Morgunblaðið - 30.05.1993, Page 33
;M0RPVWIW, 3Q, MAÍ 49,93
,*P <33
Furðuleg aðför að ís-
lensku bændasamfélagi
Frá Grími Gíslasyni:
Lokið er sýningu fjórða og síð-
asta sjónvarpsþáttarins „Þjóð í
hlekkjum hugarfarsins". Trúlega
verður fleirum en mér á að spyrja
í hvaða tilgangi þessir þættir hafa
orðið til og sýndir í íslenska sjón-
varpinu? Fátt verður um svör, því
varla verður því trúað að þeir sem
ráða efnisvali sjónvarpsins séu
haldnir svo takmarkalausu hatri á
íslenskum landbúnaði og íslenskri
bændastétt að þættirnir séu beinlín-
is framleiddir til ófrægingar henni.
Manni verður á að hugsa hvort
aðrar stéttir þjóðfélagsins eigi von
á svipaðri aðför, því sjálfsagt væri
auðvelt að ráða þennan Baldur
Hermannsson, eða einhvern annan
leigupenna, til þess að taka slíka
iðju að sér, ef vel væri borgað.
Ef að íslenska sjónvarpið telur
það vinning fyrir þjóðfélagið að
gera heimildamynd um það lág-
kúrulegasta, sem gerst hefur með
þjóðinni í gegnum aldirnar, þá má
að sjálfsögðu búast við framhaldi
með svipuðu sniði, eða að enn verði
aukið við ófrægingarherferðina
gegn bændastéttinni. Vonandi er
svo ekki, heldur er hér um slys að
ræða, sem ekki verður endurtekið.
Það er nú svo að á hveijum tíma
er frekar sagt frá því sem miður
fer í samtímanum, heldur en betur,
og því geyma annálar þjóðarinnar
frásagnir á borð við þær sem Bald-
ur þessi hefur tínt saman, að því
er virðist, af mikilli alúð. Væri far-
ið í gegnum nútíma heimildir yrði
sjálfsagt af nógu að taka af því sem
miður hefur farið, en bændasamfé-
lagins yrði þar lítið getið, svik,
þjófnaðir, rán, nauðganir og mann-
dráp og fleira af því tagi kæmi að
litlu leyti í þess hlut.
í umræddu tilfelli geldur bænda-
stéttin þess að hún var í raun þjóð-
félagið gegnum aldirnar. Saga þétt-
býlisstaðanna er svo stutt, miðað
við heildar búsetu þjóðarinnar í
landinu. Að íslenskir bændur hafí
sérstaklega staðið á móti myndun
þéttbýlisstaða við sjóinn er fjar-
stæða. Smæð þjóðarinnar leyfði ein-
faldlega ekki að svo hefði getað
orðið. Örfáir tugir þúsunda fólks í.
okkar stóra landi var ekki nægur
efniviður í bæja- eða borgasamfé-
lag. Að halda slíku fram er ámóta
firra og að íslenska sauðkindin hafi
sérstaklega sóst eftir að bíta gróður
landsins þar sem hann var veikast-
ur, eins og vikið var að í síðasta
þættinum með myndasýningu af
kindum á örfoka landi og í máli
látið liggja að því að svo heiftug
væri sauðkindin að hún myndi, að
gróðrinum búnum, leggjast á grjót-
ið! Slíkar og þvílíkar frásagnir
dæma sig sjálfar, en lýsa hvoru-
tveggja fáfræði og illkvittni höfund-
arins. Nokkur hætta er á því að sá
hluti fólks sem haldinn kann að
vera ofstæki út í íslenskan landbún-
að og bændastétt, sem þáttahöf-
undurinn, finnist að það hafi fengið
góðan hlut og veganesti til áfram-
haldandi iðju.
Maður spyr hvar sé komið al-
mennu siðgæði, ef heimilt er að
fara með takmarkalausum rógi á
hendur einstaklingum eða hópum
og það í sjálfum helsta fjölmiðli
þjóðarinnar. Og hvernig er hinn
svokallaði Menningarsjóður út-
varpsstöðva íjármagnaður og þá til
slíks ósóma, sem hér hefir orðið?
Líka mætti spyija hvemig í ósköp-
VELVAKANDI
Tökum tillit til nágranna
okkar
NÚ FER að nálgast sá tími er
allir garðeigendur þeysast um
grasflatir sínar. Þessar vélar eru
síður en svo hljóðlátar, því mið-
ur, og valda allt of miklu ónæði.
T.d. klukkan 8 að morgni laugar-
dags eða sunnudags þegar erf-
iðri vinnuviku er lokið eða klukk-
an 22 að kvöldi þegar móðir er
t.d. nýbúin að svæfa barnið sitt.
Tökum tillit til nágranna okk-
ar, hjá þeim gætu verið veik börn
eða aldrað fólk, vaktavinnufólk
eða aðrir, sem þurfa á hvíld að
halda.
Sláum grasflötina okkar að-
eins á tímabilinu frá hádegi til
klukkan 20 að kvöldi alla daga
vikunnar.
Nema við notum orf og ljá,
það er hljóðlaust.
Til foreldra með heilbrigð
börn
MÖRG ykkar hafa eflaust lesið
auglýsingu í Morgunblaðinu um
að nú er að heíjast styrktarstöfn-
un fyrir sundlaugarbyggingu í
Reykjadal í Mosfellsveit. Þið vitið
eflaust flestöll, að sá staður tek-
ur þroskaheft og fötluð börn til
dvalar tíma og tíma, foreldrum
til hvíldar og börnunum til góðs.
Eg er meðlimur í félagsskap sem
hefur sinnt þessum málum í yfir
30 ár og á einnig fatlaðan ætt-
ingja.
Ef þið þekkið eitthvað til þess-
ara mála, hvort sem það er ykk-
ur óviðkomandi eða í ætt ykkar
og ef þið hafið fasta atvinnu þá
tala ég til ykkar, jafnt til almenn-
ings sem samtaka og félaga.
Styrkið þetta framtak og
þakkið um leið fyrir heilbrigðu
börnin ykkar. Bankar og bensín-
stöðvar taka við framlagi.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
051011-2609.
Taska tapaðist
BLÁ taska með brúnni ól (Mul-
berry) tapaðist sl. laugardag í
Félagsmálastofnun Reykjavíkur,
Síðumúla 39. Eigandi töskunnar
biður þann sem hefur hana undir
höndum að skila persónulegum
munum sérstaklega óframkall-
aðri filmu sem var úr fermingu
sonar hennar í bréfalúgu Félags-
málastofnunar Reykjavíkur eða
skila henni á lögreglustöð.
Kettlingar fást gefins
ÞRÍR fallegir tveggja mánaða
gamlir kettlingar, kassavanir,
fást gefíns.
Upplýsingar í síma 72773.
Silfurhringir töpuðust
TVEIR silfurhringir töpuðust
mánudaginn 24. maí í Café Paris
við Austurvöll. Hringirnir eru
fermingargjafir ungrar stúlku
frá því í vor og þeirra er sárt
saknað. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 666798 strax, eða
í síma 673310 eftir þriðjudag.
Einnig má fara með þá á Café
Paris og biðja fyrir þá þar. Fund-
arlaun.
Kettlingar fást gefins
SÍAMS blandaðir kettlingar, fal-
legir, blíðir og kassavanir óska
eftir góðu heimili. Uppl. í síma
52051 á kvöldin.
unum fyrirbærið, sem sauð þennan
róg saman, fór að því að njörfa
hugarfar sitt í hlekki slíks illmælg-
is í garð þess samfélags, sem hann
er sjálfur orðinn til af.
Að lokum er ástæða til þess að
spyija hvert sé viðhorf forustuaðila
bændastéttarinnar til svóna fyrir-
bæra? Eða eru þeir kannski svo
heillum horfnir, að finna ekki köllun
eða þrek til þess að láta til sin heyra
og leita réttlætis þegar svo svívirði-
lega hefír verið vegið að þeim hluta
þjóðarinnar, sem þeir hafa lifibrauð
af að heita bijóstvörn fyrir?
I rauninni væri eðlilegt og mak-
legt, að íslensk bændaheimili, öll
sem eitt, tækju sér frí um nokkurt
skeið, frá því að greiða afnotagjald
sjónvarpsins og sýndu þannig af-
dráttarlaust, að þau láta ekki bjóða
sér hvað sem er.
Grímur Gíslason
fyrrverandi bóndi,
Garðabyggð 8, Blönduósi.
Pennavinir
Nígerískur 28 ára karlmaður með
áhuga á ferðalögum, kvikmyndum,
frímerkjum og íþróttum:
Godwin Anumudu,
No 5 Ikoyi Club 1938 road,
Ikoy,
Lagos,
Nigeria.
Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka
með áhuga á ferðalögum o.fl.:
Janet Hayford,
P.O. Box 390 C25/2,
Cape Coast,
Ghana.
Sautján ára
norsk stúlka með
áhuga á tónlist,
dansi, teiknun og
bréfaskriftum:
A. Nathalie Aksetoey,
Cappelens Gata 86 b,
3015 Drammen,
Norway.
LEIÐRÉTTING
75 1 stað 55
I frétt á baksíðu Morgunblaðsins
í gær féllu niður nokkrar línur í
frétt um atvinnumál í Sandgerði.
Við síðustu skráningu atvinnuleysis
í bænum var heildarfjöldi á skrá
75. Tuttugu manns var síðan boðin
vinna hjá útgerðarfélaginu Miðnesi,
þar af leiðandi voru 55 án atvinnu
í bænum. Þeir 32 sem ekki þáðu
vinnu sem bauðst eru 40% þess
fjölda sem skráður var í fyrri viku,
þ.e. 75, en ekki 55 eins og sagði í
blaðinu.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNl,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Til sölu á Arnarnesi
húseign er skemmdist af eldi í janúar sl.
Upplýsingar gefur Kristrún Óskarsdóttir
í síma 657282.
..................... ........
Sálfræðistofa
Hef opnað sálfræðistofu í Hafnarstræti 20
(við Lækjartorg), 3. hæð.
Tímapantanir í síma 628230.
Sérsvið: Vandamál tengd alnæmi.
Ríkarður Líndal dr. phil.,
sálfræðingur.
riUDDSKÓLI RAFNS QEIRDALS
NUDDNÁM
hefst 1. september nk.
Upplýsingar og skráning
í símum 676612 og 686612.
VINKYNNINGAR
0G MATREIÐSLU-
NÁMSKEIÐ
Matreiðsluklúbbur Vöku-Helgafells, Nýir
eftirlætisréttir, vill benda félögum sínum
á eftirtalin námskeið um matreiðslu,
bakstur og vín sem haldin verða á
næstunni.
VÍNKVÖLD - REYKJAVÍK
Þriðja vínkvöld klúbbsins verður haldið í
Hallargarðinum, Húsi verslunarinnar,
miðvikudaginn 2. júní kl. 20.30.
Steingrímur Sigurgeirsson, vínráðgjafi
klúbbsins, fræðirgesti um helstu
vínhéruð Frakklands og gefur þeim að
smakka á nokkrum víntegundum.
Uppselt.
Fjórða vínkvöld klúbbsins verður haldið í
Hallargarðinum miðvikudaginn 9. júní kl.
20.30. Nokkur sæti laus.Skráning í síma
91-688 300.
GERBAKSTUR - HAFNARFIRÐI
Tveggja kvölda námskeið verður haldið í
Matreiðsluskólanum okkar, Bæjarhrauni
16 í Hafnarfirði 2. og 3. júní kl.
19.30-22.30 (sýnikennsla og verkleg
kennsla). Kennari er Margrét Sigfús-
dóttir. Skráning í síma 91-688 300.
GERBAKSTUR - SAUÐÁRKRÓKI
Eins dags námskeið verður haldið í Strönd
á Sauðárkróki, laugardaginn 5. júní.
Kennari er Margrét Sigfúsdóttir. Skráning
hjá Ólöfu Jónsdóttur í síma 95-35834
eftir hádegi.
GRÆNMETISRÉTTIR - SAUÐÁRKRÓKI
Heilsdagsnámskeið verður haldið í Strönd
á Sauðárkróki, laugardaginn 12. júní.
Kennari er Sigrún Ólafsdóttir. Skráning
hjá Ólöfu Jónsdóttur í síma 95-35834
eftir hádegi.
NÝIR EFTIRLÆTISRÉTTIR
SÍÐUMÚLA 6, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 91- 688 300