Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 25 Eggjataka í eyjun- um í full- um gangí Stykkishólmi. NÚ ER vertíð í eyjum yfirstand- andi. Dúnleit hefst síðar en eggja- taka nú í fullum gangi og hefur hún síst verið minni en áður og lofar það góðu um dúninn. Ekki er enn vitað í hversu í háu verði dúnninn er en undanfarin ár hefur mikil lægð verið í verðlagi hans. Við eyjamar er jafnan talsvert af rauðmaga og grásleppu og er nú gott verð á grásleppuhrognum og mikið boðið í og eins grásleppuna heila enda þykir hún, framreidd eftir nýjustu aðferðum, herramannsmat- ur. Hefur verið talað um að gráslepp- an nýveidd sé seld á 350 kr. stykkið og öðruvísi mér áður brá, sagði karl- inn. - Ámi. -----» ♦ ♦ Siglt um sundin TÓLFTA júní fyrir 80 árum var Einar Pétursson verslunarmaður handtekinn að fyrirmælum yfir- manns danska varðskipsins Is- lands Falk fyrir að vera með „Hvítbláinn" í skut lítils kapp- róðrabáts. Til að minna á þennan atburð á vettvangi verður boðið í sjóferð með farþegabátnum Geysi laugardaginn 12. júní kl. 16. Lagt verður frá Suðurbugt, bryggju neðan við Hafnarbúðir. Siglt verður út á gömlu skipaleguna síðan inn fyrir Laugames og farið sundið á milli Skarfakletts og Laugamess, út Viðeyj'arsund út undir sjöbauju og til baka Engeyjarsundið, gömlu innsiglingarleiðina til Reykjavík. (Úr fréttatilkynningu) -----» ♦ ♦----- Markaðs- dagurá Lækjartorgi LION SKLÚBBURINN Viðar stendur fyrir útimarkaði á Lækj- artorgi sunnudaginn 13. júní kl. 11-17. Seldir verða ýmsir munir sem safnast hafa þjá fyrirtækjum og einstaklingum sl. vikur. Einkum er um að ræða húsgögn en einnig margvíslega smávöm. Þá má nefna gott úrval snyrtivara. Hér er einstakt tækifæri til að gera reyf- arakaup. Samhliða verður fjölbreytt skemmtidagskrá þar sem fram munu koma landsfrægir skemmtikraftar. Einnig verða óvæntar uppákomur. Allur ágóði af markaðinum rennur til barnastarfsemi Stígamóta. (Úr fréttatilkynningu) -----♦ ♦ ♦----- ■ NÚ STENDUR yfir fjölskyldu- leikur á vegum Olgerðar Egils Skallagrímssonar með vinningum. Leikurinn heitir Náðu þér í strik og stendur til 7. júlí. Náðu þér í strik er leikur sem gengur út á að þátttak- endur safna 10 strikjamerkjum og Pepsi eða 7-Up plastflöskum og svara þremur léttum spumingum á sérstökum þátttökuseðli sem hægt er að nálgast á öllum sölustöðum Pepsi og 7-Up. Þátttakendur eiga síðan að senda strikamerkin og seðil- inn til Ölgerðarinnar og eiga þar með kost á að fá einhvern þessara vinninga: Conway tjaldvagn frá Tit- an hf. að verðmæti 330.000 kr. með viðlegubúnaði, samtals að verðmæti 405.000 kr., 10 7-Up fjallahjól og seglbrettanámskeið í Seglbrettaskó- lanum Hafravatni og 100 geisladiska með sveitunum GCD og SSSól. Skila- frestur í leiknum er til 7. júlí og þá verður dregið úr nöfnum þátttak- enda. (Fréttatilkynniníp SUNNY SUNNY Bílsýning um helgina frá kl. 14 - 17 Ingvar Helgason hf. Sævartiöiöi 2.112Reykjavík P.O. Box 8036, Slmi 674000 Við erum í sólkinsskapi og bjóðum NISSAN SUNNY á hagstæðu verði 100 NX 1600cc SLX 5gíra sóllúga ( T-top ) bein innspýting, 16 ventla. aflstýri, samlæsingar, rafdrifnar rúður Stgr. verð: 7.3(77.000.- SKUTBÍLL 1600cc SLX, 5dyra, 5gíra, bein innspýting, 16 ventla, aflstýri, samlæsingar, rafdrifnar rúður Stgr.verð. kr. 7.703.000.- m/4WD sídrif: 7.303.000.- HLAÐBAKUR 1600ccs SLX, 5dyra, 5gíra, bein innspýting, 16 ventla, aflstýri, samlæsingar, rafdrifnar rúður Stgr.verð kr. 7.007.000.- STALLBAKUR 1600cc, SLX, 4dyra, 5gíra, bein innspýting, 16 ventla, aflstýri, samlæsingar, rafdrifnar rúður o.m.fl. Stgr.verð kr. 7.074.000.- m/ 4WD sídrif: 7.355.000.- HLAÐBAKUR 1600cc SR 3ja dyra, 5gíra, bein innspýting, 16 ventla, aflstýri, samlæsingar, rafdrifnar rúður Stgr.verð kr. 1.038.000.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.