Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 11
voru einnig með miklum ágætum.
Með hlutverki Svanhildar nær Lára
meiri þroska í dansi og túlkun, en
hún hefur áður sýnt.
Eldar Valiev dansaði Frans á %
frumsýningu. Hann kom seint til
verksins, en stóð sig með stakri
prýði. Skóli hans er rússneskur,
látbragðið skýrt og hann kemur .
hlutverki Frans mjög vel til skila,
þó stundum væri hann ekki alveg
nógu aðsópsmikill. Eldar virðist
góður mótdansari og „pirouettar",
eða snúningar hans hreint á heims-
mælikvarða.
Það er leikari í hlutverki dr.
Coppeliusar og á frumsýningu var
það Björn Ingi Hilmarsson. Björn
er þarna að leika/dansa langt upp-
fyrir sig í aldri, en hann er trúverð-
ugur allan tímann. Hann fylgir tón-
listinni á annan hátt en dansararn-
ir. Hann er, og á að vera, inní henni
og allt um kring og það gengur upp.
Vinkonur Svanhildar (Helena
Jóhannsdóttir, Birgitte Heide,
Jsnine Noelle Bryan og Lilia Vali-
eva) koma nánast fram sem einn
hópur og þó að stundum hafi skort
á samstilltan dans, voru heildar-
áhrifin góð og látbragðið gott.
Þarna birtist líka kornungur dans-
ari, Nicolette Salas, og dansaði sóló
í 3. þætti af einstökum ágætum.
Seinna mun hún dansa hlutverk
Svanhildar og er undirritaður þegar
farinn að hlakka til. Aldrei fýrr
hefur íslenski dansflokkurinn heft
jafnmörgum góðum karldönsurum
á að skipa og núna. Vinir Frans
(Mauro Tambone, Hany Hadaya,
David Greenall og Anthony Wood)
voru stórgóðir með kraftmikinn
ljaðurmagnaðan dans og reyndar
var Anthony að sýna betri dans en
hann hefur áður sýnt með flokkn-
um.
En Coppelia er einnig sýning
Listdansskóla íslands. Þó að stund-
um hafi ókyrrð verið í flokki yngstu
dansaranna, sem á köflum virkaði
truflandi á heildarmyndina, er eng-
um blöðum um það að fletta, að
skólinn er á réttri leið. Yngri dans-
ararnir voru þarna að dansa sýna
fyrstu sýningu og stóðu sig eins
vel og unnt var að búast við. En
uppúr stendur Marsúrka elstu nem-
endanna í 1. þætti, sem var dansað-
ur af slíkri snerpu, krafti og ögun,
að aðdáunarvert var.
Eftir stendur spurningin: Gengur
sýningin upp, tekst galdurinn?
Svarið er já. Galdurinn tekst, sýn-
ingin lifnar fyrir augum leikhús-
gesta og lifir með þeim lengi. Ævin-
týrið um Coppeliu tendrast lífi á
sviði Borgarleikhússins.
listdans. Fyrir það verðum við ævin-
lega þakklát,“ segir Bisted.
Aðspurður hvað hann teldi að hefði
breyst frá því hann var við stjórnvöl
listdansins hér á landi, sagði Bisted:
„Það er sjáifsagt ýmislegt sem hefur
breyst. Dansinn er mun nær því í
dag að vera atvinnugrein, en hann
var þá. Aginn hefur aukist til muna,“
segir Bisted og hlær við, „því ég
minnist þess að stelpunum mínum
fannst nóg til um þann aga sem ég
hafði á mínum nemendum. Sérstak-
lega man ég eftir því hversu baldin
hún Biyndís gat verið! Raunar var
hún og er áreiðanlega enn þann dag
í dag heilmikill prakkari! Þeim fannst
öllum sem ég væri strangur kennari,
en ég hafði og hef þá skoðun að án
aga, nái listafólk aldrei langt í list-
grein sinni. En þrátt fyrir agann,
varð ég góður vinur allra stelpnanna
og allar götur síðan hefur mér þótt
afar vænt um þær.“
„I gær sá ég svo ekki verður um
villst, að ballettnum sem listgrein
hefur miðað vel áfram frá því ég fór
héðan fyrir 35 árum og það gladdi
mig. Ég er viss um að í Listdans-
skóla íslands er unnið mikið og gott
starf. Raunar var ég sannfærður um
það eftir dvöl mína hér, að dansinum
ætti eftir að fleygja fram hér á landi,
og því get ég ekki sagt að ég hafi
verið svo undrandi í gær miklu frek-
ar glaður."
Þar með er friðurinn úti, því
„stelpurnar" hans Eriks Bisted þyrp-
ast allar að til þess að knúsa og
kyssa þetta gamla átrúnaðargoð sitt.
A.B.
MOKGUNBLAÐIÐ..
Einar Garibaldi Eríksson. Morgunblaðið/Sverrir
Málverkið er tafl
- segir Einar Garibaldi Eiríks-
son sem sýnir í Norræna húsinu
NYLEGA hófst í Norræna húsinu málverkasýning Einars
Garibaldi Eiríkssonar og stendur hún til 18. apríl eða næstu
helgar. Sýningin nefnist í votri gröf og á henni eru rúm-
lega 20 málverk, unnin með olíu og blandaðri tækni. Verkin
eru öll unnin á síðastliðnum tveimur árum.
hafið að einhveiju öðru. „í votri
gröf vísar bæði inn í verkin og til
þeirrar kímilegu staðreyndar að ég
er að sýna í kjallara úti í mýri,“
segir hann. „Síðan bíður maður i
ofvæni eftir að rísa upp aftur og
sjá hvað verður úr.“ Flest öll verkin
sýna útlínur mannvera í mismun-
andi römmum og rými. í grein sem
Aðalsteinn Ingólfsson ritar í sýning-
arskrá þar sem listamaðurinn er
ávarpaður beint, segir: „Nóg er um
afdrepin í málverkum þínum, íveni-
staði manngervinga sem virðast
allt að því bijóstumkennanlegir,
stöðluðu konunnar og staðlaða
bindisláfsins sem er stundum eins
og einn af innantómu körlunum
hans Eliots. En þessir íverustaðir
hjá þér líta stundum út eins og ein-
angrunarklefar, grafhvelfingar, svo
ekki sé rninnst á móðurlíf." Einnig
bregður fyrir í verkunum útflatta
saltfiskinum sem var í skjaldamerki
íslands fyrr á öldum, og tákni sem
sjónvarpsáhorfendur ættu að
þekkja vel. Einar Garibaldi segir
að gestum létti ákaflega að geta
séð kunnuglegar myndir í verkun-
um, enda eigi þær fremur að undir-
strika svör sérhvers áhorfenda en
einhver skilaboð af hans hálfu. „Ég
reyni að ná útfyrir orðið sem lokar,
dregur hring, og beiti tungumáli
myndlistarinnar til að ná fram sjón-
rænum skírskotunum. Ég lagði ekki
af stað með einhveija heildarmynd
í huga, en eftir á kemur ákveðin
lína í ljós. Þó ekki eins og ég sé
að koma ákveðnum boðum til skila,
eða grunnþráðurinn sé til staðar.
Ef það er einhver regla í mínum
myndum þá er það kannski sú að
setja mér ekki reglur, en vera þó
meðvitaður um ákveðna hefð og
vinna ekki gegn henni, heldur reyna
að nýta sér hana, möguleikarnir eru
óendalegir. Þetta er eins og að tefla
skák, þar er allt hægt innan ákveð-
ins ramma, jafnvel fyrir peð, peð
eins og mig, bara að ná nú upp í
áttunda reit.“
Einar Garibaldi er fæddur á
ísafirði árið 1964. Hann stundaði
nám við Myndlistar- og handíða-
skóla íslands 1980-1985, og við
Accademia di Belle Arti di Brera í
Mílanó 1986-1991. Hann hefur
tekið þátt í níu samsýningum síðan
1983, og haldið fjórar einkasýning-
ar síðan 1984, nú seinast á Ítalíu
í fyrra.
Einar Garibaldi segir sýningina
í Norræna húsinu endapunkt á
ákveðnum ferli, sem síðan er upp-
Háskólatónleikar
Kjartan og
Sigurður
leikajazz
SÍÐUSTU Háskólatón-
leikar vetrarins verða í
dag kl. 12.30 í Norræna
húsinu. Fram koma Sig-
urður Flosason saxafón-
leikari og Kjartan Valdi-
marsson píanóleikari.
Þeir munu leika tónlist
eftir Richie Beirach,
Thelonius Monk, Árna
Egilsson og sjálfa sig á
baritón saxafón og píanó.
Sigurður og Kjartan hafa
verið framarlega í flokki ís-
lenskra jazztónlistarmanna
um nokkurra ára skeið. Báðir
léku þeir meðal annars í ís-
lenskum jazzkvartett sem
komst í úrslit Evrópukeppni
ungra jazzmanna árið 1990,
en efnisskrá þeirrar hljóm-
sveitar samanstóð eingöngu
af verkum eftir Kjartan og
Sigurð. Þetta eru fyrstu dúó-
tónleikar þeirra félaga.
BORGAREIGN
fasteignasala
Suðurlandsbraut 14
678221
fax: 678289
Klapparstígur - 4ra
Glæsileg 120 fm íbúð tilbúin undir tréverk í nýju blokkun-
um á Völundarlóðinni. íbúðin er björt og rúmgóð.
Oviðjafnanlegt útsýni. Mjög góð greiðslukjör oq miöq
gott verð.
Alhliða ráðgjöf - ábyrg þjónusta
Gudmundur Sigþórsson sölustjóri,
Skúli H. Gisluson sölumaóur,
Kjartun Ragnars hrl.
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignabali
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Glæsileg eign á frábærum stað
Einbhús - steinhús ein hæð 171,3 fm nettó við Selvogsgrunn töluv.
endurn. Bílsk. tæpir 30 fm. Glæsil. trjágarður.
í Garðabæ - bílskúr - útsýni
Nýl. og góð 4ra herb. íb. v. Lyngmóa. Vinsæll staður. Tilboð óskast.
Við Jöklafold - tilboð óskast
Ný og glæsil. 3ja herb. ib. á 2. hæð 82,3 fm nettó. Þvkrókur á rúmg.
baði. Parket. Fullgerð sameign. 40 ára húsnlán kr. 4,9 millj.
Hveragerði - einbhús - tilboð óskast
Mjög gott sænskt timburh. um 120 fm auk bílskúrs. Ræktuð lóð. Laust
strax. Skipti mögul. á lítilli ib. i borginni eða nágr.
Stóragerði - Fellsmúli
3ja og 4ra herb. íb. á þessum vinsælu stöðum í borginni. Leitið nánari uppl.
Skammt frá Hlemmtorgi
í reisul. tvíbhúsi 3ja herb. lítil en vel skipul. neðri hæð. Nýl. eldhús.
Laus strax. Tilboð óskast.
Skammt frá Menntask. við Hamrahlíð
neðri hæð i þríbhúsi um 140 fm. Allt sér. Stórt geymslu- og föndurherb.
í kj. Ágætur bílsk. 28 fm. Eignin er öll eins og ný.
Tvíbhús óskast
Þurfum að útvega húseign m. stórri íb. og 2ja-3ja herb. íb. Ennfremur
húseign m. tveimur 3ja-4ra herb. íb. Má þarfn. endurbóta.
I Vogum - nágrenni óskast
lítið einbhús í skiptum fyrir
stærra íhverfinu.
AIMENNA
FASTEIGNASAl AM
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
rf ÁSBYRGIrf
Suðurlandsbraut 54 við Faxafen, 108 Reykjavik.
Simi: 682444, fax: 682446.
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali.
SÖLUMENN: Örn Stefánsson og Þórður Ingvarsson.
Flókagata — bílskúr
2ja herb. 46 fm kjíb. i þribhúsi ásamt 40
fm bílsk. Allt ný standsett. Verð 5,5 millj.
Engjasel — 2ja
Rúmg. 2ja herb. íb. rúml. 55 fm í kj. (jarðh.,
lítið niðurgr.) ásamt stæði í bílskýli. Áhv.
1,2 millj. Verð 5,0 millj.
Miðbær — húsnlón
Mjög skemmtii. 2ja herb. íb. ca 65
fm é 1. hæð í nýl. húsi. Sérinng.
Staeði í bílskýli. Verð 6,9 millj. Áhv.
4750 þús.
Hæðargarður — 2ja — laus
2ja herb. góð 64,2 fm fb. á jarðh. t tvíb.
Ákv. sala. Verð 5,4 millj.
Veghús — 3ja
Mjög falleg 95,2 fm ib. á 3. og 4.
hæð i lltlu fjölb. Vandaðar innr.
Áhv. 4,8 míllj. byggjs. Verð 8,6 millj.
Furugrund — 3ja
3ja herb. 85 fm góð endaib. á 1.
hæð. Laus fljútl.
Seljavegur — ris
Góð 3ja herb. 69 fm íb. á rishæð.
Laus strax. Verð 5,7 millj.
Smáíbúðahverfi — hæð
131,5 fm hæð í þrtbýlish. Endurn. eldh.
og bað. 3-4 svefnherb. Parket. Bílskr.
Verð 10,8 millj.
Skógarás — bíiskúr
Góð 93,7 fm ib. á 1. hæð ásamt 25,4 fm
fokh. bílsk. Áhv. 3,0 millj. byggsj. V. 7,8 m.
Kársnesbraut — hæð
Góð efri hæð i tvib. 98 fm ásamt
36 fm bílskúr. Verð 8,7 millj.
Dalhús — raðh.
Glæsil. fullb. 188,4 fm raðh. á
tveimur hæðum m. innb. bilsk.
Vandaðar ínnr. Parket, flisar. Áhv.
3,6 millj, byggsj.
Seljahverfi
— 2ja íbúða hús
Glæsil. rúml. 330 fm einb. ésamt bílsk. á
góðum stað. Séríb. á jarðhæð. Garðskáli,
arinn o.fl. Verð 19,5 millj. Ath. skipti á
minni eign.
Logafold — einb.
Fullb. ca 215 fm einb. Innb. ca 50 fm
tvöf. bílsk. 35 fm suðvestursv. Útsýni.
Áhv. 5,0 millj. Verð 16,0 millj.
I smíðum
Álftanes — einb.
Höfum til sölu sérl. skemmtil. einb.
á einni hæð ca 230 fm á glaBsil.
útsýnislóð. Teikn. og skrifst. Áhv.
húsnlán til 40 ára oa 5,0 m.
Ljósheimar — 4ra
4ra herb. 99 fm íb. á 2. hæð í lyftuh.
Parket. Skipti mögul. á 3ja herb. íb.
Dúfnahólar — 4ra
Falleg 103 fm ib. á 3. hæð. Góöar innr.
Nýtt gler. Húsið er nýviðg. að utan. Útsýni.
Melabraut — sérhæð
131 fm 5 herb. efri sérhæð í þríbhúsi. 2
saml. stofur, 3-4 svefnherb. Herb. og
geymsla I kj. Bílsk. Áhv. langtlán 3,5 millj.
Verð 11,5 millj.
Egilsborgir — „penthouse"
Glæsil. 120 fm „penthouse''-ib. á tveimur
hæðum ásamt bílskýli. íb. selst tilb.
trév. og máln., sameign fullfrág. Verð 8,8
millj. Til afh. strax.
Lindarsmári — raðh.
180 fm raðhús á tveimur hæðum
ásamt 24 fm bilsk. Húsíð afh. tilb.
u. trév. að innan og fullfrág. að
utan, lóð gröfjöfnuð. Tll afh. strax.