Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 6. JUNÍ 1993 8 A 1"T| \ f'"',ersunnudagur6.júnísemerl57.dagur ársins 1993.Trínitatis.Þrenningarhátíð. Sjómannadagurinn. Árdegisflóð í Reykjavík er kl. 7.28 og síðdegisflóð kl. 19.51. Fjaraerkl. 1.26 ogkl. 13.33. Sólar- upprásíRvík er kl. 3.11 og sólarlag kl. 23.44. Sól erí hádegisstað kl. 13.26 og tunglið í suðri kl. 2.52. (Almanak Háskóla íslands.) Bræður, ekki tel ég sjálfan mig enn hafa höndlað það. (Filip. 3,13-14.) ÁRNAÐ HEILLA f"7 f\á.ró. afmæli. Pálína I U Lilja Guðnadóttir, Austurbergi 36, Reykjavík, er sjötug í dag. Hún verður að heiman á afmælisdaginn. KIRKJA KVENNAKIRKJA: Guðs- þjónusta í Fríkirkjunni í Reykjavík á sunnudagskvöld kl. 20.30. Kristjana Stefáns- dóttir synguit' Sesselja Guð- mundsdóttir leikur á orgel. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar. Elísabet Þorgeirs- dóttir talar um Kvennakirkj- una og í kaffi eftir messu verða umræður. SELTJARNARNES- KIRKJA: Fundur"í æskulýðs- félaginu f kvöld kl. 20.30. MINNINGARSPJÖLD DÓMKIRKJAN. Minningar- spjöld Líknarsjóðs Dóm- kirkjunnar eru seld í VBK Vesturgötu og hjá kirkjuverði Dómkirkjunnar. LÁRÉTT: 1 hremmum, 5 hús, 8 hafa orð á, 9 álíti, 11 blaðið, 14 þegar, 15 fúi, 16 fætur, 17 kyrra, 19 mergð, 21 hina, 22 góðgæti, 25 bekkur, 26 kindina, 27 sansi. LÓÐRÉTT: 2 reyka, 3 sár, 4 álítur, 5 hijóta, 6 óhreinindi, 7 þreyta, 9 drembilætis, 10 dyljast, 12 undirokaðir, 13 synj- aði, 18 reimin, 20 svik, 21 árið, 23 tangi, 24 frumefni. LAUSN SÍÐUStU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: 1 skegg, 5 valsa, 8 rætin, 9 hljóð, 11 napur, 14 iðn, 15 ertan, 16 iðrar, 17 góð, 19 miða, 21 iðna, 22 iðjunni, 25 rýr, 26 áma, 27 rói. Davið afsalar sér fmmkvæði I efnahagsmálum til Þorsteins: Þorsteinn komi meö efnahagstillögur DwfJ Oddsson forsætísriöhem og Jón Baldvin Hannibalsson utanrflr- isriðherra tðgðu um helgina að Þorsteinn Pílsson sjávarútvegsrið- hem sttí að koma með tíllðgur f efnahagsmiium sem miðuðu að því að bregðast vlð mlnnl þorskveiðL O V -í- T<=rrtU(\lD Þú skalt þá bara stýra þjóðarskútunni sjálfur nískupúkinn þinn ... FRÉTTIR/MANNAMÓT BRÚÐUBÍLLINN. Sýningar Brúðubílsins verða á morgun kl. 10 í Bleikjukvísl og kl. 14 í Dalalandi. Sýnt verður leik- verkið Nú gaman, gaman er. Nánari uppl. gefa Helga í s. 25098 og Sigríður í s. 21651. BANDALAG kvenna - Hall- veigarstaðir: Gróðursetning og vorferð BKR verður farin nk. þriðjudag. Nánari uppl. hjá Umhverfisnefnd. Dagmar í s. 36212 og Ragnheiður í s. 18635. KVENFÉLAG Laugames- sóknar fer í sína árlegu sum- arferð laugardaginn 12. júní. Tilkynnið þátttöku sem fýrst í s. 35079, 35121 og 685079. Munið Heiðmerkurferðina 9. júní kl. 20. FÉLAGSVIST ABK. Spiluð verður félagsvist í Þinghól, Hamraborg 11, á morgun kl. 20.30. HÚSMÆÐRAORLOF Bessastaðahrepps verður á Laugarvatni dagana 19.-25. júní. Uppl. hjá Margréti í s. 650842. LANDSSAMBAND aldr- aðra. Vikuferð til Dublin vik- una 12. júlí eða 19. júlí. Leið- sögumaður Helgi Pétursson. Uppl. frá kl. 13-16 í s. 621899. Einnig fiugtil Zúrich 12. júní, 19. júní og 26. júní. Uppl. í sama síma. VIÐEY. í dag verður staðar- skoðun sem hefst í kirkjunni kl. 15.15. Kaffisala verður í Viðeyjarstofu kl. 14-16.30. Bátsferðir á klst. fresti frá kl. 13-17.30 á heila tímanum úr landi en hálfa tímanum í land aftur. INDLANDSVINAFÉLAG- IÐ heldur aðalfund sinn á morgun kl. 20.30 á Fríkirkju- vegi 11. FÉLAGSSTARF aldraðra í Gerðubergi. Á morgun ár- degisfótaaðgerðir og hár- greiðsla. Kl. 12 hádegishress- ing. Spilasalur og vinnustofur opna, söngtími, upplestur og dans. Kl. 13.30-15.30 banka- þjónusta. BÓLSTAÐARHLÍÐ 43, fé- lagsmiðstöð aldraðra. Kl. 9 sundferð með Sigvalda. Kl. 13 ferð á handavinnusýningu á Hrafnistu í Hafnarfírði. AFLAGRANDI 40, þjón- ustumiðstöð aldraðra. Fé- lagsvist kl. 14 á morgun. AGLOW, kristileg samtök kvenna. Fundur verður í safnaðarheimili Áskirkju á morgun og hefst kl. 20 með kaffiveitingum. Gestur þessa fundar verður sr. María Ágústsdóttir, aðstoðarprestur í Dómkirkjunni í Reykjavík. Kaffiveitingar kosta 300 kr. LÓÐRÉTT: 2 kol, 3 gró, 4 gæðing, 5 vinnið, 6 ana, 7 sáu, 9 hremmir, 10 játaðir, 12 páraðir, 13 rorraði, 18 ólum, 20 að, 21 in, 23 já, 24 Na. ORÐABÓKIINI Ala - fæða - gjóta kasta í íslenzku máli hafa frá upphafi tíðkazt mismun- andi sagnorð (so) um það, þegar ný lífvera er í heim- inn borin. Þetta kannast lesendur mætavel við. Þessi so. eru flest bundin við ákveðnar dýrategund- ir. Sjálfsagt er að halda sem lengst í þá venju, sem hér ríkir, enda auðgar hún málið. Eitthvað virðist til- finningin fyrir þessu vera farin að sljóvgast meðal almennings. Ekki er langt siðan ég hlýddi á samtal á Stöð tvö þar sem rætt var um Dýraspítalann og m.a. um hirðuleysi og slæma meðferð á köttum og hundum. Þá sagði starfsmaður spítalans eitthvað á þessa leið: Hér eru læður sem bera. Mér kom þetta orðalag mjög á óvart, enda héld ég að flestir tali um það, að læður gjóti og eins tíkur, þegar þær ala afkvæmi sín. Sama er sagt um tóf- ur, mýs og rottur og að ég held einnig um gyltur. Um menn er hins vegar notað so. að ala eða fæða. Konan ól eða fæddi svein- barn. Kýrin ber svo kálfi og eins ærin lambi. Hryss- an kastar hins vegar fol- aldi. í A-Skaftafellssýslu og allt austur í Vopnafjörð mun so. að kasta eitthvað þekkjast um tíkur og læð- ur í þessu sambandi. Fer vel á að enda þetta rabb á gömlum húsgangi: Flest kom að í einu þar/ á féll bæinn sýkin, /konan fæddi, kýrin bar, /köttur- inn gaut og tíkin. J.A.J. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Grænlensku krakkamir á Norðfjarðarflugvelli við kom- una hingað til lands. Neskaupstaður Heimsókn frá Grænlandi Neskaupstað. NÚ Á dögunum komu hingað í heimsókn 16 grænlensk- ir grunnskólanemendur ásamt tveimur kennurum sínum. Grænlendingamir komu frá Manitog sem er vinabær Neskaupstaðar á Grænlandi. Dagbók Há- skóla íslands Vikuna 6. til 12. júní verða eftirtaldir fundir, fyr- irlestrar ráðstefnur eða aðrar samkomur haldnar á vegum Háskóla íslands. Nánari upp- lýsingar um samkomurnar má fá í síma 694371. Sunnudagur 6. júní: Kl. 10. Oddi. Ráðstefna á vegum NAFA (norrænna samtaka um gerð mann- fræðimynda) heldur áfram. Yfírskrift ráðstefnunnar: „The construction of the viewer“. Ráðstefnan fer fram í Odda, en sýningar á mannfræðimyndum verða í Norræna húsinu. Ráðstefn- unni Iýkur síðdegis 7. júní. Mánudagur 7. júni: Kl. 17. Stofa 101 Odda. Fyrirlestur á vegum Mál- stofu í lyfjafræðj og Lyfja- fræðingafélags íslands um rannsóknir í lyfjaiðnaði. Yfir- skrift: „Some Aspects of Industrial Agro Research". Fyrirlesarar: Dr. Jean- Claude Gehret, forstöðumað- ur rannsóknasamvinnudeild- ar CIBA-GEIGY, og dr. Haukur Kristinsson, vísinda- Iegur sérfræðingur fyrirtæk- isins. Þriðjudagur 8. júní: Kl. 16.15. Stofa 101 Odda. Fyrirlestur á vegum guð- fræðideildar Háskólans, Al- þjóðamálastofnunar Háskól- ans og Hjálparstofnunar kirkjunnar. Efni: Ástandið á Balkanskaga frá sjónarhóli íbúanna, hjálparstarfið, upj> byggingin og aðstoð frá Is- landi. Fyrirlesari: John B. Wood, framkvæmdastjóri hjálparstarfs Lutheran World Federation í Króatíu og Bosníu-Herzegóvínu. Fimmtudagur 10. júní: Kl. 9. Fundarsalur Haf- rannsóknastofnunar, Skúla- götu 4. Fyrirlestur á vegum Háskóla íslands og Hafrann- sóknastofnunar um afkomu- möguleika seiða í Mexíkó- flóa. Yfirskrift fyrirlesturs- ins: „On the role of the Miss- issippi discharge plume in recruitment processies of Gulf of Mexico fishes: Larval distribution, abundance, growth and mortality“. Fyr- irlesari: Churchill B. Grimes, forstöðumaður fiskavist- fræðideildar Marine Fisher- ies Service í Bandaríkjunum. Krakkarnir söfnuðu fyrir ferðinni en fengu auk þess styrk frá Norðurlandaráði. Farið var með hópinn í sjó- ferð, rútuferð og einnig brugðu þau sér á hestbak og var það alveg ný reynsla fyr- ir þau því engir hestar eru í Manitog. Þá var rútuferðin einnig eftirminnileg því ekk- ert þeirra hafði áður komið í rútu þar sem ekki er hægt að ferðast akandi á milli Manitog og annarra staða á Grænlandi. Heimsóknin tókst vel og var ekki annað að sjá en hópurinn væri ánægður með ferðina. - Ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.