Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
17
Morgunblaðið/Anna Rún Gísladóttir
Efst í brekkunni
ORN og Einar Freyr efst i brekkunni áður en lagt var af stað
niður fjallið.
Á fullri ferð
Á FULLRI ferð niður Esjuna með höfuðborgina og Sundin í baksýn.
A skíðum niður Esju
TVEIR menn renndu sér á skíðum niður Esju í vik-
unni en slíkur ferðamáti mun ekki vera algengur,
sérstaklega ekki á þessum árstíma. Örn Gunnars-
son, annar skíðamannanna, sagði að þeir Einar Freyr
Jónsson hefðu á mánudag gengið á Esju að kanna
hvort nægilegur snjór væri á fjallinu. Þeir fundu
skafl á leiðinni upp frá Mógilsá og á þriðjudaginn
fóru þeir á fjallið með skíðin og renndu sér niður.
„Fólk sem sá okkur rak upp stór augu,“ sagði Örn
og bætti við að þótt leiðin væri ekki nema um kíló-
metri að lengd hefði fallhæðin náð allt að 400 metr-
um. Hins vegar tók ferðin niður nokkurn tíma því
snjórinn var bæði blautur og skítugur.
Göngoiferð og
messa í Viðey
GÖNGUFERÐ verður farin um
Viðey á laugardag, en á sunnu-
dag verður messa og staðarskoð-
un. Auður Hafsteinsdóttir, borg-
arlistamaður, leikur einleik á
fiðlu í messunni.
Laugardaginn 12. júní verður far-
in gönguferð á Vestureyna. Lagt
verður af stað af Viðeyjarhlaði kl.
14.15, gengið fram hjá Klausturhól,
um Klifíð hjá Eiðishólum, yfír Eiðið
og upp á Vestureyna. Þar er útsýni
fagurt, góðir göngustígar og sögu-
ríkar slóðir eins og annars staðar í
Viðey. Meðal þess, sem skoðað verð-
ur, eru steinar með áletrunum frá
19. öld og svo hið þekkta umhverfís-
listaverk Richards Serra, Áfangar.
Þegar komið er aftur heim að Stofu,
þá verður fornleifauppgröfturinn
skoðaður.
Þetta er tæplega tveggja tíma
ganga.
Sunnudaginn 13. júní kl. 14 verð-
ur messa í Viðeyjarkirkju. Sr. Þórir
Stephensen messar, en Auður Haf-
steinsdóttir fíðluleikari og borgar:
listamaður leikur einleik á fíðlu. í
upphafí messunnar leikur hún kafla
úr sónötu eftir Corelli, en að lokinni
prédikun leikur hún Ave Maria eftir
Bach-Gounod. Það verk er valið með
tilliti til þess, að klausturkirkjan í
Viðey var til foma helguð Maríu
guðsmóður. Dómkórinn syngur í
messunni og organleikari verður
Marteinn H. Friðriksson. Ráðs-
mannshjónin í Viðey annast með-
hjálparastörf.
Sérstök bátsferð verður með
kirkjugesti kl. 13.30.
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleik-
ari.
Kl. 15.15 verður svo staðarskoðun,
sem hefst í kirkjunni, en síðan verð-
ur næsta umhverfi skoðað, fornleif-
auppgröfturinn og útsýnið af Hel-
jarkinn. Að lokum verður skoðuð
fomgripasýningin í kjallara Viðeyjar-
stofu.
Kaffísala verður í Viðeyjarstofu
báða dagana kl. 14.00-16.30. Báts-
ferðir, auk messuferðarinnar, verða
á klukkustundar fresti frá kl. 13.00-
17.30 á heila tímanum úr landi, en
á hálfa tímanum úr eyjunni.
Þórir Stephensen.
Sýning í F omalundi
STEINAVERKSMIÐJA BM Vallá
hf. verður um helgina með sér-
staka sýningu í Fornalundi, sem
er sýningarsvæði fyrirtækisins á
Breiðhöfða 3.
Kynntar verða ýmsar nýjungar
hjá BM Vallá hf. og verður sýning-
in að því leyti sérstök að fagmenn
munu sýna á staðnum hvernig hlaða
á vegg úr fornhleðslusteini sem er
nýr hleðslusteinn sem byggður er
á grásteinshleðslum sem þekktar
eru m.a. frá Reykjavík fyrri tíma.
Að auki býður BM Vallá hf. upp
á ókeypis ráðgjöf landslagsarki-
tekts um fornlínuna BM Vallá hf.
Hægt er að panta tíma á staðnum
en ráðgjöfin sjálf verður í næstu
viku.
Sýning er opin frá kl 12-18 laug-
ardag og 12-16 sunnudag og eru
allir velkomnir. (Fréttatilkynning)