Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 17 upp á popptónlist og til að mynda eru seldir miklu fleiri tölvuleikir en diskar með tónlist. Einna best selst tónlist sem ekki er popp, tón- list sem er nær daglegu lífí, nær því sem lífíð er í borginni, að labba niður götu og heyra í bílum og fólki. Mjög mikið af popptónlist er komið úr fasa við það sem er að gerast í lífínu. Rokkið er borg- artónlist líka, en sú tónlist sem er vinsælust í Lundúnum er um Lundúnir, en ekki einhveijar kýr,“ segir Björk og hlær að samlíking- unni. „Þegar þú ert að semja rokk undir áhrifum frá annarri tónlist ertu bara að borða kúkinn úr sjálf- um þér. Þú átt að semja tónlist út frá lífrænum hlutum, hlutum sem gerast, götulífí og svoleiðis. Það er það sem tónlist á að vera, þú skrifar ekki bók um bók.“ - Ert þú þá að semja að ein- hveiju leyti undir áhrifum af stór- borginni, t.a.m. af Lundúnum? „Mín tónlist er ekki um Lundún- ir, ég samdi öll þessi lög áður en ég flutti þangað. Sum þeirra eru eldgömul, það eru lög þarna sem eru orðin sjö ára gömul. Mér fínnst þau samt ekki gömul, því ég var með svo mikið úrval áð ég gat pikkað út það sem mér fannst standa í dag.“ „Debut er ekki beint um stað, heldur um það að eignast heimili og um það að ferðast, enda hef ég gert mikið af því undanfarin ár. A henni eru líka mjög prívat lög eins og t.a.m. Airplane sem samið var á kirkjuorgel í Borgar- firði og því varla borgarlag.“ Sextán ára meðganga Ekki segir Björk að þessi lög séu einhveijar hugmyndir sem ekki hafí hæft Sykurmolunum, enda „tíðkaðist ekki innan Sykur- molanna að mæta á æfingar með sín eigin tónverk. Þú áttir þín lög heima en mættir á æfingar án allra hugmynda til að búa til lög, Sykurmolamúsík var bara Sykur- molamúsík. Ég er búin að vera í hljómsveitum síðan ég var ellefu ára og það má segja að þetta hafi verið að vaxa með mér síðan þá, en alls ekki að þetta sé eitthvað eldgos út úr Sykurmolunum." Björk segir að jafnhliða því sem lögin urðu til fann hún hvaða hljóð- færi ættu við í þeim og hvaða stemmning. Til að ná því fram fékk hún til liðs við sig Nellee Hooper, sem meðal annars hefur starfað með bresku danssveitinni Soul II Soul. Hún segir að hann hafí verið einskonar verkstjóri og liðsinnt henni til að ná fram því sem hún vildi á þessari fyrstu sóló- plötu sinni, því þó hún hafi áður sungið ein inn á plötu þá vill hún ekki telja það mikla sólóplötu. „Þetta er spuming um hvers draum þú ert að uppfylla og í þetta sinn er það minn draumur. Ég spila flest hljómborð og sem auðvitað öll lögin og textana og fæ síðan gesti til að spila, en þeir koma þá til þess. að uppfylla minn draum og mína sýn, sem ég hef mjög oft gert með aðra, t.d. þegar ég var að vinna með Megasi, sem mér finnst mjög gaman, að vera hálfgert verkfæri og hlusta á ein- hvern lýsa einhveiju sem er bara í hausnum á honum sem maður þarf uppfylla.“ Utsetningar á plötunni eru fjöl- breytilegar og ólíkar flestu því sem áður hefur heyrst, t.a.m. voru tvö lög send til Indlands og þarlend strengjasveit lék inn á þau, og því ekki gott að gera sér grein fyrir hvernig eigi eftir að ganga að setja saman hljómsveit til að leika lög- in. Björk segir reyndar að hún hafi ekki átt von á því að geta sett saman hljómsveit til að fara í tónleikaferð í kjölfar plötunnar; „það var bara of gott til að vera satt. Fyrst platan fær svo góðar viðtökur vona ég að ég fái pening frá plötufyrirtækinu til að geta sett.saman þá hljómsveit sem ég vil. Ég fæ pening til að setja sam- an venjulega hljómsveit en ég þarf indverska strengjasveit, hörpu- leikara, slagverksleikara; ég þarf því svolítið skrýtna upphæð.“ Byijað á óvenjulega endanum - Ég heyrði hjá þér nokkur lög af plötunni í haust og þá fannst mér sem hún yrði óvenjulegri en hún er í raun. „Ég byijaði á óvenjulega endan- um en hún varð í raun og veru eins og ég hafði hugsað mér hana. Ég vildi nútímabít, en ekki með venjulegu dansdóti ofaná. Platan er mjög svipuð og ég hafði hugsað mér í upphafi, en bara miklu betri, hún er atvinnumannslegri en ég þorði að vona. Þessi plata er það besta sem ég hef gert, fyrir utan að eignast barn, og mér fínnst þetta rosalega gaman. Þegar ég byijaði að taka fannst mér ég vera að gera eitt- hvað ofsalega sérviskulegt. Ég var að vera mjög eigingjörn og bara að setja inn Öll skrýtnu hljóðin sem ég fíla án þess að reyna að geðj- ast einum eða neinum og ég bjóst ekkert við því að fólk kynni þessu neitt sérstaklega, kannski þú, Ási, Bragi og álíka furðufuglar, en í það heila hélt ég að fólk myndi alls ekki hafa hugmynd um hvert ég væri að fara, það kemur því skemmtilega á óvart.“ - Platan er það ijölbreytt að líklega finna allir eitthvað við hæfí. „Það er reyndar bara vegna þess að ég hef ekki neina sérstaka fordóma gagnvart neinni tónlist. Ef fólk er eitthvað að láta það þvælast fyrir sé hverrar gerðar tónlistin er þá er það bara komið í ógöngur. Það er eins og að segja 'ég eignast bara vini sem eru með blá augu, ég vil ekki kynnast fólki með brún augu.“ Hér þagnar Björk smá stund og hugsar og bætir síðan við og hlær: „Eina tónlist sem ég kann ekki að meta er nýaldartónlist.“ Á lög á margar plötur - Nú þegar ísinn er brotinn, langar þig þá ekki til að halda áfram, byija strax á næstu plötu? „Ég er með lög og hugmyndir og lög á margar plötur; sérstak- lega þar sem þessi gekk svona vel, ég er veik í að byija á ann- arri plötu, ég er búin að gera prufuupptökur af rúmri hálfri plötu sem ég gæti þess vegna far- ið í stúdíó á morgun að vlnna. Annars er ég hálf hrædd við allt þetta fjölmiðlaumstang, það tekur frá mér svo mikinn tíma, það fer svo mikið blaður og rugl í það, og svo þýðir það að maður skellur bara niður aftur. Ég hefði í raun kunnað því best að fá að vera úti í horni í rólegheitunum og að nógu margir myndu kaupa plötuna til að ég fengi að gera aðra, því þessi plata er ekkert sérstök, mig lang- ar að gera fímm plötur og sú fim.mta verður góð. Ég þekki þetta umstang og veit um leið hvað það getur verið eyði- leggjandi, en ég' get samið hvar sem er, hvort sem ég er að vinna í frystihúsi eða bókabúð, og hve- nær sem er. Þessi plata var ódýr í vinnslu því ég var með allt til- búið svo ég þarf ekki að selja svo rosalega. mikið til að geta haldið áfram. Ég held ég tolli alveg þó ég fái rassskell," segir Björk og hlær, og er rokin í ferð með MTV- liðum út úr bænum í ijölmiðlaum- stang. Sumarfrí í Skandinavíu! Skandinavía bíður, full af spennandl ferðamögulelkum. Fjölmargir gistimöguleikar í boöi, allar upplýsingar era að finna í SAS hótelbæklingnum. Flogið er til Kaupmannahafnar alla daga, allt að þrisvar sinnum á dag og þaðan er tengiflug til annarra borga á Norðurlöndum. Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða ferðaskrifstofuna þína. Verð gildir til 30. september og miðast við dvöl erlendis í 6 - 30 daga. Barnaafsláttur er 33%. Bókunarfyrirvarl 21 dagur. Innlendur flugvallarskattur 1.310 kr., danskur flugvallarskattur 664 kr. H///SAS SAS á íslandi - valfrelsi i flugi! Laugavegl 172 Síml 62 22 11 Sumarleyfisfargjöld SAS Keflavík - Kaupmannahöfn 28.900,- Kefiavík - Gautaborg 28.900,- Keflavik - Malmö 28.900,- Keflavík - Stokkhólmur 29.900,- Keflavfk - Norrköplng 29.900,- Keflavík - Jönköping 29.900,- Keflavík - Kalmar 29.900,- Keflavík - Váxjö 29.900,- Keflavík - Vesterás 29.900,- Keflavík - Örebro 29.900,- Keflavik - Osló 28.900,- Keflavík - Stavanger 28.900,- Keflavík - Bergen 28.900,- Keflavík - Kristiansand 28.900,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.