Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
Útgáfa fréttabréfs
Fiskistofu gagnrýnd
FISKISTOFUSTJÓRI hefur ákveðið að breytingar verði gerðar á
útgáfu Sjávarmála, fréttabréfs stofnunarinnar, í kjölfar harðrar
gagnrýni útgefenda annarra fagtímarita í sjávarútvegi á hana. Gagn-
rýnin beindist einkum að birtingu auglýsinga í fréttabréfinu.
Fiskistofa, sem heyrir undirsjáv-
arútvegsráðuneytið, hóf nýverið
útgáfu á fréttabréfínu og á það að
koma út mánaðarlega í fímm þús-
und eintökum. Starfsfólk Fiskistofu
sér um að afla og leggja til efni í
ritið en útgáfufyrirtækið Farvegur
hf. _sér um útgáfuna að öðru leyti.
Á fundi um einkavæðingu, sem
framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu hélt á þriðjudagskvöld sagði
Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Sjó-
mannablaðsins Víkings það skjóta
mjög skökku við að á sama tíma
og rætt væri um spamað og flutn-
ing verkefna frá hinu opinbera til
einkaaðila hæfí ríkisstofnun útgáfu
á riti um sjávarútvegsmál. Sjávar-
mál væm ekki fréttabréf í venju-
legri merkingu þess orðs heldur
veglegt blað sem væri prentað í lit
og í beinni samkeppni um auglýs-
ingar við blöð einkaaðila.
Á fundinum tók Hreinn Loftsson,
formaður framkvæmdanefndar um
einkavæðingu, undir orð Siguijóns
og taldi fráleitt að opinber útgáfa
sem þessi væri. að keppa við einka-
aðila um auglýsingatekjur.
Á fímmtudag tók Fiskistofustjóri
tillit til þessarar gagnrýni og ákvað
að engar auglýsingar yrðu a.m.k. í
næstu tölublöðum Sjávarmála nema
á baksíðu. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að þrátt fyrir þessa
ákvörðun teldi hann gagnrýni um
óeðlilega samkeppni á auglýsinga-
markaðnum ósanngjarna og lítt
rökstudda. Fiskistofa væri ekki að
heija samkeppni við einkaaðila með
útgáfu Sjávarmála. enda bæði eðli-
legt og æskilegt að hún gæfí út
fræðslu- og upplýsingaefni fyrir þá
fjögur þúsund aðila sem hefðu
vinnsluleyfí og greiddu gjald til
hennar.
*
Aminntir og sektaðir íaftursæti
UNDANFARNA daga hafa lögreglumenn á suðvesturhominu stöðvað
um það bil 500 bíla og gert athugasemdir vegna ökuhraða eða lélegr-
ar bílbeltanotkunar. M.a. eru þeir áminntir eða sektaðir sem sitja í
farþegasætum bfla og nota ekki bílbelti. Einnig ökumenn sem em
með böm sín í ófullnægjandi öryggisbúnaði í bflum. Þessar aðgerðir
em liður í því umferðarátaki sem lögreglumenn á Suðvesturlandi
standa fyrir eina viku í hveijum mánuði. Að þessu sinni er athygli
beint að ökuhraða í íbúðarhverfum, öryggisbúnaði og nagladekkjum
en mjög fátítt er nú orðið að nagladekk sjáist undir bflum, að sögn
Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfírlögregluþjóns. Sérstök
áhersla hefur verið lögð á öryggisbúnaðinn en hraðamælingar hafa
einnig verið stundaðar og þá lögð sérstök áhersla á að mæla hraða
í íbúðarhverfum.
Félagasamtök - fyrirtæki - einstaklingar
SUMARLEIGA akureyri
Höfum til leigu nokkur herbergi og örfáar paríbúðir í
stúdentagarðinum Útsteini, Skarðshlíð 46, Akureyri.
• Leigutímabil er til 20. ágúst.
• íbúöirnar er hægt að leigja meö innanstokksmunum
og eldhúsáhöldum.
□ Herbergin eru mjög rúmgóð eða 22 m2 og eru með
rúmi, stól og borði.
□ Hver tvö herbergi eru með sameiginlegri snyrtingu
(íbúöarígildi).
□ Sameiginlegt eldhús og setustofa er fyrir hver
7 herbergi.
• Hægt er að leigja aukarúm, aukadýnu og sængurföt.
• Nánari upplýsingar gefur Jóhanna í síma 96-11780
fyrir hádegi.
FESTA Félagsstofnun stúdenta á Akureyri
Ummæli
dæmd
ómerk
TVENN ummæli í grein tveggja
blaðamanna Pressunnar um
kaupsýslumann, sem rekið hef-
ur hljómflutningsverslanir í
Reykjavík og myndbandaleigur
og verslun á Suðumesjum, vora
í gær dæmd dauð og ómerk í
Héraðsdómi Reylqavíkur.
Blaðamennirnir voru sýknaðir
af krðfu um ómerkingu á fera-
um ummælum til viðbótar I
sömu grein. Þeir voru sýknaðir
af refsi- og miskabótakröfum
en dæmdir til að greiða 90 þús-
und krónur í málskostnað.
í grein í Pressunni í apríl á síð-
asta ári var fjallað um gjaldþrot
mannsins og fyrirtækjarekstur
hans. Maðurinn taldi vegið að æru
sinni með 6 ummælum í greininni
og krafðist ómerkingar þeirra.
Óviðurkvæmileg uppsetning
í niðurstöðum dómsins eru tvenn
ummæli ómerkt. Annars vegar fyr-
irsögn um að maðurinn reki fyrir-
tæki sitt gjaldþrota en í nafni ólög-
ráða barna sinna. Dómarinn segir
að þessi ummæli eigi sér nokkra
stoð í raunveruleikanum en þar
sem hlutafélag sé sjálfstæður lög-
aðili sem ekki sé rekið í nafni þeirra
einstaklinga sem því stjóma og
uppsetning ummælanna í flenni-
fyrirsögn sé óviðurkvæmileg beri
að ómerlq'a þau.
Einnig voru ómerkt þau um-
mæli að bókhald fyrirtækja manns-
ins hefði verið í molum, þar sem
það þótti ekki eiga við rök að styðj-
ast. Ekki þótti þó ástæða til að
dæma blaðamönnunum refsingu
eða kaupsýslumanninum miska-
bætur.
Hins vegar var sýknað af kröfu
um ómerkingu femra mmæla, þ.
á m. um að maðurinn hafi rétt
fyrir gjaldþrot sitt selt eigur sínar
12 og 15 ára bömum sínum.
Eggert Óskarsson héraðsdómari
dæmdi málið og ber Pressunni að
birta niðurstöður hans og dómsorð
á áberandi stað í næsta tölublaði.
Fyrsta skóflustimgan
GYÐA Ólafsdóttir tekur fyrstu skóflustunguna að nýja MS heimilinu.
Framkvæmdir við
nýtt MS-hús hafnar
FORMAÐUR MS-félags íslands, Gyða Ólafsdóttir, tók í gær fyrstu
skóflustunguna að nýju Dagvistarheimili MS-félags íslands á Sléttu-
vegi 5 í Reykjavík.
MS-félag íslands er félag fólks
með sjúkdóminn Multiple Sclerosis
(heila- og mænusigg), aðstandenda
þeirra og annarra velunnara og hef-
ur rekið dagvist í Álandi 13 í Reykja-
vík um sjö ára skeið. Aðsókn hefur
farið ört vaxandi og því er þörfin
fyrir nýtt og stærra hús brýn. Nýja
húsið verður um 600 fermetrar.
Arkitektarnir Sigurður Einarsson
og Jón Ólafur Ólafsson í Batteríinu
teiknuðu nýja húsið, Almenna verk-
fræðistofan sá um lagnir og burðar-
þol og Sigurður Jónsson hannaði
raflagnir. Byggingaraðilar eru Feðg-
ar sf.
Óánægja vegna falls
á prófi í verkfræðideild
ÓÁNÆGJA hefur verið meðal nemenda í verkfræði og eðlisfræði
við Háskóla íslands með próf í stærðfræðigreiningu II. í vor náðu
31,5% prófi í áfanganum en síðasta ár 56,8%. Nokkrir nemendur
vilja að prófið í ár verði athugað. Forseti raunvísindadeildar segir
að það verði gert. Hins vegar sé ekki hægt að kæra próf þar sem
prófdómari hafi verið. Hann bendir á að upptökupróf verði i ágústlok.
Allir nemendur í verkfræði og
margir nemendur í eðlisfræði taka
námsáfangann stærðfræðigTein-
ingu II. Próf var haldið um miðjan
síðasta mánuð. Þá þegar kom fram
mikil óánægja nemenda og gagn-
rýni á prófíð. Þegar úrslit voru
kunngerð um mánaðamótin þótti
mörgum nemendum gagnrýni sín
vera staðfest. Af 92 nemendum sem
mættu í prófið í vor, náðu 29 tilskil-
inni einkunn sem var 4 af 10 mögu-
Iegum. 63 nemendur féllu, þ.e.
68,5% fall. Síðasta ár var hlutfall
fallinna í þessu prófí 43,2%.
Morgunblaðinu er kunnugt að
bréf gengur nú milli nemenda til
undirskriftar þar sem lýst er
óánægu með uppbyggingu og efnis-
innihald prófsins og niðurstöður
þess. Eftir því sem næst verður
komist munu u.þ.b. tuttugu nem-
endur hafa skrifað undir.
Próflð kom að óvörum
Einn bréfritara er Anna Karls-
dóttir nemi í vélaverkfræði, hún
sagði prófíð hafa verið samið þann-
ig að það hefði komið nemendum
að óvörum og segði ekkert til um
raunverulega getu þeirra í þessu
fagi. Prófíð hefði ekki verið í sam-
ræmi við yfírferð í námskeiðinu og
ekki heldur í samræmi við fyrri
próf. Hún benti á að við undirbún-
ing og prófiestur hefðu nemendur
hliðsjón af prófum fyrri ára. Annar
bréfritari, Marta Guðrún Daníels-
dóttir, nemandi í byggingarverk-
fræði, sagði nemendur fara fram á
að kennari í faginu og forseti raun-
vísindadeildar skoðuðu þetta mál.
Hún taldi nemendur í ár varla frá-
brugðna nemendum fyrri ára. Ár-
angurinn í öðrum fögum væri og
sambærilegur milli ára. En hins
vegar hefðu mun færri nemendur
náð prófí í stærðfræðigreiningu II.
Það væri tilefni til að spyija hvort
ekki væri ástæða til að endurmats.
Halldór Elíasson, prófessor,
kennari í greininni, gat ekki tjáð
sig um einstök gagnrýnisatriði því
hann hefði ekki séð bréf nemend-
anna en honum var kunnugt um
að þeir ætluðu að skrifa deildarfor-
seta. Halldór sagði ljóst að nemend-
ur hefðu verið óánægðir. E.t.v
mætti rekja þessa óánægju að ein-
hveiju leyti til þess að kröfur í þessu
námskeiði væru meiri en kennslu-
bókin gæfi tilefni til. Nemendum
hefði verið gerð grein fyrir þessu í
upphafí námskeiðsins en þeir virt-
ust ekki hafa tekið nægjanlega
mark á þeirri viðvörun. Halldór vildi
ekki neita því að framsetning þessa
prófs hefði verið nokkuð breytt frá
prófum fyrri ára og hugsanlega
hefði prófíð verið fulllangt en fullt
tillit hefði verið tekið til þess í ein-
kunnargjöf.
Eggert Briem forseti raunvís-
indadeildar sagði að ekki væri hægt
að kæra próf eða niðurstöðu þess
þar sem prófdómari hefði verið við-
hafður. Hins vegar gætu allir farið
fram á að mál yrði athugað og það
yrði gert í þessu tilviki. Deildarfor-
seti vildi einnig að það kæmi fram
að upptökupróf yrðu haldin í ágúst-
lok áður en næsta kennslumisseri
hæfíst.
>
>
\
I
>