Morgunblaðið - 12.06.1993, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
h
Aðalfundur Sambands íslenskra hitaveitna á Isafirði
Sjö aðildarfélög hætta
ICklega vegna kostnaðar
ísafirði.
MTKTT.I. ágreiningur er kominn upp á aðalfundi Sambands ís- Orkubú Vestfjarða og Vatnsveita
lenskra hitaveitna, sem haldinn er á ísafirði. ísafjarðar voru heimsótt.
Sjö aðildarfélög, sem reka bæði
rafveitur og hitaveitur, vilja að
stofnað verði eitt samband orku-
fyrirtækja í landinu, en ekki starfa
í og greiða til tveggja eða fleiri.
Fulltrúar sérrekinna hitaveitna
eru þessu yfírleitt andvígir.
Fyrri hluti aðalfundarstarfa fór
fram í gær föstudag og fór stór
hluti fundarins í þessar umræður.
Tillaga kom fram frá þessum sjö
veitustofnunum, en þær eru
Bæjarveitur Vestmannaeyja, Hita-
veita, rafveita og vatnsveita Húsa-
víkur, Hitaveita Suðurnesja,
Orkubú Vestíjarða, Rafmagn-
sveitur ríkisins, Selfossveitur og
Veitustofnanir Hveragerðis, um
að aðalfundur Sambands íslenskra
hitaveitna ákveði að ganga til
samstarfs við félaga í Sambandi
íslenskra rafveitna um stofnun nýs
sameiginlegs sambands veitufyrir-
tækja. í tillögunni er lagt til að
halda stofnfund hins nýja sam-
bands strax í haust og að tillagan
verði afgreidd strax á fyrri degi
fundarins.
Eftir nokkrar umræður ákvað
fundarstjórinn, Eiríkur Finnur
Greipsson, að fresta afgreiðslu til
morguns. Síðar um daginn var
almennur fundur um ýms tækni-
mál hitaveitna auk þess sem
í dag, laugardag, er almennur
fundur fyrir hádegi, en eftir há-
degi er seinni hluti aðalfundar, þar
sem meðal annars verður væntan-
lega afgreitt tillaga samveitnanna
sjö. í Sambandi íslenskra hita-
veitna eru nú 33 orkuveitur auk
14 sem eru með aukaaðild.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum, munu þessi sjö félög ganga
úr sambandinu verði tillaga þeirra
ekki samþykkt, en það kom fram
á fundinum í gær að Bæjarstjóm
Vestmannaeyja hefur þegar
ákveðið að eiga einungis aðild að
einu orkusambandi.
Úlfar.
*
Ok inn en
flaug út
UNGUR piltur, nýkominn
með bílpróf, missti vald á
lánsbíl sem hann ók á tals-
verðum hraða um Álfatún
í Kópavogi í gærdag og
þeyttist bíllinn inn í garð
og stöðvaðist þar á hús-
vegg. Hann slasaðist ekki
að ráði en bíllinn er stór-
skemmdur. Að sögn Svan-
hvítar Ingólfsdóttur lög-
reglufulltrúa í Kópavogi er
líklegast að reynsluleysi
piltsins sé um að kenna
hvemig fór. Líklega hafí
hann villst á hemlum og
bensíngjöf í beygju. Nauð-
synlegt var að fá vörubíl
með öflugan krana til að
ná bílnum, úr garðinum.
Vagnstjórar SVR mótmæla hlutafélagi
VEÐURHORFUR I DAG, 12. JUN/
YFIRLIT: Yfir Grænlandi er 1.038 mb hæð sem mun þokast austur en
minnkandi 1.012 mb lægðardrag um 600 km suðsuðvestur af landinu.
SPÁ: Austlæg eða breytileg átt, gola eða kaldi. Skýjað með köflum um
landið austanvert og hætt við síðdegisskúrum norðaustantil. Léttskýjað
víðast hvar í öðrum iandshlutum. Mestur hiti verður um 17 stig í inn-
sveitum suðvestantil en kaldast verður 3-6 stiga hiti ó annesjum norðan-
lands og austan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Hægviðri. Sums staðar þoku-
loft eða dálítil súld við sjóinn, einkum við norður- og austurströndina,
en víða bjartviðri annars staðar. Víða 12-16 stiga hiti um hádaginn en
svalt að næturlagi.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Fremur hæg suðaustlæg átt. Bjartviöri og hlýtt
á Norður- og Austurlandi en skýjað sunnanlands og vestan og ef til
vill dálítil rigning.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
O £ A A M
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
r r r * x * ***
/ / * / * *
r r r r * r * * *
Rigning Slydda Snjókoma
--------- ----j , .....
FÆRÐA VEGUM:
V ^ V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
riig..
(Kl.17.30ígær)
Það er yfirleitt góð færð á þjóðvegum landsins. Á Vestfjörðum eru
Þorskafjarðar-, Tröllatungu- og Steinadalsheiðar ófærar, skafrenningur
á Steingrímsfjarðarheiði og má búast við ófærð með kvöldinu, Dynjandis-
heiði er fær. Öxarfjarðarheiði á Norðausturlandi er ófær en fært orðið
um Hólssand. Hálendisvegir eru lokaðir vegna snjóa og aurbleytu.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og
ágrænnilínu, 99-6315. Vegagerðin.
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl voöur Akureyri 11 ekýjeð Reykjavík 16 skýjað
Bergen 22 fóttskýjað
Helainki 14 skýjað
Kaupmannahöfn 23 léttskýjað
Narssarssuaq 17 léttakýjað
Nuuk 6 rígning
Ósló 21 hálfskýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 7 alskýjað
Algarve 24 léttskýjað
Amsterdam 22 hélfskýjað
Barcelona 21 hálfskýjað
Berlín 22 rígning
Chicago 16 þokumóða
Feneyjar 28 léttskýjað
Frankfurt 21 akýjað
Glasgow 20 skýjað
Hamborg 26 8kýj8ð
London 17 rígning
LosAngeles vanter
Luxemborg 18 skýjað
Msdrkf 18 hálfskýjað
Malaga 27 heiðskfrt
Mallorca 28 léttskýjað
Montreal 14 skúrir
NewYork 22 hálfskýjað
Orlartdo 24 iéttskýjað
Parls 17 skýjað
Madeira 20 iéttskýjað
Róm 26 skýjað
Vín 28 skýjað
Washlngton 23 skúrir
Winnlpeg 17 léttskýjað
Lítil röskun vegna
fundarhaldanna
VAGNSTJÓRAR lögðu niður vinnu í um eina klukkustund í gær og
héldu fund um tillögur sem fram hafa komið um að breyta SVR í
hlutafélag. Lítil röskun mun hafa orðið vegna þessa, að sögn starfs-
manna SVR, en einhveijir þurftu að bíða lengur eftir strætó en
þeir hefðu viljað.
Fundur starfsmanna Strætis-
vagna Reykjavíkur hófst kl. 13 og
var lokið kl. 14. Á fundinum var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Fundur starfsmanna Strætisvagna
Reykjavikur, haldinn 11. júní 1993,
varar við fljótfæmislegum áformum
um að breyta SVR í hlutafélag.
Áform þessi varða framtíð fyrirtæk-
isins og réttindi, kjör og atvinnuör-
yggi starfsmanna. Fundurinn skor-
ar á borgarfulltrúa að beita sér
fyrir því að fram fari lýðræðisleg
umræða og eðlilegt samráð verði
haft við fulltrúa starfsmanna áður
en afdrifaríkar ákvarðanir verða
teknar."
Ólík sjónarmið
Unnur Eggertsdóttir, trúnaðar-
maður vagnstjóra, sagði að sam-
staða hefði verið á fundinum um
ályktunina. Hún sagði að vagnstjór-
ar væru ekki sáttir við þessa til-
lögu. Þeir teldu að kjör sín myndu
skerðast, t.a.m. lifeyrissjóðsréttindi
og félagsmálaréttindi hjá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar.
Einsýnt sé að verði tillagan að veru-
leika muni vagnstjórar ekki geta
verið áfram í Starfsmannafélaginu.
Sveinn Andri Sveinsson, stjórn-
arformaður SVR, sagði hins vegar
í samtali við Morgunblaðið að sér
hefðu borist upplýsingar um að
nokkrir fundarmanna sem hlynntir
væru þessari breytingu hefðu ætlað
að taka til máls en hefði ekki verið
gefinn kostur á því. Einvörðungu
andstæðingar breytingarinnar
hefðu tekið til máls.
Hann benti ennfremur á, vegna
stöðvunar vagnaflotans, að á fyrri
kynningarfundum hefðu trúnaðar-
menn vagnstjóra gagnrýnt að ekki
skyldu allir vagnstjórar hafa verið
boðaðir á einn og sama fundinn.
Slíkt hefði hæglega verið hægt án
stöðvunar vagnaflotans með því að
nota sumarafleysingarmenn. „Það
er hins vegar greinilegt ,“ sagði
Sveinn Andri,„að forysta BSRB
vildi stöðva vagnaflotann að
ástæðulausu."