Morgunblaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
41
KNATTSPYRNA / NM STÚLKNA
Tveggja marka
tap gegn Svíum
KNATTSPYRNULANDSLIÐ stúlkna 16 ára og yngri tapaði í gær
0:2 gegn Svíum í þriðja leiknum á Norðurlandamótinu sem hald-
ið er í Hollandi. Liðið hefur tapað öllum leikjum sínum til þessa,
en á eftir að leika tvo leiki, gegn Hollandi á morgun, sem leikur
sem gestur á mótinu, og Finnlandi á laugardaginn.
Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfari
sagðist vera ánægð með leik
stúlknanna, þær hefðu barist vel
og sýnt góðan karakter, eftir slæmt
tap gegn Norðmönnum á þriðjudag-
inn. Svíar skoruðu fyrsta markið
strax á fyrstu mínútu, en seinna
markið kom ekki fyrr en undir lok
leiksins. Pia Sundhage þjálfari
sænska liðsins hafði á orði eftir
leikinn að þetta hefði verið erfið-
asti leikur þeirra til þessa.
Mikill hiti hefur verið í Hollandi
að undanfömu, og sagði Vanda að
þær hefðu lent í erfíðleikum vegna
hans. Þær héfðu fengið góð ráð frá
Sigurjóni Sigurðssyni lækni í gær
fyrir leikinn varðandi hitann, og það
hefði komið að góðum notum.
Norðmenn eru efstir á mótinu
og Svíar koma næstir, einu stigi á
eftir. Þessar þjóðir leika á föstudag-
inn, og er það að öllum líkindum
úrslitaleikur mótsins.
ÁlSldN.
FRJÁLSAR
Giinthör með lengsta
kast ársins: 21.94
Werner Giinthör, kúluvarparinn
sterki frá Sviss, náði að kasta
kúlunni lengst allra í ár á móti í
Luzem á þriðjudaginn. Hann kastaði
kúlunni 21,94 m. Olympíumeistarinn
Mike Stulce frá Bandaríkjunum
hafði kastað lengst það sem af var
árinu — 21,63 m í Brussel 12. júní.
Bandaríkjamaðurinn Kevin Toth
var annar með 21,20 m og heims-
methafinn Randy Bames þriðji,
20,39.
Opna mótið
fer fram laugardaginn 3. júlí nk. á Hólmsvelli í Leiru.
Leiknar verða 18 holur.
Verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sætið, með og án
forgjafar, og næstur holu á 3. og 13. braut.
Dregið úr skorkortum viðstaddra.
Skráning í síma 92-14100 til kl. 14.00
föstudaginn 2. júlí.
Hochheimer Daubhaus
OPIÐ GOLFMÓT
verður haldið hjá Golfklúbbi Selfoss
laugardaginn 3. júlí.
Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar.
Ræst verður út frá kl. 8.00-11.30 og
frá kl. 13.00-15.30.
Rástíma er hægt að panta frá kl. 17.00 föstudaginn
2. júlí í golfskálanum eða í síma 98-23335.
Munið forgjafar- og félagsskírteinin.
AUSTURBAKKI, GOLFKLÚBBUR SELFOSS,
BORGARTÚNI20. SVARFHÓLI.
EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR
LÍKA NÝBAKAÐ
HATTING brauðið er fryst áður en það er fullbakað .
Þú setur frosið brauðið í bökunarpokanum í ofninn og lýkur bakstrinum
á fimmtán mínútum. Afraksturinn er nýbakað, mjúkt
og ilmandi hvítlauksbrauð.
■ MYNPUST-LEIRLIST
GLERLIST-ISLENSKT 1
V E L J I Ð
í S L E N S K ABRÚÐA R G J Ö F
ISLENSKA^
Fákafenl 9,síml 682268
Opið 9-18. lau. 10-1-4
^3) NYTJALIST-INNILJÓS
ÚTIlJÓSrGJAFAVARA^
ÖRKIN 1012-