Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 21 Brosin Þ AÐ þurfti ekki dauðan lax á bakkann til að framkalla brosin á þessum andlitum. „Flugan“ hrífur Friðrik byijar í Konungsstreng, veiðir hann niður með Skeijunum og niður á Brot. Þegar hann er kominn svo neðarlega á Brotið að hann er að hugsa um að hætta, er þrifið í. Hvatningahróp berast hvað- anæva frá, enda margt um mann- inn. Þetta er kærkomið, enda voru viðstaddir nánast farnir að norpa með sultardropana. Rétt áður hafði veiðimaður á mótbakkanum sett í físk en misst hann skjótt. Þessi hékk á og eftir um það bil 15 mínút- ur landaði formaðurinn fallegri níu punda hrygnu við dynjandi lófatak. Síðar átti að vísu eftir að koma í ljós að Halldór Þórðarson setti í lax neðar í ánni tveimur mínútum fyrr. Formaðurinn fékk því ekki heiður- inn að hafa dregið fyrsta laxinn að þessu sinni. Það er til marks um vaxandi áhuga almennings á stangaveiði, að hópurinn sem er á vappi'á bökk- um vatnanna 1. júní ár hvert, en tilheyrir ekki hópi veiðimanna og fylgifólks þeirra, fer vaxandi ár hvert. Er Friðrik formaður hafði við Brotið neðan Laxfoss í Norðurá og hlutskipti hans, umbunin, er að kasta á Brotið. Ofan úr brekku höfðu menn séð að minnsta kosti einn lax á kunnum tökustað og ef marka mátti haukfrán augu veiði- og sveitamanna næstu daga á und- an mátti búast við því að þeir væru fleiri þarna ofan í djúpinu. En það var kalt. Fjandi kalt. Vatnshitinn aðeins tvær gráður og því ekki víst að laxinn nennti eða yfirleitt gæti staðið í því að elta flugur við slíkar kringumstæður. Ætla mætti að það væri vand- kvæðum bundið að velja hvaða flugu byija ætti með. En hvað Frið- rik varðar, er það í raun sjálfgefið. Þeir eru nefnilega nokkrir félagarn- ir sem hnýta saman á vetrum. Þeir hnýta þá gjarnan „Fluguna", sem er alltaf ný uppskrift á hveiju vori. Hver fluga hlýtur nafn er hún ér vígð „í laxi“. Og veiðifélagamir keppa um það innbyrðis, hver veiði flesta laxana á „Fluguna" á hverri einstakri vertíð. „Flugan“ að þessu sinni er í túpulíki. Friðrik leyfir aðeins skyndiskoðun og agnið virð- ist kynleg blanda af bláu og gulu, sjaldgæfri samsetningu í laxaflugu. Flugan er auk þess greinilega hönn- uð undir sterkum áhrifum frá veiði- klónni Frances, sem er gjöfulasta fluga sem sett hefur verið í íslenskt vatn fyrr og síðar. Það sést á þvíað „Flugan" er með kunnuglega stinna ljósa fálmara aftan úr stéli. Lúsatalning FEÐGARNIR Halldór Þórðarson t.h. og Þórólfur Halldórsson t.v. kanna sjólúsastuðul á níu punda hrygnu sem Halldór veiddi. Laxinn reyndist vera fyrsti stangarlax sumarsins 1993. Vaktarlok HALDIÐ til veiðihúss, fisklaus, en létt í skapi ... landað laxi sínum og rotað hann, sló áhorfendaskarinn um hann hálf- hring er hann blóðgaði laxinn, það small í myndavélum. Skömmu síðar bættust báðar sjónvarpsstöðvarnar við hina litríku samkundu. Reyndar var það sláandi, að allan þennan fyrsta morgun óku fulltrúar átta fjölmiðla fram og aftur um Borgar- fjörðinn og óku menn hvað eftir annað frám á hveijir aðra og hvetj- ir um aðra þvera. Snýst ekki um laxinn_____ Áður en skálmað var af stað til veiðistaða þennan morgun við Norðurána mælti einn veiðimanna að í raun og veru snerist þessi veið- itúr ekki um laxinn. Hann snerist um „allt hitt“. Við jaðraði að um helgiathöfn með fastmótuðum helg- isiðum væri að ræða. Svo mörg voru þau orð og myndu vafalaust margir vilja jafnvel þrátta um stað- hæfínguna. En þessir kappar standa á kenningunni eins og hund- ar á roði og benda á að því fari ijarri að á yísan sé að róa í þessum opnunarferðum í Norðurá. Veiðin hafí verið frá engum laxi upp í á fímmta tug físka. Síðast var „núll- að“ vorið 1989 og oft hefur veiðin verið lítil. í lok vaktar er ljóst að veiðin hefur verið lítil. Á móti kemur að veðrið hefur skánað til mikilla muna. í morgunsárið var rudda- kuldi, en upp úr miðjum morgni lægir norðanvind og sól skín í heiði. Það verður heitt. Efist einhver um orð veiðimanns að opnunin snúist ekki um laxinn hefði hann ef til vill sannfærst við þá sjón sem sjá mátti er menn reyttust til veiði- húss, flestir með öngulinn innan landhelgi. Skellihlátrar óma í skóginum. Einn birtist og fer með rómantískt, hugljúft ljóð. Óð til veiðistangar sinnar og árinnar. Sá næsti hefur hátt, gengur til allra sem hann rekst á og heilsar þeim með faðmlagi. Sá þriðji er físklaus, en vanur að veiða vel. Hann varði morgninum á„dauðu“ svæði. Aðspurður um við- brigðin svarar hann: „Þetta er búinn að vera dásamlegur morgunn.“ Hann mælir þessi orð af þvílíkri sannfæringu að það er ekki hægt að efast um einlægnina. Svona geta menn sem bundnir eru í hlekki hversdagsleikans og vinnustritsins varpað þeim af sér og gengið til leiks eins og glöð lítil böm. Nei, þetta snýst ekki um laxinn. Ekki einvörðungu! Þetta snýst um nálgun við upprunann. Náttúruna. Lífið sjálft .. . Verö á BMW-3 línunni er frá kr. 1.969.000,- (Bíll á mynd er búinn ýmsum aukabúnaöi sem fáanlegur er í 3-línunni). BMW ráöleggur: Akiö varlega. Ef þú ættir að lýsa BMW myndir þú líklega nefna sportlegt útlit, afburða ökuhæfni, glæsileika eða annað sem skapar þá sérstöku tilfinningu sem fylgir akstri á BMW. Öryggi myndi líklega ekki bera á góma fyrr en síðar - kannski vegna þess að flestir telja öryggi í BMW svo augljóst atriði að óþarfi sé að nefna það sérstaklega. Traust veggrip, rétt þyngdardreifing, þaulhugsuö fjöðrun, auðveld stýring, örugg hemlun, nægjanlegt afl við framúrakstur, þægileg ökustelling, krumpusvæði, styrktarbitar og sjálfstrekkjandi öryggisbelti tryggja hámarksöryggi við allar aðstæður. Bílar í BMW-3 línunni eru meðal annars búnir glæsilegri innréttingu, kraftmiklum vélum, samlæsingu með þjófavörn, lituðu gleri, rafdrifnum útispeglum, þjónustutölvu, hraðatengdu aflstýri, hæðarstillanlegum framljósum, 6 hátalara BMW hljómkerfi og Blaupunkt útvarpstæki með þjófavörn. Hægt er að velja um mikið úrval af öðrum búnaði. Söludeildin er opin alla virka daga Ðflaumboðið hf. kl. 8-18 og á laugardögum kl. 13-17. Krókháisi 1, Reykjavík, simi 686633 Engum líkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.