Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 Stór sýning á verkum Errós í Kaupmannahöfn 19. júní Leggur undir sig Charlotten- borg við Kóngsins nýja torg Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Fimmtán stór verk eftir Erró verða sýnd í sýning- arhöllinni í Charlottenborg í Kaupmannahöfn og síðan send til sýningar í Finn- landi og í Svíþjóð. Verkin hafa ekki verið sýnd áður, en eru ýmist úr einkaeigu listamannsins eða eru mál- verk sem hann hefur verið að mála undanfarið sem hluta af viðbótargjöf hans til Reykjavíkurborgar. Sýningin er haldin að frumkvæði Islendinga og skipulögð af Gunnari Kvaran forstöðumanni Kjarvalsstaða. Markús Örn Antonsson borgarstjóri mun opna sýninguna 19. júní, en hún stendur til 8. ágúst. í samtali við Morgunblaðið sagði Ole Wildt, sem sér um sýn- ingarhaldið á Charlottenborg að á sýningunni gæfí að líta sýnis- horn af hinum stóru málverkum Errós, sem væru hlaðin spennu og uppákomum. Erró mun leggja Listamaðurinn ERRÓ við eitt fjölmargra verka sinna, þar sem hann tengir saman ólík timabil. undir sig alla sýningarhöllina, sem er eitt stærsta sýningarhúsnæði í Danmörku. Kristín Guðnadóttir safnvörður á Kjarvalsstöðum sagði að hug- myndin með sýningarhaldinu væri að sýna útlendingum myndirnar áður en þeim yrði komið fyrir í Erró-safninu á Korpúlfsstöðum. Verkin eru svo stór að þegar þau verða komin til íslands verður tæplega heiglum hent að hreyfa þau mikið úr stað. Þess má geta að lengsta málverkið er ellefu metrar. Gunnar Kvaran hefur séð um að skipuleggja sýninguna, en henni fylgir vegleg sýningarskrá og plakat. Bæði Gunnar og Erró koma til Kaupmannahafnar nokkrum dög- um fyrir opnunina til að hafa hönd í bagga með og uppsetningu verkanna á Charlottenborg. Krist- ín sagði að það væri einstaklega gaman til þess að hugsa að ís- lenskur listamaður legði undir sig sýningarhöllina, sem er annars mest notuð undir samsýningar vegna stærðar sinnar. Verkin sýnd víðar Dönsk blöð hafa þegar birt til- kynningar um sýninguna. Sýning- ar á Charlottenborg hljóta alla jafnan mikla athygli og eru vel sóttar, enda stendur sýningarhöll- in í hjarta borgarinnar við Kóngs- ins nýja torg og er sambyggð Listaakademíunni dönsku. Sýn- ingin mun síðan fara til Pori í Finnlandi og til Gautaborgar í Svíþjóð, áður en þau verða send til Islands. Norræna ráðherra- nefndin veitti styrk upp á 2 Vi milljón íslenskra króna til að greiða fyrir flutningi og pökkun verkanna. I > | ► Rekstur þriggja skóladagheimila færður til skólamálaráðs Böm g'iftra foreldra | geta nú fengið inni 1 Morgunblaðið/Þorkell Bestu fyrirsæturnar Fyrirsætukeppni Model 79 og Tónabæjar var haldin í fyrsta skipti í Tónabæ sl. föstudagskvöld. Húsfyllir var. Alls tóku 34 unglingar þátt í lokakeppninni. Sigurvegarar urðu Júlía Björgvinsdóttir, 15 ára, og Ragnar Orn Arnarsson, 16 ára. í öðru sæti urðu Freyja Kristinsdótt- ir, 14 ára, og Styrmir Karlsson, 15 ára. í þriðja sæti urðu Áslaug Dröfn Sigurðardóttir, 13 ára, og Birgir Örn Einarsson, 16 ára. Sér- stakt hrós dómnefndar fyrir sviðsframkomu fékk Magnea Ólafsdóttir, 15 ára. Bætt nýting húsnæðis og betri þjónusta STJÓRN Dagvistar barna hefur samþykkt tillögu um aukið sam- starf við skólamálaráð vegna fyrirhugaðs heilsdagsskóla. Ráð- gert er að breyta rekstri þriggja skóladagheimila og færa þau alfarið undir stjórn skólamálaráðs og skólaskrifstofu. Tilgangur breytinganna er að nýta betur húsnæði heimilanna og bjóða jafnframt betri þjónustu, sem til þessa hefur eingöngu verið veitt börnum einstæðra foreldra en nú eiga börn giftra einnig að geta fengið inni, að sögn Sigríðar Sigurðardóttur forstöðu- konu Foldakots, en hún situr í sljórn Dagvistar barna og í skóla- málaráði. Sigríður sagði, að gert væri ráð fyrir að rekstur skóladagheimil- anna í Breiðagerðisskóla, Austur- bæjarskóla og Laugarseli við Laugarnesskóla yrði alfarið á hendi skólamálaráðs og viðkom- Aukin samvinna Granda hf. og chileska útgerðarfélagsins Friosur Starfsmenn sendir utan og sölu- skrifstofa verði opnuð á Spáni SAMVINNA hefur aukist í markaðsmálum, tæknimálum og fisk- vinnslu og -veiðum milli Granda hf. og chileska útgerðarfélagsins Pesquera Friosur, en Grandi festi kaup á 22% hlutafjár Friosur í fyrra. Hugmyndir eru uppi um að setja á iaggirnar söluskrifstofu á Spáni, auk þess sem markaðsnet Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum hefur verið virkjað. Elín Þorbjarnardóttir, togari Granda, sem samið var um sölu á til Friosur, fer frá íslandi áleiðis til Chile eftir helgi. Mun togarinn eftirleiðis bera nafnið Friosur VII. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda hf., sagði chileska áhöfn munu sigla Elínu, en íslenskur vél- stjóri yrði í áhöfninni. Auk þess væri gert ráð fyrir að annar vél- stjóri fylgdi í kjölfarið eftir tvo mánuði og verið væri að ræða við nokkra aðila vegna áforma um að senda einnig skipstjóra, en einn ís- lenskur skipstjóri er nú í Chile. Þá væri verið væri að athuga með ráðningu viðhaldsstjóra fyrir fyrir- tækið. Meðal annarra starfsmanna sem héðan hafa farið eru netagerðar- menn, viðgerðarmenn, útgerðar- stjórar, framleiðslustjórar og tækni- stjórar, auk chileskra starfsmanna sem hafa komið í þjálfun í Granda. Spænski markaðurinn enn langmikilvægastur Að sögn Brynjólfs hefur mark- aðsnet Sölumiðstöðvarinnar þegar verið virkjað vegna Friosur. „Spænski markaðurinn er hins veg- ar enn sá langmikilvægasti fyrir Friosur. Aðalfísktegundin sem veið- ist undan ströndum Chile er lýsing- ur, eða merluzza australis, sem er mikið seld á Spán. Við viljum hins végar reyna að dreifa áhættunni með því að fara inn á fleiri mark- aði.“ Á Spáni verður rekin markaðs- skrifstofa frá 1. september á vegum Friosur og annars fyrirtækis, að sögn Brynjólfs. Þó hafí einnig verið í umræðunni að ganga til samstarfs við Sölumiðstöðina um að setja á laggirnar skrifstofu á Spáni, en Spáni hefur hingað til verið þjónað frá skrifstofu SH í París, þótt ekk- ert væri enn ákveðið um slíkt. andi skólastjóra sem mun jafn- framt sjá um innritun og manna- ráðningar á heimilin. „Þetta eru skóladagheimili sem eru inni í skólahúsnæðinu sjálfu,“ sagði Sig- ríður. „Meiningin er að samnýta húsnæði skóladagheimilanna og þróa skipulega verkefni um heils- dagsskóla.“ Flokkað eftir hjúskaparstöðu Fram til þessa hafa eingöngu börn einstæðra foreldra fengið inni | á skóladagheimilum og hafa börn því verið flokkuð eftir hjúskapar- stöðu. Með þessari breytingu verð- ur þjónusta við gifta foreldra bætt. „Hvort þau fá jafna rétt ræðst af . því hvernig skólastjórinn heldur á » málinu,“ sagði Sigríður. „Það er vitað mál að börn einstæðra for- eldra þurfa oft á meiri þjónustu að halda en það er líka vitað að börn giftra eru oft í sömu að- stöðu. Meiningin er að reyna að koma betur til móts við þarfir og óskir barna og foreldra." Samstarfsnefnd Þá verður komið á samstarfs- nefnd forstöðumanna fimm ann- arra skóladagheimila, skólastjór- um í viðkomandi hverfum og full- trúum stjórnar Dagvistar barna, þar sem ætlunin er að reyna ef L vilji er fyrir hendi hjá forstöðu- * mönnum og skólastjórum að koma á frekara samstarfí á milli skóla . og skóladagheimila. „Þetta er þó f ekki víst, það fer allt eftir starfs- fólkinu hvernig til tekst,“ sagði í Sigríður. Sjö önnur skóladagheim- 1 ili í borginni verða rekin áfram með óbreyttu sniði og er aðal ástæðan sú að breytingar sem þessar þurfa sinn tírna.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.