Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 35 JPm ■ ■r ■NIW Sölufólk á Reykja víku rsvæði nu Nýjung - einstakt tækifæri Við leitum að aðilum, sem hafa áhuga á því að selja og kynna góðar vörur sem ekki eiga sér hliðstæðu á markaðnum. • Æskilegt er að viðkomandi sé vanur heimakynningum. • Aðeins 10-15 aðilar verða ráðnir. • Vörurnar eru bylting í meðferð og geymslu matvæla og seljast því sem raunhæf kjarabót. Sérstakt tækifæri til þess að skapa sér um- talsverðar aukatekjur um langan tíma. Upplýsingar veitir Brynhildur Bárðardóttir, markaðsstjóri, í síma 91-676869 frá mánu- degi til föstudags. Alþjóða verslunarfélagið hf., Fákafeni 11, 108 Reykjavík. RIKISSPITALAR Reyklaus vinnustaður OLDRUNARLÆKNINGADEILD Hjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á öldr- unarlækningadeild 3 frá 9. ágúst nk. Unnið er samkvæmt einstaklingshæfðri hjúkrun með höfuðáherslu á sjálfstæði í starfi og teymisvinnu. Deildin hefur 22 sjúkrarúm og lögð áhersla á endurhæfingu aldraðra, m.a. eftir skurðaðgerðir og ýmiskonar sjúkdóma. Um fullt starf er að ræða með helgarvakt aðra hverja helgi. Upplýsingar gefur Lúðvík H. Gröndal, hjúkr- unardeildarstjóri, í síma 602263 og Anna Guðmundsdóttir, hjúkrunarframkvæmda- stjóri, í síma 602266. RONTGEN- OG MYNDGREININGADEILD Sérfræðingur Staða sérfræðings í röntgen/myndgreiningu er laus við röntgen- og myndgreiningadeild Landspítalans frá 1. september 1993. Sérfræðingurinn skal hafa staðgóða þekk- ingu og reynslu á sviðum æðarannsókna, tölvusneiðmyndunar og segulómunar. Þátttaka í kennslu og handleiðslu áskilin. Upplýsingar um stöðuna veitir forstöðulækn- ir, Asmundur Brekkan, prófessor. RANNSOKNASTOFA HÁSKÓLANS í MEINAFRÆÐI Sérfræðingur Staða sérfræðings (100%) í líffræðameina- fræði við rannsóknastofu Háskólans í meina- fræði er laus til umsóknar. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi staðgóða menntun og starfsreynslu í hagnýtri notkun rafsjár og aðferða í ónæmisvefjafræði til greiningar sjúkdóma í mönnum. Umsóknir á þar til gerðum eyðuþlöðum, með upplýsingum um starfsferil og vísindastörf, skal senda stjórnarnefnd Ríkisspítala fyrir 20. júní 1993. Frekari upplýsingar veitir Jónas Hallgríms- son, prófessor, í síma 601900. RIKISSPITALAR Rlklsspftalar eru einn fjölmennasti vinnustaöur á Islandi meö starfsemi um land allt. Sem háskólasjúkrahús beltir stofnunin sór fyrir markvissri meðferö sjúkra, fræöslu heilbrigöisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf- semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem viö störfum fyrir og meö, og leggjum meginóherslu á þekklngu og virðingu fyrir einstaklingnum. Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu viö almenning og viö höfum ávallt gæöi þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni aö lelöarljósi. VINNUEFTIRLIT RIKISINS Administration of occupational safety and health Bíldshöfða 16 • Pósthólf 12220 • 132 Reykjavík Véltæknifræðingur - sumarstarf Vinnueftirlit ríkisins auglýsir eftir véltækni- fræðingi eða vélfræðingi til afleysinga í sumar. Starfið felst í eftirliti með vinnuvélum á höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða. Umsóknir sendist til Vinnueftirlits ríkisins, Bíldshöfða 16, Reykjavík, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, fyrir 14. júní ’93. Hárgreiðslumeistari /sveinn óskast til starfa. Góðar prósentur í boði. Verður að geta unnið sjálfstætt. Upplýsingar í síma 653544 á daginn og 654252 á kvöldin. Hjallahrauni 8, Hafnarfirði. Frá fræðslustjóra Reykjanesumdæmis Umsóknarfrestur um áður auglýstar kenn- arastöður við grunnskóla Reykjanesumdæm- is er framlengdur til 18. júní nk. Snælandsskóli, Kópavogi: 1A> staða tónmenntakennara. Myllubakkaskóli, Keflavík: staða tónmenntakennara. Holtaskóli, Keflavík: almenn kennsla, skrift, tölvukennsla. Sandgerðisskóli: staða sérkennara. Stóru-Vogaskóli, Vatnsleysuströnd: mynd- og handmennt og enska. Umsóknir berist til skólastjóra viðkomandi skóla, sem einnig gefa nánari upplýsingar. Einnig vantar talkennara við grunnskóla Hafnarfjarðar. Upplýsingar um starfið eru veittar á Fræðslu- skrifstofu Reykjanesumdæmis. Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis. Fjölbreytt skrifstofustarf Landssamtök með aðsetur í Reykjavík óska eftir að ráða skrifstofumann til framtíðar- starfa nú þegar. Starfið felst í skrifstofu- og bókhaldsstörfum, þ.m.t. ritvinnsla (WP), merking fylgiskjala og færsla fjárhagsþókhalds (TOK). Einnig mun viðkomandi vinna við útgáfu fréttabréfs auk annarra almennra skrifstofustarfa. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi góða bókhalds- og ritvinnslukunnáttu og gott vald á íslensku og einu Norðurlandamáli. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og lipurð í mannlegum samskiptum. Vinnutími er frá kl. 13-17. Umsóknarfrestur er til og með 9. júní nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Afleysinga- og rádningaþjónusta Lidsauki hf. Skólavördustig 1 a - 101 Reykjavlk - Slmi 621355 Hjúkrunarfræðingar Okkur vantar hjúkrunarfræðing til vinnu í sumar vegna afleysinga. Frítt húsnæði og ferðir. Allar upplýsingar veita Amalía Þorgrímsdótt- ir, hjúkrunarforstjóri og Ásmundur Gíslason, forstöðumaður, símar 97-81221/81118. Skjólgarður, Höfn, Hornafirði. Frá fræðslustjóra Vesturlands- umdæmis Umsóknarfrestur um áður auglýstar stöður grunnskólakennara við eftirtalda skóla í Vest- urlandsumdæmi framlengist til 16. júní 1993: Grunnskólana Akranesi. Grunnskólann Hellissandi. Grunnskólann Grundarfirði. Grunnskólann Búðardal. Heiðarskóla Leirársveit. Grunnskólann Ólafsvík. Grunnskólann Stykkishólmi. Laugaskóla Dalasýslu. Umsóknir berist til skólastjóra viðkomandi skóla sem veita allar nánari upplýsingar. Fræðslustjóri Vesturlandsumdæmis. Eitthvað fyrir þig? Matreiðsluklúbbur Vöku-Helgafells, Nýir eft- irlætisréttir, hefur hlotið frábærar viðtökur. í hverjum mánuði berast klúbbfélögum upp- skriftir af girnilegum og fjölbreyttum réttum sem fljótt verða eftirlætisréttir allra á heimilinu. Þess vegna óskum við eftir að ráða áhuga- samt fólk til kynningarstarfa í tengslum við klúbbinn. Vinsamlegast hafið samband við Elínu Garð- arsdóttur í síma 688300, mánudag, þriðjudag og miðvikudag frá kl. 9-12. Vaka-Helgafell. Sölufólk á landsbyggðinni Nýjung - einstakt tækifæri Við leitum að aðilum, sem hafa áhuga á því að selja og kynna í sinni heimabyggð góðar vörur sem ekki eiga sér hliðstæðu á mark- aðnum. • Æskilegt er að viðkomandi sé vanur heimakynningum. • Aðeins einn aðili kemur til greina á hverj- um stað. • Vörurnar eru bylting í meðferð og geymslu matvæla og seljast því sem raunhæf kjarabót. Sérstakt tækifæri til þess að skapa sér um- talsverðar aukatekjur um langan tíma. Upplýsingar veitir Brynhildur Bárðardóttir, markaðsstjóri, í síma 91-676869 frá mánu- degi til föstudags. Alþjóða verslunarfélagið hf,, Fákafeni 11, 108 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.