Morgunblaðið - 01.07.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JUU 1993
11
I
)
I
)
)
í
>
>
í
í
í
í
Frá vortónleikum kórs Keflavíkurkirlq'u.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Kór Keflavíkurkirkju með vortónleika
Keflavík.
KÓR Keflavíkurkirkju hélt fyrir
nokkru sína árlegu vortónleika í
kirkjunni og fékk kórinn ágætar
viðtökur viðstaddra. Áður hafði
kórinn haldið tónleika í Akranes-
kirkju þar sem sóknarpresturinn
í Keflavík, sr. Ólafur Oddur Jóns-
son, messaði ásamt sr. Birni Jóns-
syni sóknarpresti á staðnum, en
hann var prestur Keflvíkinga í
mörg ár. Þar fékk kórinn einnig
innilegar viðtökur.
Á efnisskrá voru bæði andleg og
veraldleg lög, svo og íslensk alþýðu-
lög um vorið og sumarið. Einsöngv-
arar á tónleikunum voru María
Guðmundsdóttir, Sverrir Guð-
mundsson, Steinn Erlingsson, Guð-
mundur Ólafsson og Böðvar Þ. Páls-
son. Gróa Hreinsdóttir var undir-
leikari á píanó en stjórnandi var
Einar Örn Einarsson organisti í
Keflavíkurkirkju.
- BB
Ingibjörg S. Torfadóttir sýn-
ir leirlistaverk í Listmunahúsi
Ingibjörg S. Torfadóttir, leirlist-
arkona, sem býr í Winnipeg í
Kanada, opnar sýningu á verkum
sinu í Listmunahúsi á Skóla-
vörðustíg á mogun, 2. júlí og
stendur sýningin til 18. júlí. Þetta
er fyrsta einkasýning hennar á
íslandi og er titill og þema sýn-
ingarinnar Ævintýraheimur í
leir.
Ingibjörg S. Torfadóttir hefur
verið búsett í Kanada i fimmtán
ár og starfað í Winnipeg, þar sem
hún á hlut í Stoneware Gallery
ásamt tíu öðrum konum. Sem barn
dvaldi Inga langdvölum á Hólmavík
og þangað sækir hún hugmyndir í
„fjöruna, sjóinn, fiskana og rekavið-
inn.“ í sýningarskrá segir Ingibjörg:
„Eins og titill þessarar sýningar ber
með sér, þá fjalla verkin um ævin-
týri og þá undraveröld sem þau
færðu okkur í bernsku. Ævintýrin
sem mömmur okkar og ömmur lásu
fyrir okkur í rökkrinu hafa um ald-
araðir verið hluti af menningararf-
leifð okkar. Þessi ævintýraheimur
hafði sterk áhrif á mig og eru það
íbúar hans, álfar, dvergar og tröll,
sem fínna sér hér farveg í verkum
mínum.“
Ingibjörg lærði fyrst við Mynd-
lista-og handíðaskóla Íslands, síðan
hjá Stoneware Studio, og einnig hjá
listskóla Listasafnsins í Winnipeg.
Hún hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga í Kanada og hlotið margs-
konar viðurkenningar fýrir verk sín.
Hún starfar jöfnum höndum að
nytjalist og skúlptúr, en í Manitóba-
fylki er löng hefð fyrir notkun leirs-
ins í nytjalist, allt frá dögum Indí-
ána og fýrstu landnemanna frá
Evrópu. Öll verkin á sýningunni eru
unnin á síðustu tveimur árum í
steinleir eða postulín og brennd í
gasofni. Hin síðari ár hefur Ingi-
björg fengist við kennslu, bæði á
vegum Stoneware Studio, Lista-
safnsins í Winnipeg og í grunnskól-
um borgarinnar.
Nýjar bækur
íslenski kiljuklúbburinn hefur sent
frá sér þijár nýjar bækur:
Meistarinn og Margaríta eftir
Mikhaíl Búlgakov í þýðingu Ingi-
bjargar Haraldsdóttur. Bókin er
367 bls.
Seld! - Sönn saga konu í ánauð
eftir Zönu Muhsen og Andrew
Crofts. Guðrún Finnbogadóttir
þýddi bókina sem er 267 bls.
Leyniskyttan er spennusaga eftir
bandaríska höfundinn Ed McBain.
Illugi Jökulsson þýddi bókina sem
er 201 bls..
Hver bók kostar 690 kr. fram
til 1. júlí, en eftir það 786 kr.
Ingibjörg S. Torfadóttir við nokkur verka sinna.
Píanótónleikar Uiin-
ar Vilhelmsdóttur
Tónlist
Gísli Magnússon
Oft heyrir maður talað um
gróskuna í íslensku tónlistarlífí.
Hver viðburðurinn rekur annan.
Tvær listahátíðir í gangi samtím-
is. Ungt lista-
fólk streymir
til landsins eft-
ir áralangt
nám erlendis
og lætur að sér
kveða. Er nú
svo komið að
ómögulegt er
að fylgjast með
öllu sem í boði
er. Þetta kem-
ur óneitanlega niður á aðsókn á
einstaka tónleika og þá vaknar
spurningin: Verðum við að taka
upp einhverskonar kvótakerfi á
tónleikahald?
Það var ánægjulegt að hlýða á
tónleika Unnar Vilhelmsdóttur,
píanóleikara í Tjarnarsal Ráð-
hússins síðastliðið sunnudags-
kvöld. Tónleikarnir voru á vegum
Óháðrar listahátíðar 1993. Unnur
útskrifaðist úr einleikaradeild
Tónlistarskólans í Reykjavík fyrir
tveimur árum og hefur síðan
stundað framhaldsnám í Banda-
ríkjunum.
Það kom strax í ljós hve áslátt-
ur Unnar er tær og pedalanotkun
hófleg. Þessi leikmáti ásamt fag-
urlega mótuðum hendingum átti
vel við Tokkötuna í c-moll BWV
911 eftir Bach, sem var upphafs-
verk tónleikanna. Tokkatan er
stórbrotið verk og var í heild mjög
vel leikin. Næst á efnisskránni var
Sónata í a-moll KV.310 eftir
Mozart. Hér bættist við dramatísk
spenna og tregi sem þessi sónata
er svo rík af. Unnur skóp sitt lista-
verk af einlægni og næmri stíl-
kennd.
Eftir hlé fengum við að heyra
Tilbrigði (1988) eftir Hróðmar
Inga Sigurbjörnsson. Verkið vinn-
ur á við hveija hlustun enda heil-
steypt í formi og byggingu og
naut sín vel í höndum Unnar.
Að endingu lék Unnur Fantasíu
í f-moll op. 49 eftir Chopin. Þetta
er öndvegis tónskáld slaghörp-
unnar hefur verið næsta fátíður
gestur á tónleikum í seinni tíð.
Unnur dró fram skírar línur og
sýndi tilþrif sem voru við hæfi í
lokaverkefni tónleikanna.
Unnur er nú að stíga sín fyrstu
skref á þyrnum stráðri listabraut-'
inni. Ástæða er til að óska henni
til hamingju með þessa „debut“-
tónleika~og vonandi á hún eftir
að auðga tónlistarlíf okkar í fram-
tíðinni.
Nýi Steinway-flygillinn í Ráð-
húsinu er fyrirtaks hljóðfæri, en
hljómburður salarins er því miður
afleitur. Verður þvi enn einu sinni
vakin athygli á brýnni þörf fyrir
tónlistarhús í Reykjavík.
Ný tímarit
■ Skáldskaparmál, timarit um
íslenskar bókmenntir fyrri alda
er nú komið út í annað sinn.
í fyrstu ritgerð þessa heftis rekur
Ólafur Halldórsson samskipti Áma
Magnússonar og Þormóðs Torfa-
sonar. Þá koma greinar eftir
Francois Xavier Dillmann, Robert
Cook, Jón Karl Helgason og Viðar
Hreinsson um íslendingasögur:
Hvernig túlka eigi frásagnir um
seið, mannlýsingar í Laxdælu, ýmis
atriði Egils sögu, Grettis sögu og
Gísla sögu. Einnig fjalla Guðrún
Ingólfsdóttir og Bergljót S. Krist-
jánsdóttir um stöðu kvenna í samfé-
lagi íslendingasagna og óvanalega
afstöðu til þeirra í ýmsum yngri
sögum. Hermann Pálsson og Jón
Torfason sömdu greinar í tilefni af
750. ártíð Snorra Sturlusonar og
fjalla um túlkun á Íslendingaþáttum
og ýmsu í Heimskringlu. Þá er yfír-
lit Ulfars Bragasonar um rannsókn-
ir á Sturlungu og að síðustu er vik-
ið að klerklegum lærdómi í greinum
eftir Ásdísi Egilsdóttur, Margaret
Cormack, Svanhildi Óskarsdóttur
og Marianné Kalinke: eðli biskupa-
sagna, afstöðu til fordæðuskapar.í
helgisögum, trúarviðhorfí Guð-
mundar Arasonar og Reykjahóla-
bók sem er síðasta helgisagnasafn
úr kaþólskri tíð á íslandi og fleira.
Ritstjórar Skáldskaparmála
eru Gísli Sigurðsson, Gunnar
Harðarson og Örnólfur Thors-
son. Ritið kostar kr. 2.980. Útgef-
andi er Stafaholt hf. en Mál og
menning annast dreifingu.
MENNING/LISTIR
Myndlist
Rýmisverk í Gall-
erí Sævars Karls
Katrín Sigurðardóttir sýnir rýmis-
verk í Gallerí Sævars Karls, Banka-
stræti 9, 2.-30. júlí 1993. Hún er
fædd 1967 og
stundaði nám
við Myndlistar-
og handíðaskóla
íslands í Nýli-
stadeild 1986-
1988 en lauk
síðan námi frá
San Francisco
Art Institute
1990.
Verkið sem
Katrín sýnir
samanstendur af teikningum og
þrykki, þróuðum út frá eigindum
mannslíkamans. Jafnframt eru í verk-
inu könnuð tengsl myndlistar við
hefðbundin innanhúss-skreyti.
Katrín hefur haldið tvær einkasýn-
ingar í Bandaríkjunum og tekið þátt
í hinum ýmsu samsýningum.
Sýningin er opin á verslunartíma,
á virkum dögum frá kl. 10-18.
Kjarvalssýning í Gall-
erí Borg
Sölusýning á Kjarvalsverkum opn-
ar í Gallerí Borg við Austurvöll í dag,
fimmtudaginn 1. júlí. Á sýningunni
eru um 20 olíumyndir og um 10 vatns-
litamynndir og teikningar. Fæstar
myndanna hafa verið sýndar hér á
landi áður, en sumar þeirra koma
erlendis frá. Allar myndirnar eru til
sölu.
Samtímis verður opnuð sölusýning
á verkum gömlu meistaranna í kjallar-
anum i Pósthússtræti 9. Þar eru t.d.
verk eftir Ásgrím Jónsson, Nínu
Tryggvadóttur, Júlíönu Sveinsdóttur,
Jóhann Briem, Gunnlaug Scheving,
Jón Stefánsson, Gunnlaug Blöndal,
Þorvald Skúlason, Kristínu Jónsdótt-
ur, Svavar Guðnason, Jón Þorleifsson,
Erró og Kristján Davíðsson.
Gallerí Borg er opið virka daga frá
kl. 12 til 18.
Nú ber vel
í veiði!
Tilboð! Þegar þú kaupir Cardinal Gold Max
hjól getur þú valið þér Abu
Garcia veiðivörur fyrir 2.000 kr. í kaupbæti.
Cardinal Gold Max er nú þegar metsöluhjól í
Evrópu og Bandaríkjunum. Það er smíðað fyrir
þá sem gera miklar kröfur til hönnunar, styrks
og endingar. Nú getur þú eignast þetta
vandaða hjól á einstöku verði.
Söluaðilar: Sportval-Kringlan Kringlunni 8-12 ■ Útilíf Glæsibæ
Versturröst Laugavegi 178 • Musik & sport Hafnarfiröi ■ Veiöibúö
Lalla Hafnarfriöi • Akrasport Akranesi ■ Kaupfélag Skagfiröinga
Sauöárkróki ■ KEA Akureyri • Kaupfélag Þingeyinga Húsavlk
Kaupfélag Héraösbúa Egilsstööum • Sportbær Selfossi
Stapafell Keflavík
HAFNARSTRÆTl 5 • REYKJAVÍK • SÍMAR 91-16760 & 91-14800