Morgunblaðið - 12.06.1993, Side 10

Morgunblaðið - 12.06.1993, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 Góður afli á sjóstangaveiðimótinu ^ Vestmannaeyjum. ÁRLEGT hvitasunnumót Sjóstangaveiðifélags Vestmannaeyja var haldið um hvítasunnuhelgina. Þátttakendur voru 31 og var afli þeirra 9.383 kíló sem seldist fyrir 537.768 krónur á Fiskmarkaðnum í Eyj- um á þriðjudag. í einstaklingskeppni karla varð ur mótsins. Annar varð Bogi Sig- aflahæstur Einar Kristinsson, urðsson, Vestmannaeyjum, með Reykjavík, með 515,98 kíló, og 493,78 kíló og þriðji Einar B. Ein- hann var jafnframt aflahæsti mað- arsson, Vestmannaeyjum, með Laugardalur Glæsilegar módelíbúðir Til sölu eru í Listhúsinu v. Engjateig 115 fm stórglæsi- legar fullinnréttaðar íbúðir á tveimur hæðum. íbúðirnar eru m. sérinng. af svölum. Sólskáli í suður. Innrétting- arnar eru mjög vandaðar, sérhannaðar og sérsmíðaðar. Frábær staðsetning. Ú FJÁRFESTING 105 «.«.»«< FASTEIGNASALA" s,mi 62 42 50 Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl. 490,33 kíló. í keppni kvenna sigr- aði Katrín Gísladóttir, Vestmanna- eyjum, með 364,68 kíló, önnur varð Hjördís Kristinsdóttir, Vest- mannaeyjum, með 322,12 kfló og þriðja Heiðdís Jónsdóttir, Vest- mannaeyjum, með 271,02 kfló. I sveitakeppni karla varð afla- hæst sveit Jónasar Þóris Jónsson- ar, Reykjavík, með 1497,18 kíló, önnur varð sveit Ríkharðs Stefáns- sonar, Vestmannaeyjum, með 1303,63 kíló, og þriðja sveit Péturs Árnmarssonar, með 1214,50 kíló. Aflahæsta kvennasveitin varð sveit Elínborgar Bernódusdóttur, Vest- mannaeyjum, með 1184,06 kíló. Stærsta fisk mótsins dró Ólafur Ólafsson, Reykjavík, 13,66 kílóa þorsk. Flesta físka dró Einar Birg- ir Einarsson, Vestmannaeyjum, 298 talsins og flestar tegundir dró Ólafur Tryggvason, Vestmanna- eyjum, 8 talsins. Aflahæsti bátur á hveija stöng Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Frá sjóstangamótinu. varð Aðalbjörg,. með 439,33 kíló og mest aflaverðmæti á stöng fékkst um borð í Sigrúnu, 28.715,20 krónur. \ Grímur Askriftarþj ónusta Stöðvar 2 Niðjamót á Selfossi NIÐJAMÓT Arndísar Bjarna- dóttur og Hákonar Magnússonar frá Reykhólum verður haldið á Selfossi helgina 9.-11. júlí. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 25. júní til Jónínu Margrétar Guðmundsdóttur (Maddýar), Mar- grétar Magnúsdóttur, Guðborgar Hákonardóttur eða Jóhannu Guð- jónsdóttur. ----» *-*- Sendiherra í Ukraínu Ólafur Egilsson afhenti 3. júní sl. forseta Úrkaínu, Leonid M. Kravtsjúk, trúnaðarbréf sem sendi- herra Islands í Úkraínu með aðset- ur í Moskvu. 911 RH 91 97fl LÁRUS Þ' VALD.MARSSON framkvæmoastjori L I I jUBblÓ/U KRISTINNSIGURJ0NSS0N,HRL.lóggilturfasteignasali Góðar eignir - flestar nýkomnar á söluskrá: Einbhús í Smáíbúðahverfi steinh. m. 5 herb. íb. á tveimur hæðum samt. 113 fm nt. Nýl. gler. Park- et. Svalir. Sólverönd. 40 ára húsnán kr. 2,3 millj. Laus strax. Fráb. staður. Glæsileg sérhæð - frábært útsýni Efri hæð 6 herb. 149,7 fm vestast v. Rauðagerði. Þríbýli. Allt sér. Góður bílsk. Tvennar svalir. Ræktuð lóð. Vinsæll staður. Einstaklingsíbúð öll eins og ný á 6. hæð í lyftuh. inni við Sund. 2ja herb. íb. á 6. hæð. Nýendur- byggð. Rúmg. sólsvalir. Fráb. útsýni. Laus strax. Stór og glæsileg - lyftuhús suðuríb. 4ra herb. 110,1 fm nettó á 6. hæð v. Álftahóla. Sólsvalir. Laus strax. Ágæt sameign. Stór og góður bílsk. Lyngmóar - bílskúr - útsýni Nýl. og góð 4ra herb. íb. á 2. hæð á útsýnisstað. Góður bílsk. Vin- sæll staður. Góð lán áhv. Góð íbúð á góðu verði 4ra herb. ib. á 4. hæð v. Kleppsveg. Nýl. gler, sólsvalir, risherb. fylgir m. snyrtingu. Mikið útsýni. Laus strax. Verð aðeins 6,5 millj. Skammt frá nýja miðbænum endaíb. 4ra herb. tæpir 100 fm á 1. hæð. Tvennar svalir. Rúmg. stofa. Geymsla í kj. Mikil og góð lán fylgja. Fráb. verð ef samið er fljótl. • • • Opiðídag kl. 10-16. Teikningar á skrifstofunni. Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 12. júlí 1944. AIMENNA FASTEIGNASAL AN LAUGÁvÉGM8SÍMÁR2ÍÍ5Ö^ 21370 SUÐURLANDSBRAUT - VEGMÚLI TIILEIGU Þetta glæsilega hús er til leigu. Húsnæðið leigist tilbúið undir tréverk með fullfrá- genginni glæsilegri sameign og lyftu. Lóð fullfrágengin. Næg bflastæði. Til afh. nú þegar. Húsið er alls 2.249 fm. Verslunarhúsnæði Verslunarhúsnæði Skrifstofuhúsnæði Skrifstofuhúsnæði Skrifstofuhúsnæði Geymsluhúsnæði Geymsluhúsnæði á jarðhæð er á 1. hæð er á 2. hæðer á 3. hæð er á 4. hæð er ájarðhæðer ájarðhæð er 143 fm leigt 436 fm 436 fm leigt 436 fm 436 fm 125 fm leigt 237 fm leigt Upplýsingar í síma 622991 á daginn og á kvöldin í símum 77430, 687656 og 985-34628. Breytingar valda óþægindum BREYTINGAR á þjónustukerfi fyrir áskrifendur Stöðvar 2 hafa valdið því að sumir áskrifendur hafa fengið gíróseðla sína seint eða ekki. Hafa þvl einhverjir orðið að sætta sig við ruglaða dagskrá frá því að ný lykilnúmer voru gefin út. Hjá Stöð 2 fengust þær upplýsingar að unnið væri hörðum höndum að því að laga gallann. Innheimta Stöðvar 2 hefur nú öll verið flutt til Reykjavíkur en áður voru umboðsmenn stöðvarinn- ar víða um land. Við flutning á gögnunum kom fram bilun í tölvu- kerfinu að sögn Öldu Hjartardótt- ur, þjónustufulltrúa hjá Stöð 2. Gerðist það að nöfnum sló út og upplýsingar misfórust. Alda sagði að mikil vinna væri lögð í að leið- rétta þetta og áskrifendur yrðu aðstoðaðir um leið og þeir hefðu samband. ítomEÖsö ináD Umsjónarmaður Gísli Jónsson Svofellt snaggaralegt bréf frá Bjarna Sigtryggssyni í Reykja- vík birtir umsjónarmaður með þökkum óstytt að kalla: „Tími okkar hefur verið öld mikilla tækniframfara, en þær eru einn helsti hvati nýyrða í málinu. Oft er í þeim fólgin óþarfa nákvæm tæknileg lýsing. Sigurður Nordal spurði ein- hveiju sinni hvort orð þyrftu afdráttarlaust að lýsa sjálfu sér og nefndi hest sem dæmi um annað. Leiðari Morgunblaðsins ber í dag fyrirsögn í einu orði: Gervihnattasjónvarp. Þetta nýja orð er samsett úr tveimur sam- settum orðum, sem hvoru um sig var ætlað að vera tæknileg lýsing, eins konar réttlæting á tilveru sinni. Ég legg til að við viðurkenn- um innrás þessarar nýju fjar- skiptatækni og köllum fyrirbær- ið hnattvarp, sem er þjálla heiti og nægjanlega skýrt. Heitið gervihnöttur er elsta heiti þessa fyrirbæris og trúlega frá þeim dögum er Sputnik fór á baug um jörðu og sást á nátthimni hér yfir landinu, en það lýsir ekki notkun hnattarins, aðeins fyrstu viðbrögðum okkar við því að þetta væri hægt. í frétta- flutningi hef ég reynt að notast við orðið fjarskiptahnöttur, því margir þeirra flytja símtöl og tölvusamskipti eða koma áleiðis neyðarkalli skipa í sjávarháska. Skýringin í því nafni er þó hugsanlega óþörf. Þótt búnaður- in sé reyndar ekki hnöttóttur í laginu, þá hentar hnattheitið ágætlega. Síðari liðurinn er til samræmis við annað form út- sendinga af þessu tagi, og benda má á til skýringar að með hverri sjónvarpsrás sem fer um hnatt- varp fylgja ein til fjórar útvarps- rásir, sem þó er sjaldnast sagt frá í fréttum. Flestum sjónvarps- rásanna fylgir líka ritvarp, sem illu heilli hefur fengið það óþjála nafn textavarp. Notendur hnattvarps eiga að- gang að útvarpi (hljóðvarpi), sjónvarpi og ritvarpi - og ekki kæmi mér á óvart þótt tækninni fleygði svo fram að við bætist ný not. Ekki kemst ég hjá því að ítreka margtuggnar ábendingar um notkun óþarfa orða í málinu. Þau eiga það sameiginlegt með málalengingum að vera villandi og vekja grun um að hugsun þess, sem tjáir sig, sé ekki nægj- anlega skýr. Þetta eru orðin aðili og einstaklingur, sem eru oftast óþörf. Sé þessum orðum sleppt úr setningum standa þær oftast fyrir sínu óbreyttar, jafnskiljan- legar en hljóma jafnvel betur. „Þeir aðilar, sem sótt hafa um ...“ og „margir einstaklingar hafa greinst með veiruna eða „ýmsir aðilar hafa komið að máli við mig“. Orðið aðili á ör- sjaldan við, en hefur þá beina merkingu, svo sem málsaðili. Einstaklingur hefur ákveðna merkingu, svo sem til aðgrein- ingar frá hópi eða til að undir- strika einsemd mannsins. Nútíma merking beggja þess- ara orða er oftast einhver óljós skarðhleypa fyrir önnur orð, sem menn hafa ekki lengur fyrir að leita uppi. Ofangreind dæmi: „Þeir umsækjendur... Margir sjúklingar... Ymsir viðmælend- urÉg get ekki komist hjá því að halda að hér sé á ferð einhvers konar leti eða doði, hugsanaleti. Eitt grátbroslegasta dæmi sem ég hef séð af þessu tagi var í DV fyrir allnokkru, þegar sagt var frá fyrri konu Reagans fyrr- um forseta Bandaríkjanna, Jane Wyman, og sagt að hún hefði „... verið aðili að lengsta kossi kvikmyndasögunnar“. Þetta hefur nú hafið innreið sína í málfar alþingismanna, bæði í lagamál og ekki síst í málfar ræðumanna, sem auk 696. þáttur þess virðast æði margir haldnir þeirri ljótu áráttu að tvítaka hluta setninga, eins og til áhersluauka. Ég vona að þú komir inni- haldi þessara ábendinga með einhveiju móti fyrir í þínum ágætu og ómissandi pistlum í Morgunblaðinu.“ ★ Vitrir eru fuglamir, þeir vefa ei né spinna, en vorsins kalli sinna að kveikja líf. Óvitur er ég, því að oftast sömu sporin eigra ég á vorin og reyni stundum of lítið að véla víf. (Bjöm á Botnastöðum, fæðingar- og dánarár óvíst.) ★ Umsjónarmaður hefur oft fundið að ofnotkun orðsins ver- tíð, einkum í máli íþróttafrétta- manna. Ekki fer milli mála að þarna er um að ræða áhrif frá enska orðinu season. Frétta- maður útvarpsins á Spáni, Krist- inn R. Ólafsson, gerði heiðarlega tilraun til þess að auðga málið að þessu leyti ekki fyrir löngu. Hann sagði: „í leiktíðarlok", er hann greindi frá lokum deilda- keppni í spánskri íþrótt. Auðvit- að má nota orðið vertíð í yfír- færðri merkingu, sé það gert með gát og list. Bólu-Hjálmar kvað: Fari Mammon flár úr skut fyrr en sjór er rokinn. Annars stelur hann öllum hlut í vertíðarlokin. ■ ★ Vilfríður vestan kvað: Þegar Ósk fann hvað Krissi var klár, fékk hún kikk út í neglur og hár, „varð eitt bros, eitt svar“, „eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.