Morgunblaðið - 30.05.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1993
B 13
lega er nafn hennar af germönskum
toga, og kennt við mýrar eða mosa.
Seinna komu Frankar, og enn seinna
fóru fjarlæg stórveldi að takast á
um Niðurlönd, Spánveijar, Frakkar
og Habsborgarar. Þeir sem réðu
Maastricht höfðu öll tök á umferð-
inni á ánni og eftir dalnum. Hún
hefur því ætíð verið bitbein stríðs-
herranna.
Hvort heldur Rómveijar fóru á
vaði yfir Maas til að byija með eða
þeir strekktu streng yfir hana til að
flytja hergögn og mannskap þurrum
fótum á kláfi, þá byggðu þeir endan-
lega nokkuð trausta brú þarna,
fyrstu brúna á Maas, en breyttu samt
ekki nafni bæjarins. Þeir ríktu þama
í þijár aldir. Síðan hefur „Maas-
strekkurinn" verið aðalsamgön-
gumiðstöðin fyrir stórt svæði, þar
sem kaupmenn, handverksmenn,
stjómarerindrekar, varðliðar og
kirkjuþjónar settust að og mynduðu
þróttmikið borgarasamfélag.
Hornsteinn iönveldis
Áður fyrr voru Niðurlendingar
verslunarþjóð fyrst og fremst, sem
efnaðist mjög á Austurlandaviðskipt-
um eftir landafundina miklu, en
kaupmennimir störfuðu aðallega í
hafnarborgunum, svo sem Amster-
dam og Brugge, sem báðar bera enn
merki þeirrar gullaldar. Þeir voru
nýlenduþjóð fram til síðustu ára, réðu
miklum löndum bæði í Vestur- og
Austur-Indíum.
Á seinni tímum hafa Hollendingar
gerst æ meiri iðnaðarþjóð. Helsta
iðnaðarborg Hollendinga er einmitt
þarna uppfrá, Eindhoven, þar sem
Philips-verksmiðjurnar hafa aðalvígi
sitt. Þar er framleitt margt af þeim
rafmagnsvamingi sem við kaupum
frá Hollandi, s.s. ljósaperur, heimilis-
tæki og útvörp. Stutt er þar í orku-
lindir og námur, og til helstu iðnaðar-
svæða álfunnar, og flutningar miklir
milli svæðanna með hráefni, orku-
gjafa hálfunnar vömr eða fullunnar
afurðir. Maastricht-svæðið liggur þá
um þjóðbraut þvera.
Nútíma hraðbrautir af bestu gerð
liggja að og frá Maastricht, fleiri en
ein og fleiri en tvær. Járnbrautir
þeytast um hémðin á gömlum teina-
lögnum frá árdögum iðnbyltingar-
innar, flytjandi aðallega kol ogjárn-
grýti. Skipaskurður, enn eldri, liggur
frá Liege meðfram Maas og niður
til sjávar hjá Amsterdam, Alberts-
skipaskurðurinn, og anar liggur suð-
ur til Frakklands, og tengist Signu
og Saar. Það er jafnvel unnt að sigla
suðuryfir vatnaskilin norður á Saóne
og Rhöne og til Miðjarðarhafsins.
í Limburg-héraðinu er meginhluti
af þungaiðnaði Hollendinga, með öll-
um sínum óþrifum og mengun, en
um leið með miklum efnahagslegum
uppgangi. Maastricht leikur að
nokkru leyti lykilhlutverk á þessu
mikla atvinnusvæði, vegna legu sinn-
ar og samgangna. Þar í borg em nú
helst framleiddar glervömr, postulín
og leðurvarningur, en hún gegnir líka
hlutverki markaðsbæjar fyrir land-
búnaðinn í sveitunum í kring. Þar
er mjólkuriðnaður mikill og Limburg-
osturinn, hvítur og mjúkur, er víð-
frægur, ber þó meiri keim af frönsk-
um ostum en hollenskum.
Maastricht er eins konar mið-
punktur þessa mikla athafnasvæðis,
þangað sem járnbrautir, bílvegir og
skipaskurðir liggja úr nágrannahér-
uðunum, þvert yfir öll landamæri.
Heimamenn em því vanir að um-
gangast útlendinga, og tala gjaman
bæði þýsku og frönsku, auk hollens-
kunnar. Aðrir Hollendingar em
þekktir fyrir. sína ágætu enskukunn-
áttu.
Landamærin opnuö
Á meðan landamærahömlur voru
enn milli þessara nágranna var mik-
il töf á öllum flutningum og viðskipt-
um. Með auknu fijálsræði í samskipt-
um landanna hafa þessi viðskipti
aukist mjög og orðið ódýrari og hag-
kvæmari. Hér kristallast einmitt eðli
og tilgangur Efnahagsbandalagsins.
Maastricht er því dæmigerð landa-
mæraborg, þar sem stutt er til næstu
landa í allar áttir, margar tungur
talaðar og samgöngur auðveldar, þar
sem hún er á mörkum hins ger-
manska og rómverska mál- og menn-
ingarsvæðis, og á mörkum mótmæl-
enda- og kaþólskra svæða.
Fyrsti þátturinn í því samstarfi
þjóða, sem leiddi til efnahagssam-
vinnu þeirrar, sem við sjáum nú fyr-
ir augunum í Vestur-Evrópu, var í
tengslum við viðskipti með kol og
járn á þessu mikla námusvæði og
við flutninga með þær vörur á ám
og skipaskurðum. Þar voru í farar-
broddi Belgar, Hollendingar og Lúx-
emborgara, hin svokölluðu Be-Ne-
Lux-lönd. Seinna slógust svo Frakk-
ar og Þjóðveijar í hópinn, því allir
áttu við sameiginlegt vandamál að
glíma varðandi námugíöft og fljóta-
flutninga á þessu sama svæði. Þetta
urðu stofnendur Efnahagsbanda-
lagsins.
Það var skömmu eftir síðasta stríð,
að þessar þjóðir fóru að vinna sam-
an, stig af stigi, að því að auðvelda
siglingar á Maas og Mosel, og reynd-
ar líka á Saar og Rín, sem renna
allar um mörg Iönd, eða skilja á
milii þeirra sem landamæri, sem
höfðu farið illa í styijöldinni. Geysi-
miklar bætur hafa verið gerðar á
Virkið rammgerða, Eben Emael,
á vesturbakka Muese þar sem
Albertskastalinn leggur út frá
ánni skammt frá Liege í Belgíu
var stærsti þröskuldurinn á vegi
innrásarhersins frá Þýskalandi.
öllum þessum vatnaleiðum. Svo
gerðu menn með sér samninga um
skipti á kolum og járni eftir því sem
hagkvæmast var um flutninga. Þeir
hittust til funda á víxl í borgum sem
lágu vel við samgöngum. Þetta leiddi
svo til þess að þeir afléttu tollum á
þessum viðskiptum, og loks öllu toll-
eftirliti. Kola- og Stálbandalag Evr-
ópu varð til. Þá var eftirleikurinn
auðveldur um viðskipti með aðrar
vörur, og Efnahagsbandalagið kom
í kjölfarið í nokkrum áföngum. Nú
er verið að stíga skrefið til fulls með
Maastricht-samkomulaginu. At-
vinnulíf þessara þjóða og jafnvel
menningarlíf verur svo Samtvinnað
eftirleiðis að ógerningur verður fyrir
eina þeirra að fara að heyja stríð við
aðra. Samningurinn er því sannkall-
aður friðargjörningur, sem allir jarð-
arbúar ættu að fagna, því ólgan í
Vestur-Evrópu hefur þráfaldlega
leitt stórfelldar hörmungar yfir
heimsbyggðina alla.
Þær borgir hafa oftast orðið fyrir
valinu sem fundarstaðir, sem eru
utan landamæra stóru þjóðanna,
Frakka og Þjóðveija, en þó skammt
frá þeim, og þá helst borgir þar sem
tungumálakunnátta var til staðar og
þjóðerni blandað. Þannig hafa Lúx-
emborg og Strassborg orðið mið-
stöðvar fyrir ákveðna þætti þessarar
nýju samvinnu í álfunni, því þar eru
franska og þýska talaðar jöfnum
höndum, og auðvelt að komast þang-
að. Maastricht varð fyrir valinu fýrir
undirritun lokasamningsins, sem er
eins konar innsigli á frið milli þjóð-
anna um alla framtíð.
En hvers vegna að velja Ma-
astricht?
Ógnardagar
Sú var tíðin, að ekki horfði svo
friðvænlega í álfunni sem nú, og ríki
voru ekki svo samvinnuþýð. Þannig
var ástatt í kreppunni miklu, þegar
nasistar komust til valda í Þýska-
landi. Þá var loft í álfunni lævibland-
ið, og hernarbrölt var aðalsmerki
stjórnmálanna, ekki afvopnun og
friðartal, eins og nú. Dagurinn 10.
maí er mikill ógnardagur í hugum
eldra fólks í Maastricht og Limborg-
ar-héruðunum, því það var þann dag
árið 1940 sem Þýskaland lét til skar-
ar skríða gegn bandamönnum og hóf
leiftursókn til vesturs. Fyrstu bomb-
urnar féllu úr steypiflugvélunum ein-
mitt á Maastricht-svæðið. Ógurlegar
loftárásir voru gerðar á borgina, og
fyrstu þýsku hersveitirnar sem fóru
til vestur fóru gegnum Maastricht.
Svo mjög kom áhlaupið heijum
bandamanna í opna skjöldu að ekk-
ert varð um varnir og mótstöðu.
Ógurleg ringulreið ríkti þarna í 4
daga. Meuse-línan, sem Belgar höfðu
byggt upp sér til varnar meðfram
ánni fyrir sunnar Maastricht, stóðst
ekki þetta ofurefli.
Þetta urðu myrkustu dagar í minn-
ingu þess fólks, sem lifði hörmung-
arnar af, og ekki að ástæðulausu.
Fimm ára hernám Þjóðveija, gyð-
ingaofsóknir og endanleg gagnsókn
bandamanna um Ardennafjöll var
sem barnaleikur miðað við þann hild-
arleik, sem upphófst í álfunni við
leiftursóknina yfir Meuse-línuna í
upphafi síðasta stríðs, undir stjórn
Rommels marskálks. Maastricht og
Meuse voru á hvers manns vörum
um heim allan þessa fimm örlagaríku
daga á meðan Þjóðverjar voru að
leggja undir sig hlutlausa ríkið litla,
Holland. Ef ekki hefðu verið til mik-
il neðanjarðargöng undir borginni,
sem rúmuðu meginhluta íbúanna,
hefðu þeir verið berskjaldaðir fyrir
þessari yfirþyrmandi illsku stórveld-
anna, nágranna sinna. Stórveldi láta
ekki hlutlaus smáríki hefta för sína,
þegar jiau þurfa að lumbra hvert á
öðru. I sérhveiju valdatafli eru það
peðin sem falla fyrst.
Varnarvirki eitt voldugt hafði ný-
lega verið reist á bökkum Maas, rétt
hjá Maastricht og Liege, sem enda-
hlekkurinn í Meuse-línunni, kallað
Eben Emael virkið, byggt af Belgum
samkvæmt fyllstu kröfum tímans.
Einhver heiftúðugasta orrustan í allri
styijöldinni var háð fyrsta daginn
um þetta litla virki. Fyrsta áhlaup
með 'svifflugum í hernaðarsögunni
var einmitt við Eben Emael við
Meuse þennan ógurlega dag, 10. maí
1940. Virkið stóðst ekki herbrögð
Hitlersmanna og vígvélar. Það féll á
fyrsta degi. Þar með stóð Belgía
opin fyrir innrásarhernum og Frakk-
land var berskjaldað.
Fyrstu brýrnar sem herteknar
voru á vesturvígstöðvunum voru á
Maas í og við Maastricht, sumar nið-
urfallnar, og lokuðu samgöngum um
ána lengi á eftir.
í fyrra stríðinu lá einnig herleið
þýska keisarans um Maastricht.
Leikurinn barst þó fljótlega suður
með Meuse og inn í Frakkland. Mest
var barist hjá Verdun, þar sem gríð-
arlegur fjöldi hermanna úr báðum
fylkingum féll í grimmilegum or-
ustum sem stóðu í heilt ár (1916),
án þess að úrslit fengust. Bautastein-
ar og legkrossar standa enn i þús-
undatali, eins og hráviði á bökkum
Meuse, hjá Verdun og tröllauknir
minnisvarðar um fallbyssufóðrið,
blóma heillar kynslóðar Evrópu-
manna. Óvíða í veröldinni eru orr-
ustuvellir svo margir sem við Meuse.
Ekkert fljót í álfunni hefur svo oft
og svo mjög verið blóði litað sem sú
kyrrláta litla á.
Iörunarmerki?
Það er án efa af ásetningi, sem
ráðamenn í álfunni velja Maastricht
sem vettvang fyrir þann örlagaríka
friðargjörning, sem nú er verið að
innsigla. Kannski á það að vera
mótvægi eða afsökunarbeiðni hern-
aðarþjóðanna til Niðurlendinga fyrir
fornan órétt og ofbeldi, eða kannski
iðrunarmerki?
Nákvæmlega hálf öld leið í milli
Maas-sóknar Þjóðveija í seinni styij-
öldinni og undirbúnings fyrir Ma-
astricht-sáttmálann, þ.e. maí 1990.
Það var ekki heldur tilviljun. Sjálf
undirskrift hans dróst þó til ársloka
1991.
Vonandi verður Maastricht frekar
minnst í framtíðinni sem vettvangs
friðarstarfs bræðraþjóða en sem
blóðvallar herskárra óvinaþjóða.
Vegna frægðar Maastrichts í
tengslum við lokasamning Evrópu-
bandalagsins má búast við að áhugi
ferðamanna á svæðinu aukist mjög.
Það er einmitt aðalsmerki túrismans,
að hann leiðir svo mjög til kynna og
skilnings milli þjóða og hluttekningar
í sorg og í gleði þeirra. Hann á sinn
þátt í hinum nýja hugsunarhætti
Evrópumanna.
Árið 1993 verður kannski kallað
Maastricht-árið, því þá á sáttmálinn
að taka gildi. Ljóst er að margur
Evrópubúinn mun fara þangað í píla-
grímsferð það árið.
Merkustu viðburðir nútímans eiga
sér ekki stað á vígvöllum með her-
brestum og hávaða, eins og áður
var, heldur við samningaborð í litlum
bæjum á kyrrlátan hátt, þótt smá-
skærur blossi upp langt úti í heimi
annað slagið.
Fcröamannabær
Þess er óskandi að sem flestir ís-
lendingar heimsæki bæinn litla á
Maas-bökkum og reyni að teyga þar
gegnum öll sín skilningarvit andann
frá þeim merkisviðburðum sem hafa
átt og eru að eiga sér stað á þessum
vinalega stað. Okkur er það brýn
nauðsyn að fara að hugsa sem Evr-
ópumenn og beina augum okkar
meira að frændþjóðum okkar þar,
kynnast þeim sem best, sögu þeirra
og menningu, sérkennum þeirra og
metnaðarmálum.
Sem ferðamannabær hefur Maas-
tricht upp á margt að bjóða. í gamla
bænum, sem er einmitt vestan árinn-
ar, eru tvö forn guðshús, sem eru
með þeim elstu í Hollandi, frá dögum
fyrstu trúboðanna á 6. öld, við eitt
stærsta torg bæjarins, Vriethof
Ferðamenn hafa gaman af því að sigla á Maas gegnum falleg borgar-
hverfi Maastricht.
Þýskir hermenn fara yfir Maas við fallnar brýr í Maastricht örlaga-
daginn mikla, 10. maí 1940, þegar Þýskaiand hóf leifturstríð sitt
gegn bandamönnum á vesturvígstöðvunum. Ósköpin hófust í Ma-
astricht, sem fór mjög illa. Samt eru enn til falleg gömul borgarhverfi.
Plein. Annað heitir Sint Servaaskirk,
og var dómkirkja fyrrum kennd við
heilagan Servatius, fyrsta biskup
staðarins. Stærsta kirkjuklukka Hol-
lands er þar í turninum, kölluð
„Granmeer", eða amma gamla. Hitt
guðshúsið gamla heitir Sint Janskirk.
Bæði hafa þráfaldlega verið endur-
reist eftir svívirðingar óvinaheija.
Fjöldi annarra kirkna er í bænum frá
seinni tímum, og minnst eitt sam-
kunduhús gyðinga, Synagogue.
Uppgröft frá Rómartímanum eiga
þeir ágætan, sem er að finna í kjall-
ara eins af gistihúsum bæjarins,
Hotel Delion, og fjöldann allan af
virkjum og skotbyrgjum frá miðöld-
um.
Gamla ráðhús bæjarins, Dinghuis,
er á horni Jodenstraat, Júðastrætis,
falleg bygging frá 15. öld. Nýrra
ráðhús og stærra, Stadhuis, tveim
öldum yngra, stendur við markaðs-
torgið, Markts, skreytt klukkuturni
veglegum, með skemmtilegu spil-
verki. Þar skammt frá er safnamið-
stöð brogarinnar, Bonnefantemuse-
um, þar sem m.a. hollensku meistur-
unum í málaralist eru gerð góð skil.
Lítil brú, að grunni frá dögum
Rómveija, hefur staðið af sér allar
styijaldir lítið skemmd, Sint Servaas-
brug, en ber nú mestan svip end-
urbyggingar á 12. öld. Ein af nýju
brúnum er kennd við Kennedy for-
seta, grönn og spengileg, afsprengi
tæknialdar, andstæða hinnar gömlu,
enda er á þeim 2.000 ára aldursmun-
ur.
Gangakerfið undir borginni, Grott-
en Sint Pieter, sem barg íbúunum í
leifturstríðinu, er gamlar gijótnám-
ur, frá þeim tímum, þegar kastalar
og borgarmúrar voiu byggðir til
varnar bænum, en dugðu þó jafnan
skammt. Það mikla völundarhús er
opið að hluta ferðamönnum, og er
þar margt forvitnilegt að sjá um
námugröft og gijótvinnslu fyrri tíma.
Nýtt borgarhverfi, Randwyck, er
í uppbyggingu sunnan til í bænum,
með ráðstefnuhöll, háskóla, sýning-
arsvæði, viðskiptamiðstöð og nokkr-
um stofnunum á vegum Efnahags-
bandalagsins. Það var þar sem fund-
urinn margumtalaði var haldinn, sem
endaði með undirskrift samningsins
sem við bæinn er kenndur.
Allar menjar frá styijöldunum
miklu hafa verið máðar út. Það er
kannski sú sáttarhönd sem Hollend-
ingar réttu fram, og leiddi til vals
Maastrichts sem vettvangs fyrir
samninginn.
Rétt austan við Maastricht eru
býsna skemmtilegir dropasteinshell-
ar, í fallega bænum Valkenburg.
Skammt þar undan er sumarhúsa-
nýlendan í Vaals, þar sem margir
íslendingar hafa búið, og liggur þétt
upp að Aachen-borg. Sveitirnar eru
búsældarlegar þarna þrátt fyrir ná-
lægð iðnaðarins og námanna, og alla
umferðina. Landslag er töluvert,
andstætt flatneskunni niður við sjó-
inn. En hér er þá í staðinn engar
vindmyllur að sjá, og ekki heldur
tréklossa eða túlípanaekrur.
Margir íslendingar fljúga með
Flugleiðum til Lúxemborgar og taka
sér þar bílaleigubíla til að ferðast á
um álfuna. Oftar en ekki leita menn
langt yfir skammt og endasendast
um alla trissur af því þeir þekkja
ekki til þeirra mörgu litlu staða í
næsta nágrenni, sem auðvelt er að
komast til og eiga sér merkilega
sögu, eru fallegir og skoða og vina-
legir til heimsóknar.
Maastricht er ekki nema tveggja
tíma akstur, þ.e. 200 km á hrað-
braut frá Findel-flugvelli í Lúxem-
borg, í hánorður. Samt hafa mjög
fáir landar okkar komið þar við. Hún
er alveg kjörinn staður til að dvelja á
í einhvern tíma, vegna þess hve hún
hefur upp á marga möguleika að
bjóða og hversu auðvelt er þar um
allar samgöngur.
Aðalatriðið er að menn kynni sér
sem best, áður en lagt er upp í ferð-
ina, eftir hveiju er að slægjast á
hveijum stað. Sérhvert ferðalag
heppnast í réttu hlutfalli við þá
heimavinnu og undirbúning sem
menn leggja á sig fyrir ferðina, og
er í rauninni hluti ánægjunnar af
ferðalaginu, forskotið á sæluna.
Evrópa er að verða hluti af átthög-
um okkar. Við verðum að fara að
sýna henni tilhlýðilegan áhuga.
Höfundur er viðskiptafræðingur,
síarfsmaður Seðlabanka íslands og
áhugamaður um ferðamál.