Morgunblaðið - 06.06.1993, Side 15

Morgunblaðið - 06.06.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 15 i I l FLOKKARNIR A SPANI MC.St Spánverjar ganga aö kjörboröinu í dag sunnudag PSOE Sosialistaflokkurinn Hetur verið við völd frá 1982 undir stjóm Felipe Gonzales forsætis- ráðherra. Helstu stetnumið Að skapa ný störf Auka útgjöld til velferðarkerfisins og samgöngumála Setja frjálslegri atvinnulöggjöf Setja nýjar reglur um um fjár- mögnun flokka Styðja Maastricht Pjóðarflokkurlnn (Partido Popular) Stærsti mið- og hægri- flokkurinn. Leiðtogi José María Aznar. Helstu stefnumiö Sameinaðir vinstrimenn Þriðji stærsti flokkurinn. Leiðtogi er kommúnistinn Julio Anguita. Aö breyta efnahagsstefnunni til aö endurvekja traust erlendra fjárfesta Minnka ríkisútgjöldin til að draga úr fjárlagahallanum ■ Einkavæða ríkisfyrirtæki ■ Lækka vexti » Auka opinberar framkvæmdir til að blása lífi í efnahaginn m Stuðla að því að pesetinn verði í EMS Helstu stelnumiö Minnka atvinnuleysið Dreifa störfum með því að stytta vinnudaginn úr átta stundum í sex. Lækka laun, hvetja fólk til að fara fyrr á eftirlaun og fjölga opinberum starfsmönnum. REUTER ist stefna hans lítt frábrugðin stefnu Sósíalistaflokksins. Hann er til að mynda hlynntur Maastricht-sátt- málanum um aukinn samruna ríkja Evrópubandalagsins, vill að peset- inn verði áfram í Evrópska mynt- kerfinu (EMS) og boðar frekari einkavæðingu eins og Sósíalista- flokkurinn. Hann hefur þó reynt að skapa sér sérstöðu með því að leggja fram tillögur um að halda sköttun- um óbreyttum í fyrstu og lækka þá síðan smám saman. Á sama tíma vill hann minnka fjárlagahallann og skapa atvinnutækifæri fyrir þijár milljónjr manna á tíu árum. Gonz- alez þjarmaði mjög að Aznar í seinni . kappræðum þeirra, sem sjónvarpað var beint á mánudag, og leiðtoga Þjóðarflokksins þótti takast illa að . útskýra hvernig hann hygðist * minnka fjárlagahallann án þess að hækka skattana. „Rauði fakírinn“ Anzar nýtur mun minni lýðhylli en Gonzalez og samkvæmt skoðana- könnun, sem birt var í dagblaðinu El País á sunnudag, hefur hann álíka mikið fylgi og Julio Anguita, aðalritari spænska kommúnista- flokksins og leiðtogi Sameinaðra vinstrimanna (IU). Anguita er 51 árs fyrrverandi sögukennari. Þegar hann var borg- arstjóri Cordoba, höfuðvígi mára á miðöldum, var hann kallaður „Rauði kalífinn"; „rauði“ vegna þess að | hann er kommúnisti og „kalífinn" þar sem hann er skeggjaður og þykir máralegur í útliti. | Anguita er ekki Andaiúsíumaður og afkomandi araba eins og ætla mætti heldur af baskneskum og ) gyðingaættum, fæddur í Fuengirola á Costa del Sol. Hann er þó fyrst og síðast kommúnisti sem iðrast einskis og segist ætla að vera „rauð- ur fram í rauðan dauðann". Hann prédikar oft um neysluhyggju nú- tímans og kveðst hreykinn af því að hafa hvorki eignast bíl né hús og eiga aðeins jafnvirði 50.000 króna á bankareikningi. Hann keðjureykir og það mun hafa komið honum í koll í kosningabaráttunni því hann fékk hjartaáfall fyrir viku og var á sjúkrahúsi síðustu dagana fyrir kosningar. Baráttan gegn atvinnuleysinu er rauði þráðurinn í stefnuskrá Sam- einaðra vinstrimanna. Þeir vilja dreifa störfunum með því að stytta vinnudaginn úr átta stundum í sex, lækka launin um 12%, hvetja launa- fólk til að fara fyrr á eftirlaun og fjölga opinberum starfsmönnum í þjónustugreinunum. Anguita er W ennfremur andvígur Maastricht- sáttmálanum og áformum Sósíal- istaflokksins um einkavæðingu. Kommúnistar njóta meiri virðing- ar á Spáni en annars staðar á Vest- urlöndum vegna þátttöku þeirra í borgarastyijöldinni. Sameinaðir vinstrimenn gætu fengið 28 þing- sæti af 350 í kosningunum, sam- kvæmt skoðanakönnunum. Samstarf sósíalista og kommúnista útilokað Ef marka má kannanirnar fá hvorki sósíalistar né Þjóðarflokkur- inn nægilegt fylgi í kosningunum til að fá meirihluta á þinginu. Þeir þyrftu því að gera einhvers konar samstarfssamning við Sameinaða vinstrimenn eða flokka þjóðemis- sinna í Baskalandi og/eða Katalóníu til að geta myndað næstu stjórn. Samkvæmt könnun E1 País vill um þriðjungur þeirra, sem sögðust ætla að kjósa Sósíalistafiokkinn, að hann myndi stjórn með Sameinuðum vinstrimönnum. Enn fleiri af kjós- endum Sameinaðra vinstrimanna, eða 62%, era hlynntir slíku stjómar- samstarfi. Vandinn er hins vegar sá að Anguita og Gonzalez fyrirlíta hvorn annan. Anguita segir Gonz- alez hafa svikið hugsjónir sínar og gerst fijálshyggjumaður og forsæt- isráðherranum hrýs hugur við því að vinna með Rojo, eða rauðliða, og það skeggjuðum. Gonzalez sagði nýlega að hann gæti hugsað sér samvinnu við hófsöm öfl á meðal Sameinaðra vinstrimanna en ekki komi til greina að mynda stjóm með Anguita. Þjóðernissinnar hugsa sér gott til glóðarinnar Stóra flokkarnir tveir beina því einkum sjónum sínum til þjóðemis- sinna í Baskalandi og Katalóníu, sem era frekar hægrisinnaðir og hafa léð máls á samstarfi við hvom flokkinn sem er. Basneski þjóðemisflokkurinn (PNV) er stærsti flokkurinn í stjórn Baskalands og búist er við að hann fái um sex þingmenn í kosningun- um. Þótt flokkurinn teljist til hægri hefur hann hvað eftir annað stutt stjórn Sósíalistaflokksins í mikil- vægum málum. Xavier Arzalluz, leiðtogi PNV, sagði í viðtali við EI Pafs á mánudag að hann setti þijú skilyrði fyrir samvinnu við næstu stjórn. Hann krefst róttækra breyt- inga á efnahagsstefnunni, öflugs stuðnings við iðnfyrirtæki og auk- inna valda til handa Baskalandi. Hann vill jafnframt að komið verði á beinum tengslum Baska við fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins í Brussel í málum sem varða sér- staklega hagsmuni þeirra. Stærsti þjóðernisflokkurinn á Spáni er hins vegar katalónskur, Convergencia i Unio (CiU) sem fær að öllum líkindum um 20 þingsæti í kosningunum. Leiðtogi flokksins er Jordi Pujol, sem hefur verið for- seti Katalóníu í 13 ár, og hann gaf til kynna um síðustu helgi að hann vildi laustengda samvinnu við annan hvom stóra flokkanna frekar en formlegt stjómarsamstarf. Forystumenn CiU hafa ekki viljað taka afstöðu til stóra flokkanna tveggja í kosningabaráttunni. Þeir vilja fyrst sjá loforð um aukna sjálf- stjóm Katalóníu. Flokkurinn leggur áherslu á að meira af þeim sköttum sem Katalóníumenn greiða renni til stjórnarinnar í fylkinu. CiU vill enn- fremur gjörbreytta efnahagsstefnu, að vextir verði lækkaðir, útgjöld rík- isins minnkuð um 10% á næstu fjór- um áram og að einkavæðingu stórra ríkisfyrirtækja verði hraðað. Vegna borgarastyijaldarinnar og einræðis Francos era Katalóníu- menn og Baskar tortryggnir í garð hægrimanna og telja að Þjóðar- flokkurinn leggist gegn auknum völdum til handa fylkjunum. Þeir líta svo á að flokkurinn sé arftaki Francos og því yrði erfítt fyrir Pujol og félaga að réttlæta einhvers kon- ar samvinnu við hann fýrir stuðn- ingsmönnum sínum. Útilokað er að Þjóðarflokkurinn myndi stjórn með Sameinuðum vinstrimönnum þannig að möguleik- ar flokksins á að mynda næstu stjóm Spánar virðast harla tak- markaðir vegna þessa rótgróna ótta Spánveija við vofu Francos. Spurn- ingin er sú hvort Aznar hafi tekist að kveða vofuna niður. SÖNGS M IÐJAN auglysir: .. mk. Stutt, hnitmiðuð SUMARNÁMSKEIÐ fyrir fólk á öllum aldri, laglausa sem lagvísa. Kennd verður raddbeiting og sungin lög í léttum sumaranda. Fyrirhuguð er helgarferð í Þórsmörk í lok námskeiðs. NYTT! Söngleikjasmiðja fyrir VftAKíA Þriggja vikna dagskóli þar sem krakkarnir læra að syngja og leika. Námskeiðinu lýkur með uppsetn- ingu á söngleik sem fluttur verður í búningum og á leiksviði sem nemendurnir sjálfir setja upp. Upplýsingar og skráning alla virka daga frá kl. 10.00 - 17.00 á skrifstofu Söngsmiðjunnar, Listhúsi í Laugardal (Engjateig 19). Sími 682455. DÉHÉilA gerið góð kaup!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.