Morgunblaðið - 30.05.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 30.05.1993, Síða 4
24 flB 8PIH DOCTORS er sprottin úr mcnningardeiglu l\EW YORK og dre@t«K' dám af |»ví ■ tónlist sinni Spin Doctors, Christopher Barron, Arron Comess, Eric Schenkman og Mark White. Doctors spratt upp úr vin- skap þeirra Erics Shenkmans gítarieikara og söngvara, sem ólst upp í Vestur-Texas, og Christophers Barrons söngvara, sem ólst upp í Ástralíu. Þeir kynntust í New York, þar sem Eric var í sveitinni Blues Traveller. Góð vinátta tókst með þeim og lögin komu í bunkum. Það varð því fljótt tímabært að smala saman í hljómsveit og trymbillinn Arron Comess sióst næstur í hópinn. Fjórða hjól undir vagninn var svo bassaleikarinn Mark White, sem lék áður með fönksveit- inni Spade. í spjalli segir Mark White að vísast megi skýra ferskleika tónlistar Spin Doctors með ólíkum bakgrunni sveitariiða; „það besta við sveitina er hve við komum úr ólíkum áttum og hve við náum vel saman þrátt fyrir það. Það segir enginn öðrum fyrir verkum, við er- um bara að leika það sem eftir Árno Matthíasson VINSÆLASTA erlenda hljómsveit lands- ins um þessar mundir er án efa Spin Doct- ors. Tvö lög af breiðskífu sveitarinnar, Pocket Full of Kryptonite, Two Princes og Little Miss Can’t be Wrong, hafa hljóm- að í sífellu í útvarpsstöðvum og platan selst eins og heitar lummur. Spin Doetors er bandarísk sveit, þó tónlistin sé ekki þeirrar gerðar sem menn helst eiga von á okkur finnst skemmtilegt. Menn hafa gert mikið í því að reyna að benda á áhrifar valda héðan og þaðan, en við hendum bara gaman að slík- um vangaveltum, því þær eru alltaf út í hött.“ Sumir hafa viljað meina að Spin Doctors sé dæmigerð New York-sveit, en Mark segir að það fái ekki staðist nema að því leyti að New York-sé menningardeigla, „við kom- um hver úr sinni áttinni og líklega hefði enginn talið samstarf vænlegt á pappím- um“. Eins og áður sagði em það þeir Eric Schenkman og Christopher Barron sem stýra sveitinni, en Mark seg- ir að lagasmíðar séu að miklu leyti samvinna; hver leggi sitttii. Þegar Spin Doctors svo loks kom sér í hljóðver síðla árs 1990 var lagasafnið orðið gríðarstórt. „Við höfð- um fímmtíu laga safn til að velja úr og þurftum því eng- an aðdraganda til að taka upp. Það tók líka skamman tíma og var skemmtilegt, sem skilar sér á plötunni; það heyrir hver sem vill að við vorum að skemmta okkur.“ íllvarpið geröi gæfumuninn Frumsmíð Spin Doctors, áðumefnd Pocket Full of Kryptonite, kom svo út í árs- byijun 1991, en eins og áður segir var platan lengi að vinna sig inn á vinsældalista. Að nokkru ræðst það af því að útgáfa sveitarinnar eyddi öllum kröftum í að kynna aðra sveit sem þá seldist í bílförmum, en Spin Doctors seigluðust áfram. Mark White segist skrifa velgengni sveitarinnar svona löngu eftir að platan kom út á útvarpsspilun. „Það skipti gríðarmiklu máli fyrir okkur að útvarpsmenn upp- götvuðu plötuna og fóm að spila hana grimmt í útvarpi þaðan um þessar mundir; ekki iðnaðar- rokk, siðfágað popp eða groddarokk að hætti Seattlebúa, heldur fjölbreytileg sam- steypa úr ótal áttum sem fléttar saman helstu strauma popp- og rokktónlistar síð- ustu ára með slatta af kímni og tvíræðni. Vinsældirnar ættu því ekki að koma á óvart, nema kannski fyrir þá sök að þegar platan loks sló I gegn var hún tvævetlingur. um öll Bandaríkin. Það sann- ar að það er betra að kom- ast áfram með liðsinni út- varpsins en með stífri spila- mennsku. Vissulega hefðum við getað þrælað plötunni inn á vinsældalista með því að spila eins og bijálaðir menn um allar jarðir, en það hefði tekið lengri tíma og þá hefð- um við ekki getað slappað af heima,“ segir Mark og hlær. „Það má segja að út- varpið hafi farið tónleika- ferðirnar fyrir okkur.“ Nú þegar Pocket Full of Kryptonite er að seljast í milljónaupplagi eru lögin þriggja ára eða þar um bil. Það hefur reynst margri rokksveit erfitt að vera að leika sömu lögin svo lengi, mörgum finnst löngu kominn tími til að kasta gömlu lög- unum og fara að fást við eitthvað nýtt um leið og plata kemur út, en Mark gerir lítið úr slíku. „Mér finnst enn gaman að spila gömlu lögin og ég verð ekki var við ann- að en félögum mínum finnist það líka. Við eru með á fjórða tug laga á dagskránni og við höfum því nóg af nýju dóti til að leika með vinsælu lög- unum. Fyrir mér eru þessi lög alls ekki gömul þó við höfum verið að leika þau í þijú til ijögur ár; fyrir áheyr- endum okkar eru lögin ný og það gefur okkur innblást- ur til að sjá þau upp á nýtt.“ Mark segir að það sé reyndar einn ókosturinn við vinsæld- irnar að það gefist sífellt minni tími til að leika á tón- leikum, „því það er það skemmtilegasta sem ég geri“. Lög á lager Að öllu jöfnu hefði verið eðlilegt fyrir Spin Doctors að senda frá sér nýja plötu um þetta leyti, en velgengnin hefur sett strik í þann reikn- ing. Mark segir og þá félaga taka því rólega í lagasmíð- um, því eins og áður sagði sé nóg af lögum á lager. Þeir hafa þó samið nokkur til viðbótar, sem verða vísast á næstu plötu sveitarinnar, sem fyrirhugað er að gefa út í haust, en hann segir þau ekki frábrugðin því sem þeg- ar er til. „Okkur dreymir núna um það að geta tekið okkur gott frí til að undirbúa upptökur á nýrri plötu, og þá verður væntanlega eitt- hvað til af lögum." Mark segist langa til að leika á íslandi gefist einhver kostur á því, sérstaklega eft- ir að hafa heyrt undan og ofan af landsháttum. Hann segir þó að þeir félagar séu ekkert yfir sig spenntir að fara í Evrópuferð í bili, en vert væri að gera undantekn- ingu fyrir Island. „Ef við erum vinsælir á íslandi, þá er um að gera að spila þar,“ segir hann að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.