Morgunblaðið - 06.06.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993
FIMLEIKAR
Morgunblaðið/Arni Sæbcrg
Andreas Wecker lét vel að dvölinni hjá Gerplu.
Mikill
áhugi á
íslandi
- sagði Andreas
Wecker, einn fremsti
fimleikamaður heims
FIMLEIKADEILD Gerplu í Kópavogi hefur
notið leiðsagnar besta fimleikamanns
Þýskalands, Andreas Wecker, sem kom fyr-
ir tilstuölan eins af þjálfurum félagsins
Mario Azonn en þeir þekkjast í gegnum
þátttöku á fimleikamótum á alþjóðlegum
vettvangi og eru báðir frá fyrrum Austur-
Þýskalandi.
Gerpla og Fimleikasamband íslands stóðu að
komu hans hingað. Andreas Wecker, sem
er 23 ára, hefur verið einn af fremstu fimleika-
mönnum heims síðustu fjögur árin.
„ .. Hann byrjaði 7 ára að æfa fímleika
Stefánsson °g hefur því verið að í 16 ár en
skrifar hann kom upprunalega frá eystn
hluta Þýskalands.
Hann varð Evrópumeistari í keppni á svifrá
1989 og eins á heimsmeistaramótinu 1992, fékk
silfurverðlaun í liðakeppni á HM 1989 og einnig
fyrir æfingar í hringjum og á bogahesti. Hann
vann silfur fyrir æfingar á svifrá á Olympíuleikun-
um í Barcelona 1992.
Á síðasta heimsmeistaramóti í fimleikum, sem
fram fór í Birmingham í sl vetur, náði Wecker
bronsverðlaunum í samanlögðum greinum og vann
silfur á bogahesti og í hringjum. Hann æfír og
keppir eingöngu og getur því lítið sinnt þjálfun.
En hvað fínnst Wecker um íslenska fímleika: „Það
er erfitt að segja með stöðuna hér á landi, hér er
íþróttin tiltölulega ung en í Þýskalandi er komin
hefð á fimleika. En það er mikill áhugi hér. Það
er einnig mikill áhugi í Þýskalandi og tóku Þjóð-
veijar fimleika fram yfír bandaríska „draumaiiðið"
í körfubolta þegar sjónvarpsáhrif voru mæld.“
Gerpluliðið hefur ekki svikist um að fara með
gestinn á helstu ferðamannastaðina á suðvestur-
horninu þegar tími hefur gefist frá æfingum.
„Mér líst mjög vel á landið og hef áhuga á að
heimsækja Island aftur síðar ef ég get,“ sagði
Andreas Wecker en hann dvaldi hér í hálfan mán-
uð fyrir skömmu.
SUND
Spuming um að
sigra náltúmöflin
- segir Adrian Moorhouse, íyrrum Ólympíumeistari, sem ætlar að synda yfir Ermarsund
ADRIAN Moorhouse, fyrrum Ólympíumeistari og
heimsmethafi í 100 metra bringusundi frá Bret-
landi, er um þessar mundir að undirbúa sig fyrir
að synda yfir Ermarsund. Hann ætlar að stinga
sér til sunds í Dover í Bretlandi og synda yfir til
Frakklands, 35 km leið, í lok ágúst.
|oorhouse, sem er 29 ára, varð Ólympíumeistari í
100 metra bringusundi í Seoul 1988. Hann keppti
einnig á leikunum í Barcelona í fyrra og varð þá að láta
sér lynda síðasta sætið í úrslitum í 100 metra bringu-
sundi. Þar með var frægðarsól hans farin að lækka á
lofti og því ákvað hann að söðla um. Nú er markmiðið
að synda heldur lengri vegalengd en á Ólympíuleikum
og við aðrar aðstæður. í Ólympíusundlauginni í Seoul
var hitastigið á vatninu 26 gráður á selsíus, en sjórinn
í Ermarsundi er aðeins 11 gráður á selsíus. Hann hefur
því þurft að aðlaga sig breyttu hitastigi með því að æfa
í höfninni í Dover.
Vegalengdin yfír Ermarsundið milli Dover og Calais
í Frakklandi er um 35 km, þ.e.a.s. í beinni loftlínu. En
vegna strauma ber sundfólk oft af leið og getur vega-
lengdin því orðið allt að 60 km. „Ég er útbrunninn sem
keppnismaður á Ólympíuleikum, en ég verð að geta boð-
ið sjálfum mér ögrandi viðfangsefni," sagði Moorhouse
um áform sitt.
Hann hefur æft sig vikulega í sjónum við Dover frá því
í byijun maí. Hann var aðeins 20 mínútur í sjónum fyrstu
æfíngamar en nú hefur hann aukið tímann upp í 75
mínútur. Hann nýtur leiðsagnar Alison Streeter, sem er
eina konan sem þrívegis hefur synt yfír sundið.
Ólympíumeistarinn hefur lengi dreymt um að synda
yfir Ermarsund , en fyrstur til þess svo vitað sé var
Matthew Webb, breskur skipstjóri, árið 1875. „Ég var
farinn að hugsa um þetta sund þegar ég var 15 eða 16
Styrsta vegalengdin yfir
Ermasund er 34 kílómetrar
en Moorhouse gæti þurft að
synda um 45 kílómetra vegna
strauma og sjávarfalla
Adrlan Moorhouse fagnar hér sigrinum í 100 metra
bringusundi á Ólympíuleikunum í Seoul. Nær hann að láta
drauminn rætast — að synda yfír Ermarsund?
ára, á sama tíma og ég var að gæla við Ólympíugull.
Þetta sund er spurning um að sigra náttúruöflin," sagði
Moorhouse. Hann ætlar að synda skriðsund en ekki
bringusund, sem hefur verið hans sérgrein. „Það er of
kalt fyrir bringusund og svo vil ég komast eins hratt
yfír og kostur er. Hnéin á mér myndu ekki þola bringu-
sundið í svona köldum sjó.“
Hann segir að þessi þrekraun gæti reynst erfíð. „Það
háir mér ekki að synda í gegnum marglyttur og olíu-
brák. Þú verður að einbeita þér að sundinu og vera viss
um að fara ekki af leið. Þú hugsar ekki um neitt annað
þangað til gripið verður í fótinn á þér. Þetta er erfiðara
en að klífa Everest. Það sést á því að fleiri hafa klifið
Everest en synt yfir Ermarsund."
Talið er að 500 manns hafi klifíð Everest en aðeins
423 náð að synda yfir Ermarsund af þeim 4.300 sem
hafa reynt það. Það er aðeins einn af hveijum tíu sem
kemst yfír sundið — skildi Moorhouse vera einn þeirra?
Vantaði aðeins
nokkra kílómetra
- sagði Eyjólfur Jónsson, eini íslendingurinn sem
hefur reynt að synda yfir Ermarsund
EYJÓLFUR Jónsson, lögreglumaður,
reyndi tvfvegis að synda yfir Ermarsund
árið 1958 en mistókst í bæði skiptin.
Hann er eini íslendingurinn sem hefur
reynt þetta sund svo vitað sé. „Það vant-
aði aðeins þrjá eða fjóra kílómetra að
ég kæmist yfir í seinna skiptið, en þá
var ég búinn að vera á sundi i' sextán
klukkutíma. Það sem háði mér mest var
sjóveiki," sagði Eyjólfur.
Ejólfur, sem er 68 ára og hefur starfað sem
lögregluþjónn í Reykjavík í 34 ár, sagðist
’ ekki líta á sig sem afreksmann í íþróttum. „Ég
er bara ósköp venjulegur maður. Mesta afrek-
ið sem ég hef unnið á íþróttasviðinu er að ég
var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins
Þróttar og er þar heiðursfélagi," sagði hann
og vildi lítið gera úr sundafrekum sínum.
Hann synti úr Selsvör í Reykjavík uppí
Teigavör á Akranesi 1958. Hann var 13
klukkustundir og 15 mínútur á leiðinni. „Sund-
ið gekk nokkuð vel og ég var lítið þrekaður.
Ég fór til Reykjavíkur daginn eftir með Akra-
borginni og fékk frítt. En ég varð að skrifa
undir sérstakt skjal um borð þar sem ég stað-
festi að ég væri ekki í samkeppni við skipið
á þessari leið,“ sagði Eyjólfur.
Hann hefur tíu sinnum synt Viðeyjarsund,
þá Skeijafjarðarsund, Drangeyjarsund og
Hafnarfjarðarsund. Þetta verður að teljast
mikið afrek. Þess má geta að Eyjólfur lærði
ekki að synda fyrr en 25 ára gamall og fór í
sjóinn á hveijum degi fram eftir aldri. „Ég
vandist því sjávarkuldanum vel. Það var ekki
eins kalt í Ermarsundinu og ég átti að venj-
ast hér við Island.“
Eyjólfur sagðist vera hættur að fara í sjóinn
eða sundlaugarnar og léti sér nægja að svamla
í baðinu heima hjá sér. „Ég veit ekki til þess
að annar íslendingur hafi reynt Ermarsundið."
Morgunblaðið/Kristinn
Eyjólfur Jónsson, lögreglumaður,
er eini íslendingurinn sem hefur reynt
að synda yfir Ermarsund.