Morgunblaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JULI 1993
félk f
fréttum
MANNFAGNAÐUR
Gengið í
lögreglu-
fylgd um
götur
Lundúna
Islendingar í Lundúnum héldu
þjóðhátíðarfagnað sunnudag-
inn 20. júní sl. Mannfjöldinn safn-
aðist saman fyrir framan sendiráð-
ið þar sem fyrsti hluti dagskrár
var fluttur. Hafði lögreglan séð
um að loka nærliggjandi götum
fyrir bflaumferð á meðan dagskrá-
in ^stóð yfir.
íslenski kórinn í London flutti
Land míns föður, því næst ávarp-
aði Helgi Ágústsson sendiherra
gesti. Að tölu hans lokinni flutti
Sigríður Ella Mganúsdóttir ávarp
fjallkonunnar og íslenski kórinn
söng þjóðsönginn. Síðan hófst
skrúðganga með lúðrablæstri og
bumbuslætti. Gengið var að hinum
þekkta lystigarði Chelsea Physic
Garden, þar sem boðið var upp á
fjölbreytta dagskrá og veitingar á
borð við pylsur, Prins Póló, Kók,
kaffi og kökur.
Skrúðgangan vakti mikla athygli vegfarenda. Veltu menn greinilega
fyrir sér hvaða baráttuhópur færi þar og fyrir hverju væri barist
með ábúðamikinn fánabera og glæsilega fjallkonu (Sigriði Ellu Magn-
úsdóttur) í broddi fylkingar.
Hátíðarjgestir í góðu veðri í Chelsea Physic Garden. Aftast má greina
Helga Agústsson sendiherra og Guðrúnu Nordal, íslenska lektorinn.
Tvíburadrengirnir áður en aðgerðin var framkvæmd.
Reuter
STJORNUR
Flókin ástarmál
komin
Lítið hefur farið fyrir leikkon-
unni Júlíu Roberts undanfar-
in 1-2 ár og hafa fjölmiðlar erlend-
is velt ástæðunni fyrir sér í nokk-
um tíma. Sumir segja að hún hafi
bara viljað fá frið fyrir umfjöllun,
aðrir að hún hafí orðið þunglynd
og einhveijir halda því fram að hún
hafi ekki kunnað við frægðina og
látið lítið fyrir sér fara af þeim
sökum. Ekki eru heldur allir sam-
mála með hverjum hún sé helst að
slá sér upp með í það og það skipt-
ið. Hafa ýmsir verið nefndir eins
og Kiefer Sutherland, Jason Patric,
í höfn
Sean Penn og Liam Neeson.
Kom því fregnin um að hún hefði
gifst söngvaranum Lyle Lovett um
helgina mjög á óvart. Hvorugt
þeirra hefur verið gift áður og má
segja að það teljíst til tíðinda með-
ai kvikmyndastjama í Hollywood.
Júlía er 25 ára, en Lyle 35 ára.
Menn rekur kannski minni til þess
að Júlía afboðaði brúðkaup sitt með
Kiefer Sutherland árið 1991 rétt
áður en það átti að fara fram. Þau
Júlía og Lyle hittust fyrst við upp-
tökur á kvikmyndinni „The Player“
árið 1992.
LÆKNAVÍSINDI
Síamstvíbur-
ar aðskildir
Chíleanskir læknar fram-
kvæmdu nú í vikunni aðgerð
á níu mánaða gömlum síömsku tví-
burum, sem voru samvaxnir frá
bringu og niður kviðinn. Ákveðið
var að framkæma aðgerðina þegar
uppgötvaðist að drengir hefðu hvor
sín líffæri, þrátt fyrir að hjörtu
þeirra væru samvaxin.
Ríkissjónvarpið í Chile hafði
einkarétt á upptökum frá aðgerð-
inni og var sýnt frá aðgerðinni. Það
tók læknana heilan dag að fram-
kvæma aðgerðina. Haft er eftir
talsmanni spítalans, að aðgerðin
hefði tekist vonum framar, en
næstu dagar skæru úr um hvort
drengirnir lifðu.
Júlía Roberts er farin að brosa
aftur enda giftist hún söngvar-
anum Lyly Lovett um helgina.
Það er helst að frétta af leik-
ferli Júlíu um þessar mundir, að
hún er nú við upptökur á kvikmynd-
inni „The Pelican Brief“ í Washing-
ton ásamt Denzel Washington og
Sam Shepard.
WIMBLEDON
Þrír tenniskappar
sektaðir
Patrick McEnroe, yngri bróðir
fyrrum Wimbledon-meistara
Johns McEnroe, virðist eiga álíka
erfitt með að stilla skap sitt og
bróðir hans. Þrátt fyrir að menn
séu sammála um að hann slái John
ekki út, hikar hann ekki við að
senda dómurum og öðrum tóninn
þegar hann er að keppa í tennis.
Er hann einn þriggja tenniskappa
sem var sektaður í síðustu viku í
Wimbledon-keppninni meðal ann-
ars fyrir slæman munnsöfnuð.
Patrick McEnroe var sektaður
um 1.000 pund eftir að hafa æpt
ókvæðisorð að dómurum í leik sín-
um á móti Chris Bailey. Hollend-
ingurinn Paul Haarhuis fékk 1.500
punda sekt eftir svipaðan munn-
söfnuð, auk þess sem hann neitaði
að þakka dómurum fyrir leikinn
með handabandi. Þá fékk Þjóðverj-
inn Patrik Kuehnen 500 punda
sekt fyrir að blóta í eyru dómara
og línuvarða.
Fyrir tveimur árum var þáver-
andi Wimbledon-meistari, John
McEnroe, þrívegis dæmdur til að
greiða sektir fyrir orðbragð, sem
tekin voru upp á myndband af
dómurum.
Reuter
John McEnroe sem aðstoðar við
lýsingar á Wimbledon-keppninni
þjá sjónvarpsstöðinni NBC vildi
ekki segja neitt um framkomu
bróður síns, Patricks.
Morgunblaðið/Vigfús Hallgrímsson
Listaverk 8. bekkinga prýða skólalóð Hjallaskóla í Kópavogi.
SKÓLAR
Listaverk nemenda
g'leðja vegfarendur
AHjallaskólahátíð í Kópavogi,
sem haldin var í vor, voru
afhjúpuð listaverk sem nemendur
í 8. bekkjum unnu að í vetur und-
ir handleiðslu Sigríðar Sigurðar-
dóttur myndmenntakennara.
Voru þau hengd upp á girðingu
á skólalóðinni og munu í framtíð-
inni vera andlit skólans fyrir veg-
farendur, sem leið eiga hjá. Eldri
nemendur stóðu fyrir veitinga-,
bóka- og minjagripasölu á hátíð-
inni. Þá unnu nemendur einnig
margvísleg þemaverkefni sem
tengdust Kópavogi á einn eða
annan hátt og voru stofnanir og
fyrirtæki heimsótt. Einnig má
geta þess, að handavinna nem-
enda frá því í vetur var til sýnis
á hátíðinni.
| - f;
[ |j í
Níu ára nemendur sýndu leikþátt um Kópavaogsfundinn árið
1662. Á myndinni eru f.v. Elín Osk Reynisdóttir, Halla Þórarins-
dóttir, Valgeir Þ. Ólason og Sævar Már Reynisson í hlutverkum
sínum. Fyrir aftan standa aðstoðarmenn leikaranna.