sem annaðist jafnframt undirleik, en söng- textar voru samdir af Friðrik Steingrímssyni. Aðrir sem komu við sögu voru Jón Arnkelsson, Einar H. Einarsson, Helga Am- alds, Agga Olsen og Rink Egede. Ronju og Birki leika Júlía Sigurðardóttir og Eiður Péturs- son. Á þetta unga par hrós skil- ið fyrir frammistöðu sína eins og aðrir aðalleikendur, Anna Ragnarsdóttir, Ingimundur Jónsson, Guðný Þorgeirsdóttir, Þorkell Björnsson og Bjarni Sig- uijónsson. í leikslok voru leikarar og leikstjóri ákaft hylltir með löngu og miklu lófataki og blómaregni. Fréttaritari Morgunblaðið/Silli Leikstjórn Brynju Benedikts- dóttur þótti sérstaklega góð og var henni þakkað með lófa- taki og blómum. „Það er ekki erfitt að ná árangri með svona góðu fólki, en það þarf eðlilega sinn tíma,“ sagði hún. Paul Mercurio er eitt aðal- kvennagullið þessa dagana. FRÆGÐ Fylgifiskar frægðarinnar lítt eftirsókn- arverðir Kvikmyndin „Strictly Ballroom" hefur notið gríðarlegra vin- sælda meðal ungs fólks beggja vegna Atlantsála hin seinni misseri. Sagt er að mynd þessi sé í anda „Grease“ og „Dirty Dancing" þó ekki væri fyrir aðrar sakir en að í henni er teflt fram voldugum og snjöllum danskappa. í fyrrnefndu myndunum voru það John Travolta og Patrick Swayze, en í „Strictly Ballroom" kemur fram nýtt dans- tröll, hinn 29 ára gamli Paul Merc- urio. Vinsældir Mercurio eru gífurlegar og hann getur vart um fijálst höfuð strokið. Hvarvetna sitja fyrir honum yfir sig hrifnar yngismeyjar sem þrábiðja hann um eiginhandaráritun eða eitthvað miklu meira. Hann hef- ur engan frið. Hitt er svo annað mál, að Mercurio er ekkert yfir sig hrifinn af Mercurio-æðinu sem brostið er á. Hann segir, að vissu- lega vilji hann frama í starfi og frá þeim bæjardyrum geti hann ekki verið ánægðari með viðtökurnar á kvikmyndinni. Það sem fylgi frægð- inni sé hins vegar lítt eftirsóknar- vert og eftir sem áður þá sé hann jarðbundinn fjölskyldumaður sem ekki sé á leið út í hið ljúfa líf. í lok hvers vinnudags hlakki hann mest til þess að hraða sér heim og skipta um bleyjur á dætrum sínum. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut^ Kopavogi, sími 671800 Talsverð hreyfing Vantar góða bíla á sýningarsvæðið Opið sunnud. kl. 14 - 18. Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1989 1. flokki 1990 2. flokki 1990 2. flokki 1991 Innlausnardagur 15. febrúar 1993. 1. flokkur 1989 Nafnverð: 5.000 50.000 500.000 Innlausnarverð: 7.265 72.654 726.544 1. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000 6.414 50.000 64.145 500.000 641.449 2. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð: 10.000 12.662 100.000 126.620 1.000.000 1.266203 2. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð: 10.000 11.770 100.000 117.697 1.000.000 1.176.966 Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Sudurlandsbraut 24. áfa HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ HÚSBRÉFAOEILD SU0URLAN0S8RAUT 24 108 RFYKJAViK SlMI 696900 1 | Góðan daginn! Marky og Donnie Mark ætla að rappa fyrir New York-búa. TÓNLIST Rappaða Yngri bróðir Donnies í hljóm- sveitinni New Kids On The Block, Marky Mark, er mikill áhugamaður um rapp eins og bróð- ir hans. Því hafa þeir ákveðið að opna saman diskótek í New York. diskóteki Og getið þið bara hvað? Þar verða eingöngu spiluð rapplög. Þeir voru lengi að finna staðinn sem hent- aði, en nú er hann fundinn og reikna þeir með að opna diskótekið í mars. TIL LEIGU í HEKLUHÚSINU LAUGAVEGI 170 Áannarri hæð: Skrifstofuhúsnæði, ca. 400 m2 auk sameiginlegs. 7—p—p—p--—d—p—rr HEKLA Húsnæðið leigist helst í einu lagi. Mörg bílastæði. Góð aðstaða fyrir umferð að og frá húsinu. Einn þekktasti staðurinn á Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar gefur Sigurður Gunnarsson alla virka daga frá kl. 9.00 - 18.00 í síma 695500.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.