Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 28
28 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993
Framfærsluvísitalan r febmar 1993 (155,3)
Ferðir og flutningar (19,3) -0,1 % | Breyting frá fyrri mánuði
Húsnæði, rafmagn og hiti (18,3)
Matvömr(17,0)
Tómstundaiðkun og menntun (11,2)
Húsgögn og heimilisbún. (6,7)
Föt og skófatnaður (6,2)
Drykkjarvömr og tóbak (4,4)
Heilsuvemd (2,8)
Aðrar vömr og þjónusta (14,1)
Vísitala vöm og þjónustu
FRAMFÆRSLUVÍSITALAN
■ 0,4%
■■■I 1,6%
| 0,0%
10,3%
10,1 %
| 0,0%
Tölur i svigum visa til vægis emstakra liða af 100.
Geðklofínn í Laugarásbíó
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýningar myndina Geðklofinn
eða „Raising Cain“. Með aðal-
hlutverk fara John Lithgow og
Lolita Davidovich. Leikstjóri er
Brian De Palma.
Þegar Carter og kona hans
eignast dóttur tekur hann sér frí
frá störfum til að hjálpa við upp-
eldi hennar. Hann virðist vera hinn
fullkomni eiginmaður og faðir, en
ekki er allt sem sýnist. Hann frem-
ur glæp, rænir sinni eigin dóttur
og reynir að koma sökinni yfir á
élskhuga konu sinnar.
(Fréttatilkynning)
JOHN Lithgow í hlutverki sínu
í myndinni Geðklofinn.
FÉLAG ÍSLENSKRA STÓRKAUPMANNA
' mrm
19281993
2.
3.
4.
5.
6.
7.
Jón Baldvin liannibalsson,
utanríkisráöherra.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Félags íslenskra stórkaupmanna
--verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar
1993 á Hótel Holiday Inn kl. 14:00.
Dagskrá skv. félagslögum:
Fundarsetning.
Kjör fundarstjóra og úrskurður
um lögmæti fundar.
Ræða formanns,
Birgis R. Jónssonar.
Ræða: Jón Baldvin Hanni-
balsson, utanríkisráðherra.
Kaffihlé.
Skýrsla stjórnar.
Ársreikningur 1992.
Fjárhagsáætlun FÍS 1993.
Yfirlit um starfsemi sjóða.
ÍSLENSK VERSLUN
- skýrsla varaformanns.
8. Kjör formanns.
9. Kjör þriggja stjórnarmanna.
10. Kjör tveggja endurskoðenda og tveggja til vara.
11. ÍSLENSK VERSLUN - Kjör fjögurra stjórnar-
manna og fjögurra varamanna.
12. Lagabreytingar.
13. Kosið í fastanefndir.
14. Ályktanir.
15. Önnur mál.
16. Fundarslit.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrifstofu
félagsins í síma 678910.
Birgir R. Jónsson,
formuóur FÍS.
Málflutningsskrifstofan Borgartúni 24
Helstu alþjóðlegn mannrétt-
indasáttmálamir gefnir út
Málflutningsskrifstofan Borg-
artúni 24 hefur gefið út bók með
öllum helstu alþjóðlegu mann-
réttindasáttmálunum sem Islend-
ingar eiga aðild að. Bókin ber
heitið Alþjóðlegir mannréttinda-
sáttmálar og er gefin út í um
2.000 eintökum. Akveðið hefur
verið að gefa 700 bækur til skóla
í landinu og 300 bækur til stofn-
ana á vegum dómsmálaráðuneyt-
isins. Hluti upplagsins verður til
sölu á kostnaðarvgrði.
Ragnar Aðalsteinsson hrl. af-
henti Þorsteini Pálssyni dómsmála-
ráðherra og Árna Gunnarssyni,
skrifstofustjóra í menntamálaráðu-
neytinu, fyrir hönd menntamálaráð-
herra, sitthvora bókina sem tákn
um gjöfina á miðvikudag.
Fyrsta skref í fræðslu
Við það tækifæri sagði Ragnar
að tilefni útgáfu bókarinnar mætti
rekja til þess að aðstandendum
hennar hefði stundum fundist nokk-
uð skorta á þekkingu fólks á sátt-
málunum. Engu að síður hefði
umræða um þá verið að aukast og
þeir ættu eftir-að skipta enn meira
máli en verið hefði. „Það skiptir
miklu máli að menn tileinki sér
mannréttindi hvar sem þeir eru í
heiminum og hvað svo sem þeir
fást við og þess vegna er nauðsyn-
legt að koma á framfæri fræðslu
um þessi efni. Fyrsta skrefið er
auðvitað að gefa sáttmálana út en
næsta skrefið að vinna úr þeim efni
til fræðslu," sagði hann.
Mannréttindasáttmáli Evrópu
verði lögfestur
Dómsmálaráðherra þakkaði
Handhæg bók
ÁRNI Gunnarsson og Þorsteinn Pálsson með Ragnari Aðalsteinssyni
eftir að þeim hafði verið afhent bókin. I henni má m.a. finna Mann-
réttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, Samning um réttindi barna
og Samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum.
merkt og gott framlag skrifstofunn-
ar eftir að hann hafði tekið við ein-
taki af bókinni úr höndum Ragnars.
Hann vék máli sínu síðan að
Mannréttindasáttmála Evrópu.
„Ráðuneytið skipaði á síðastliðnu
ári sérstaka nefnd til þess m.a. að
undirbúa lögfestingu sáttmálans og
ég á von á að sú nefnd skili a.m.k.
hluta af sínu verki bráðlega þannig
að við getum lagt málið fyrir Al-
þingi nú í vor. Ég lít svo á að með
lögfestingu samningsins höfum við
stigið stórt skref fram á við,“ sagði
Þorsteinn.
Árni tók undir þakkir Þorsteins
og sagði ljóst að skólarnir hefðu
mikilvægu hlutverki að gegna varð-
andi fræðslu um mannréttindi og
bókin k-æmi til með að auðvelda
kennurum að koma þeirri fræðslu
á framfæri. Gert er ráð fyrir að
tvær bækur fari til hvers skóla.
-----------♦ ♦ ♦------
__________Brids____________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Vestur-Hún-
vetninga, Hvammstanga
Breski miðillinn
Ray Williamson
verður staddur hér á landi í næstu viku.
Hann heldur einkafundi og gerir áruteikningar.
Nokkrir tímar lausir.
Upplýsingar í síma 686826.
NÁMSA við þásemvUja • grunnskóla • framhaldsskóla • háskóla Við bjóðum einnig: • fullorðinsfræðslu • námsráðgjöf ÐSTOÐ I ná (engra í skóía • flestar námsgreinar • stutt námskeið - misserisnámskeið • litlir hópar - einkakennsla • reyndir kennarar Innritun í síma: 79233 kl. 14.30-18.30 NemendaþjónusUm sf. - Þangbakka 10, Mjódd.
Aðalsveitakeppni félagsins er ný-
lokið og urðu úrslit þau að sveit Egg-
erts Ó. Levy hlaut 123 stig, auk Egg-
erts spiluðu Unnar Atli Guðmundsson,
Karl Sigurðsson og Kristján Björns-
son, í öðru sæti varð sveit Amar Guð-
jónssonar 102 stig auk Arnar spiluðu
Einar Jónsson, Elías Ingimarsson,
Éggert Karlsson og Sigurður Þor-
valdsson.
í þriðja sæti með 94 stig sveit
Konráðs Einarssonar, Hallmundar
Guðmundssonar, Marteins Reimars-
sonar og Halls Sigurðssonar.
Bridsfélag SÁÁ
Nú er þremur umferðum ólokið í
sveitakeppninni og er staða efstu
sveita þessi:
Gestur Pálsson 128
Sigmundur Hjálmarsson 112
Helga Bergmann 98
Sigmar Bjömsson 94
Síðustu umferðirnar verða allar
spilaðar nk. þriðjudag og hefst spila-
mennskan kl. 18.30. Spilað er í Ár-
múla 17a.
Næsta keppni verður eins kvölds
tvímenningur.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Fátt eitt getur komið í veg fyrir
sigur Páls Þórs Bergssonar og Sveins
R. Þorvaldssonar í barometemum sem
nú stendur yfir. Lokið er 15 umferðum
af 23 og er staðan þessi:
Páll Þór Bergsson - Sveinn S. Þorvaldss. 826
Friðjón Margeirsson - IngimundurGuðmundss. 613
YngviGuðjónsson-JúlíUsThorarensen 559
Jón Hersir Elíasson - Ari Konráðsson 493
Jóhann Jóhansson - Óskar Þráinsson 456
HaukurHarðarson-VignirHauksson 345
ÖTSALA
20-50% afsláttur
»hummel^P
Allur vetrarfatnaður,
íþróttagallar, fþróttaskór,
skfði, skíðaskór o. fl. o. fl.
SPORTBUÐIN
ÁRMULA 40 ■ 5ÍMAR 813555, 813655. g