Morgunblaðið - 06.06.1993, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JUNI 1993
47
4
(
4
i
4
4
4
(
4
4
4
4
4
4
4
A
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Samfellclm
A
Inokkrum löndum hefur verið
veðjað á fjölskyldukerfíð,
m.a. á íslandi með „heimilis-
læknum“ sínum, segir í upphafi
kafla með undirfyrirsögninni
Samfelldni í bók fjölskylduráð-
gjafanna Karls Gustavs Piltz
og Kristínar Gustavsdóttur í
Svíþjóð um samskipti stofnana,
samfélags og einstaklinga.
Þetta ýfði sinni Gáruhöfundar,
enda um skeið orðið áhorfandi
að reynslu sjúkra og farið að
velta fyrir sér hvort fjölskyldu-
kerfið okkar sé ekki í raun orð-
ið illa útþynnt. Geti jafnvel í
stöku tilfellum
orðið hættulega
ópersónulegt?
Þau Kristín og
Karl Gustav,
sem í áratugi
hafa unnið að
fjölskyldumál-
um og þekkja
áhrif kerfisins í
Svíþjóð á samfé-
lagið, halda svo
áfram (í snörun
höfundar):
„Við teljum
mjög jákvætt
fyrir fjölskyld-
una að eiga að-
gang að lækni
sem fylgist með
framvindu fjöl-
skyldunnar í
langan tíma.
Samfelld tengsl
eru forsenda
þess að fá mynd
af viðkomandi
fjölskyldu. Sér-
fræðingakerfið
byggir á skammtíma samskipt-
um við sérfræðinga um afmark-
að viðfangsefni. Sérfræðingur-
inn rannsakar einungis það sem
viðkemur sérgrein hans. Ekki
er ætlast til þess að hann fáist
við almenn viðfangsefni, svo
sem fjölskyldu og netið í vef
hennar. Það á einhver annar að
gera, óljóst hver. Þar fyrir utan
þarf samfelld samskipti til þess
að mynda trúnað, sem er for-
senda þess að fjölskyldan veiti
nokkra hlutdeild í einkalífi sínu.
Þar með að segja frá því að
eiginmaðurinn sé sjúkur og að
áhyggjur út af syninum eða
nýfráskilinni dóttur valdi kvíða.
Í heimsókn til sérfræðings
verður einstaklingurinn að gera
grein fyrir erindi sínu með þvíað
„framleiða“ upplýsingar, sem
hann álítur að séu á sviði sér-
fræðingsins. Sá sem leitar til
læknis velur meðvitað eða
ómeðvitað þær upplýsingar sem
hann tínir til. Hann bryddar
ekki upp á þýðingarmiklum, al-
mennum aðstæðum, ef hann
heldur ekki að þær skipti máli
í þessu ákveðna samhengi.
Þarna verða sérfræðisering og
samfelldnibrestur samverkandi
og gera enn torveldara fyrir."
Þetta rifjaði upp útvarpsvið-
tal einn morguninn í vetur við
Ingvar Þóroddson lækni á Akur-
eyri. Af reynslu sinni kom hann
einmitt inn á hve miklu máli
skiptir fyrir þá læknana að
þekkja einstaklingana og fjöl-
skyldurnar í kring um þá. Sagði
eitthvað á þá leið, að stundum
eigi læknirinn erfitt með að
skilja hvað er að, en eftir því
sem hann læri betur að þekkja
sjúklinginn og umhverfi hans,
þeim mun meiri iíkur séu á að
hann sé ekki að gera neina vit-
leysu. Yið að hitta manneskju
einu sinni sé ekkert víst að við-
brögðin verði rétt. Þekkingin
komi ekki bara einn, tveir og
þrír. Upplýsingamar sem smám
saman safnast upp veiti
læknunum vitnesku um mann-
eskjuna, sem skipti svo miklu
máli þegar á bjátar. Kostirnir
við gamla heimilislæknakerfið
séu að þar verður ijölskyldan.
með í myndinni. Sú mynd sé
mikilvæg til þess að skilja betur
viðbrögð fólks og hvernig það
kvartar. Hann tók nýlegt dæmi
af konu sem var búin að missa
dóttur sína. Ef hann hefði ekki
vitað það og þekkt til fjölskyld-
unnar þá hefði hann ekki skilið
viðbrögð henn-
ar, sem við þess-
ar aðstæður
voru eðlileg, og
kannski farið að
grípa inn í, sagði
hann.
Á ekki stærri
stað en Akureyri
hafa læknarnir á
Heilsugæslu-
stöðinni, sem
eru 10 talsins,
líka möguleika á
að hafa sæmi-
legt upplýsinga-
flæði milli sín.
Tala persónu-
lega saman utan
við skýrslurnar.
Og þar, hvað þá
á minni stöðun-
um, þekkir
læknir sem lengi
hefur búið á
staðnum, a.m.k.
til ákaflega
margra.
Annar læknir,
sem lengi hefur verið í héraði
úti á landi, sagði mér þetta
sama. Hann veit nokkurn veg-
inn hvort sá sem hefur tal af
honum í síma er líklegur til að
bera sig vel eða yfirdrífa. Hann
veit um áföll sem líkleg eru til
að leggjast á hann o.s.frv. Og
nú þegar hann segir farið að
bera svolítið, af kostnaðará-
stæðum, á tregðu við að koma
eða láta hann koma, spurt hvort
ekki megi bara afgreiða þetta
gegn um síma, þá getur hann
nokkum veginn metið hvort,
hann á að leggja að manneskj-
unni að koma eða jafnvel að
drífa sig strax til hennar. Hann
þekkir sitt fólk. Slík grunnþekk-
ing skilar sér illa um skýrslur,
þótt „rappað“ sé af mestu sam-
viskusemi. Maðurinn er víst æði
flókið fyrirbrigði.
Ekki er hér verið að draga
úr þeirri stórkostlegu og ómet-
anlegu sérfræðiþekkingu sem
tiltæk er í landinu og stendur
til boða þegar á ríður. En fyrr-
nefndir bókarhöfundar,
sem hafa skoðað og unnið með
fjölskyldumál í áratugi, telja
ástæðu til viðvörunar varðandi
samfelldnina. Fyrr í bókinni
segja þau um sérfræðisering-
una. „Okkar flókna samfélag
krefst sérfræði. Þekkingin er
alltaf að aukast og skiptast í
sérfræðigreinar. Þessi þróun
gerir erfiðara um vik að halda
yfírsýn."
Landsbyggðafólk segir að
þéttbýlisfólk búi við betri lækn-
isþjónustu. Víst erum við nær
spítölum og sérfræðiþjónustu
þegar tilteknir líkamspartar
bila. En er hér í nánd tiltækur
heimilislæknir með uppsafnað-
an þekkingarforða á einstakl-
ingnum og umhverfi hans þegar
heill skrokkur fer að æmta? Er
fjölskyldukerfið þarna ennþá
virkt?
Póstsendum
Z-brautir og gluggatjöld, Faxafeni 14, Rvk.
Draumaland, Keflavík.
Hannyrðaverslunin (ris, Selfossi.
Mozart, Vestmannaeyjum.
Kaupf. (sfirðinga, (safirði.
Versl. E. Guðfinnssonar, Bolungarvík.
Kaupf. Húnvetninga, Blönduósi.
Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga.
Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki.
Nýja línan, Akranesi.
Kotra, Dalvík.
Valberg, Ólafsfirði.
Skemman, Reykjavíkurvegi 5, Hafnarfirði.
Sporið, Ólafsvík.
Kaupf. Dýrfirðinga, Þingeyri.
Versl. Horn, Kársnesbraut 84, Kópavogi.
Kaupf. Fram, Neskaupstað.
El(n, Siglufirði.
Paloma, Grindavík.
Kaupf. Þingeyinga, Húsavík.
Versl. Helgu Guðmundsdóttur, Stykkishólmi.
Kaupf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík.
Fell, Grundarfirði. *
Kaupf. Borgfirðinga, Borgarnesi.
Höggið, Patreksfirði.
Amaró hf., Akureyri.
Álnabúðin, Suðurveri, Reykjavík.
Kaupf. A-Skaftfellinga, Höfn, Hornafirði.
Samkvæmispáfinn, Egilsstöðum.
Kaupf. Króksfjarðar, Króksfjarðamesi.
Kaupf. Vopnfirðinga, Vopnafirði.
Versl. Inga, Hamraborg 14 a, Kópavogi.
Glæsilegt úrval, með
og án gyllingar.
Verð kr. 490 br. 173 cm
Verð kr. 340 br. 122 cm
ÞETTA ER ORÐSENDING
TIL ALLRA LANDSMANNA
Síðasta stórsending
sumarsins
af gluggatjaldaefnum frá
J. Rosenthal,
sem allir hafa beðið eftir,
verður komin í verslanir
á morgun, mánudag.
Nú má enginn láta þetta
framhjá sér fara.
Dæmi 1 um sparnað með ATLAS:
sparnaður!
Eftirfarandi dæmi er um hjón með tvö börn í tveggja vikna orlofsferð
á Spáni að andvirði 160 þús. kr. Ferðin er greidd a.m.k. 8 vikum fyrir brottför.
&.000 ATLAS - afsláttur af ferðinni
+ 16.100 Andvirði samsvarandi tryggingapakka
+ i.aoo Afsláttur af forfallagjaldi
24.900
- 3.900 Árgjald - Greitt einu sinni á ári.
21.000
Það er sama hvernig þú reiknar
dæmið. Það margborgar sig að
vera með ATLAS kreditkortið!
+?ar skynsetnin ræður ferði’öii//
EUROCARD
FLUGLEIÐIR ,
Upplýsingar og umsóknir má fá hjá ferðaskrifstofum, söluskrifstofum Flugleiða, í öllum bönkum, sparisjóðum
og hjá Eurocard, Ármúla 28, Reykjavík.