Morgunblaðið - 06.06.1993, Qupperneq 2
EFIMI
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993
*
Asmundur Stefánsson bjartsýnn vegna kjarasamninga og áframhaldandi stöðugleika
Samkeppnisstaða íslenskra at-
vinnuvega gæti batnað mn 14%
ÁSMUNDUR Stefánsson, fyrrverandi forseti ASÍ og nú fram-
kvæmdastjóri hjá íslandsbanka, sagði í erindi á ráðstefnu á
vegum Háskólans á Akureyri í fyrradag, að ef áform aðila
um kauphækkanir í nýgerðum kjarasamningum nái fram að
ganga muni samkeppnisstaða íslenskra atvinnuvega batna
um 10% vegna minni kostnaðarhækkana hérlendis en erlend-
is. Að auki mætti gera ráð fyrir 4% bata vegna framleiðniaukn-
ingar — og því alls 14% bata á tímabilinu. Hann sagði ennfrem-
ur að lækkun raunvaxta gæti enn frekar bætt stöðuna og
stöðugleikinn ætti að stuðla að lækkun vaxta.
„Aðilar vinnumarkaðarins hafa
nú sýnt þann styrk við erfiðar
aðstæður að framlengja þann
stöðugleika sem við höfum búið
við undanfarin misseri,“ sagði
Ásmundur, og bætti við að ef
áform þeirra stæðust yrðu kaup-
hækkanir 12% meiri í viðskipta-
Herjólfur
var kvaddur
með viðhöfn
Afhentur sænska
hernum í vikunni
GAMLA Vestmannaeyjafeijan
Herjólfur er nú á leiðinni til
Gautaborgar í Svíþjóð þar sem
hún verður afhent nýjum eigend-
um, sænska hernum. Mikið fjöl-
menni kvaddi skipið þegar það
sigldi frá Eyjum.
Gamli Heijólfur var smíðaður
fyrir Heijólf hf. 1976 og var í sigl-
ingum milli lands og Eyja þar til
fyrir ári að nýi Heijólfur tók við
hlutverki hans. Skipið hefur legið
við bryggju í Vestmannaeyjum síð-
an. Nú hefur sænski sjóherinn
keypt skipið fyrir um 65 milljónir
kr. og mun ætlunin vera að nota
það til að þjónusta varðbáta á
Eystrasalti. Herinn kaupir skipið
1. júlí en verður með það á leigu
þangað til.
Mikið fjölmenni kvaddi skipið
þegar það sigldi frá Vestmannaeyj-
um klukkan 22.30 á föstudags-
kvöldið. Skotið var upp flugeldum
og bílflautur þeyttar. Nýi Heijólfur
sigldi með þeim gamla austur fyrir
Eyjar þar sem þeir kvöddust með
fánakveðjum.
Ferðin gengur vel
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Grím Gíslason, stjórnarformann
Heijólfs, um borð í skipinu i gær-
morgun var það komið 130 mílur
suðaustur af Eyjum og hafði ferðin
gengið vel. Áætlað er að siglingin
til Gautaborgar taki þijá og hálfan
sólarhring.
löndum okkar en hér á landi,
mælt í íslenskum krónum, á áður-
nefndu tímabili. „Á sama tíma
munu verðhækkanir verða 8%
meiri en hér á landi. Samkeppnis-
staða íslenskra atvinnuvega mun
þannig batna um 10% vegna minni
kostnaðarhækkana hérlendis en
erlendis."
Ásmundur sagði að áframhald-
andi stöðugleiki ætti að gefa ís-
lenskum fyrirtækjum möguleika á
því að ná framleiðniaukningu
umfram erlenda keppinauta og
benti í því sambandi á að áætlað
væri að um 20 milljarðar væru í
innflutningi sem íslenskur sam-
keppnisiðnaður eigi að stórum
hluta að geta fært til sín. Hann
sagði að ekki væri óeðlilegt að
reikna með 4% framleiðniaukn-
ingu á ári.“
Staða ríkisins betri
Ásmundur fullyrti að aldrei fyrr
hefði verið af jafn mikilli ein-
drægni tekið á til að bæta sam-
keppnisstöðuna og þar með treysta
atvinnuástandið. „Einmitt í þessu
ljósi er furðulegt að hlusta á þær
raddir sem ráðast að samningsað-
ilum fyrir að velta miklum vanda
á ríkissjóð. Þegar aðgerðir ríkisins
eru komnar fram er talið að út-
gjöld muni að teknu tilliti til
óbeinna áhrifa aukast um þijá til
þijá og hálfan milljarð króna. í
þeim útreikningum er ekki tekið
tillit til áhrifanna af bættri sam-
keppnisstöðu. Tekjur ríkisins auk-
ast um rúman milljarð með hveij-
um þúsund sem flytast úr atvinnu-
leysi í starf. Staða ríkissjóðs er
því nánast örugglega betri þegar
áhrif samninganna eru öll komin
fram en ella hefði orðið,“ sagði
Ásmundur.
Opinberri heimsókn portúgölsku forsetahjónanna lýkur í dag
Morgunblaðið/Einar Falur
I Almannagjá
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, skýrir út myndun Almannagjár fyrir Mário Soares,
forseta Portúgals, þegar þau gengu niður gjána. Torfi Túliníus fylgdarmaður forsetans er lengst
til vinstri á myndinni, þá sést Davíð Oddsson forsætisráðherra og lengst til hægri eru séra Sigurð-
ur Árni Þórðarson og séra Hanna María Pétursdóttir þjóðgarðsvörður.
Hrifust af Þingvöllum
PORTÚGÖLSKU forsetahjónin Mário og Maria
Barroso Soares heimsóttu Þingvelli í veðurblíðu í
gærmorgun. Hrifust þau mjög af staðnum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra og frú Ástríður
Thoarensen tóku á móti portúgölsku forsetahjónunum,
fylgdarliði þeirra, og frú Vigdísi Finnbogadóttur við
útsýnisskifuna við Almannagjá, þar sem gestimir
heyrðu sögu Þingvalla. Að því búnu var gengið niður
gjána, með viðkomu á Lögbergi, og hrifust gestimir
mjög af útsýninu og eins hlýjunni þarna á milli snævi
typptra fjallanna. Frá Þingvöllum var haldið til Vina-
skógar þar sem forsetahjónin gróðursettu tijáplöntur,
og þaðan lá leiðin til Nesjavalla.
Davíð Oddsson forsætisráðherra bauð til hádegis-
verðar í Perlunni og síðan var skoðunarferð til Vest-
mannaeyja á dagská heimsóknar portúgölsku forseta-
hjónanna og loks kvöldverðarboð hjá Vigdísi Finnboga-
dóttur forseta íslands á Hótel Holti. í dag skoðar
Soares Listasafn íslands og opinberri heimsókn hans
hingað lýkur á Reykjavíkurflugvelli klukkan 11.30.
Undirbúningsnefnd kannar möguleika á gabbró-verksmiðju á Höfn
Homfírsk fíöll söguð niður í flísar?
Höfn.
BÆJARSTJÓRN hélt fyrir skömmu fund um gabbró-verksmiðju en
undanfarið hafa verið gerðar athuganir á því hvort hugsanlegt
væri að ráðast í byggingu og rekstur slíkrar verksmiðju hér í hér-
aði. Jón Pálsson, rekstrarverkfræðingur frá Verkfræðistofu Stefáns
Ólafssonar, og Jón Siguijónsson, verkfræðingur hjá Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðarins, fluttu framsögu í málinu.
Hjá Jóni Siguijónssyni kom fram
að eftir því sem menn vissu best
væri gabbró hið besta byggingar-
efni. Mjög heppilegt í gólf- og vegg-
flísar með meiru og væri þá unnt
að framleiða flísar í mismunandi
grófleika og stærðum.
Hjá nafna hans Pálssyni kom
fram að innanlandsmarkaður væri
ekki nægilega stór til að rekstur
verksmiðju gæti byggst á honum
eingöngu. Því væri mikilvægt að
komast í samvinnu við erlenda að-
ila í þessari grein. Markaðssvæði
taldi hann að ætti að vera Norður-
álfa, það er Norður-Ameríka og
Norður-Evrópa. Kvað 50.000m2
verksmiðju kosta um 240 milljónir
króna og væri það hentug stærð
að hans mati. Yrði slík verksmiðja
rekin á einni vakt skapaði það 6
manneskjum atvinnu, en væri um
3 vaktir að ræða þyrfti um 40
manns til að manna hana.
Hann kvað frumathugun sína þó
það jákvæða að ugglaust ætti að
veija 5-10 milljónum til frekari
kannana og stofna þyrfti undirbún-
ingsfélag til að annast þann þátt-
inn. Að reisa verksmiðju í Horna-
firði byggðist auðvitað á því að hér
væru stærstu hugsanlegu námurn-
ar, en nú væri víða svo komið í
þessari framleiðslu að hráefni væri
flutt um mjög langan veg og heims-
álfa á milli. Það væri einn af kostun-
um við framleiðslu hér.
Sveiflur á markaðnum
Hilmar Hilmarsson sem lengi
hefur starfað í Suður-Afríku gaf
fundarmönnum smá innsýn í mark-
aðsmálin sem giltu um steinefni
svipuð íslenska gabbróinu. Sveiflur
á verði eru miklar að hans sögn og
fylgja auðvitað sveiflum í bygging-
ariðnaði. Eftir lýsingum hans að
dæma væru sveiflurnar ekkert
ósvipaðar sveiflum í sjávarútvegi,
sem stafa nú oftast af öðru en verð-
sveiflum. Þá kom fram hjá honum
að nýting gijóts úr námum til full-
unninna flísa væri kannske á bilinu
5-50%.
í lok fundar var kosin 3ja manna
undirbúningsnefnd að frekari úr-
vinnslu. Hana skipa Ari Jónsson og
Hermann Hansson á Höfn og fyrr-
nefndur Hilmar Hilmarsson.
- JGG
A
► 1-48
Báðum megin borðs
►í okkar litla samfélagi verður
vart hjá því komist að ráðsmenn
gagna og gæða lendi í þeirri að-
stöðu að ólík hagsmunasvið skar-
ist./lO
Aznar berst við vofu
Francos
►Hugleiðingar um þingkosning-
arnar á Spáni sem fara fram í
dag./14
Sextán ára meðganga
►Björk.Guðmundsdóttir beið i
sextán á með að gera sólóplötu
og segir plötuna það besta sem
hún hafi gert, - fýrir utan að eign-
ast barn./ 16
Umbunin úttekin
►Fyrstu laxveiðiferðir sumarsins
minna á ýmsan hátt meira á helgi-
stundir en veiðiskap./ 20
B
► 1-32
íslands þúsund ár
►Nokkrar hugleiðingar á degi sjó-
manna um gerð heimildarmyndar,
sem lýsir einum degi í þúsund ára
sögu áraskipanna á íslandi./l
Stjórnandinn
►Páll Pampichler Pálsson hefur
verið við stjómvölinn í íslensku
tónlistarlífí í 44 ár, stjórnað ungum
og öldnum, reyndum og óreyndum
í kórum, lúðrasveitum og sinfóníu-
hljómsveit./6
Heimasætur á faralds-
fæti
►Útþráin hefur rekið heimasæt-
urnar í Keldudal í ferðalög um fjar-
læg lönd. Séu þær ekki í langferð
em þær að leggja drög að
henni./14
Sumarsirkus
►Sumarmyndimartaka brátt að
berast frá Hollywood og kennir
þar margra grasa./16
Litli risinn
►Naxos-útgáfan hefur brotist upp
í að vera þriðja stærsta útgáfa
heims með það að vopni að selja
sígilda tónlist á miklu lægra verði
en aðrar útgáfur - og það síst lak-
ari upptökur./ 18
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 15b
Kvikmyndahúsin 22 ídag 20
Leiðari 24 Fólk í fréttum 22b
Helgispjall 24 Myndasögur 24b
Reykjavíkurbréf 24 Brids 24b
Minningar 26 Stjömuspá 24b
íþróttir 42 Skák 24b
Útvarp/sjónvarp 44 Bió/dans 25b'
Gárur 47 Bréf til blaðsins 28b
Mannlífsstr. 8b Velvakandi 28b
Kvikmyndir 14b Samsafnið 30b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4