Morgunblaðið - 12.06.1993, Page 29

Morgunblaðið - 12.06.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 29 sem á það verk, er lifir. - Já, blessum öll hin hljóðu heit, sem heill vors lands voru’ unnin, hvem kraft, sem studdi stað og sveit og steina lagði’ í grunninn. E.Ben. Það var ekki margt fólk sem bjó á Höfn í Hornafirði þegar Óskar Helgason flutti þangað ásamt konu sinni Guðbjörgu Gísladóttur 1945. Þar voru ekki risin nema um það bil 50 íbúðarhús og byggðarlagið var að mótast. Þetta var hins veg- ar mikið tækifæri fyrir ungt fólk að flytja í nýbyggt Landsímahúsið að Hafnarbraut 19 og gerast þátt- takendur í uppbyggingu kauptúns, sem var á sínu æskuskeiði. Óskar Helgason hefur áreiðanlega ekki gert sér í hugarlund frekar en aðr- ir hvað hann ætti eftir að upplifa og taka þátt í. Hans kynslóð kynnt- ist kreppunni sem hafði djúpstæð áhrif en eftir að ófriðarbálið hafði geysað í Evrópu ríkti mikil bjart- sjni og von meðal þessa fólks og Óskar lét ekki á sér standa sem þátttakandi í mannlífínu og þeirri þróun sem hefur átt sér stað í nær hálfa öld. Óskar hafði brennandi áhuga á félagsmálum og þjóðmálum. Hann trúði því að ekkert gæti náðst fram nema með samtakamætti fólksins, góðum vilja, sanngirni og réttsýni. ðskar var einn þessara manna sem alltaf var vinnandi, lagði gott til mála og hlustaði vel á aðra. Hann var einstaklega sanngjarn í mál- flutningi og ég man ekki eftir því að hafa heyrt hann hallmæla öðr- um. Eins og aðrir sem taka þátt í félagsmálum varð hann fýrir gagn- rýni sem hann tók af sinni einstöku ljúfmennsku og reyndi öðrum frem- ur að bæta úr því sem betur mátti fara. Fyrstu kynni mín af Óskari Helgasyni voru í skólastofunni í gamla barnaskólanum á Höfn. Hann var kennari að menntun og hjálpaði því oft til sem stundakenn- ari í skólanum. Hann var mikill og einlægur bindindismaður og var í forsvari fyrir barnastúkunni Rós- inni frá árinu 1948. Á þeim árum var það sjálfsagður þáttur í skóla- starfinu að sækja reglulega fundi í bamastúkunni og þar nutum við krakkarnir hlýju hans, umhyggju og nærgætni. Allt fór prúðmann- lega fram undir umsjón Óskars og hann naut mikillar virðingar meðal barnanna. Óskar hafði undirbúið sig vel fyrir starf sitt sem stöðvarstjóri Landsímans á Höfn með því að vinna pg nema á verkstæði Land- síma íslands í Reykjavík. Áður hafði hann verið við nám í Reykja- skóla og lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands 1941. Per- sónulegir hæfileikar hans og stað- góð menntun varð til þess að hann var mjög eftirsóttur til félagsmála- starfa á Höfn. Hann átti sæti í stjórn Kaupfélags Skaftfellinga i 30 ár og var stjórnarformaður Kaupfélagsins í 14 ár. Á meðan hann var stjórnarformaður voru miklir uppgangstímar og hann var einstaklega laginn að tryggja sam- stöðu um reksturinn og þær miklu framkvæmdir sem ráðist var í á ýmsum sviðum. Óskar var jafn- framt lengi í hreppsnefnd fyrir Framsóknarflokkinn og var oddviti hreppsnefndar Hafnarhrepps um 15 ára skeið. Framsóknarmenn á Austurlandi standa í mikilli þökk við hann fyrir fórnfúst starf og kveðja hann með söknuði og virð- ingu. Hann var jafnframt fulltrúi Austfirðinga í stjórn Sambands ís- lenskra samvinnufélaga um nokk- urra ára skeið. Óskar Helgason skilaði sínu dagsverki með miklum sóma. Hann kom til Hafnar tæplega þrítugur að aldri og vann að málefnum stofnunar sinnar og byggðarlags af skyldurækni alla tíð. Hann starf- aði með börnum og unglingum og var í forustu fyrir sveitarfélagið og Kaupfélagið um langt skeið. Hann var samstarfsmaður fólksins í Austur-Skaftafellssýslu í félags- málum og í aðalstarfi sínu sem stöðvarstjóri Pósts og síma og því í persónulegu sambandi við íbúana í meira mæli en gengur og gerist. Viðmót hans var traust, hlýtt og alvörugefíð í vandasömum úrlausn- arefnum. Hæfíleikar hans til að laða fram samstarf og miðla málum var meira virði en margir gerðu sér grein fyrir. Hógværð hefur veirð aðalsmerki Austur-Skaftfellinga og Óskar féll vel inn í andrúmsloftið í sýslunni. Hann hafði góð áhrif á umhverfið og án vafa mun sá andi sem Óskar og margir aðrir áttu þátt í að skapa lifa áfram sem einn mikilvægasti steinninn í grunni framfara og farsældar í sýslunni. Hann þjáðist af parkinsonsveiki síðustu ár ævi sinnar. Því hafði heilsunni hrakað á undanförnum árum. Hann tók hins vegar alltaf þátt í félagsmálum, mætti á stjórn- málafundi og síðasti fundurinn sem við hittumst á var á aðalfundi KASK fyrir nokkrum vikum. Hann var því þátttakandi í lífi og starfi fólksins til hinsta dags og ég veit að hann átti sér enga ósk heitari en byggðarlagið kæmist í gegnum þá erfíðleika sem nú steðja að. Hann var jafnframt sannfærður um að það mundi gerast ef fólkið stæði saman og nyti skilnings samfélags- ins^ Óskar var hamingjumaður í per- sónulegu lífí. Eftirlifandi eiginkona hans er Guðbjörg Gísladóttir frá Breiðdalsvík. Þau eignuðust fímm böm: Ingibjörgu, Gísla, Helga, Þröst og Svölu. Gísli lést árið 1960 af völdum ólæknandi sjúkdóms. Hann var foreldrum sínum mikill harmdauði og það er mörgum minnisstæð sú mikla umhyggja sem hann naut síðustu mánuðina sem hann lifði. Fjölskyldutengslin hafa alltaf verið sterk og Guðbjörg hefur staðið fast við hlið manns síns í blíðu og stríðu. Allir samferðamenn Óskars kveðja hann með virðingu og þökk. Fyrir nokkrum árum var hann gerður að heiðursborgara Hafnar sem sýndi vel þann hug sem allir bæjarbúar báru til hans. Óskar Helgason var mikið góðmenni í lif- anda lífí og sá andi mun fylgja honum yfir móðuna miklu. Við Sig- uijóna biðjum góðan Guð að styrkja Guðbjörgu, börnin, tengdabörnin og barnabömin. Foreldrar mínir, Ásgrímur og Guðrún, votta þeim djúpa samúð með þakklæti íyrir allt samstarfíð og samveruna. Ósk- ar var góður vinur þeirra frá fyrstu tíð og þau fátæklegu orð sem hér eru fest á blað eru jafnframt þeirra. Halldór Ásgrímsson. Tengdapabbi lést í Borgarspítal- anum eftir stutta legu þar. Kynni mín af tengdapabba hóf- ust fyrir tólf árum og fann maður strax hversu gott var að vera í návist hans og hversu mikið ljúf- menni hann var. T engdapabba verður sárt sakn- að af barnabömunum. Hann hafði sérlega gaman af að vera með þeim og alltaf var hann tilbúinn að taka í litla hönd og fara í smá göngutúr. Erfitt er fyrir börnin að skilja að nú komi afi ekki til að leggja hönd á lítinn koll eða dást að listaverki lítils listamanns. Mér er sérlega Ijúft að minnast bréfanna frá tengdapabba er við vorum stödd erlendis, þau höfðu svo margt að geyma og voru svo einlæg. Alltaf var stutt í brosið hjá tengdapabba og margar góðar minningar eigum við úr sumar- bústaðnum í Lóni. Elsku tengdapabbi, þökk fyrir allt og allt. Kristín Þorkelsdóttir. í dag verður til moldar borinn öðlingsmaðurinn Óskar Helgason fv. stöðvarstjóri Pósts og síma á Höfn í Hornafirði. Ég vil minnast þessa mæta manns með nokkmm orðum og þá rifja upp störf hans hjá Pósti og síma þar sem við vqrum samstarfs- menn um árabil. Óskar varð sím- stöðvarstjóri á Höfn hinn 1. okt. 1945, en þegar póstur og sími voru sameinaðir á Höfn 1. des. 1970 tók Óskar við stjórn beggja þessara verkþátta og sinnti af alúð þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 30. sept. 1987. Áður en Óskar kom til Hafnar hafði hann sinnt ýmsum störfum fyrir Landsímann á Borðeyri. Til marks um skyldurækni Ósk- ars má segja frá því að á fyrstu árum hans sem símstjóra á Höfn var talstöð á símstöðinni og var honum ætlað að hafa samband við sæfarendur eftir þörfum á daginn. En það fannst Óskari ekki nóg að gert og sat því hann löngum við talstöðina á kvöldin og jafnvel heilu næturnar þegar veður voru válynd eða veðurspáin slæm. Þetta sjálf- boðaliðastarf Óskars lýsti mannin- um og hans lífsferli vel, þar fór maður sem ekki spurði: „Hvað fæ ég fyrir verkið?" en hafði að leiðar- ljósi alla tíð: „Hvað get ég gert fyrir þig?“ Guðbjörg mín, með þessum fá- tæklegu orðum kveð ég manninn þinn, blessuð sé mining hans. Við Kolbrún sendum þér og þínum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Reynir Sigurþórsson. í dag er til moldar borinn Óskar Helgason, fyrrverandi stöðvar- stjóri Pósts og síma á Höfn. Með honum er horfínn af sjónar- sviðinu einstaklingur sem um ára- tuga skeið setti svip á mannlíf og menningu í Austur-Skaftafells- sýslu, var í fararbroddi þar sem unnið var að framfaramálum og valdist til forystu og trúnaðar- starfa í ijölmörgum samtökum. Hann var kjörinn heiðursborgari Hafnarhrepps á sjötugsafmæli sínu 14. september 1987. Óskar var fæddur á Háreksstöð- um í Norðurárdal, sonur Helga Þórðarsonar bónda og smiðs þar og seinni konu hans, Ingibjargar Skarphéðinsdóttur. Prófi frá Hér- aðsskólanum á Reykjum lauk hann árið 1936 og kennaraprófi 1941. Óskar kynnti sér síma- og radíó- tækni á verkstæði Landssíma ís- lands í Reykjavík og var ráðinn stöðvarstjóri landssímastöðvarinn- ar á Höfn í Hornafirði 1945. Upp frá því var hans langa og farsæla starfsævi helguð skaftfellskum mönnum og málefnum. Skaftfellingar lærðu fljótt að meta þennan unga og efnilega mann og sýndu honum verðskuldað traust með því að kveðja hann jafn- an til þar sem mikils þurfti með. Hér eru ekki tök á að telja upp öll þau störf sem Óskar var kvadd- ur til að sinna, en nokkurra skal þó getið. Hann var varaformaður Kaupfé- lags A-Skaftfellinga 1949-65 og formaður 1965-79, oddviti Hafnarhrepps 1966-82, stunda- kennari við barna- og unglinga- skólann á Höfn um árabil og próf- dómari við sama skóla. Hann starf- aði í byggingarnefndum félags- heimilis, heilsugæslustöðvar og Heppuskóla og var formaður bygg- ingarnefndar Hafnarkirkju og safnaðarfulltrúi. Hann sat í stjóm- um atvinnufyrirtækja, s.s. Bor- geyjar og Fiskimjölsverksmiðju Hornafjarðar, var formaður Fram- sóknarfélags A-Skaft. um árabil, virkur félagi í Golfklúbbi Homa- fjarðar, einn af stofnendum Lions- klúbbs Hornafjarðar og gegndi þar flestum trúnaðarstörfum. Þegar litið er yfir þann vettvang þar sem Óskar Helgason kom við sögu og lagði fram krafta sína gegnir mestri furðu hve miklu hann kom í verk jafnhliða því að sinna af kostgæfni mikilsverðu ábyrgðarstarfi. Það lætur að líkum að tómstundir hafi gefist fáar. Þó mun enginn hafa heyrt hann kvarta um annríki og ekkert var honum fjær skapi en víkja sér undan þeirri vinnu sem óhjá- kvæmilega fylgir mikilli þátttöku í félagsmálum. Leiðir okkar Óskars Helgasonar lágu saman á vettvangi sveitar- stjórnarmála um árabil. Eins og fyrr segir varð hann oddviti Hafnarhrepps 1966 og var því yfir- maður minn flest þau ár sem ég gegndi störfum sveitarstjóra á Höfn. Ég get með sanni sagt að á samstarf okkar bar aldrei skugga og á ég fáum samstarfsmönnum mínum meira að þakka. Fram- gangsmáti Óskars einkenndist af hógværð og hlýju, þó ekki dyldist að hann hafði ákveðnar skoðanir sem hann var reiðubúinn að rökstyðja. Það var ómetanlegt að geta leitað til hans við úrlausn margskonar vanda sem óhjá- kvæmilega verður til í ört vaxandi sveitarfélagi þar sem fram- kvæmdaviljinn og fjárhagsgetan haldast ekki ævinlega í hendur. Róleg yfirvegun Óskars leiddi oftar en ekki til þeirra úrræða sem allir gátu sætt sig við. Þá var ekki síður ánægjulegt að starfa með honum á öðrum vettvangi og vil ég sérstaklega nefna Lionsklúbb Hornaíjarðar þar sem hann var virkur og áhugasam- ur félagi frá upphafí. Bindindis- maður á vín og tóbak var hann, kunni þó manna best að gleðjast með glöðum og blanda geði við aðra. Hann var afar vel máli farinn og átti gott með að tjá hugsanir sínar skýrt og skipulega í ræðu og riti. Það var eiginleiki sem nýtt- ist honum vel á vettvangi fjöl- breyttra starfa. Óskar Helgason kvæntist 14. janúar 1947 Guðbjörgu Gísladóttur Guðnasonar póst- og símstjóra á Breiðdalsvík og konu hans, Ingi- bjargar Guðmundsdóttur. Þeim hjónum varð fímm barna auðið en urðu íyrir þeirri sáru reynslu að missa elsta son sinn, Gísla, á barns- aldri eftir þungbær veikindi. Hin eru talin í aldursröð: Ingibjörg, Helgi, Þröstur og Svala, allt vel menntað atgervisfólk, sem hefur þegar stofnað eigið heimili. Bama- börnin eru sjö. Heimili þeirra Óskars og Guð- bjargar hefur alla tíð verið eitt af þessum gestrisnu öndvegisheimil- um þar sem öllum hlýtur að líða vel. Þar er hlutur húsmóðurinnar stór, enda augljóst að tímafrek ólaunuð störf í þágu samfélagsins verða ekki unnin af öðrum en þeim sem búa við stuðning og skilning maka síns. Óskar Helgason gekk ekki heill til skógar hin síðustu ár, en studdur af sinni góðu konu bar hann veikindi sín af fágætri hug- prýði og hélt andlegu atgervi og reisn til hinstu stundar. Þegar leiðir skilja um sinn er mér þakklætið efst í huga og Ósk- ari vini mínum vil ég tileinka orð norska skáldsins Bjömstjerne Björnsson: „Þar sem góðir menn fara eru Guðs vegir.“ Við hjónin sendum Guðbjörgu, bömum Ósk- ars og öðrum ástvinum einlægar samúðarkveðjur. Sigurður Hjaltason. ★ nCROPRINT TIME RECORDER CQ. Stimpilklukkur fyrir nútíð og framtfð OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 • 105 Reykjavik Símar 624631 / 624699 Tjáplöntur - runnar VERÐHRUN! Bjóðum eftirtaldar tegundir á ótrúlega lágu verði: Alaskavíðir, grænn og brúnn, kr. 55, birkikvistur í pottum kr. 199, alparifs kr. 180, gljámispill kr. 150, hansarós kr. 390, runnamura kr. 290, ásamt fjölbreyttu úrvali sígrænna plantna með 25% afslætti. Trjáplöntusalan Núpum, Ölfusi, beygt til hægri við Hveragerði. Símar 98-34388 og 985-20388. Opið 10-21 alla daga. Leitið ekki langt ynr skammt er alltaf í leiðinni Þar fást bæði skógarplöntur í bökkum og stálpuð tré í kerum og svo allt þar á milli. Félagsmenn fá 10% afslátt SKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVÍKUR Fossvogsbletii 1, fyrir neðan Borgarspitalann, simi 641770. Beinn simi söludeildar 641777 félaq *«SífS stobmb'**

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.