Morgunblaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993 Sparisjóðir hækka vexti um 0,3-0,75% SPARISJÓÐIRNIR hækka vexti í dag af óverðtryggðum útlánum um 0,5-0,75% og vexti af verðtryggðum útlánum um 0,3%. Þá hækka vextir Búnaðarbankans af verðtryggð- um útlánum um 0,25%. Landsbanki og íslandsbanki breyta einungis vöxtum af gengisbundnum liðum. Þrátt fyrir þess- ar hækkanir er íslandsbanki með hæstu vexti útlána og eru t.d. meðalvextir af víxillánum hjá bankanum 12,8% samanborið við 12,3% meðalvexti sparisjóðanna. * Tap Islands- banka nemur 195 millj. kr. TAP íslandsbanka fyrstu fjóra mánuði ársins var 195 milljónir króna. Bankinn lagði á sama tímabili alls 493 milljónir í af- skriftarreikning og 130 milljóna vextir voru ekki tekjufærðir af varúðarástæðum. Þrátt fyrir tap- ið er áætlað að bankinn verði rekinn með hagnaði á yfirstand- andi ári. Áætlun þessi byggist á því að bankinn lagi vexti að verðbólgu á hveijum tíma og ekki verði óvæntar breytingar til hins veira í afskrift- um útlána. í frétt frá íslandsbanka er tapið á fyrsta ársþriðjungi fyrst og fremst rakið til þess að vextir af óverðtryggðum útlánum voru ekki nema að hluta hækkaðir til samræmis við aukna verðbólgu í febrúar og mars. Fram kemur að verðtryggðar skuldir bankans eru mun hærri en verðtryggðar eignir sem olli tekju- tapi á þessu tímabili en það er sagt jafnast út þegar á fyrri hluta þessa Ólafur K. Ólafs, hjá peninga- máladeild Seðlabankans, kvaðst telja að með vaxtabreytingum á verðtryggðum lánum væru Búnað- arbankinn og sparisjóðimir að færa sig nær íslandsbanka sem væri með hæstu vexti skuldabréfalána. „Síðan era sparisjóðimir að breyta vöxtum víxillána, yfírdráttarlána og óverðtryggra skuldabréfalána sem líklega skýrist einnig af því að þeir eru að færa vextina nær þeim vöxtum sem era hæstir í þess- um útlánaflokkum. Þá mótast þess- ar hækkanir af spám um vaxandi verðbólgu vegna gengisfellingar- innar. Það má búast við hækkun vaxta af óverðtryggðum lánum síð- ar í mánuðinum miðað við fengna reynslu ,“ sagði Ólafur. Brynjólfur Helgason, aðstoðar- bankastjóri Landsbankans, sagði í samtali við Morgunblaðið að vaxtamálin væra til athugunar hjá Landsbankanum en engar ákvarð- anir hefðu verið teknar um breyt- ingar á vöxtum. Fylgst með verðlagsþróun Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbankans, sagði að ákveðið hefði verið að hækka vexti af Stjömubók, sem er verðtryggður reikningur, um 0,25% vegna hækk- ana á ávöxtunarkröfu húsbréfa og spariskírteina að undanförnu. Á móti því hefðu vextir af verð- tryggðum lánum hækkað um 0,25%. Hann sagði að frekari vaxtabreytingar myndu ráðast af verðlagsþróuninni í framhaldi af gengisfellingunni. „Bankár og sparisjóðir hafa oft beðið með að bregðast við aukinni verðbólgu en við ætlum að reyna að stemma strax á að ósi,“ sagði Baldvin Tryggvason, sparisjóðs- stjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Morgunblaðið/Einar Falur Fiðlusnillingi fagnað TROÐFULLT hús og mikil stemmning var á tónleikum hins heimsþekkta fiðlulusnillings Nigel Kennedy í íþróttahúsinu í Kaplakrika í gærkvöldi, en ýmsum unnendum klassískrar tónlist- ar þóttu þó tónleikarnir vera of poppaðir fyrir þeirra smekk. Listamaðurinn var ákaft klappaður upp að loknum flutningi þeirra verka sem á dagskránni voru og lék hann fjölmörg auka- lög fyrir tónleikagestina sem greinilega kunnu vel að meta það sem boðið var upp á þessum lokatónleikum Listahátíðar í Hafnar- firði. Sjávarútvegsráðuneytið undirbýr aðgerðir til verndar smáfiski Varanlegar lokanir þar sem mest er um undirmálsfisk ÞAÐ ER ekki vHji sjávarútvegsráðuneytisins að gera upp á milli útgerðarflokka, stærðar báta, eða skipa, eða veiðar- færa, að sögn Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra. Hann segir það hins vegar vera ijóst að athuganir hafi sýnt í alllangan tíma að undirmálsfiskur hafi í mjög ríkum mæli verið í afla sem fæst á línu- og krókaveiðum. Því séu nú varanlegar lokanir veiðisvæða þar sem mest hafi verið af undirmálsfiski í undirbúningi í ráðuneytinu. árs. Sjá nánar í Viðskiptablaði B2 Víkingalottóið Norðmaður og Dani með 25 mfflj. kr. DANI og Norðmaður fengu 1. vinning í Víkingalottóinu í gærkvöldi, rétt tæplega 25 milljónir króna. Að sögn Alfreðs Þorsteins- sonar, stjómarformanns ís- lenskrar getspár, gekk bónus- vinningurinn ekki út hér á landi og verður hann því tvöfaldur næsta miðvikudag, eða um 1,5 milljónir króna. Aðaltölumar í Víkingalottóinu í gærkvöldi voru 6, 42, 19, 10, 8 og 39, en bónustölumar vora 45, 28 og 40. „Meðal annars hefur það leitt til þess að skyndilokanir hafa ver- ið miklu fleiri á þessu ári en nokkru sinni áður. Það hefur líka verið meira um undirmálsfisk á togslóð," sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið Sjávarútvegsráðherra segir að nú sé verið að skoða möguleika á því að banna viðvarandi veiði með reglugerð, á þeim svæðum sem mest hefur verið um skyndi- lokanir vegna undirmálsfísks. „Við höfum aðeins kynnt hags- munaaðilum undirbúningsvinnu okkar í þessu máli og ég vona að niðurstaða fáist í því, innan ekki mjög langs tíma,“ sagði Þor- steinn. Brýnt að taka á þessu „Ég tel að það sé mjög brýnt að taka á þessu. Það verður líka að hafa það í huga að það er mjög óþægilegt fyrir útgerðir og skip- stjómarmenn, þegar skyndilokanir eru orðnar svona tíðar. Það skapar mikla óvissu um það hvar menn mega veiða og hvenær. Það er því erfítt fyrir skipstjómarmenn að fylgjast með því og fyrir okkur að framkvæma lokanimar og fylgja þeim eftir. Varanlegar lokanir hafa því einnig gildi í þeim tilgangi að fftgrgiifiiMaftift í dag Ferðahelgi framundan_________ Fyrsta helgin í júlí hefur þróast f að verða næstmesta ferðahelgin 4 Unglingavinnan_______________ Mjög misjöfn laun eru í unglinga- vinnunni eftir sveitarfélögum og munar t.d. helming & Höfn og í Hafnarfirði. 26 íslandsmótið í knattspyrnu KR sigraði Val með tveimur mörk- um gegn engu í fyrsta leiknum í sjöundu umferð Islandsmótsins í knattspymu. 43 Leiðari Stórútsala og viðskiptasiðferði. 22 Viðskipti/Atvinnulíf ► Milljarðamarkaður býðst ís- íenskum hugbúnaðarfyrirtækj- um - Greiðslubyrði sjávarútvegs léttist - Grænn fatnaður slær í gegn - Evreka samstarfið Dagskrá ^ Háskerpusjónvarp í Evrópu - Dýrasta kvikmynd i heimi - Líf- verðir og þekkt fólk - Bíóin í borginni - Fóik í fréttum - Kvik- myndir vikunnar auðvelda framkvæmdina fyrir báða aðila, þ.e. þá sem eiga að hafa eftir- lit og þá sem sækja sjóinn," sagði Þorsteinn. Sjávarútvegsráðherra sagði að auðvitað væri ekkert hægt að al- hæfa í þessum efnum og segja að allir smábátar kæmu með undir- málsfisk í miklum mæli að landi, en kannanir þær sem Fiskistofa hefði staðið fyrir sýndu með ótví- ræðum hætti að um hættulega hátt hlutfall væri að ræða og því væri bragðist við með þessum hætti. Brotið gegn Marniréttmdasáttmála Evrópu Lögnm um leigu- bifreiðaakstur verður að breyta HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra hyggst breyta lög- um um leigubifreiðaakstur í samræmi við niðurstöðu Mann- réttindadómstóls Evrópu, sem í gær felldi dóm í máli Sig- urðar A. Sigurjónssonar leigubílstjóra gegn íslenzka rík- inu. Dómurinn telur ríkið hafa brotið 11. grein Mannrétt- indasáttmála Evrópu um félagafrelsi með því að þvinga Sigurð með lagasetningu árið bifreiðastjórafélaginu Frama, leyfi sínu. Mannréttindadómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að 11. greinin, sem fjallar um rétt manna til að stofna félög, þar á meðal stéttarfé- lög, vemdi einnig svokallað nei- kvætt félagafrelsi, þ.e. frelsi manna til að ganga úr félagi eða vera utan félags. í íslenzku stjómarskránni er einnig ákvæði um félagafrelsi, en deilt hefur verið um hvort það vemdaði rétt manna til að standa utan félaga. Ágreiningur um fordæmisgildi Samtök vinnuveitenda og laun- þega greinir á um fordæmisgildi dómsins varðandi aðrar reglur á vinnumarkaði en lögin um leigubif- reiðaakstur. Þannig heldur Lára 1989 til þess að vera í leigu- ætti hann að halda atvinnu- V. Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins, því fram að í raun sé ekki skylduaðild að stéttar- félögum hér á landi, heldur séu menn aðeins skyldaðir til að greiða félagsgjald til stéttarfélaganna fyr- ir að fá að vinna eftir samningum þeirra. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins, segir hins vegar að í ýmsum kjarasamningum, til dæmis samningum verzlunarmanna, séu menn skyldaðir að vera í stéttarfé- lagi til að fá að stunda atvinnu sína og stéttarfélögin eigi ekki að fá að innheimta gjöld af öðram en félags- mönnum sínum. Sjá bls. 16: „Brot á frelsi..."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.