Morgunblaðið - 12.06.1993, Side 1

Morgunblaðið - 12.06.1993, Side 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D 130. tbl. 81. árg. LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Króatar ráðast á bílalest BÍLSTJÓRAR og blaðamenn leita skjóls á bak við breskan bryndreka þegar króatískir hermenn skutu á bílalest á vegum Sameinuðu þjóðanna í gær. Breskir hermenn skutu síðar tvo króatíska árásarmenn til bana. Telja friðargæsluna í Bosníu vera í hættu Aþenu, Llangollen, Vin. Reuter. TALSMAÐUR bresku hersveitanna í Bosníu sagði í gær að algjör glundroði væri yfirvofandi í Bosníu og það stefndi friðargæslu Sameinuðu þjóðanna þar í hættu. John Major, forsætisráðherra Bretlands, kvaðst styðja heilshugar ákvörðun breskra hermanna um að skjóta á króatíska hermenn í Mið-Bosníu í gær og léði máls á því að senda fleiri breska hermenn til landsins. Breskir hermenn felldu tvo króat- íska hermenn sem réðust á flutn- ingabíla á vegum Sameinuðu þjóð- anna í grennd við bæinn Novi Travnik í Mið-Bosníu í gær. 2.400 breskir hermenn eru nú í Bosníu og nokkrir breskir hernaðarsér- fræðingar og stjómmálamenn hvöttu stjórnina til að kalla þá alla heim. Stjórnarandstöðuþingmenn sögðu að ef hermennirnir yrðu áfram í Bosníu kæmi að því fyrr eða síðar að þeir lentu í stríði við einhverja af hinum stríðandi fylk- dngum í landinu. John Major sagði hins vegar að stjórnin myndi ekki taka neina „óviðunandi áhættu" með líf hermannanna og léði máls á því að senda þangað liðsauka. James Myles, talsmaður bresku hersveitanna, sagði að algjör glund- roði væri að skapast í Bosníu og friðargæslan þar væri í mikilli hættu. „Sameinuðu þjóðirnar geta ekki 'starfað almennilega þar sem stjórnleysi ríkir,“ sagði hann. Rússar Ijá máls á að senda hermenn Andrej Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði í gær að rússneska stjórnin væri reiðubúin að senda hermenn til friðargæslu í Bosníu, en Sameinuðu þjóðirnar þyrftu þó að skilgreina hlutverk og verkefni þeirra nánar. Rússar voru ein af fimm þjóðum sem beittu sér fyrir áætlun Sameinuðu þjóðanna um að koma á sex griðasvæðum fyrir múslima í Bosníu en stjómar- erindrekar í Brussel sögðu að marg- ir stjórnmálamenn í Rússlandi, þeirra á meðal Pavel Gratsjov vam- armálaráðherra, væm andvígir því að senda hermenn þangað. Boutros Boutros-Ghali, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að nokkur ríki hefðu boðist til að senda liðsauka til að vernda Sarajevo og fimm önnur griðasvæði í Bosníu. Hann kvaðst vongóður um að Sameinuðu þjóðirnar gætu fram- fylgt ályktun öryggisráðsins um vemdun svæðanna. Sviðsmyndin á stöðugri hreyfíngu vegna farsíma London. The Daily Telegfraph. FRUMSÝNINGU nýjasta söngleiks Andrews Loyds Webbers, Sunset Boulevard, hefur verið frestað um 13 daga vegna þess að í hvert skipti sem hringt er úr farsíma í grennd við leikhúsið fer sviðsmyndin af stað. Fyrirhuguð frumsýning átti að vera 29. júní. Það var Webber sjálfur sem uppgötvaði fyrir til- viljun hvað olli hinum dularfullu tilfærslum sviðs- myndarinnar. Hann hringdi úr farsíma er hann var staddur í Adelphi leikhúsinu og viti menn sviðsmynd- in fór af stað. Skömmu síðar hringdi hann aftur með sömu afleiðingum og þá þótti málið upplýst. „Sviðsmyndin hreyfíst við minnstu truflun af völdum leigubíla, mótorhjólasendla og hvaðeina," sagði Webber. Hann telur að þrýstilokarnir þrír sem knýja leikmyndina séu gallaðir. Að svo komnu máli er ekki talið ráðlegt að hætta lífi og limum leikaranna á sýningum og þess vegna verður skipt um þrýsti- loka. Tafirnar eru mjög kostnaðarsamar og mun Webber þurfa láta allt að einni milljón punda af hendi vegna þeirra. Þjóðverjar valda uppnámi innan EB Sérsamningnr við Bandaríkin Brussel, Washington. Reuter. ÞÝSKA stjórnin hefur valdið miklu uppnámi innan Evrópubanda- lagsins, EB, með því að gera sérsamning við Bandaríkin um fjar- skiptamál. Samkvæmt honum munu fyrirtæki í ríkjunum standa jafnt að vígi við verkútboð en EB-ríkin hafa haft þá reglu að taka eigin fyrirtæki fram yfir erlend. Hefur framkvæmdastjórn EB hótað að lögsækja Þjóðveija fyrir vikið. Snemma á þessu ári setti EB nýja reglugerð, sem beinlínis skyld- ar aðildarríkin til að taka EB-fyrir- tæki fram yfir önnur að vissu marki, en um síðustu mánaðamót brást Bandaríkjastjóm við þessum við- skiptaháttum með því að ákveða takmarkaðar refsiaðgerðir gagn- vart EB. Fyrir þremur dögum svar- aði EB í sömu mynt, þar á meðal þýska stjórnin, og því kom það á óvart þegar Mickey Kantor, við- skiptafulltrúi Bandaríkjastjómar, tilkynnti um samkomulagið við þýsku stjórnina. Það þýðir, að hvor- ugt ríkið mun beita hitt refsiaðgerð- um. Sir Leon Brittan, sem fer með íjarskiptamál í framkvæmdastjórn EB, gaf út yfirlýsingu í gær um þetta mál og sagði, að tvíhliða samningur af þessu tagi væri óheimill samkvæmt EB-lögum en þýska stjórnin heldur því fram, að í raun hafi enginn samningur verið gerður, heldur hafi verið um að ræða ítrekun á samningi, sem gerð- ur var 1954, þremur ámm áður en Evrópubandalagið var stofnað. Þýski fjarskiptamarkaðurinn er sá langstærsti í Evrópu og fyrir- tæki í öðrum EB-ríkjum hafa notið góðs af því. í yfirlýsingu Sir Leons Brittans var þýska stjómin einnig krafin skýringa á samningnum við Bandaríkjastjórn og er litið á þá kröfu sem tilraun til að koma í veg fyrir formlega staðfestingu hans. Norður-Kórea Stjórnin gefur eftír Sameinuðu þjóðunum. Reuter. STJÓRN Norður-Kóreu til- kynnti í gærkvöldi að hún hefði hætt við að draga sig út úr samningnum um takmörkun á útbreiðslu kjamavopna. Stjóm- in sagði að hún hefði „ákveðið einhliða að fresta eins lengi og hún telur nauðsynlegt að draga sig út úr samningnum“. Sjá frétt á bls. 20. Stoltur faðir “ RÚSSNESKI nóbelsverðlaunahafmn og rithöfundurinn Alexander Solz- henítzyn var viðstaddur skólaslit Harvard-háskóla í Bandaríkjunum í gær þegar elsti sonur hans, Yermolay, brautskráðist þaðan. Staðfest hefur verið að Solzhenitzyn, sem er á 75. aldursári, flytji aftur til Rúss- lands innan tíðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.