Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 Krístinn H. Guð- bjömsson - Minning Fæddur 4. apríl 1922 Dáinn 29. maí 1993 Eftir langvarandi veikindi knúði dauðinn dyra og nú hefur frændi minn kvatt þetta líf. Hann hét fullu nafni Kristinn Hannes Guðbjörns- son, fæddur í Reykjavík 4. apríl 1922, sonur hjónanna Guðfinnu Gunnlaugsdóttur og Guðbjöms Hanssonar yfirlögregluvarðstjóra. Við Kristinn vorum mikið skyldir, mæður okkar systur og feður okkar tvíburar. Samgangur foreldra okk- ar og bamanna var afar mikill, svo segja má að við höfum verið eins og ein stór fjölskylda. Margar vom ánægjustundirnar sem við áttum saman í þá gömlu og góðu daga og minnist ég enn þessara æsku- og bernskuára með mikilli ánægju. Kristinn, eða Kiddi eins og hann var alltaf kallaður, var elstur sinna systkina. Helga er næst í röðinni, fædd 13. apríl 1923. Hún er gift Magnúsi Þorsteinssyni fv; skip- stjóra og eiga þau fimm böm. Jó- hann er yngstur, fæddur 3. júní 1925, kvæntur Emilíu Kristjáns- dóttur og eiga þau þrjú börn. 1. mars 1952 kvæntist Kristinn eftir- lifandi eiginkonu sinni Agnesi Mar- inósdóttur og eignuðust þau tvö börn, Marinó og Helgu. Marinó er rafeindameistari, fæddur 1. október 1953. Hann var kvæntur Ásdísi Sigurðardóttur og eiga þau þrjú börn; Kristinn Bjöm, f. 25. maí 1975, Agnesi, f. 2. maí 1980, og Hjördísi, f. 4. desember 1981. Fyrir átti Ásdís soninn Sigurð sem Mar- inó gekk í föður stað. Helga er prentsmiður, f. 6. nóvember 1956. Hún er gift Flosa Sigurðssyni verk- fræðingi og eiga þau þrjú böm; Finn Marinó, f. 15. ágúst 1981, Agnesi Rún, f. 28. janúar 1986 og Fannar Már, f. 27. september 1989. Ungur að ámm stundaði Kiddi íþróttir af miklu kappi. Hann komst í úrvalsflokk KR i fimleikum undir stjóm hins þekkta íþróttakennara Vignis Andréssonar. Fór mikið orð af snilld þeirra er flokkinn skipuðu og sýndu þeir listir sínar við fjöl- mörg tækifæri við mikla hrifningu áhorfenda. Snemma fékk hann líka mikinn áhuga á veiðiskap. Hann átti ekki langt að sækja veiðiáhug- ann því feður okkar vom miklur áhugamenn um laxveiði sem þeir stunduðu um langt árabil. Tóku þeir Kidda með sér á stundum í laxveiðiferðimar sem urðu honum síðar á lífsleiðinni ógleymanlegar í minningunni. Kiddi var glaðlyndur og hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi, hlát- ur hans smitandi og græskulaust grínið aldrei langt undan. Ef betur var að gáð var hann í raun dulur, íhugull og alvarlega þenkjandi með ríka réttlætiskennd og viðkvæma lund. Hann fylgdist vel með því sem var að gerast í samfélaginu og hafði fastmótaðar skoðanir á þeim mál- efnum sem honum vom hugleikin. Hann var góðgjam og umburðar- lyndur og vissi að tvær hliðar em oftast á hveiju máli. Mestan hluta starfsævi sinnar var hann sem loftskeytamaður í þjónustu Pósts og síma, eða alls um 40 ára skeið, lengst af á Vatns- enda og í Gufunesi en einnig um nokkurt árabil að Gufuskálum á Snæfellsnesi. Öll árin vann hann meira og minna vaktavinnu þar sem um helmingur vinnutímans var næturvinna, og það vita þeir best sem til þekkja hve þreytandi slik vinnutilhögun er og fer illa með fólk. Bíður mér í gmn að sú hafi líka verið raunin með frænda minn. Síðustu árin glímdi hann við erf- ið veikindi. Þó heyrði ég hann aldr- ei kvarta. Veit ég að hann mat mikils umönnun og umhyggju konu sinnar og bama sem kveðja góðan dreng sem nú hefur lokið sínu dags- verki. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég Kidda frænda minn, um leið og ég og systkini mín þökkum honum samfylgdina og vottum Agnesi, bömunum og öðmm að- standendum samúð okkar. Gunnlaugur Lárusson. Mér er ljúft að minnast mágs míns sem lést skyndilega á heimili sínu 29. maí síðastliðinn. Þrátt fyr- ir vanheilsu síðustu árin kom frá- fall hans á óvart. Kristinn var fæddur í Reykjavík 4. apríl 1922, sonur þeirra hjóna Guðbjöms Hanssonar, fv. yfirlög- regluþjóns í Reykjavík, og Guðfinnu Gunnlaugsdóttur, sem bæði eru lát- in, en þau bjuggu seinast á Skeggjagötu 14 í Reykjavík. Hann átti tvö systkini, Jóhann, bifreiða- stjóra, og Helgu, húsmóður, bæði búsett í Reykjavík. Kynni mín af Kristni hófust fyrir hartnær 40 ámm þegar hann byij- aði að vera með systur minni, Agnesi Marinósdóttur. Þau giftust 1. mars 1953 og eignuðust þijú böm. Dreng sem dó við fæðingu; Marinó, f. 1. október 1953, sím- virki, hans kona var Ásdís Sigurðar- dóttir. Þau eiga 3 böm, en fyrir átti Ásdís einn dreng. Ásdís og Marinó slitu samvistir; Helga gift Flosa Sigurðssyni, verkfræðingi, þau eiga þijú böm. Fyrstu búskaparárin bjuggu Kristinn og Agnes í Blönduhlíð 13 í sama húsi og ég og faðir okkar. Seinna eða um 1960 byggðu þau ásamt systur Kristins hús í Glað- heimum 6 og bjuggu"þar að mestu t Ástkær kona mín, móðir, stjúpmóðir, amma og systir, ANNA SJÖFN STEFÁNSDÓTTIR, Brekkustíg 31 c, Njarðvík, verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju þriðjudaginn 8.júní kl. 13.30. Maron Guðmundsson, Guðrún Maronsdóttir, Eyjólfur Stefán, Guðbjörn Maronsson, Stefán Eyjólfsson, og systkini. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, BRYNHILDUR INGIBJÖRG JÓNASDÓTTIR Ijósmóðir, verður jarðsungin frá Garðakirkju, Álfta- nesi, mánudaginn 7. júní nk. kl. 13.30. Þórunn Haraldsdóttir, Þórmundur Þórarinsson, Elsa Haraldsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Jóna Haraldsdóttir, barnabörn og Valdimar S. Jónsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, GUNNAR GUÐBRANDSSON, Karfavogi 38, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 4. júní. Olga Óladóttir, Ásgeir Gunnarsson, Margrét Gunnarsdóttir, Tinna K. Gunnarsdóttir. t Utför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞÓRHÖLLU ÞÓRARINSDÓTTUR frá Valþjófsstað ■ Fljótsdal, fer fram í Fríkirkjunni þriðjudaginn 8. júní kl. 15.00. Ingibjörg Björnsdóttir, Björn Magnússon, Þuríður Björnsdóttir, Anton Erlendsson, Björn Björnsson, Jóna Finnbogadóttir og barnabörn. Heiður Baldursdóttir rithöfundur - Minning Fædd 31. maí 1958 Dáin 28. maí 1993 Okkur Iangar að minnast Heiðar Baldursdóttur rithöfundar í nokkr- um orðum. Seint á síðasta ári hóf hún að starfa með SÍUNG, sem er samstarfshópur um málefni ís- lenskra bama- og unglingabókahöf- unda. Vegna veikinda og langdvalar erlendis hafði hún ekki tekið þátt i starfí okkar fyrr, en við vissum þó af henni og hún af okkur. Á jólaföstu var starfið blómlegt og þá varð okkur ljóst hvílíkan liðs- mann starfshópurinn hafði eignast þar sem Heiður Baldursdóttir var. Hún hreif alla með sér, var áræðin, ósérhlífin og forkur dugleg. Við hugðum gott til samstarfs við hana á ókomnum ámm. Það fóm ekki aðrir í fötin hennar. Þó vissum við öll að hún gekk ekki heil til skógar. „Nú ætla ég að lifa lífínu í botn,“ sagði hún kvöld nokkurt þegar við gengum út af löngum vinnufundi. Hún var meðvituð um tímann sem okkur er gefinn og nýtti hann fram á síðustu stund. í maíbyijun lögðum við enn á ráðin símleiðis. Heiður átti hugmyndir og þrek til að koma þeim á framfæri. Nú verður ekki lagt á ráðin framar. En við emm þakklát fyrir að hafa kynnst henni og notið starfskrafta hennar. Fjöl- skyldu og ástvinum sendum við okkar bestu kveðjur. Blessuð sé minning Heiðar Baldursdóttur. F.h. SÍUNG,^ Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Andrés Indriðason, Iðunn Steinsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Olga Guðrún Árnadóttir. Heiður Baldursdóttir rithöfundur og kennari er látin. Jafnvel þótt vit- að hafí verið um skeið að hveiju stefndi er dauðinn mönnum ætíð harmsefni, ekki síst þegar fólk er hrifið burt úr þessum heimi í blóma lífsins, en Heiður átti aðeins þijá daga í að ná 35 ára aldri. Leiðir okkar starfsmanna hjá bókaforlaginu Vöku-Helgafelli og Heiðar lágu fyrst saman á vordögum 1989. Fyrr um veturinn hafði hún sent inn handrit í samkeppni Verð- launasjóðs íslenskra barnabóka. Þetta var í fjórða sinn sem sam- keppnin var haldin. Þær bækur sem borið höfðu sigur úr býtum fram til þess tíma voru allar frumraun höf- + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ELÍNUSSON frá Heydal, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, verður jarðsunginn í Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, mánudaginn 7. júní kl. 13.30. Þóra S. Guðmundsdóttir, Hilmar Antonsson, Ólöf S. Guðmundsdóttir, Gunnar Þ. Jónsson, Einar E. Guðmundsson, Jóna Gunnarsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Guðni Guðlaugsson, Guðmundur R. Guðmundsson, Karóli'na Geirsdóttir, Ragna K. Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. síðan. Kristinn tók loftskeytapróf 1946 og hóf störf hjá Pósti og síma og starfaði lengst af í Gufunesi. Árið 1961 hóf Kristinn störf við Lóransstöðina á Gufuskálum á Snæfellsnesi og starfaði þar til 1966 er þau fluttu aftur til Reykjavíkur. Hóf þá Kristinn aftur störf í Gufu- nesi, nú sem tæknifulltrúi við fjar- skiptastöð. Þar starfaði hann þar til hann lét af störfum fyrir fáeinum árum. Hafði hann þá starfað hjá Pósti og síma yfir 40 ár. Kristinn átti sér mörg áhuga- mál. Hann var mjög góður íþrótta- maður. Um árabil var hann í úrvals- flokki í fimleikum í KR undir stjórn Vignis Andréssonar. Ferðuðust þeir víða um land við sýningar og einn- ig til Norðurlanda. Einnig hafði hann áhuga á flugi og stunaði svif- flug um nokkurt skeið. Kristinn lét ekki starf sitt sem loftskeytamaður duga, heldur beitti hann morselykl- inum sem radioamatör af mikilli leikni. Heima fyrir hafði hann her- bergi fullt af fjarskiptatækjum, sum smíðuð af honum sjálfum. Þannig komst hann í samband við fólk um allan heim og eignaðist góða vini sem hann hafði reglubundið sam- band við í mörg ár. Herbergið var þakið póstkortum víðsvegar að úr heiminum. Hann hafði áhuga á garðyrkju og gróðurrækt. Og svo var það veiðin, þar var hann í ess- inu sínu. Hann stundaði laxveiðar á yngri árum og hafa kunnugir menn sagt að hann hafí verið mjög fær veiðimaður, hafi haft þetta í sér eins og sagt er. Hann átti trillu ásamt öðrum og stundaði mikið sjó- inn, fór oft í róðra á milli vakta þegar hann var í Gufunesi. Seinna eignuðumst við trillu saman og átt- um í mörg ár. unda og beið dómnefnd samkeppn- innar eftirvæntingarfull eftir því að nafn nýs verðlaunahöfundar yrði opinberað. Sagan sem fór með sigur af hólmi var Alagadalurinn. Höfund- ur hennar reyndist vera kennari í Reykjavík, Heiður Baldursdóttir, og var þetta fyrsta bók hennar. I Álagadalnum leiddi Heiður okkur inn í ævintýraveröld sem er engri lík. Sagan segir frá tveimur systrum sem hitta meðal annars píslir sem líkjast börnum en eru þó ekki börn, fugladrottningu með silfurfjaðrir og kött sem talar mannamál. Nú eru liðin fíögur ár frá því Heiður hlaut íslensku barnabóka- verðlaunin en hún lét ekki staðar numið á rithöfundarbrautinni heldur skrifaði eina bók á ári og liðlega það, fyrst Leitina að demantinum eina sem var sjálfstætt framhald verðlaunabókarinnar, þá Leyndar- mál gamia hússins þar sem hún tók sér fyrir hendur að skrifa spennandi unglingasögu og í fyrra kom út eft- ir hana Háskaleikur sem er sjálf- stætt framhald þeirrar bókar. Einnig skrifaði hún kennslubók sem út kom hjá Námsgagnastofnun, Að lesa umhverfíð, með myndum eftir Hall- dór, bróður hennar. Þegar hún féll frá var hún að ganga frá handriti að nýrri barna- og unglingabók. I kennslu sinni hafði Heiði reynst vel að nota sögur og ævintýri til að víkka út reynsluheim bamanna. Það varð henni hvatning til að skrifa Álagadalinn. Hún barðist fyrir aukn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.