Morgunblaðið - 14.04.1993, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
ji'Ujl .itji*'iA"'T'i'"f.'H' HiAi.rUHVLII/: UÍUA.Iií/UDllOU
OÐINSVE
Eddu Erlendsdóttur píanóleikara vel tekið
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
'p'yrir skömmu hélt Edda Erlendsdóttir
píanóleikari tónleika í Óðinsvéum.
Aðalhvatamaðurinn að tónleikunum var
Annette Blauenfeld, sem starfar við Tón-
listarskólann. Áhorfendur norrænu tónlist-
arspurningakeppninnar Kontrapunkts
muna kannski eftir henni úr danska lið-
inu. Það var einmitt í gegnum Kontra-
punkt sem Edda og Annette hittust. Edda
var á sínum tíma fengin til að spila í ein-
um af þáttunum. Eftir það var Annette
ekki í rónni fyrr en hún fékk Eddu til að
spila hér, en Edda býr í París.
Edda hefur áður leikið í Danmörku.
Sumarið 1987 hélt hún tónleika í Tívolí í
píanótónleikaröð sem haldin var þar og
þar sem margir þekktir píanóleikarar
komu fram. Eftir þá tónleika skrifaði Jens
Brincker tónlistargagnrýnandi Berlingske
Tidende að með þeim hefði Edda skipað
sér á bekk með öðrum framúrskarandi
píanóleikurum sem léku í Tvívolí það sum-
ar.
Tónleikarnir í Óðinsvéum voru vel
kynntir í blöðum, meðal annars í Jyllands-
Edda Erlendsdóttir kom einnig fram í tónlist-
arþætti danska ríkisútvarpsins.
Posten og Berlingske Tidende og þess
ekki síst getið hversu íjölhæfur píanóleik-
ari Edda væri. Á efnisskránni voru verk
eftir nokkur íslensk tónskáld auk nokk-
urra annarra.
í umsögn um tónleikana í Fyns Stiftstid-
ende segir að orðið „tærleikur“ lýsi leik
Eddu best. Tæknilega séð virðist næstum
eins og Edda sé óskeikul, en gagnrýnand-
inn saknar tilfinninga í leik hennar. An-
nette Blauenfeld sagðist eiga erfitt með
að skilja þessa athugsemd, því sér og fleir-
um sem viðstaddir voru þótti leikur Eddu
einmitt svo fullur tilfinninga. Um íslensku
verkin segir gagnrýnandinn að þau sýni
að íslensk verk séu sannarlega þess virði
að þeim sé ljáð eyra. Hann hrífst af verki
Sveinbjörns, Jón Leifs þykir honum þung-
ur, hann talar um verk Hjálmars sem ótrú-
lega tjáningarríkt og að Hafliði og Atli
séu módernistar fram í fingurgóma.
Auk þess að spila á tónleikunum var
rætt við Eddu í tónlistarþætti danska ríkis-
útvarpsins Bolero.
- Góður valkostur -
f ITANHfiSSKL/EÐNINGUM
Marmoroc er gert úr
marmarasalla og sementi
og er gegnumlitað. Vegg-
festingar eru úr aluzink-
húðuðu stáli.
Yfir 13 ára reynsla
á Islandi
HAFIÐ SAMBAND OG FÁIÐ SENDA
BÆKLINGA EDA TILBOÐ
VERKVER
Skúlagötu 61a
S. 621244/fax 629560
COSPER
Mig dreymdi yndislega í nótt. Að við værum aftur
komin heim í íbúðina okkar.
PARÍS
Kr. ,19.900
Upplifðu töfra Parísar í suinar
Parísarferðir Heirnsferða á einstökum kjörum í
samvinnu við stærstu ferðaskrifstofur Frakklands.
Vika í París: Flug og liótel frá kr. 29.900
m.v. 2 í herbergi.
Flug og bfll: Frá kr. 24.900
Vikulegar brottfarir frá 7. júlí til 25. ágúst.
Takinarkað sætamagn
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstraeti I7,2. haeð • Sími 624600
Stúdíó Ágústu og Hrafns býður upp á:
Léttara lífer 10 vikna
skóli fyrir konur sem eru
Ágústa Þráinsdóttir:
Frábært námskeið!
Almenn líðan batnaði
til muna, árangurinn
var mjög góður og
blóðþrýstingurínn
lækkaði. Þetta er
góður félagsskapur og
útiveran nauðsynleg.
meira en 20 kíló yfir
kjörþyngd. Markmið
námsins er að breyta um
lífsstíl sem stuðlar að
léttara lífi jafnt andlega
sem líkamlega um
ókomna framtíð.
Kennslan byggist á
Edda Dungal:
Meiríháttar
skemmtileg og
fræðandi námskeið.
Ég hefbreytt um
lífsstíl ogernú í
leikfimi 4 - 5
sinnum í viku.
fundum og
gönguferðum um falleg
svæði í Reykjavík og
nágrenni.
Allar nánari
upplýsingar í síma
68-98-68
Elín Fríða
Sigurðardóttir:
Ég var ofsalega
ánægð með þetta
námskeið að öllu leyti
og náði mjög góðum
árangri sem ég hef
haldið núna í eitt ár.
Ég gef námskeiðinu
mín bestu meðmæli.
-Gönguferðir
-Fitumælingar og viktun
-Vikulegir fundir,
hópaðhald
-Stuðningur og fræðsla
-Matarlistar og uppskriftir
að léttu fæði
-Heimaverkefni
fbUúí
ÁGÚSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 689868