Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 11 Hagsmuna gætt KRISTJÁN Ragnarsson í LÍÚ á sæti við mörg fundaborð. Hann er framkvæmdasljóri hagsmuna- samtaka útvegsmanna (LÍÚ), sit- ur í stjórn Fiskveiðasjóðs og er formaður bankaráðs Islands- banka svo nokkuð sé nefnt. Sú gagnrýni hefur heyrst í hópi hluthafa bankans að óheppilegt sé að maður, sem gegnir trúnað- arstarfi fyrir viðskiptavinahóp á borð við útgerðina, sitji í forystu bankaráðsins. Kristján telur sig ekki hafa hnot- ið um andstæða hagsmuni í þessu efni. „Hagsmunir umbjóð- enda minna hafa ekki komið fram sem ágreiningsefni og til ágreinings um þetta við aðra bankaráðsmenn hefur ekki komið frá því ég settist í bankaráðið,“ segir Kristján. Hann telur að hagsmunir annarra banka- ráðsmanna séu jafnvel „beintengd- ari“ við bankann en sínir, enda eigi sumir bankaráðsmenn í verulegum viðskiptum við bankann. „Mér hefur ekki fundist að þeir hugsi um eigin hag, heldur þess fyrirtækis (bank- ans) sem þeir eru að vinna fyrir.“ Fljótlega eftir að Kristján tók sæti í bankaráði íslandsbanka segir hann að menn hafi komið og viljað ræða um viðskipti sín við bankann. „Eg gerði hveijum þeim sem þetta gerði ljóst að honum bæri að snúa sér til starfsmanna bankans. Eftir að ég settist í formannssætið í bankaráðinu hefur enginn rætt bankaviðskipti sín við mig, fyrir utan einn leigubílstjóra og ég útveg- aði honum viðtal við lögfræðideild- ina. Mér skilst að svona persónulegt kvabb sé áþján á mörgum banka- ráðsmönnum." En lenda menn aldrei í vandræð- um vegna andstæðra hagsmuna? Kristján kvaðst ekki hafa lent í neinum vandræðum, en játaði að vissulega byði seta i bankaráði upp á vissa hættu á hagsmunaárekstr- um. Þar væru lagðar fram upplýs- ingar um fyrirtæki, sem í tilvikum gætu verið samkeppnisaðilar bank- aráðsmanna, svo dæmi sé tekið. „Þess er gætt að menn víki af fundi ef málefni samkeppnisaðila eru til Krislján Ragnarsson Kristján Ragnars- son er formaður bankaráðs ís- landsbanka, fram- kvæmdastjóri LÍÚ og í stjórn Fisk- veiðasjóðs umræðu,“ sagði Kristján. Hann sagðist ekki vera beðinn um að víkja þótt til umræðu væru fyrirtæki í sjávarútvegi, sem jafnvel eru með- limir í LÍÖ, því það er ekki talið að þau séu í tengslum við hann persónulega. Starfsmenn íslandsbanka og dótturfélaga hans lúta viðamiklum siðareglum „til að forðast hags- munaárekstra og hlutdrægni í starfi", eins og segir í heiti regln- anna. Þar segir meðal annars í 6. kafla að starfsmenn bankans skuli ekki sitja í stjórnum fyrirtækja eða stofnana nema með leyfi banka- stjómar. Síðan segir: „Leyfi til stjómarsetu skal því aðeins veitt að ekki sé talin hætta á hagsmuna- árekstmm eða að stjórnarsetan geti valdið tortryggni. Því skal ekki veita leyfi til stjórnarsetu ef við- komandi fyrirtæki er í viðskiptum við bankann eða er væntanlegur viðskiptavinur, né ef fyrirtækið á í Vék úr starfi vegna hagsmunaúrekstra samkeppni við viðskiptavini bank- ans eða væntanlega viðskiptavini." Nú em bankaráðsmenn íslands- banka forsvarsmenn fyrirtækja og stórra samtaka. Væri ekki æskilegt að sömu reglur giltu um bankaráðs- mennina og starfsfólkið? „Hvemig heldur þú að þú fyndir þá starfhæft bankaráð?" spyr Krist- ján á móti. „Ég held að það væri mjög erfítt. Ég held að það verði alltaf þannig í einkabanka að reynt sé að gæta hagsmuna þeirra sem eiga hlutaféð. Ákveðnir hluthafar hafa falið mér að gæta sinna hags- muna þama og þeir eru sameigin- legpr hagsmunum annarra hluthafa bankans. Ég er að gæta hagsmuna hluthafanna en ekki einstakra við- skiptamanna." Kristján segist ekki vilja neita því að víða um þjóðfélagið virðist svo sem menn sitji báðum megin borðs. Hann nefnir sem dæmi veið- ar og vinnslu sjávarafla. Sjómönn- um og fískverkendum hafi verið á vissan hátt stillt upp sem andstæð- ingum við ákvörðun fískverðs, en oft reki sörnu aðilar útgerð og fisk- verkun. „Ég varð að kveða upp úr um það að ég settist í Verðlagsráð sjávarútvegsins fyrir þá sem seldu físk, þótt þeir séu í minnihluta í LÍÚ. Meirihluti félaga í LÍÚ er í því að veiða og verka físk. Ég sagði að mér væri alveg sama um það, mér væri ekki falið að gæta hags- muna þeirra. Ég fékk aldrei gagn- rýni fyrir þessa afstöðu innan sam- takanna." Kristján segir að menn verði fyrst og fremst að gera þessi mál upp við sjálfa sig. Hann segist hafa sömu viðhorf gagnvart setu sinni í stjóm Fiskveiðasjóðs, sem m.a. veitir lán til útgerðarinnar, og setunnar í bankaráði íslandsbanka. „Menn geta spurt hvort ég, sem fulltrúi LÍÚ í stjórn sjóðsins, sé ekki þar til að heimta lægri vexti og afslætti. Ég hef valið þann kost að vera í stjórn sjóðsins til að gæta þess að hann sé trygg stofnun til að geta veitt útveginum þjónustu." Kristjáni þykir ekkert óeðlilegt við það að menn velti fyrir sér hættu á hagsmunaárekstrum og hefur sjálfur komist að niðUrstöðu í þessu efni. „Ég hef sett mér þá grundvallarreglu að gæta á hveij- um stað þeirra hagsmuna sem mér hefur verið falið og vera ófeiminn við það!“ Kristín Sigurðardóttir var starfsmaður verðbréfafyrir- tækisins Kaupþings þegar hún var tilnefnd af Kvennalista í bankaráð Landsbankans. Eftir tilnefninguna upphófst mikil umræða um hættu á hags- munaárekstrum, hún væri starfsmaður fyrirtækis sem væri í beinni samkeppni við dótturfélag Landsbankans, Landsbréf. Lyktir málsins urðu þær að Kristín sagði upp starfi sínu þjá Kaupþingi frekar en að gefa eftir sætið í bankaráð- inu. Hvað finnst henni nú, rúm- lega þremur árum síðar, um málið? essi mikla umræða á sínum tíma kom mér á óvart,“ segir Kristín. „Ég átti svo sem von á því að það yrði spurt út í starf mitt hjá Kaupþingi, en ekki þessu.“ Hún segir að ef niðurstaðan hefði verið sú að hún hefði haldið starf- inu og vikið af fundum bankaráðs- ins þegar einhver leyndarmál varð- andi Landsbréf bæri á góma, væri sá fundur ókominn til þessa. Eftir þá miklu umræðu sem spannst um mál Kristínar segist hún hafa get- að verið kát ef þetta hefði orðið til breyttra hátta varðandi mannar- áðningar og stöðuveitingar. „Þarna kostaði ég auðvitað svolitlu til, en það var léttvægt ef þjóðfé- lagið hefði orðið betra. En ég er ekkert viss um að ég sjái það hafa gerst.“ Finnst Kristínu hún sjá dæmi um hagsmunaárekstra, eða hættu á þeim víða? „Ég þori ekkert að fullyrða um það. Stundum koma upp dæmi þar sem svo virðist vera, en það er ekki víst að allt sé eins og sýnist.“ Kristínu fínnst hún stundum sjá þess merki að alþing- ismenn villist svolítið á hlutverki löggjafans og framkvæmdavalds- ins. Hún segir að Kvennalistakonur Kristín Sigurðardóttir Kristín Sigurðar- dóttir er fram- kvæmdastjóri Fé- lags vinnuvélaeig- enda og banka- ráðsmaður í Landsbanka ís- lands hafi lagt fram ítarlegar fyrirspum- ir á Alþingi fyrir þremur árum um setur manna í stjómum og ráðum. „Það varð mjög tregt um svör, því var borið við að tengsl manna væm ekki skráð! Það var lagður fram langur listi yfir menn í nefnd- um og ráðum, en á listanum var bara nafn og starfsheiti, ekki hvar maðurinn starfaði. Það var eins og ekki væri mikill vilji í kerfínu fyrir því að taka á þessu. Ég trúi því tæpast að það sé ógerlegt að gera þetta, svo er nú að fólk sem velst í svona störf er ekki alveg óþekkt og því ætti að vera hægt að hafa upp á því hvar það starfar.“ Til sölu 2 stk. Daf 45.160.08 4WD '92, eknir 130.000 km., bílar í toppstandi. lltbúnaður: Dana 60 RR HD fram-hásing, Rockwell afturhásing, hátt og lágt drif, 130 km drif, Borgo Worner milljkassi, no spin laesing að aftan, parabolic fjaðrir, upphituð olíusía, upphitaðir speglar, vökva- og veltistýri, loftfjaðrandi bílstjóra- sæti, snúningshraðamælir, útvarp/segulband, kassi, lengd 5 m, breidd 2,40, 24 md, afturhurðir, 1 hliðarhurð, Chief vörulyfta, 750 ál. Bílarnir eru á nýlegum dekkj- um, skoðaðir '94, o.m.fl. Verð kr. 4.200.000 stk. án vsk. Mjög góð kjör. Uppl. gefur Örn i símum 684932 og 985-38327 eða Karl í síma 674767. WÓÐLEIKHÚSID Rekstur Leikhusskjallarans Þjóðleikhúsið auglýsir hér með eftir rekstraraðila að Leikhúskjallaranum og mötuneyti starfsmanna. Ráðgert er að breyta rekstri Leikhúskjallarans. Þar verður áfram veitingastaður, en einnig er fyrir- hugað að þar fari fram ýmiss menningarstarfsemi, tengd starfi Þjóðleikhússins. Þeir, sem hafa áhuga á að reka nýjan og spennandi Leikhúskjallara, séndi nöfn sín og mögulega einnig hugmyndirtil skrifstofu Þjóðleikhússins, Lindargötu 7, fyrir 19. júní 1993, merktar: „Nýr Leikhúskjallari." Þjóðleikhússtjóri. Sólheimar i Grímsnesi Sumarbústaðafólk - Grímsnesingar Trjáræktardagur á Sólheimum í Grímsnesi Sunnudaginn 6. júní, kl. 14, verður haldið erindi á Sólheimum um skilyrði til trjáræktar í Grímsnesi og val á tegundum og aðferðum til ræktunar. Leiðbeinandi er Úlfar Óskarsson, skógfræðingur. Á Sólheimum eru seldar trjáplöntur, runnarog sumarblóm auk grænmetis og annarra afurða. Allir eru velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.