Morgunblaðið - 30.05.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARSTRAUMAR
30. MAI 1993
MBandarípki leikstjórinn Oli-
ver Stone hefur lokið nýju
Vletnammyndinni sinni, sem
fjallar um víetnamska konu
er flytur til Bandaríkjanna,
og verður hún frumsýnd
seinna á árinu. Næsta mynd
hans eftir það heitir „Natural
Born Killers" með Woody
Harrelson, Robert Down-
ey, Juliette Lewis og Rodn-
ey Dangerfield, sem ekki
leikur neitt gamanhlutverk
eins og hann er vanur heldur
illmenni haldið kvalalosta.
WkEnn ein framhaldsmyndin,
„Stakeout H“ kemur á
markaðinn í sumar. í henni
endurtaka Richard Dreyf-
uss og Emilio Estevez rullur
slnar sem lögreglumenn á
gægjum en nýr aðstoðarmað-
ur þeirra er leikinn af Rosie
O'Donnell.
■ Kathleen Turner og
Dennis Quaid leika nk. Mata
Hari og James Bond í nýj-
ustu mynd sinni, „Underco-
ver BIues“. Þau eru njósnar-
ar sem lítið hafa haft að gera
á níunda áratugnum en eru
fengin til að stytta bameign-
arfríið sitt og njósna svolítið
meira fyrir ríkisstjórnina.
MRegnboginn sýnir þessa
dagana hrollvekjuna Goð-
sögnin eða „Candyman",
sem Sigurjón Sighvatsson í
Los Angeles framleiðir. Nýj-
asta myndin frá honum er
Kalífornía með Brad Pitt
og Juliette Lewis í aðalhlut-
verkum. Leikstjóri er Dom-
inic Sena en Pitt og Lewis
leika flækinga sem drepa
ekki aðeins tímann á sínu róli.
FLOTTA-
MAÐUR
SNÝR
AFTUR
Einhver vinsælasti þátturinn í
gamla Kanasjónvarpinu var
Flóttamaðurinn eða * „The Fugi-
tive“ með David heitnum Janss-
en. Þeir sögðu frá manni, dr.
Richard Kimble, sem lagði
á flótta þegar hann var
ranglega sakaður um \ L
að hafa myrt konuna
sína og reyndi að hafa
upp á morðingjanum,
hinum dularfulla „ein-
henta“ manni.
Nú hefur verið gerð
bíómynd eftir þessum
þáttum og er Harrison
Ford í gamla Janssen-hlut-
verkinu sem dr. Kimble.
Myndin verður frumsýnd “v
vestra í sumar en kemur í Sam-
bíóin í haust. Leikstjóri hennar
er Andrew Davis sem síðast
hélt uppi fjörinu í Steven Seagal-
myndinni „Under Siege". Eins
og þeir sem sáu myndina muna
var Tommy Lee Jones í hlut-
verki illmennisins og það er
hann einnig í Flóttamanninum.
Hann var það líka í JFK og
er því að verða, ásamt John
Lithgow, eitthvert eftirsótt-
asta illmenni kvikmyndanna.
„Sjónvarpsþættimir voru
um mann á flótta,“ segir leik-
stjórinn. „í bíómyndinni er fyllt
út í söguna og hún verður um
mann sem fellur í ónáð. Þú
kynnist honum betur og kon-
unni hans og þú tekur að sjá
hvað það er sem olli harmleiknum í lífi
flóttamannsins."
Á flótta; Harrison Ford
leikur dr. Kimble.
IBIO
Gömlu sjónvarps-
þættirnir í Kanan-
um hafa margir hveijir
fengið nýtt líf á hvíta
tjaldinu og sú þróun held-
ur áfram á næstunni enda
framleiðendur í Holly-
wood frægir fyrir að end-
urvinna áður birt efni.
Flóttamaðurinn með
Harrison Ford I David
Janssen-hlutverkinu er
ein af sumarmyndunum
vestra, tökur standa nú
yfir á myndinni „The Be-
verly Hillbillies" með
Dabney Coleman, Lily
Tomlin og Cloris Leac-
hman í aðalhlutverkum,
Mel Gibson mun leika
aðalhlutverkið í bíómynd
sem gerð verður eftir
„Maverick“-þáttunum,
„Gilligan’s Island" er á
leiðinni á hvíta tjaldið og
Uppáhalds marsbúinn
eða „My Favorite Mart-
ian“. Ætli verði þá ekki
stutt I „Combat“ og
„Voyage to the Bottom
of the Sea“.
Þess má geta að þessi
stefna hefur að líkindum
byijað með Hinum
vammlausu sem gerð var
eftir samnefndum saka-
málaþáttum, en bíómynd-
in sú naut geysilegra vin-
sælda. Svo er það auðvit-
að spurning hvort al-
mennir bíógestir undir
þrítugu hafi nokkra hug-
mynd um hvað Maverick
eða Uppáhalds marsbú-
inn er eða fyrir hvað Kan-
inn stendur yfirleitt.
ÞRIÐJA MYND BROOKS
12.000 SÉÐ HETJUNA
Alls hafa nú um 12.000
manns séð bandarísku
gamanmyndina Hetjuna í
Stjörnubíói að sögn Karl 0.
Schiöths, forstjóra bíósins.
Þá sagði hann að um
4.500 hefðu séð spennu-
myndina Öll sund lokuð og
fyrstu tvo sýningardagana
um síðustu helgi sáu 2.000
manns gamanmyndina Dag-
inn langa með Bill Murray.
Næstu myndir Stjörnubíós
eru gamanmyndin „Hexed“
með Ayre Gross en 2. júlí
frumsýnir bíóið nýjustu
mynd Sylvesters Stallones,
„Cliffhanger". Þar á eftir
kemur Síðasta hasarmynda-
hetjan 30. júlí en I september
koma myndirnar „Sleepless
in Seattle" með Tom Hanks
og „In the Line of Fire“,
nýjasta myndin með Clint
Eastwood.
KVIKMYNDIR^™™
Hvab var á Canneshátíbinni?
Idaufam
lagi
í fréttaskeytum var kvartað undan því að 46. kvik-
myndahátíðin í Cannes í Frakklandi hefði verið með
daufara móti. Það hafi vantað betri myndir og meira
nýmeti. Dómnefndin kom sér ekki saman um einn
sigurvegara heldur skiptu Nýja-Sjáland og Kína með
sér Gullpálmanum fyrir myndirnar Píanóið og Ástkon-
an kvödd. Óþekktur breskur leikari, David Thewlis,
var kjörinn besti leikarinn, Holly Hunter, bandarísk
leikkona hvers ferill hefur dalað nokkuð, hreppti leik-
konuverðlaunin og Gullpálmann hlutu Kínveijinn
Chen Kaige og Jane Campion frá Nýja-Sjálandi, sem
ekki gat verið viðstödd svo landi hennar, Sam Neill,
tók við verðlaununum.
Mrslitin* voru reyndar
talsvert söguleg.
Hvorugt svæðið, Kína eða
Eyjaálfa, hafa komist á blað
áður á Cannes en gagnrýn-
endum á hátíðinni líkaði
mjög vel við myndirnar það-
an og dómnefndin var sam-
mála; þær skutu kvikmynda-
stórveldum eins og Evrópu
og Bandaríkjunum laglega
ref fyrir rass. Að auki er
Campion fyrsta konan sem
hlýtur pálmann. Píanóið er
ástarsaga úr auðnum Nýja-
Sjálands á nítjándu öld en í
henni leikur Hunter heyrn-
arlausa skoska konu sem
komin er til landsins að gift-
ast Sam Neill. Ástkonan
kvödd segir frá leikurum við
Pekingóperuna og hve'mig
þeir upplifa umbreytingar
tuttugustu aldarinnar í land-
Breski leikstjórinn Mike
Leigh, sem á tvær góðar
smámyndir að baki, vakti
talsverða athygli með nýj-
ustu mynd sinni, Nakin, sem
Thewlis lék í, og hreppti
hann leikstjóraverðlaunin.
Umdeildasta verðlaunaaf-
hendingin var til þýska leik-
stjórans Wim Wenders.
Hann hlaut dómnefndar-
verðlaunin fyrir myndina
Fjarlægðin svo nærri en það
er nk. framhald englamynd-
Sigurvegarar á Canneshátíðinni; leikararnir Holly Hunter og Sam Neill og kín-
verski leikstjórinn Chen Kaige.
arinnar Himinninn yfir Berl-
ín og kannski þekktust fyrir
að í henni fer Mikael Gorb-
atsjov með lítið hlutverk.
Gagnrýnendur höfðu sakað
hana um að vera of góða
með sig ef svo má að orði
komast en dómnefndarfor-
setinn, Louis Malle, hrósaði
henni fyrir tæknihliðina.
Margir gagnrýnendur og
kaupendur mynda yfirgáfu
Cannes áður en hátíðinni
lauk því þeir fundu lítið við
sitt hæfi. Færri myndir
komu á óvárt eða vöktu al-
menna hrifningu en oft áð-
ur, meira var um myndir sem
ollu vonbrigðum. Bandarísk-
ir framleiðendur, sem oft
hafa komið fram með góðar
myndir á hátíðinni, ollu sér-
stökum vonbrigðum í ár
enda voru tvær nýjar mynd-
ir fremstu leikstjóra Banda-
ríkjanna, Martin Scorsese
og Robert Altmans, geymd-
ar þar til kemur að Feneyjar-
hátíðinni í september. Ábel
Ferrera sýndi endurgerð
sína á hrollvekjunni frægu
„The Invasion of the Body
Snatchers" en hún var púuð
niður.
Cannes-hátíðin er heil-
mikil kaupstefna þar sem
myndir ganga kaupum og
sölum og jafnvel fyrirtæki
líka. Stóra fréttin úr kaup-
sýslunni var að Disney-fyr-
irtækið keypti óháða fram-
leiðslufyrirtækið Miramax
fyrir 50 milljónir dollara.
Miramax' hafði áður m.a.
framleitt írsku myndina
„The Crying Game“ og stóð
að baki bæði Píanósins og
kvínversku myndarinnar
Ástkonan kvödd.
íslensku myndirnar Só-
dóma Reykjavík og stutt-
myndin Ævintýri á okkar
tímum unnu ekki til verð-
launa.
Fjöll að ganga fýsir þá; Stallone og Janine Tumer í „Cliffhanger" sem frumsýnd
verður 2. júlí.
James L. Brooks hefur í
seinni tíð verið þekktast-
ur fyrir að vera einn af höf-
undum Simpson-fjölskyld-
unnar en hann á tvær bíó-
myndir að baki, sem halda
nafni hans á lofti, „Terms
of Endearment" og „Broadc-
ast News“.
Hann hefur nú gert sína
þriðju bíómynd, söngva- og
gamanmyndina „I’ll Do
Anything” og er nún með
Nick Nolte í aðalhlutverki.
Tónlistina gerir Prince én
aðrir sem skrifaðir eru fyrir
henni eru Sinead O’Connor
og Carole King.
Nolte er hæfileikaríkur
leikari frá New York sem fær
ekkert að gera í Hollywood
þar til hann kynnist konu er
fæst við bíómyndir og kemur
honum í samband við yfir-
mann sinn, kvikmyndafram-
leiðanda nokkurn sem Albert
Brooks, bróðir James, leikur.
Með önnur hlutverk fara
Julie Kavner, Joely Richard-
son og Tracey Ullman.
mmm