Morgunblaðið - 12.06.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
21
Reuter.
Jeltsín og hershöfðingjarnir
ALEXANDER Rútskoj, varaforseti Rússlands, sagði í gær að Rússar
ættu heima í mafíuríki og að boða yrði til kosninga þegar í stað til að
afmá spillingu úr stjórnkerfinu. Borís Jeltsín Rússlandsforseti hefur svipt
Rútskoj flestum völdum og sagði hann forsetann algjörlega líta fram
hjá sér við ákvarðanatöku. Hefur hann hafið mikla herferð gegn Jeltsín
í hefndarskyni. Eru ummæli hans um að Rússland hafi breyst úr kommún-
istaríki sem ríki í greipum „lýðræðislegrar mafíu“ túlkuð sem árás á
forsetann. Á myndinni má sjá þá Jeltsín og Pavel Gratsjev varnarmála-
ráðherra búa sig undir myndatöku með nýskipuðum rússneskum hers-
höfðingjum.
Svend Aage Malmberg um skýrslu Nansen-stofnunarinnar
„Okkur stafar engin
hætta af kafbátnum“
„OKKUR stafar engin hætta af rússneska kafbátnum og mér finnst
einhver skrítinn blær yfir þessum yfirlýsingum. Þær eru ekki í takt
við það, sem fram hefur komið við athuganir vísindamanna," sagði
Svend Aage Malmberg haffræðingur um skýrsluna, sem Nansen-
stofnunin í Björgvin í Noregi hefur látið frá sér fara. Þar er því
haldið fram, að hætta sé á, að geislamengun frá rússneska kafbátn-
um Komsomolets, sem sökk við Bjarnarey 1989, berist til íslands
og Grænlands á fáum árum.
Starfsmenn Nansen-stofnunar-
innar, sem er einkarekin umhverfis-
verndarstofnun, telja, að títan-
skrokkur rússneska kafbátsins sé
að tærast í sundur og því sé hætta
á, að geislamengun frá tveimur
kjarnorkueldflaugum og kjama-
kljúfnum geti borist upp í yfirborðs-
lög sjávarins og þaðan með haf-
straumum til Islands og Græn-
lands. Þeir slá þó ótal varnagla, til
dæmis hvað varðar hafstrauma. og
útþynningu geislavirkra efna, en
telja þó, að geislamengunin geti
borist hingað á fimm eða sex árum.
Undarleg skýrsla
Svend Aage Malmberg, sem
þekkir vel til þeirra rannsókna, sem
fram hafa farið á geislavirkni í
norðurhöfum, til dæmis hvað varðar
Komsomolets, sagði, að sér fyndist
þessi skýrsla allundarleg og hafa á
sér einhver auglýsingabrag. Kaf-
báturinn lægi á 1.700 metra dýpi
og jafnvel þótt hann liðaðist í sund-
ur bærist geislavirknin ekki upp í
yfirborðslögin nema á löngum tíma.
Það væri því nær að tala um að
áratugir liðu en ekki ár áður geislun
bærist hingað.
Svend Aage sagði, að ofan á allt
þetta bættist, að þótt geislavirk
efni bærust frá kafbátnum, þá
myndi útþynningin verða fljótt svo
mikil, að geislavirkninnar gætti lík-
lega ekki þegar komið væri að ís-
landsströndum.
Djúpsjávarstraumar til
S-Atlantshafs
í skýrslu, sem norska hafrann-
sóknastofnunin gaf út á síðasta ári
og fjallar um geislavirkni í norður-
höfum, segir höfundur hennar, Lars
Föyn, að hún sé lítil og langt undir
hættumörkum, jafnvel á þeim
svæðum, sem næst liggja ýmiss
konar kjarnorkuúrgangi. Þá sé eft-
irtektarvert, að geislavirkni í fiski
hafi alltaf verið mjög lítil og líka á
þeim tímum, sem mest var um
kjarnorkutilraunir Sovétmanna.
Um Komsomolets segir Föyn, að
hann sé best geymdur þar sem
hann er. Hann sé á miklu dýpi og
vatnsmassinn umhverfis hann muni
ekki blandast yfirborðslögum sjávar
fyrr en eftir 100 til 200 ár og þá
ekki í Norður-Atlantshafi, heldur í
Suður-Atlantshafi.
Ríkisréttur vegna tamílamálsins
Ninn-Hansen leidd-
ur fyrir rétt í haust
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgnnblaðsins.
DANSKA þjóðþingið samþykkti í gær tillögu þingflokks jafnaðarmanna
um að Erik Ninn-Hansen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, yrði leiddur
fyrir ríkisrétt vegna hlutar síns í tamíla-málinu. Rétturinn verður að
öllum líkindum settur í haust og búist er við að niðurstaða hans liggi
fyrir undir vorið.
Með 105 atkvæðum gegn 45 sam-
þykkti þjóðþingið að stefna ráðherr-
anum fýrrverandi fyrir ríkisrétt
ingar um norðurhjarabúskap,
byggðastefnu og klettasyllulandbún-
að í Ölpunum verði mjög sársauka-
fullar. Samningamönnum EB hrýs
hugur við framlögum EFTA-ríkj-
anna tii þessara málaflokka. Fram-
lög til landbúnaðar í EFTA-ríkjanna
eru tvöföld meðalframlög EB til
sama málaflokks.
Uppskurður á stofnunum?
Það sem kemur til með að skipta
sköpum um aðild ríkjanna allra er
afstaða núverandi aðildarríkja til
áhrifa stækkunar á stofnanir og
ákvarðanir innan bandalagsins. Á
leiðtogafundi í Lissabon í fyrra var
samþykkt að engar meiriháttar
breytingar væru nauðsynlegar
vegna aðildar EFTA-ríkjanna. Nú
eru hins vegar uppi háværar raddir
um nauðsyn þess að gera uppskurð
á stofnunum bandalagsins og fjölga
til muna þeim tilfellum þar sem ein-
faldur meirihluti ræður úrslitum í
ráðherraráði. Danski utanríkisráð-
herrann fullyrti í Lúxemborg í vik-
unni að staðið yrði við samþykktina
frá Lissabon. Áðrir riija upp að á
sama fundi var samþykkt að hefja
ekki formlegar samningaviðræður
um stækkun fyrr en Maastricht sam-
komulagið hefði verið staðfest. Það
væri þess vegna ljóst að ákvarðanir
sem teknar væru í Lissabon gætu
verið jafn forgengilegar og önnur
mannanna verk. Komi til þess að
dregið verði úr áhrifum smærri að-
ildarríkja jafnframt því sem stærri
aðildarríkin og Evrópuþingið fengju
aukin völd verður erfitt að sannfæra
kjósendur í ríkjunum fjórum um að
EB sé betri kostur en EES og EFTA.
vegna meints brots á útlendingalög-
unum og lögum um ábyrgð ráðherra.
Tveir þingmenn sátu hjá og 27 voru
fjarverandi. Fallið var frá að ákæra
ráðherrann fyrir að hafa villt um
fyrir þinginu og hindrað afskipti
umboðsmannsins af málinu, eins og
fyrst var talað um. Hvorki Poul
Schlúter, fyrrum forsætisráðherra,
né H.P. Clausen, fyrrum dómsmála-
ráðherra og þingforseti, verður stefnt
fyrir rétt vegna afskipta af málinu.
Umdeild ákvörðun
innan þings og utan
Innan stjórnarflokkanna fjögurra
og Sósíalíska þjóðarflokksins er ein-
ing um réttarhöldin, Framfaraflokk-
urinn er á móti og Vinstriflokkurinn
og íhaldsflokkurinn eru klofnir, þar
sem minnihluti þingflokkanna fylgir
stjóminni að málum. Mótrök gegn
réttarhöldunum eru meðal annars að
upphaflega hafí ákæruatriðin gegn
Ninn-Hansen verið þijú, en nú sé
aðeins eitt eftir og það sé of lítill
grundvöllur fyrir réttarhöld, auk þess
sem ekki hafí verið haldinn ríkisrétt-
ur í meira en áttatíu ár, þó síst minni
tilefni hafí gefíst en nú. Þetta form
eigi ekki lengur við. Utan þingsins
er málið einnig umdeilt og viðbúið
að deilt verði um hvort rétturinn sé
viðeigandi eða ekki.
Búist er við að rétturinn taki til
starfa í október, ef veijandi Ninn-
Hansens áskilur sér ekki lengri frest.
Réttarhöldin verða í húsakynnum
þrotabús Lannungs-banka og þegar
er byijað að undirbúa nauðsynlegar
breytingar á húsinu í þessu skyni.
Rétturinn er skipaður fimmtán
hæstaréttardómurum og fimmtán
fulltrúum kosnum af þinginu. Réttur-
inn getur sýknað ráðherrann eða
dæmt hann í sekt eða fangelsi. Ninn-
Hansen er 71 árs að aldri, hefur
setið á þingi fyrir íhaldsflokkinn í
fjörutíu ár, verið formaður þing-
flokksins og ráðherra.
nlftt
nýtt
...dansari?
Viltu halda þér íformi í sumar?
Þarftu að passa línurnar
eða ertu ekkert farin(n) að
hugsa um að þjálfa líkamann?
Skelltu þér í hópinn með hressmn krökkum
og fáðu þér „Sumarkort“ hjá JSB í hörkupúl-
svita- og teygjutíma.
4ra vikna kort á kr. 2000,-
Tímar í gangi alla vikuna nema laugardaga
og sunnudaga kl. 17:30 í Suðurveri (efri sal)
Tímarnir byrja mánudaginn 14. júní
ð u Suðurveri 5 - Simi 813730