Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRUAR 1993
B 15
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á líkaninu blasir Arnarhóllinn við, til vinstri er Seðlabankinn og til
hægri Stjórnarráðshúsið. En á miðri mynd, andspænis Arnarhólnum,
er hin nýja skiptistöð SVR á 4 hæðum og þar má koma fyrir sviði,
sem vel sést á frá Amarhóli. Framkvæmir verða unnar í áföngum
og byrjað á þessu ári.
UMFERÐIN MUN
GREIÐARI í HAUST
Miklar framkvæmdir í miðborginni
Miklar framkvæmdir hafa verið
undanfarin tvö ár í miðborg
Reykjavíkur og verða enn meiri á
þessu ári. Reykjavíkurhöfn vann á
síðasta ári að endurgerð Miðbakka.
Því verki á að ljúka á þessu ári og
er stefnt að því að skemmtiferða-
skip geti lagt að bakkanum fyrir
lok júnímánaðar, að því er Stefán
Hermannsson borgarverkfræðing-
ur upplýsti er hann var sj>urður
um hvað yrði helst farið í. A sama
tíma verður Geirsgata meðfram
bakkanum tilbúin og Pósthússtræti
og verður umferð að bakkanum því
um Pósthússtræti fram á haustið.
Nýi bakkinn er lagður á skakk
miðað við þann gamla, þannig að
bakkastæðið stækkar að vestan.
Stefán sagði mjög mikilvægt að
fólk átti sig á þeim breytingum sem
verða á umferðarskipulagi mið-
borgarinnar á þessu ári og hinu
næsta. Geirsgata verður lögð í 4
akreinum frá Kakofnsvegi eftir
Miðbakka norðan við Hafnarhúsið
og Tollstöðina að Mýrargötu við
Hafnarbúðir. Mun þessu verki ljúka
í haust og verður umferð mun
greiðari, bæði fram hjá miðborg-
inni og að henni. Ljósastýrð gatna-
mót verða á Geirsgötu við Lækjar-
götu, Pósthússtræti og vesturenda
Tryggvagötu. í hinni endanlegu
útfærslu, sem væntanlega kemst á
á næsta ári, verður austurendi
Tryggvagötu skiptistöð fyrir SVR
og ekki ætlaður annarri umferð.
Skiptistöð nær frá Pósthússtræti
að Lækjargötu á móts við Hverfis-
götu. Þá lokast Hafnarstræti í aust-
urendann og þeir sem koma eftir
Hafnarstræti úr vestri þurfa að
fara Pósthússtræti út í Geirsgötu.
Á þessu ári verður skiptistöðin
ekki gerð, að því er Stefán segir,
og því líklegt að veturinn 1993-
1994 verði umferð um Hafnar-
stræti upp í Hverfisgötu eins og
verið hefur. En fyrirhugað er að
breyta Hverfísgötu í tvístefnugötu
um leið og skiptistöðin opnar. Við
skiptistöð SVR verður bygging sem
bæði hýsir aðstöðu fyrir farþega,
vagnstjóra, vagnstæði, nokkurt
verslunarrými og bílastæði á 4
hæðum. Vestast í bílastæðahúsinu
verður uppkeyrsla sem jafnframt
veitir aðgang upp á þak Tollstöðv-
arinnar. Verður húsið væntanlega
reist í áföngum.
í miðbænum sunnanverðum
verða einnig endurbætur og fram-
kvæmdir og talsvert rask. A árinu
1991 var Tjamargata endurbyggð
suður fyrir Ráðhús. Nú verður
haldið áfram alla leið að Skothús-
vegi, gatan og lagnir í henni endur-
nýjaðar og bakkinn.endurbyggður
samkvæmt teikningu Kjartans
Mogensens landslagsarkitekts.
Ingólfstorg verður gert, að með-
töldu Aðalstræti meðfram torginu,
og Veltusundi, eins og áður hefur
verið lýst í Morgunblaðinu. Ýmsar
framkvæmdir eiga að hefjast í apríl
og verður lokið 15. september ef
allar áætlanir standast. Sagði Stef-
án að við skipulagningu þessara
framkvæmda yrði leitast við að
trufla aðkomu að húsunum sem
minnst.
sem voru tveir ávalir samhliða hrygg-
ir. En af gömlum uppdráttum var
ekki annað sýnna en að steinveggir
liggi með tröðunum. Voru grafnir
könnunarskurðir og í traðarbotninum
var mold, þá þykkt malarlag og und-
ir því gijót, en undir moldarhryggj-
unum mikið gijót. Getur Þorkell
Grímsson þess á einum stað í skýrslu
sinni að steinlagði traðarbotninn og
malarlagið e.t.v. einnig hafí verið
lagður að tilhlutan stiftsyfirvalda, en
fangar úr hegningarhúsinu, látnir
vinna að þessari vegagerð. Ekki var
frekar grafíð þama.
Arnarhólsbærinn var jafnaður við
jörðu 1828. Stjómarráð íslands var
byggt í Arnarhólstúni 1764 og þá
sem betrunarhús. Það var aflagt
1813 og þá breytt í vistarverur fyrir
stiftamtmann og síðar fyrir aðsetur
landshöfðingja, en 1904 tók stjórnar-
ráð íslands við. Stiftamtmenn fengu
fljótlega afnot af Arnarhólstúni og
héldu landshöfðingjar þeim hlunnind-
um. Héldu þeir fast í afnotaréttinn
og þakka margir því að heimatún
Amarhóls hefur lítið verið skert til
þessa dags. Þó hefur oft verið sóst
eftir því fyrir stórbyggingar, svo sem
til að byggja Latínuskólann 1842,
en það þótti þá of langt frá byggð-
inni. Auk þess kom til umræðu að
byggja þar Landsbanka, Alþingis-
hús, Landspítala, Háskólann og jafn-
vel ráðhús Reykjavíkurborgar, en um
aldamótin 1900 var lengst komið að
veita leyfí, þegar frú Helga Bryde,
kona Jóns Konsúls Vídalín, vildi fá
heimild til að reisa á hólnum glæsi-
lega hallarbyggingu. Kom þá Sigurð-
ur Pétursson verkfræðingur frá Ána-
naustum í veg fyrir það með tillögum
um að gera hafnarmannvirki í fjör-
unni neðan við Amarhól. Margt nú-
tímafólk segir eflaust guði sé lof.
Og enn á Amahóllinn að halda áfram
að vera græn grasflöt með þægileg-
um stígum fyrir fótgangendur og
með óskertu úsýni frá styttunni af
Ingólfí Amarsyni út yfír Sundin og
inn til miðborgarinnar.
Árið 1863 varpaði Sigurður Guð-
mundsson málari fram þeirri hug-
mynd að Ingólfi landnámsmanni yrði
reist minnismerki á Amarhóli og
yrði það fullbúið 1974. Ekkert varð
úr því. Árið 1906 hóf iðnaðarmanna-
félagið í Reykjavík undirbúning þess
að minnismerkið yrði gert. Var sam-
ið við Einar Jónsson myndhöggvara
um gerð þess og var það afhjúpað
1924. Og enn mun Ingólfur halda
áfram að horfa á sjó út í vestur af
há Arnarhólnum, eftir að styttan og
stallurinn undir honum, sem orðinn
er býsna lasinn, hafa fengið andlits-
lyftingu.
F ■
6 vikna námskeið
hefst 15.febrúar
Kennari: Hany Hadaya
Byrjendurog
framhaldshópar
Fyrsta tangóball
Tangóklúbbs Kramhússins
4. marsáSólon íslandus.
HEFUR ÞIG DREYMT UM AÐ
EIGNAST Miele UPPÞVOTTAVÉL?
MIELE G579SC: 8 ÞVOTTAKERFI, 3 HITASTIG,
HNÍFAPARASKÚFFA OG MIELE GÆÐI.
s J Jóhann
Opnunartími mánudaga til
Lokað á laugardögum
*Verð miðast við gengi
TILBOÐSVERÐ: 89.522,- KR.
VENJULEGTVERÐ: 108.872,-
Tilboðið gildir meðan birgðir
slndaborí; i.i • io4
Þessi auglýsing er birt í uppljsingaskyni ogfelur ekki í sér tilbób um sölu hlutabréfa.
HAMPIÐJAN
kt. 590169-3079
Stakkholti 2-4, 105 Reykjavík.
Tilkynning um skráningu hlutabréfa á
Verðbréfaþingi Islands
Frá og með 17. febrúar 1993 verða hlutabréf í Hampiðjunni hf.
skráð á Verðbréfaþingi Islands.
Skráningarlýsing hlutabréfanna, ársreikningur og samþykktir
Hampiðjunnar liggja fyrir hjá Verðbréfamarkaði Islandsbanka,
Armúla 13a.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26.
Gódan daginn!