Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 13

Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993 Abstraktverk í Gunnarssal Á MÁNUDAG, annan í páskum, opnaði sýning á myndverk- um úr eigu hjónanna Gunnars Sigurðssonar og Guðrúnar Lilju Þorkelsdóttur í Gunnarssal. Gunnar Sigurðsson rak á sjötta áratuginum Listvinasalinn við Freyjugötu, nú Ásmund- arsal, og tók virkan þátt í baráttu ungra listamanna fyrir framgangi óhlutbundinnar myndlistar og voru þær sýningar sem haldnar voru í Listvinasalnum oft umdeildar. Gunnar var haukur í horni list- arinnar eins og ýmsir velgjörðar- menn hennar erlendis, og í grein eftir Björn Th. Björnsson sem hann ritaði um Gunnar fyrir nokkrum árum segir: „Hér heima eignaðist bylgja abstraktmál- verksins einnig sinn mann og hann furðu líkan hinum frægu forverum sínum: Gunnar Sigurðsson í Geysi. Slíkir menn - og það veit ég af eigin raun um Gunnar - nálgast listina af djúpri eðlisþörf og sú birting samtímans sem í henni felst, hversu ögrandi sem hún er öðrum, er þeim eins og sjálfstján- ing. Því leita þeir heldur aldrei aftur fyrir sig. Það sem er liðið, er ekki lengur á dagskrá, og hneykslun er ekki til í þeirra orða- bók, nema á því sem illa er gert eða með hálfum huga. Þeir eru í senn opnir fyrir hverri nýlundu og skeleggir gagnrýnendur, þeir eru innan veggja og listmæti verks skiptir þá öllu máli.“ Ekki er leng- ur deilt um réttmæti abstraktlistar og margir frumherjanna eru í dag mikils metnir, jafnvel taldir hefð- bundnir. Sýning á abstraktverkum úr safni Gunnars og Guðrúnar gefur heillega og áhugaverða mynd af þeim umbrotatímum sem urðu í íslenskn myndlist á eftir- stríðsárunum. Á sýninguna „Ab- strakt“ hefur verið kappkostað að velja eingöngu óhlutbundnar myndir, flestar frá sjötta áratugin- um, margar í anda þeirrar réttrú- arstefnu sem kennd er við geó- metríu. Á sýningunni eru yfir fjörutíu Morgunblaðið/Sverrir Gunnar Gunnarsson, sonur Gunnars Sigurðssonar, en hann á og hefur umsjón með Gunnarssal. myndir og eiga eftirtaldir verk á sýningunni: Eiríkur Smith, Haf- steinn Austmann, Jóhannes Jó- hannesson, Karl Kvaran, Kjartan Guðjónsson, Kristján Davíðsson, Nína Tryggvadóttir, Siguijón Ólafsson, Sverrir Haraldsson, Val- týr Pétursson og Þorvaldur Skúla- son. Nokkur verkanna á sýning- unni hafa ekki komið áður fyrir almenningssjónir og eru örfá þeirra til sölu. Gunnarssalur er kenndur við Gunnar heitinn, og var hann opn- aður í júní 1990. Salurinn er í Þernunesi 4, Arnarnesi, og er sýn- ingin opin laugardaga og sunnu- daga frá kl. 14.00-18.00. Stórbók með,verk- um Olafs Jóhanns ÚT ER komin Stórbók eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson með sagnaúi’vali er gefur góða yfirsýn yfir ritferil hans á árunum 1939 til 1965. Úrvalið er í stórum dráttum hið sama og gefið er út í Bandaríkjun- uin um þessar mundir. í bókinni er að finna smásög- urnar Pius páfi yfirgefur Vatík- anið, Stjörnurnar í Konstant- ínópel, Reistir pýramídar, Hengilásinn, Kerið gyllta, Bruni, Gömul frásögn og Mynd- in í speglinum og níunda hljóm- kviðan, auk þess tvær lengri sögur, Litbrigði jarðarinnar og Bréf séra Böðvars. Einnig er skáldsagan Gangvirkið prentuð í bókinni, en sú bók markaði upphaf bálksins um Pál Jóns- son, blaðamann, og kom fyrst út árið 1955, endurútgefin 1979 en hefur nú verið ófáanleg um nokkurt skeið. Mál og menning gefur út bókina sem er 540 blaðsíður að lengd og unnin í Prent- smiðjunni Odda hf. Hún kost- ar 2.980. kr. Síðustu sýningar á Blóðbræðrum NÚ ERU eftir þrjár sýningar á hinum vinsæla söngleik Blóð- bræður eftir Willy Russell. Sýningarnar verða föstudaginn 16. apríl, miðvikudaginn 21. apríl sem er síðasti vetrardagur og föstu- daginn 23. apríl. Mikill fjöldi leikara kemur fram í sýningunni ásamt hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafs- sonar. Það eru þeir Magnús Jónsson og Felix Bergsson sem leika bræð- urna sem skildir eru að en Ragnheið- ur Elfa Arnardóttir leikur móður þeirra. Leikstjóri er Halldór E. Lax- ness. Álfheimar Grensásvegur Til sölu er 310 m2 húsnæöi í Álfheimum 74 (Glæsibæ) og 294m2 á Grensásvegi 13 (áður útibú íslandsbanka). Álfheimar Húsnæöiö er staösett í noröurenda noröurálmu verslunar- og þjónustu- miöstöövarinnarí Glæsibæ. Húsnæöiö er 229m2 á fyrstu hæö auk 81m2 kjallara og sameignar. Grensásvegur Húsnæðiö er 147m2 á fyrstu hæö auk 147m2 í kjallara. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Jónsson í Rekstrardeild íslandsbanka hf. í síma 608000. ÍSLANDSBANKI I FORM FYRIR SUMARIÐ Hentar öllum aldurshópum Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur stundað einhverja líkamsþjálfun í langan tíma. Æfingakerfið er einnig gott fyrir fólk, sem ekki stundar almenna leikfimi vegna stífra vöðva o.fl. 7 bekkja æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóð- streymi til vöðva, þannig að ummál þeirra minnk- ar. Einnig gefur það gott nudd og slökun. Þuríður Sigurðardóttir: Ég hef þjáðst af bakverkjum í mörg ár, en síðan ég fór að stunda æfingabekkina held ég mér alveg góðri og þol mitt hefur aukist og finn ég þar mikinn mun. Getur eldra fólk notið góðs af þessum bekkjum? Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða slökun. Og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk. Sólrún Bjarnadóttir: Ég hef stundað æfingabekkina í 10 mánuði og sé ég stórkost- legan mun á vextinum um leið og þolið hefur aukist til muna og ekki hvað síst hafa bakverk- ir algjörlega horfið. Þetta er það besta sem ég hef reynt. Vilhelmína Biering: Ég er eldir borgari og hef verið hjá Sigrúnu í æfingabekkjum í 3 ár og hlakka til í hvert sinn. Mér finnst þetta ómetanleg hreyfing fyrir alla vöðva og finnst mér ég ekki mega missa úr einn tíma, enda finnst mér að eldri borgarar eigi að njóta þess að vera í æfingum til þess að halda góðri heilsu og njóta þess um leið að hafa eigin tíma. Heiga Einarsdóttir: Ég hef í mörg ár þjáðst af verkjum í mjöðmum og fótum, en síðan ég fór að stunda æfinga- bekkina hef ég ekki fundið fyrir því svo að ég mæli eindregið með þessum æfingum. Erum með þrekstiga og þrekhjól ★ Ert þú með lærapoka? ★ ★ Ert þú búin að reyna allt, án árangurs? ★ Hjá okkur nærðu árangri. ★ ★ Prófaðu og þú kemst að því að sentimetrun- ★ um fækkar ótrúlega fijótt.. ★ Eru vöðvabólgur að hrjá þig í baki, öxlum eða handleggjum? Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum? Vantar þig aukið blóðstreymi, þol og slökun? Þá hentar æfingakerfið okkar vel. ÆFINGABEKKIR HREYFINGAR Leiðbeinendur: Sigrún Jónatansdóttir Dagmar Maríusdóttir Opið frá kl. 9-12 eg 15-20. Frir kynningartimi. Ármúla 24 - simi 680677.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.