Morgunblaðið - 14.04.1993, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.04.1993, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993 Gonzalez boðar til kosninga Madrid. Reutcr. FELIPE Gonzalez, forsætisráð- herra Spánar, hefur boðað til þingkosninga 6. júní nk. en kjör- tímabilinu lýkur annars ekki fyrr en í október. Sagði Gonz- alez, að nauðsynlegt væri fyrir ríkissljórn sósíalista að leita eft- ir nýju umboði frá kjósendum vegna þeirra erfiðu ákvarðana, sem taka verður í efnahagsmál- unum. Samkvæmt skoðanakönn- unum hafa sósíalistar aldrei staðið jafn illa að vígi í tíu ár og er aðalástæðan atvinnuleysi á Spáni og spilling, sem ýmsir frammámenn þeirra hafa gerst sekir um. Gonzalez sagði, að með því að færa kosningarn- ar fram kæmist vonandi „skikkan“ á pólitíska um- ræðu í landinu auk þess sem stjórnin sæktist eftir um- boði til þeirra að- gerða í efnahags- málunum, sem óhjákvæmilegar væru. Kvaðst Gonzalez mundu verða forsætisráð- herraefni flokksins í kosningunum og hafa til þess einróma stuðning flokksbræðra sinna. Sakaðir um spillingu Sósíalistar hafa verið við stjórn- völinn á Spáni í áratug en ásakan- ir um pólitíska spillingu hafa valdið ágreiningi innan flokksins og er deilt um hvernig á þeim málum skuli tekið. Þá eru einnig átök milli þeirra, sem vilja halda sig við gaml- ar baráttuaðferðir jafnaðarmanna og stefnumál, og þeirra, sem leggja áherslu á markaðsbúskap og fé- lagslegar umbætur að norður-evr- ópskri fyrirmynd. Hefur Gonzalez forystu fyrir síðari hópnum. Alþýðufylkingin sigurviss í skoðanakönnunum að undan- förnu hefur lítill munur mælst á fylgi sósíalista og PP, Alþýðufylk- ingarinnar, helsta stjómarand- stöðuflokksins, og virðast kjósend- ur vera orðnir leiðir á stjórn sósíal- ista. Ráða efnahagserfiðleikar og atvinnuleysi mestu um það en einn- ig ásakanir um spillingu meðal ýmissa frammámanna flokksins. „í fyrsta sinn í sögu Spánar getur nú miðju- og hægriflokkur tekið við völdunum af miðju- og vinstri- flokki og það mun gerast," sagði Jose Maria Aznar, leiðtogi Alþýðu- fylkingarinnar, í gær. Gonzalez Forseti rússneska þingsins spáir endalokum umbótastefnu Reuter Jeltsín í vinahópi BORÍS Jeltsín Rússlandsfor- seti kastar blómi til mann- fjölda sem safnaðist sam- an er forsetinn heimsótti No- vokúznetsk í gær. Borgin er í miklu kola- námuhéraði en talið er að Jeltsín eigi traust fylgi meðal námu- manna. Segir Jeltsín stefna að harðlínu-kommúnisma Moskvu. Reuter. RÚSLAN Khasbúlatov, forseti rússneska þingsins, segir að stjórn Borísar Jeltsíns for- seta sé einræðishneigð og jafnframt að hún sé helsti þröskuldur á vegi umbóta í landinu. Þingforsetinn spáði því á opinberum fundi í gær að stjórnin myndi senn vísa öllum umbót- um út í ystu myrkur og við tæki stefna í anda harðlínukommúnisma Leníns og Stal- íns. Stjórnvöld beittu þegar símahlerunum gegn andstæðingum sinum á þingi og öðrum sem þau treystu ekki fyllilega. Aður hafði Khasbúlatov sakað ráðamenn ýmissa stofn- ana og kirkjunnar um að múta fólki til að styðja Jeltsín í þjóðaratkvæðinu 25. apríl. Khasbúlatov forðaðist hins vegar að gefa fólki ráð varðandi þjóðaratkvæðið en þá verður kosið m.a. um stefnu Jeltsíns. Jeltsín heitir almenn- ingi nú að ekki muni koma til aukinna efnahags- þrenginga, segir stúdentum að kjör þeirra verði bætt og sama sé að segja um kjör námumanna. Á fundi með stúdentum var hrópað „Álfasög- ur!“ og „Rugl!“ er Jeltsín hét bættri tíð með blóm í haga. Forsetinn virtist vera í góðu skapi og gerði gys að andstæðingum sínum. Hann sagði að framleiðslan væri hætt að dragast saman, hvergi væri hungursneyð og fullyrti að tími enda- lausra deilna á æðstu stöðum væri á enda; kjós- endur ættu að hundsa þá sem nú væru famir að lofsyngja Sovéttímann. Jeltsín gaf í skyn að seðlabankastjórinn, Vikt- or Geratsjenkó, væri nú orðinn sammála ríkis- stjóminni sem hefur mótmælt taumlausri seðla- prentun bankans er notuð hefur verið til að halda á floti úreltum risafyrirtækjum frá sovét- skeiðinu er ella færu beint á hausinn. Geratsj- enkó heyrir undir þingið og þykir hallur undir afturhaldsöfl. Borís Fjodorov, nýr fjármálaráð- herra Rússlands, virtist ekki taka undir með Jeltsín í viðtali við Komsomolskaja Pravda. Fjod- orov gagnrýndi Geratsjenkó og sagði seðlabank- ann eftir sem áður stunda hóflausar lánveiting- ar. Nýlega hét Jeltsín því að bættur yrði skaði sparifjáreigenda sem tapað hafa miklu fé vegna óðverðbólgunnar. Hún mældist 2.600% í fyrra. Geratsjenkó sagði að yrði staðið við þetta loforð hlyti afleiðingin að verða aukin verðbólga. Jeltsín bíður lægri hlut Úrslit í nokkmm héraðsstjórakosningum í Rússlandi um síðustu helgi em áfall fyrir Jeltsín forseta og þykja ekki boða gott fyrir hann í þjóðaratkvæðagreiðslunni eftir tíu daga. Bám harðlínumenn víða sigur úr býtum og boluðu burt stuðningsmönnum Jeltsíns. Kosningarnar voru haldnar eftir að þingið svipti Jeltsín rétti til að skipa héraðsstjóra og notuðu þá ýmis héraðsráð, sem eru að meiri- hluta skipuð harðlínumönnum, tækifærið og efndu til kosninga. Unnu harðlínumenn víðast hvar. Stuðningur við Jeltsín er mestur í borgun- um en lítill víða á landsbyggðinni. í héraðinu Oijol í Suður-Rússlandi tapaði Níkolaj Júdín, stuðningsmaður forsetans, fyrir Jegor Strojev, fyrmm félaga í sovéska stjómmálaráðinu, sem hlaut 70% atkvæða. Að sögn Izvestíu leggur Strojev áherslu á umbætur að kínverskri fyrir- mynd með miklum afskiptum ríkisins en er and- vígur tilraunum til að koma á hreinum markaðs- búskap. F Harðlínukapítalisti? í Kalmykía, 300.000 manna landbúnaðarhér- aði við Kaspíahaf, sigraði Kírsan Íljúmzhínov, 31 árs gamall milljarðamæringur, í rúblum að minnsta kosti, með 65% atkvæða. „Ég er ekki sósíalisti, ég er ekki kommúnisti, ég er ekki lýð- ræðissinni — ég er kapítalisti," sagði íljúmz- hínov í blaðaviðtali í síðustu viku en hann heitir að koma á „efnahagslegri harðstjórn" í Kalmyk- ía til að endurreisa efnahaginn. Þá ætlar hann að beita skriffinnana hörðu og jafnvel banna verkföll og pólitíska fundi. Bush „hinn mikli“ í Kúveit George Bush, fyrrverandi for- seti Bandaríkjanna, fer í dag í heimsókn til Kúveits á veg- um þarlendra stjórnvalda. Fresta varð heimsókninni í sólarhring vegna bilunar í væng kúveiskrar þotu sem flytja átti Bush frá Houston í Texas til Kúveits. Þotan varð að . nauðlenda um klukkustund eftir flugtak eft- ir að hluti vinstri vængjarins datt af í miklum óróa í lofti. Skipulögð hafa verið mikil hátíðahöld í tilefni af heim- sókninni, enda nýtur Bush mikilla vinsælda í landinu vegna frammistöðu sinnar í stríðinu fyrir botni Persaflóa 1991. Á myndinni er verið að mála mynd af Bush með hefðbundið höfuðfat araba og á fánunum stendur „Bush hinn mikli“. Reuler Nýtt „nei“ gæti leitt tíl úrsagn- ar úr EB Kaupmannahöfn. Reuter. POUL Nyrup Rasmussen, forsæt- isráðherra Danmerkur, sagði í gær að ef Danir höfnuðu Maastricht-samkomulaginu að nýju í þjóðaratkvæðagreiðslunni 18. maí yrðu þeir að segja sig úr Evrópubandalaginu (EB). Rasmussen lét þessi orð falla eftir að danska dagblaðið Beríingske Tid- ende birti niðurstöðu nýrrar skoðana- könnunar, sem bendir til þess að stuðningurinn við Maastricth-sam- komulagið um aukinn samruna EB- ríkjanna fari minnkandi. Samkvæmt könnuninni myndu 45% Dana greiða atkvæði með samkomulaginu, 29% á móti, en 26% voru óákveðin eða ætl- uðu ekki að greiða atkvæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.