Morgunblaðið - 12.06.1993, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 12. JUNI 1993
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Islenskur skínnaiðnaður hf. á Akureyri óskar gjaldþrotaskipta
Iðnstörfum nyrðra hefur
fækkað um 5-600 á áratug
STJÓRN íslensks skinnaiðnaðar hf. á Akureyri óskaði eftir gjald-
þrotaskiptum fyrirtækisins í gær, en hjá því starfa um 200 manns.
Þegar starfsemi Iðnaðardeildar Sambands íslenskra samvinnufé-
laga á Akureyri stóð í mestum blóma um miðjan síðasta áratug
voru ársverk hjá fyrirtækinu í ýmsum fata-, vefjar- og skinnaiðn-
aði um 800 alls, en á síðastliðnum áratug hefur störfum fækkað
í 200-300 samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Byggðastofn-
un á Akureyri í gær.
Kristín Hjálmarsdóttir, formaður
félags verksmiðjufólk á Akur-
eyri, sagðist hafa miklar áhyggjur
af Iðjufólki hjá fyrirtækinu, en það
gæti margt staðið uppi allslaust.
„Þetta er enn eitt áfallið sem yfír
okkur dynur og maður er eiginlega
alveg orðlaus," sagði hún.
íslenskur skinnaiðnaður hf. hefur
átt við verulega rekstrarerfíðleika
að etja á síðustu mánuðum og hef-
ur fyrirtækið tapað umtalsverðum
fjármunum, 95 milljónum á síðasta
ári og um 100 milljónum á fyrstu
fimm mánuðum þessa árs. Ástæður
erfíðleikanna eru einkum óhagstæð
þróun á helstu sölumyntum félags-
ins, en þær eru ítölsk líra og breskt
pund, og þær pólitísku og efnahags-
legu þrengingar sem ganga yfír
Ítalíu.
Enn er óvíst hvort framleiðsla
íslensks skinnaiðnaðar hf. leggst
niður vegna gjaldþrotsins eða hvort
reynt verður að leigja starfsemina
og tilraunir gerðar til að endurreisa
hana. Að öðrum kosti má búast við
«»
Verktakar í erfiðleikum í Vestfjarðagöngunum
Mánaðar-
tafir í
Botnsdal
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Blautir bormenn
JARÐGANGAMENNIRNIR 18 eru blautir þessa dagana.
VATN og hrun hafa valdið um-
talsverðum töfum í Vestfjarða-
göngum. Ekkert var sprengt í
Botnsdal í rúman mánuð og
tveggja daga töf varð vegna
hruns í tvöföldu göngunum inn
af Tungudal.
Nú er búið að sprengja alls fjóra
kílómetra af tæpum níu. Fjórða
maí lentu bormenn í miklum vatns-
aga í Botnsdalsgöngum. Stóðu er-
lendir sérfræðingar ráðþrota. Unn-
ið hefur verið að ýmsum könnunum
jafnframt því sem reynt var að
sprauta steypu inn í vatnsæðam-
ar. Á föstudag var hafíst handa á
ný og við mjög erfíðar aðstæður í
miklu vatni.
Grjóthrun
í síðustu viku fór vatn að auk-
ast í Breiðadalshlutanum og var
farið í að styrkja göngin með stál-
bogum, sem ekki hafa verið notað-
ir við gangagerð hér lengi.
Þá hrundu um 10 rúmmetrar
af bergi úr lofti tvíbreiðuganganna
og eyðilagði loftræsiloka. Tvo sól-
arhringa tók að styrkja loftið og
koma upp nýjum stokkum og var
ekkert hægt að vinna í göngunum
á meðan.
Fram að þessum töfum hafði
verkið gengið óvenju vel og eru
menn ennþá á réttum tíma sam-
kvæmt verkáætlun að meðaltali.
Þó má gera ráð fyrir að gat verði
ekki komið í gegn fyrr en eftir
næstu áramót, en stefnt hafði ver-
ið að því að sprengivinnu í þeim
lyki um miðjan desember.
MAÐUR, búsettur í Reykjavík, hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á
meintum tollalagabrotum sem sýslumaður og yfir-
lögregluþjónn á Siglufirði eru grunaðir um aðild að.
Manninum er gert að vera í gæsluvarðhaldi í allt að
viku. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er um
að ræða son manns sem talinn er hafa sent hestakerrur
með reiðtygjum og öðrum smyglvamingi frá Þýskalandi
að sögu sútunar á Akureyri sé að
ljúka en í sumar eru liðin 70 ár frá
því að sútun skinna hófst á Akur-
eyri.
Sjá fréttir á miðopnu.
Flugtök og lendingar
1987-92-
200 þús.
180 173.365..........-
148.247
Farþegar
750 þús.--
áætlunarflugi*
-------------735.268
L5%
aukning
600-'-------'............■-....'------rr-
'87 '88 '89 '90 '91 ’92
* Keflavíkurflugvöllur er undanskilinn
Minni flugumferð
en fleiri farþegar
FLUGUMFERÐ á íslenskum áætlunarflugvöllum að Keflavíkur-
flugvelli undanskildum hefur minnkað nokkuð á síðustu tveimur
árum. Var fjöldi lendinga og flugtaka á íslenskum flugvöllum
148.274 á síðasta ári samanborið við 181.214 árið 1990.
Á sama tíma hafa hins vegar
farþegaflutningar um íslenska
áætlunarflugvelli í innanlandsflugi
aukist töluvert og náðu þeir há-
marki á seinasta ári þegar fjöldi
farþega var 735.268. Þar af voru
665.855 farþegar fluttir í áætlunar-
flugi en rúm 48 þúsund í leigu-
flugi. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu Flugeftirlitsnefndar.
í skýrslunni koma ekki fram
skýringar á því af hveiju farþegum
hefur fjölgað á sa.ma tíma og um-
ferð um flugvelli landsins fer
minnkandi. Heildarfjöldi flugtaka
og lendinga á Reykjavíkurflugelli á
seinasta ári var um 102 þúsund að
snertilendingum í æfinga- og
kennsluflugi meðtöldum, 14.483 á
Akureyrarflugvelli _ og 12.600 í
Vestmannaeyjum. í Grímsey lentu
flugvélar eða tóku á loft alls 586
sinnum á seinasta ári samanborið
við 858 sinnum árið 1987 og 284
sinnum á Gjögri samanborið við 328
sinnum árið 1987.
2.000 farþegar í sjúkraflugi
Á síðasta ári fóru tæplega 125
þúsund farþegar í áætlunarflugi um
Akureyrarflugvöll, 14.500 um
Homafjörð, 12.900 um Húsavík,
462 um Hólmavík og 8 farþegar
um Suðureyri.
Alls var flogið með 2.012 farþega
í sjúkraflugi á seinasta ári að því
er fram kemur i skýrslunni.
-------» ♦ ♦------
Hljóp út úr
strætó í veg
fyrir bifreið
13 ÁRA piltur varð fyrir bíl þeg-
ar hann hljóp út úr strætisvagni
og út á götu í Kópavogi i gær.
Drengurinn fór úr strætisvagni
á Kópavogsbraut og hljóp fram fyr-
ir bílinn út á götuna, að sögn lög-
reglu, og varð fyrir aðvífandi bíl.
Hann var fluttur á slysadeild og
var talinn beinbrotinn en ekki
hættulega slasaður, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar.
Varðhald í Siglufjarðarmáli
til Sjglufjarðar, í a.m.k. fjögur skipti.
í tengslum við innflutning á slíkri kerru 14. maí sl.
kom upp það mál sem leiddi til þess að sýslumanni og
yfirlögregluþjóni á Siglufírði var vikið frá embætti um
stundarsakir og lögreglurannsóknin hófst ásamt því sem
Ríkisendurskoðun tók fjárreiður sýslumannsembættisins
til gagngerrar endurskoðunar, sem nú mun vera lokið.
Gæsluvarðhaldúrskurðurinn hefur verið kærður til
Hæstaréttar.
Morgunblaðið/Þorkell
Ættlæg nákvæmni
ÞAÐ er líklega ekki algengt að allir sem stunda golf í einni og sömu
fjölskyldunni geti státað af því að hafa farið holu í höggi. Islands-
og Norðurlandameistarinn Úlfar Jónsson úr Keili og foreldrar hans,
Jón Halldórsson og Ragnhildur Jónsdóttir, hafa þó öll náð drauma-
högginu. Meistarinn á þtjár eldri systur, en enginn þeirra leggur stund
á golf — „ekki ennþá," eins og Úlfar segir — þannig að árangurinn
getur ekki verið betri. Úlfar náði fyrstur draumahögginu á Hvaleyrar-
holtsvelli fyrir ellefu árum, Jón fór holu í höggi á Bakkakotsvelli í
Mosfellsbæ í fyrra og Ragnhildur fullkomnaði svo þrennuna á Hvaleyr-
inni um síðustu helgi. Þess má geta að eftir að myndin var teicin
síðdegis í gær léku þau hjónin einn hring á Hvaleyrinni og litlu
munaði að Ragnhildur færi aftur holu í höggi; boltinn rúllaði yfír
holubarminn eftir eitt upphafshögg hennar.