Morgunblaðið - 14.02.1993, Síða 6

Morgunblaðið - 14.02.1993, Síða 6
« * stíoi HAfmaHS ,m auuAaawjis ItlWwAjTl^iyinifiran <jkía,m!Muk»jom —“-----------MORGtfflBtABfÐM5PWm]DAGUR-MrFEBRPAR-t993-------- —.... ' ■ ' ~ ■ t.................................... Múrstofan að Nesi við Seltjörn, bústaður og lyfjabúð Bjarna Páls- sonar landlæknis. LÆKNISFRÆDI/7 upphafi... Fyrsti limdlæknmnn Mikil verðlækkun. Opið laugardag kl. 13-17 og sunnudagkl. 13-16. Strandgötu 3, Hafnarfirði, sími 653949 eöa 51034. Heildsöluverð á undirfatnaði frá CACHAREL og PLEYTEX. Einnig snyrtivörurá kynningarverði. ÞOKKl Faxafeni 9, sími 677599 MANNLÍF ÁTTIHÉR STUND- UM ERFITT uppdráttar á liðn- um öldum og ekki var sú átj- ánda þeirra blíðust. A Afyrsta áratug hennar lagði stórabóla fjórða hluta þjóð- arinnar í gröfina og þegar tæpur fimmtungur lifði aldar hófust Skaftáreldar og í kjölfar þeirra móðuharðindi. En á milli þess- ara tveggja hremminga gekk yfir lands- lýðinn hver harðræðis- og eftir Þórarin hungurkaflinn á Guðnason fætur öðrum, hafísár, Kötlu- gos, aflabrestur. Um íbúafjölda landsins er ekkert vitað með vissu fyrr en eftir manntalið 1703 eða fjórum árum fyrir bólu, þegar við vorum rúm 50 þús- und. Fræðimenn giska þó á að hann hafi orðið 60 þúsund á þjóðveldisöld en nær sjötíu um 1400. Engum lærðum læknum var til að dreifa fyrr en Bjami Páls- son var skipaður landlæknir 1760, nýútskrifaður úr Hafnar- háskóla og sprenglærður í nátt- úruvísindum og læknisfræði. Hann valdi sér Nes við Seltjörn sem aðsetur en átti heima á Bessastöðum fyrstu þijú árin meðan læknisbústaðurinn Nes- stofa var í smíðum. Bjarni fæddist 1719, prests- sonur á Upsum við Eyjafjörð, og var settur til mennta í Hóla- skóla en hélt að loknu því námi til Hafnar og innritaðist í háskól- ann. Þeir Eggert Ólafsson fengu danska styrki til að rannsaka náttúm íslands og ferðuðust í sjö sumur um landið en höfðu flest árin vetursetu hér heima, oftast í Viðey hjá Skúla fógeta sem síðar gifti Bjarna Rann- veigu dóttur sína. Asamt læknisstörfum og rekstri lyfjabúðar hóf hann að kenna læknanemum. Á þeim nítján árum sem hann var land- læknir urðu þeir þrettán en ein- ungis fjórir luku námi; hinir helt- ust af ýmsum sökum úr lestinni og sumir þeirra gerðust klerkar. Bjarni tók líka í læri þær konur sem vildu gerast ljósmæður og naut við þá kennslu aðstoðar danskrar yfirsetukonu sem flutt- ist hingað að ráði hans og er talíð að 15 ljósmæður hafi menntast hér meðan hans naut við; í Nesi var tekið á móti sjúkl- ingum víðs vegar að. Dvaldist sumum þeirra á læknissetrinu um skamman tíma eða langan og segir Sveinn Pálsson, tengda- sonur Bjarna og ævisöguritari hans, að landlækni hafi verið mjög í mun að stofnað yrði til myndarlegs spítala í staðinn fyr- ir þau skýli holdsveikra sem þá voru við lýði fáum til gagns og engum til sóma. í því efni varð honum ekki ágengt og löng varð biðin eða full hundrað ár eftir fyrsta sjúkrahúsinu á íslenskri grund. Af Bjarna Pálssyni ganga sögur sem duglegum lækni og er ekki að efa að þær styðjast flestar við rök. Á hitt má líta að samtíð hans, jafnvel tengda- sonur hans og kollega, hafði ekki skilyrði til að meta sumt það sem nú á dögum er aug- ljóst. Sveinn segir frá því að Bjarni hafi að mestu útrýmt fransós sem upp kom i Reykja- vík áður en hann varð landlækn- ir. Með orðinu fransós hefur hér á landi og víðar löngum verið átt við kynsjúkdóminn sárasótt en sennilega hefur einhver annar kvilli verið hér á ferðinni fyrir og eftir 1760 því að þá var enn fátt um læknisdóma við sárasótt og ótrúlegt að tekist hafi að losna við hana á nokkrum árum. Þeirrar tíðar Iæknar rugluðu iðu- lega saman tveim eða fleiri sjúk- dómum sem læknavísindi nútím- ans halda stranglega aðskildum; skyrbjúg og holdsveiki mætti nefna sem dæmi. Ekki veitist læknum síðari tíma auðvelt að ráða í af heimild- um hvaða sjúkdómur dró Bjarna landlækni til dauða á 61. aldurs- ári. Sveinn tæpir á því í ævisög- unni að einhvers konar floga- veiki hafi ásótt hann allt frá haustinu 1764, og ári síðar sigldi hann til Danmerkur í því skyni að leita sér lækninga. Árangur mun hafa orðið lítill, Bjarni var með köflum óvinnufær og ekki bætti úr skák að áfengi freistaði hans meira en góðu hófi gegndi. Gefum tengdasyni hans að síðustu orðið: „Hér hneig þá ein- hver mesti merkismaður, hneig seinna en vonlegt þótti þeim er til þess vissu, að hann þá fyrst lagðist fyrir er ekki var lengur annað hægt, lagðist fyrir þreytt- ur, þreyttur af embættis örðug- leika og áhuga, þreyttur af pínu- fullum sjúkdómi, þreyttur af ýmsu mótkasti, hvað enginn vissi sem sjálfur hann.“ Ættarmót í Hrísey Ættarmót afkomenda Jörundar Jónssonar, „Hakarla-Jorundar4, verður haldið í Hrísey 10. júlí 1993. Þátttaka tilkynnist til eftirtalinna aðila: Sigurðurs. 679936, Ævars. 38828, Sveinn s. 46704 og Jörundur s. 16894. KVÖLEÉliÓLI fjl KOMVOGS^ SPENNANDI NÁMSKEIÐ FATASAUMUR GARDYRKJA 6 vikna námskeið 5 vikna námskeið 24 kennslustundir 15 kennslustundir INNANHUSS- SKIPULAGNING 6 vikna námskeið 20 kennslustundir GÓMSÆTIR BAUNA-, PASTA- OG GRÆN- METISRÉTTIR 3 vikna námskeið 12 kennslustundir LETURGERÐ OG SKRAUTRITUN 6 vikna námskeið 20 kennslustundir TÖLVUNÁMSKEIÐ: Windows og Word Perfect fyrir Windows 3 vikna námskeið 20 kennslustundir innritun í símum 641507 og 44391 kl. 18-21. ÞJÓÐLÍFSPANKAR /Þarfekki ad gjaldafyrir alltf Hæðnispúkinn Ég kom til vinafólks míns eina helgina. í eldhúsinu var ljúf- ur bökunarilmur og á borði stóð plata með litlum margkorna bollum sem gerið var að lyfta í annað veldi. „Óskaplegur mynd- arskapur er þetta,“ sagði ég við húsmóðurina sem var í önnum við að hnoða þriðju brauðtegundina. „Maður er nú bara að reyna að spara,“ svaraði hún og blés hárlokk frá andlitinu. „Maður getur gert svo margt til þess, t.d. keypt súrmjólk í staðinn fyrir jógúrt, saumað í föt í staðinn fyrir að kaupa til- búið, jafnvel geta menn gert við bílana sína sjálfir,“ bætti hún við og skellti deiginu í skál til að láta það hefa sig. „Mest af öllu sparar maður þó með því að færa heimilisbókhald," sagði / húsbóndinn á heimilinu og rétti að mér tölvuprentaða bók- haldsáætlun sem hann hafði verið að semja fyrir heimili sitt. „Með þessu ætti maður að ná útgjöldunum talsvert niður,“ sagði hann sigri hrósandi Aleiðinni heim hugsaði ég um sparnaðaráform vinafólks míns. „Þau eru sannarlega góðra gjalda verð,“ segi ég við sjálfa mig.„Ekki síst er þarflegt að endurvekja þá fomu dyggð að fara vel með. Það hefur of lengi þótt hal- lærislegt og jafnvel úrelt sjónarmið hér.“ Púki efasemd- anna, sem situr alltaf um mig, tekur nú að blanda sér í málið. „Það er ekki víst að það sé ódýrara að baka brauð ef fólk bakar margkorna brauð, korn er misdýrt og svo verður að reikna rafmagnið með,“ segir púkinn. „Hættu □ eftir Guðrúnu Guólaugsdóttur þessu,“ tauta ég. „Svo er þetta með súrmjólkina, þó að þau kaupi ekki rándýrt morgunverð- arkom út í hana, þá setja þau ábyggilega púðursykur á hana, það þarf verulega að sverfa að fólki til að gera það ekki,“ held- ur púkinn áfram. „Hryllilega ertu nálegur,“ segi ég og fer að þykkna í mér. En púkinn lætur sér á sama standa. „Og hvað með alla bakarana og aðra iðn- aðarmenn sem verða atvinnu- lausir ef allir fara að gera allt sjálfir, riðar þá ekki sjálf samfé- lagsgerð okkar til falls,“ spyr hann háðslega. „Ekki nema að fólkið hætti vinnu sinni til þess að sinna sjálfsþurftarbúskapn- um,“ svara ég snúðugt. „Það væri ágætt, þá geta atvinnu- lausu bakaramir fengið vinnu sjálfsþurftarfólksins, það er bót í máli,“ segir púkinn og er greinilega létt. „Alla vega er þetta gott með heimilisbókhald- ið,“ bæti ég við læt nú kné fylgja kviði. „Það tekur mikinn tíma og krefst mikillar umhugsunar að færa slíkt bókhald í viðbót við allan brauðbaksturinn og aðrar sparnaðarráðstafanir,“ segir púkinn rólega. „Hvað með það,“ spyr ég. „Það var kannski eins gott að engar kassakvittan- ir og önnur nútíma bókhalds- gögn vora til á tímum Descartes og Shakespere, það er ekki víst að mikið lægi eftir þá ef þeir hefðu eytt öllum sínum tíma í heimilisbókhald og brauðbakst- ur,“ segir púkinn. „Svei þér,“ segi ég gröm. „Ég get huggað þig með því að í fæstum tilvikum dygði til þótt menn væra frelsað- ir frá bókhaldinu, fæstir yrðu snillingar á borð við þá ofant- öldu. Jafn augljóst er að fyrir lítið kemur að menn hafi brill- íant hæfileika ef þeir komast ekki til að nýta þá fyrir búskap- arbasli. Það eru gömul sannindi að það þarf að gjalda fyrir allt. Ergo: Ef menn vilja komast hjá því að sóa peningum gjalda þeir fyrir með því að sóa lífi sínu í endalausan brauðbakstur og bókhaldsfærslur, segir púkinn. „Þú ert andstyggilegur hæðn- ispúki,“ segi ég og beygi inn í innkeyrsluna heima hjá mér. „Ég ætla alla vega að baka boll- ur á eftir hvað sem öðru líður,“ bæti ég við og skelli bílhurðinni á nefið á glottandi púkanum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.