Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993
33
aðrir, segir frá framsýni Guðmund-
ar í viðtali í 40 ára afmælisriti
Varðar árið 1966. Ragnar nefnir
sem dæmi, að Guðmundur hafi
fyrstur manna komið fram með
hugmyndir um verkamannabústaði
og strætisvagna á vegum bæjarfé-
lagsins. Ragnar segir þetta muni
hafa verið árið 1928. Hvorugt náði
í fyrstu fram að ganga. En skömmu
síðar beitti Alþýðuflokkurinn sér
fyrir lagasetningu á Alþingi um
verkamannabústaði. Þegar fyrir-
tækið Strætisvagnar Reykjavíkur
var stofnað var Guðmundar minnst
sem frumkvöðuls þeirra, og hékk
mynd hans uppi á skrifstofu SVR
lengst af.
Guðmundur var um þrítugt þegar
hann kvæntist ungri, undurfríðri
stúlku frá Hvalfjarðarströnd. Hún
hét Sigríður Jónsdóttir og var frá
Kalastaðakoti. Sigríður var 16 ára
þegar hún með konungsleyfi giftist
Guðmundi. Þau eignuðust tvö böm,
Jón og Ingibjörgu, sem voru sex
og fjögurra ára gömul þegar faðir
þeirra féll frá. Eftir fráfall Guð-
mundar giftist Sigríður á ný Felix
Ottó Sigurbjarnarsyni, og átti með
honum Hörð og Soffíu.
Afkomendur Guðmundar eru
margir, þótt börn hans væru aðeins
tvö. Jón á sex börn og átján barna-
börn, og Ingibjörg á einnig sex
börn en sautján barnabörn. Jón var
flugmaður og síðar rafvirkjameist-
ari, en hefur lengst af starfað fyrir
Bandaríkjaher í Keflavík. Ingibjörg
er rekstrarstjóri í Bakaríinu
Grímsbæ.
Fyrsta kona Jóns var Rut Peter-
sen og eignuðust þau Sigríði Nönnu,
sem er kaupmaður í Flórída í
Bandaríkjunum. Önnur kona Jóna
var Nanna Tryggvadóttir og eru
synir þeirra Guðmundur fulltrúi og
Tryggvi endurskoðandi. Dóttir Jóns
og Sigríðar Kristjánsdóttur er
Kristín Þorbjörg húsmóðir. Núver-
andi kona Jóns er Vigdís Tryggva-
dóttir og eiga þau tvær dætur,
Kristínu Anný markaðs- og sölu-
stjóra og Soffíu Bryndísi skrifstofu-
mann.
Fyrri maður Ingibjargar var
Haukur Sveinsson og eignuðust þau
þrjú börn; Svein Rúnar lækni, Óttar
Felix framkvæmdastjóra og Sigríði
Guðmundu landfræðing. Núverandi
maður Ingibjargar er Guðfinnur
Sigfússon og eru böm þeirra einnig
þijú; Sigfús bakari, Guðmundur
bakari og María Þorgerður, kennari
og tölvunarfræðingur.
Nú eru 62 ár liðin frá því hörmu-
lega slysi, sem varð 1. september
1931. Þetta mun hafa verið fyrsta
banaslysið í bíl hérlendis.
Guðmundur var bæjarfulltrúi í
Reykjavík er hann lést, formaður
Varðar og einn af helstu forystu-
mönnum Sjálfstæðisflokksins.
Hann hafði á örfáum árum fengið
óhemju miklu áorkað fyrir flokkinn,
en verslunarrekstur hans mun hafa
setið á hakanum. Eins og sagði í
Morgunblaðinu: „En Guðmundur
var þannig skapi farinn að hann lét
aldrei mikið að sér kveða í einka--
rekstri sínum. Hann var einn af
þeim fáu mönnum, sem fá að
vöggugjöf alveg staðfastan áhuga
fyrir málefnum almennings, fyrir
því að láta til sín taka á þeim vett-
vangi, þar sem unnið er að heill
alþjóðar."
Blessuð sé minning Guðmundar
Jóhannssonar.
Sveinn Rúnar Hauksson.
Til sölu falleg 4ra-5 herbergja
hæð og ris í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða 68,7%
eignarhlut í frístandandi timburhúsi, byggðu 1906. Á
hæðinni er forstofa, þvottahús, eldhús, borðstofa og
stofa. í risinu eru 3 svefnherb. og bað. Eignin, sem er
rúml. 100 fm, er endurnýjuð að mestu leyti. Sérinngang-
ur, sérbílastæði og garður á baklóð. Áhvílandi kr. 3,9
millj. í hagstæðum lánum. Verð aðeins kr. 7,3 millj.
Athugandi að taka bifreið uppí.
Nánari upplýsingar í síma 91-24995.
Glæsilegar íbúðir - stórkostlegt útsýni - hagstætt verð
Opið hús
Sýnum í dag glæsilegar séríbúðir í Setbergshlíð,
Hafnarfirði. Stórkostlegt útsýni. Gott verð og
sveigjanlegir samningar. Sérfræðingar á staðnum.
Opiðfrá kl. 13.00-17.00 í
Klettabergi 60 og
Klukkubergi 41.
Verið velkomin - heitt kaffi á könnunni.
(
(
(
(
(
(
(
(
(
Gerið
Athugið! Allar innborganir kaupenda fram að afhendingu íbúða
verða í vörslu viðskiptabanka okkar.
Frágangur: íbúðirnar afhendast fullbúnar með öllum
gólfefnum, innréttingum og tækjum, sameign er
fullfrágengin og lóð er þökulögð.
Afhending:
Fyrstu íbúðirnar afhendast
í apríl 1994 og þær síðustu
júní sama ár.
verð-
samanburð
rð:
2ja herb. fullbúin íbúð
kr. 5.800 þús.
4ra herb. fullbúin íbúð
kr. 7.900 þús.
Stæði í bílskýli kr. 200 þús.
Dæmi um greiðslukjör:
4ra herb. 2ja herb.
Staðfestingargjald: 200 þús. 200 þús.
Húsbréf: 5.135 þús. 3.770 þús.
Samkomulag: 2.565 þús. 1.830 þús.
Samtals: 7.900 þús. 5.800 þús.
FLETTURIMI 31-35
Höfum fengið frábærar móttökur á 30 daga kynoingar-
verði okkar og eru margar íbúðir þegar seidar.
Greiðslukjör okkar hafa alltaf verið með
því besta sem þekkist.
Lítið á aðstæður á byggingarstað.
Hringið og fáið sendan litprentaðan
bækling með frekari upplýsingum.
Opnum á mánudag
bxl BYGGÐAVERK HF.
Reykjavíkurvegi 60, 220 Hafnarfirdi.
Grunnmyndir íbúða í einum stigagangi bækling með frekari upplýsingum. Sími 54644, fax 54959
Nýtt þak • nýir veggir • nýir gluggar • nýtt gler • nýjar hurðir • ný eldavél • nýtt baðkar • nýr vaskur • ný teppi • nýjar flísar • ný pípulögn • nýtt rafmagn • ný málað • allt nýtt.
Fullbúnor íbúðir ú frúbæru ver