Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 4

Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993 Um 1.500 manns sáu íslenskar kvik- myndir í New York New York. Frá Huga Ólafssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. AÐSÓKN á fyrstu íslensku kvikmyndahátíðina í Bandaríkjunum, sem er nýlokið, var mjög góð og framar vonum, að sögn aðstandenda hennar og Angelika-kvikmyndahússins í New York. Angelika íhugar nú að taka mynd Óskars Jónassonar, Sódómu Reykjavík, til sýningar í haust, en það yrði líklega í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd yrði sýnd á almennum sýningum vestanhafs, fyrir utan hátíðir og kynning- ar. „Við höfum ekki haldið margar hátíðir af þessu tagi áður, en þessi á aðsóknarmetið hingað til“, sagði Eva Saleh, einn aðstandenda Angel- ika og nefndi til að fleiri hefðu kom- ið á hana en ítalskar og japanskar hátíðir sem húsið sýndi. Hún sagði að áhugi Angelika á Sódómu Reykja- vík væri m.a. til kominn vegna þess að hún var valin á Cannes-hátíðina, en titil myndarinnar yrðu líklega breytt í „Remote Control" eða „Fjar- stýringu" í New York. Nærri 900 manns sáu íslenskar myndimar á hátíðinni, Böm náttúr- unnar, Karlakórinn Heklu, Magnús, Ryð, Svo á jörðu sem á himni og Veggfóður, sagði Gunnar Hrafn Friðriksson, formaður undirbúnings- nefndar og sagðist vera mjög ánægður með útkomuna. Þá sáu á milli sex og sjö hundmð manns kvikmyndina Inguló á Nú- tímalistasafninu í New York, en hún var sýnd þar á annarri af tveimur helstu kvikmyndahátíðunum í borg- inni á sama tíma og íslenska hátíðin stóð yfir. Gunnar Hrafn sagði að flestar íslensku myndanna hefðu verið sendar frá New York til Boston til sýningar þar og þær myndu síðan fara til Minneapolis, Chicago, Seattle og Los Angeles. Morgunblaðið/Þorkell Ein með öllu ÞAÐ er gaman að skreppa með mömmu í bæinn og fá svo kannski eina pylsu með öllu, áður en lagt er af stað heim aftur. Það getur hins vegar verið þrautin þyngri að ráða við svo umfangsmikla máltíð. Borgarráð styrkir markaðssetningu Búnaður til rann- sókna á ósjálfráða taugakerfinu BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu atvinnumálanefndar um að veita Hugrúnu hf. styrk að fjárhæð 2,5 miHjónir króna til að markaðssetja búnað til rannsókna á ósjálfráða taugakerfinu. Verður styrkurinn greiddur um leið og fyrirtækið getur sýnt fram á að fjármögnun verkefnisins sé tryggð að öðru leyti. Á fundi borgarráðs lagði Kristín Á. Ólafsdóttir, Nýjum vettvangi, fram tillögu um að samþykkt yrði að veita Hugrúnu hf. 4 milljóna króna víkjandi lán til að markaðs- setja verkefnið. Tillagan var felld en tillaga atvinnumálanefndar sam- þykkt samhljóða. Kristín óskaði þá eftir bókun, að þar sem hennar til- laga hafi verið felld styddi hún tillög- una um beinan styrk borgarinnar við_ verkefnið. í erindi Hugrúnar til atvinnumála- nefndar segir, að fyrirtækið og rann- sóknarstofa geðdeildar Landspítal- ans hafi í sameiningu þróað búnað, mælitæki og hugbúnað til rannsókna á ósjálfráða taugakerfínu í mönnum. Fram kemur að nokkur eintök bún- aðarins hafa verið í notkun hérlend- is undanfarið ár og telst þróunarfer- il hans lokið og hann tilbúinn til dreifingar. í undirbúningi er markaðssetning í Bandaríkjunum og er heildarkostn- aður áætlaður tæpar 11 milljónir. Þar af geti Hugrún hf. fjármagnað 3 milljónir. Ráðist á fyrirliða Víkinga í Hannover Rændur og rot- aður í húsasundi ATLI Helgason, fyrirliði knatt- spymuliðs Víkings, var rotaður og rændur þegar liðið var við æfingar í Hannover í Þýskalandi í síðustu viku. Atli var ásamt félaga sinum Herði Theódórs- syni á leið á hótel hópsins í miðbæ Hannover rétt fyrir mið- nætti að kvöldi föstudagsins langa þegar hann var rotaður og rændur jafnvirði um það bil 20 þúsundum króna. „Við vorum að bíða eftir leigu- bíl og ég var svo kærulaus að hlaupa inn í sund til að létta á mér. Mér finnst að ég hafi séð kylfu á lofti en svo steinrotaðist ég og man ekki eftir mér fyrr en ég var á leið inn í sjúkrabíl, eftir a.m.k. 10-20 mínútur,“ sagði Atli. Hörður Theódórsson, félagi Atla, hafði einskis orðið var en þegar hann fór að undrast um Atla og leitaði að honum inni í sundinu kom hann að honum meðvitundarlausum. Hörður varð ekki var við árás- armanninn eða -mennina, frekar en Atli Helgason, sem segist enga grein gera sér fyrir því hverjir hafi ráðist á sig og hvaðan þeir hafi komið. Atli Helgason var fluttur á sjúkrahús í Hannover til rannsókn- ar og aðhlynningar. Saumuð voru um það bil 10 spor í hnakkann á honum. Atli var síðan útskrifaður eftir nokkurra klukkustunda rann- sóknir og myndatökur og kom -heim á laugardag eins og ráðgert var, en flestir í liðinu komu heim á páskadag, eftir vikudvöl í Hannover. í samtali Morgunblaðsins við Atla Helgason kom fram að hann er ekki eini íslenski íþróttamaður- inn sem orðið hefur fyrir árás í Hannover. í fyrra var ráðist á þrjá leikmenn úr Fylki í borginni, skammt frá þeim stað þar sem á Atla var ráðist. I/EÐURHORFUR í DAG, 14. APRÍL YFIRLIT: Yfir norðvestanverðu landinu er nærri kyrstæð 1.000 mb lægö og önnur álfka vestnorövestur af Snæfellsnesi. Yfir norðaustur Grænlandi er 1.034 mb hæö. STORMVIÐVÖRUN: Gert er ráð fyrir stormi á Grænlandssundi. Suðvestan gola eða kaldi sunnanlands en suðaustlægari, gola eða kaldi á Norður- og Austurlandi. Hiti verður 2-9 stig að deginum en víöa niður undir frostmark í nótt. SPÁ: Norðaustan kaldi og él á Vestfjörðum, suðvestan gola eða kaldi og skúr- ir sunnanlands en sunnan- og suðaustan gola eða kaldi á Norður og Austur- landi. Skýjað og lítils háttar rigning eða súld á Austfjörðum en öllu bjartara veður og að mestu þurrt á Norðurlandi. Hiti 2-9 stig yfir hádaginn, hlýjast norðaustanlands en nálægt frostmarki um nóttina. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðaustan kaldi og él á Vestfjörðum en breytileg átt, gola eða kaidi og slydduél i öðrum landshlutum. Hiti verður 0-4 stig aö deginum en víðast veröur frost yfir nóttina. HORFUR Á FÖSTUDAG: Nokkuð stíf norðlæg átt verður vestantil á landinu en hægari breytileg átt austan til. Slydduél verða norðanlands en skýjað með köflum og hætt við skúrum syðra. Hiti verður 1-6 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsímí Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt r r r ' r r r Rigning Léttskýjað * r * * / r * r Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma Skýjað Alskýjað V § ý Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrírnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.4 10° Hitastig v Súld = Þoka i'ig-i FÆRÐÁ VEGUM: (Kl.17.30(gær) Það er góð færð á öllum helstu þjóðvegum landsins, sem á annað borð eru færir á þessum árstíma, og eru Möðrudalsöræfi fær, en Vopnafjarðarheiði og Hellisheiði eystri eru aðeins fær jeppum. Þungatakmarkanir, vegna aur- bleytu, eru víða á landinu, og eru þessar takmarkanir sýndar með merkjum við viðkomandi vegi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjevik hiti 8 3 veður skýjað skýjað Bergen 7 léttskýjað Helsinki 5 skýjað Kaupmannahöfn 7 léttskýjað Narssarssuaq +2 snjókoma Nuuk -5-8 skýjað Otíó 7 skýjað Stokkhólmur 10 léttskýjað Þórshöfn 6 rigning Algarve 16 skýjað Amsterdam 12 mistur Barcelona 16 hálfskýjað Berlín 11 skýjað Chicago 3 alskýjað Feneyjar 16 rigning Frankfurt 12 skúr Glasgow 8 rigning Hamborg 10 skýjað London 10 mistur Los Angeles 13 skýjað Lúxemborg 9 skýjað Madríd 11 skúr Malaga 18 skýjað Mallorca 17 skýjað Montreal 3 alskýjað New York 6 léttskýjað Orlando 16 þokumóða Parf6 7 rlgning á sið. klst. Madelra 17 hálfskýjað Róm 17 hálfskýjað Vín 9 skýjað Washington 7 alskýjað Winnipeg 2 skýjað Ekki lagst gegn niðurrifi húsanna NEFND borgarinnar um húsfriðun telur ekkert því til fyrirstöðu að húsið við Lindargötu 24 verði rifið, en verði það gert er óskað eftir heimild til að hirða úr húsinu það sem þykir þess virði. Þá er ekki talin ástæða til leggjast gegn niðurrifi hússins við Lindargötu 26. Borgarráð samþykkti að vísa erindinu til umhverfismálaráðs. Á fundi borgarráðs fyrir páska kom fram erindi frá framkvæmda- stjóra lögfræði- og stjórnsýsludeild- ar um heimild til að kaupa lóðir og húseignir undir leikskóla fyrir Skúlagötusvæðið. Um er að ræða fasteigninar Lindargötu 24 og 26 til niðurrifs auk lóðarinnar við Veg- húsastíg 3 og 5 ásamt húseign á síðarnefndu lóðinni sem nýta mætti undir leikskóla. Seljandi Lindar- götueignanna er Film hf. og er kaupverðið 14 milljónir, en kaup- verð Veghúsaeignanna er 11 millj- ónir og er seljandinn Veghús hf. í lýsingu Nikulásar Úlfars Más- sonar, safnvarðar í Árbæjarsafni, á húsinu við Lindargötu 24 kemur fram að það var byggt árið 1906 og að fyrsti eigandi hafi verið frú Vilborg Grímsdóttir. Húsið á Lind- argötu 26 var byggt árið 1909 af Bjarna Jónssyni, þeim hinum sama og byggði Bjarnaborg. Lagt er til að kannað verði hvort ekki sé hægt að nýta húsin í tengslum við fyrir- hugaðan gæsluvöll. HM í þolfimi í Japan Magnús hafn- aði í 3. sæti MAGNÚS Scheving hafnaði í 3. sæti á Suzuki-heimsbikarmótinu í þolfimi sem lauk í Japan sl. sunnu- dag. Japanir urðu í 1. og 2. sæti en aðeins eitt stig skildi að Magn- ús og Japanann sem varð í öðru sæti. Hann hlaut 170,40 stig en Magnús 169,40 stig. Magnús Scheving var eini karl- kyns keppandinn frá Evrópu sem komst í tíu manna úrslit og þykir árangur hans afar góður. Þessi keppni er af sumum talin ein sú erfið- asta sem haldin er í þolfimi en þátt- takendur voru frá 28 þjóðum. Auk Magnúsar keppti Þóranna Rósa Sigurðardóttir í kvennaflokki og Anna Sigurðardóttir og Karl Sig- urðsson í parakeppni, en ekkert þeirra komst í tíu manna úrslit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.