Morgunblaðið - 01.07.1993, Síða 30

Morgunblaðið - 01.07.1993, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993 Minning Ingólfur Páll Böðv- arsson — Minning Fæddur 27. janúar 1926 Dáinn 19. júní 1993 Er nokkuð betra eða verðmætara til en góðir vinir, sannir vinir? Það held ég ekki. En það er flókið mál að tala um vini sína, þættimir eru svo margir og fjölskrúðugir að fátt eitt verður sagt. Ég læt aðra um ættir og uppmna Ingólfs Böðvars- sonar enda ekki fróð þar um, en mannsins skal minnst. Þrjú hjól undir bflnum en áfram skröltir hann þó. Mér kemur þessi texti í hug þegar vinur minn og svili fer fyrstur undan fereykinu sem hefur látið eitt yfír sig ganga í rúmlega fjöratíu ár. Minningargrein? Já, víst er þetta minning en hún er ekki dapurleg, þvert á móti, hún er ljúf. Og hvemig ætti annað að vera? Þessi maður dæmdi engan, var orð- var og gætinn gagnvart öðram. Ég minnist þess ekki að þessi hægláti maður hafí nokkurn tíma hækkað róminn þótt æsingur hafi komið upp í umræðum um mál málanna. Eina undantekningin þar sem sveiflu gætti í rómnum var þegar meðspilari, en Ingólfur var mikill og góður bridsspilari, framdi það óhæfuverk að tapa spili sem stóð á borðinu á bridsmáli. Ég held að fátt hafi vakið honum meiri gremju og fengum við hin úr fereykinu þá að heyra það. Ingólfur er þekktur í bridsheimi Reykjavíkur og víst að margir munu sakna hans þar enda verðugur and- stæðingur og þægilegur meðspilari. Á gleðistundum þar sem söngur og góðar veigar stigu hátt sótti hann gjaman dragspilið og breyttist þá hægláti maðurinn í slíkan fjör- kálf að yndi var að. Hann var ótrúlega fljótur til svars þegar glens var á ferðinni og örlaði aldrei á illkvittni, enda var sú kennd ekki til í hans huga. Minningar okkar hjónanna af þessum góðvini okkar eru slíkar að þar ber hvergi skugga á. Við mun- um sakna hans mikið því að sam- gangurinn var slíkur að þar sem eitt fór var talið víst að hin fylgdu á eftir. Spilaboxin okkar fara í hvíld, en þau vora notuð vikulega nær allt árið og ferðalögin bæði innanlands og utan fara líka í hvfld. Svona er að missa eitt hjólið, nú verðum við hin að reyna að skrölta áfram. Hvenær næsta hjól fer veit enginn. Lífsmynstrið er sífellt að breyt- ast, ekkert varir að eilífu, raðir riðl- ast, skörð koma i hringa og það sem var ferhyrnt er orðið að þríhym- ingi, en ég hef þá trú að einhvem- tíma verði glatt á hjalla þegar öll hjól fara að snúast á nýjan leik. Við hjónin sendum kærri systur og mágkonu Sigríði Ottósdóttir, svo og bömum og öðram ættingjum, innilegar samúðarkveðjur, einnig okkur sjálfum. Guðjón og Dóra. Við fráfall vinar og félaga, Ingólfs Böðvarssonar, er okkur efst í huga þakklæti og tregi. Þakklæti fyrir það óeigingjama starf, sem hann vann fyrir klúbb- inn okkar, tregi yfír því, að hann skuli vera horfínn úr hópnum, þakklæti fyrir hans fölskvalausu vináttu. Ingólfur gekk í Krammaklúbb- inn við stofnun hans 26. janúar 1964 og var hann því einn af stofnfélögum. Ingólfur sýndi klúbbnum ætíð mikla tryggð og var einn virkasti félaginn öll árin, sem klúbburinn hefur starf- að. Saman fór hans aðaláhuga- mál, briddsinn, og félagsskapur- inn við tilgang Krammaklúbbs- ins. Sjálfur varð ég þess aðnjótandi að hafa hann fyrir spilafélaga í nokkram keppnum utan Kramma- klúbbsins og fann maður þá hversu umburðariyndur og skapgóður Ing- ólfur var. Vorferð klúbbsins var farin að venju og mætti Ingólfur í hana, þó sárþjáður væri, og var það síðasta samverustund okkar félaganna. Á kveðjustund stöndum við félagamir í Krammaklúbbnum allir í þakkar- skuld við Ingólf Böðvarsson. Um leið og honum era þökkuð fórnfús störf og ánægjulegur félagsskapur sendum við eiginkonu hans, Sig- ríði, börnum og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur á sorgar- stundu. Blessuð sé minning Ingólfs Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar gðngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér mepm, þér síðar fylgja í friðarskaut. (V.Briem) Mig langar með fáeinum setning- um að minnast elsku afa míns sem lést 19. þ.m. Afí var mér og öðram sérlega góður og studdi mig í einu og öllu, sem lýsir því best hve jákvæður og góður maður hann var. Mér er minnisstæðast hve hlýjar hendur hans vora og ávallt tilbúnar til að ylja litlum fíngum, en ég byijaði iðulega á því að hjúfra mig að hon- um þegar ég kom í heimsókn. Ég átti margar góðar stundir með afa sem ég varðveiti í hjarta mínu að eilífu því að hann virkilega sýndi hvað honum þótti vænt um mig. Elsku afí, guð geymi þig. Katla María Jónsdóttir. Vel metinn, vinsæll en umfram allt góður maður er nú fallinn frá. Vel metinn vegna vinnu sinnar, vin- sæll við græna borðið og elskaður af fjölskyldu sinni og vinum. Dauðastríðið var stutt en strangt og alvara málsins duldist fáum. Samt heyrðist engin uppgjöf af vöram þess sem þjáðist mest, við- kvæðið var alltaf: Ég hef það fínt. Það má segja að þessi afstaða hafí verið einkennandi fyrir Ingólf Böð- varsson. Hann var alltaf hress og kátur þegar maður hitti hann. Það var engin ástæða til annars, hann átti góða eiginkonu, Sigríði Ottós- dóttur (Sissu), fjögur mannvænleg böm, bamaböm, og bamabarna- börn og ekki síst tengdabömin fjög- ur, sem elskuðu hann ekki síður. Samstaða þeirra var áberandi. Það sást best þegar þau réðust í að byggja saman sumarbústað í landi Reynifells á Rangárvöllum, öll fjölskyldan undir styrkri stjóm Ingólfs. Þar leið honum vel, enda kunnugur þar fyrir austan frá fyrstu tíð, fæddist í Bolholti á Rang- árvöllum 27.1. 1926. Eftir að hann fluttist til Reykja- víkur nam hann bifvélavirkjun, en starfaði lengstum sem tjónaskoðun- armaður hjá Almennum trygging- um (síðar Sjóvá-Almennum), alveg þar til hann lét þar af störfum fyr- ir fáum vikum vegna veikinda. Tilefni þessara ófullkomnu minn- ingarskrifa minna er ekki að rekja æviferilinn nánar, heldur að minn- ast þess sem átti hug Ingólfs í hans frístundum. Það var bridsíþróttin. Þar var hann ávallt á heimavelli, slunginn og sókndjarfur þegar það átti við, en jafnan athugull og yfír- vegaður. Umfram allt var hann kurteis við spilaborðið og óspar á að benda þeim sem minna kunnu fyrir sér á það sem betur mátti fara og naut undirritaður þess oftar en einu sinni. (Það er annað mál hvort hinar þörfu ábendingar höfðu tilætluð áhrif!) Eins og nærri má geta var Ingólf- ur vinsæll spilafélagi alla tíð og hin síðari ár vora spilafélagarnir m.a. konan hans, hún Sissa, sonurinn Jón Steinar, mágur hans Guðjón Ottósson og vinur Bemharður Guð- mundssön auk annarra, t.d. félag- arnir úr Krammaklúbbnum þar sem Ingólfur spilaði um árabil. Allt þetta fólk minnist góðra stunda með Ing- ólfi við græna borðið. Og við hjá Bridsdeild Rangæinga drúpum höfði og minnumst þess hve mjög við nutum hans við stofn- un deildarinnar og allar götur síð- an. Það var aldrei mikið mál hjá Ingólfi að hjálpa til, hvort sem þurfti að stjórna spilamennsku eða að fá fólk til að koma og spila. Það sögðu fáir nei við Ingólf. Það þótti alltaf heldur betri keppni ef Ingólf- ur var meðal þátttakenda. Til að sýna Ingólfi að við mátum mikils hans ljúfa viðmót í okkar garð, efndum við til tvímennings- keppni fyrir síðustu áramót, þar sem keppt var um farandbikar til- einkaðan Ingólfí Böðvarssyni, „Ing- ólfsbikar". Eg veit fyrir víst, að þetta gladdi Ingólf, en þó miklu fremur urðum við ánægð hjá Brids- deildinni, að geta auðsýnt honum þakklæti okkar. Og nú er spilað í æðra veldi. Félagarnir sem áður hafa kvatt þessa jarðvist fagna góðum félaga. Hinir sem eftir era eiga dýrmætar minningar um ljúfan vin. Állir hafa misst, en mest þó þið, kæru vinir, Sissa, Jón Steinar og Berglind, Dóra og Svavar, Eddi og Svana, Gróa og Tryggvi og aðrir afkom- endur. Þeim og öðram aðstandend- um vil ég f.h. fjölskyldu minnar fyrir áratuga langa vináttu og f.h. Bridsdeildar Rangæinga votta mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Ingólfs Böð- varssonar. Loftur Pétursson. Hinn 19. júní sl. lést í Reykjavík Ingólfur Böðvarsson tjónaeftirlits- maður. Ingólfur var fæddur að Móeiðarhvolshjáleigu í Hvolshreppi hinn 27. janúar 1926 og var því rúmlega 67 ára gamall er hann lést. Hann var sonur hjónanna Gróu Bjamadóttur og Böðvars Böðvars- sonar og var einn fimm systkina. Ungur var hann settur í fóstur að Húsagarði í Landsveit til Steinunn- ar Gunnlaugsdóttur og Jóns Hánn- essonar og þar dvaldi hann til 14 ára aldurs er hann fluttist til Reykjavíkur. Ingólfur stundaði al- genga vinnu til sjós og lands en sjómennsku hætti hann árið 1949 og vann eftir það við bílaviðgerðir. Hann starfaði hjá Sverri Svendsen í Bílaiðjunni og síðar ráku þeir Sverrir ásamt Bjarna Guðbrands- syni eigið verkstæði við Höfðatún. Sverrir Svendsen réðst sem tjóna- eftirlitsmaður til Almennra trygg- inga hf. árið 1960 og sex árum síð- ar fylgdi Ingólfur í fótspor hans. Hjá Almennum og síðar Sjóvá- Almennum starfaði hann til dauða- dags eða í 27 ár. Ingólfur var afbragðs starfsmað- ur sem vann öll verk sín af trú- mennsku og heiðarleika. Starf tjónaeftirlitsmanns er oft erfitt því að hlutverk hans er að gæta hags- muna félagsins án þess að ganga á rétt þess sem eftir bótum leitar. Ingólfur var þeim eiginleikum gæddur að honum reyndist auðvelt að rata þann gullna meðalveg sem oft verður að þræða í slíkum mál- t ELÍN PÁLSDÓTTIR, Dalbraut 27, (áður Bárugötu 3), lést f Landspítalanum 17. júní sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðrún Benjamínsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, ÞÓRHALLUR BJÖRN SIGURJÓNSSON, Heiðarhrauní 30c, Grindavfk, sem lést 27. júní sl., verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laug- ardaginn 3. júlí kl. 14.00. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Aðalbjörg Þorvaldsdóttir. t Fósturmóðir mfn, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SIGRÍÐUR HJALTADÓTTIR, Hlégerði 1, Hnífsdal, sem lést f Fjórðungssjúkrahúsinu á l’safirði 24. júní, verður jarð- sungin frá Hnífsdalskapellu laugardaginn 3. júlí kl. 14.00. Hrafnhildur Samúelsdóttir, Jósef H. Vernharðsson, Guðrún Sigríður Jósefsdóttir, Ingibjörg Jósefsdóttir, Hermann Vernharður Jósefsson, Svava Rán Valgeirsdóttir, t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTVEIG KRISTVINSDÓTTIR (DÍDÍ), Miðtúni 2, Reykjavík, sem lést í Borgarspítalanum 26. júní, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju föstudaginn 2. júlí kl. 10.30. Björn Guðmundsson, Guðmundur Hlíðar Björnsson, Anna Hlín Guðmundsdóttir, Birna Björnsdóttir, Björn Karlsson, Stefanía Björnsdóttir, Jón Helgason, Haraldur Björnsson, Ingibjörg Gfsladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, bróðir, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR V. STEINSSON, Hólavegi 8 Sauðárkróki, sem lést á heimili sínu föstudaginn 25. júní, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 3. júlí kl. 14.00. Stefanía Jónsdóttir, Sigvaldi Steinsson, Sigmundur Guðmundsson, Amalfa Sigurðardóttir, Anna S. Guðmundsdóttir, Ragnarl.Tómasson, Jón Guðmundsson, Margrét Guðmundsdóttir, Björgvin Guðmundsson, Margrét Pétursdóttir, Guðmundur Ö. Guðmundsson, Erna Baldursdóttir, Steinn Guðmundsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Hólmfríður Guðmundsdóttir, Friðrik Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ERFIDRYKKJUR jf-v Verð frá kr. 850- P E R l A N sími620200 ERFIDRYKKJUR €)¥El BB©R« Sími 11440 Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð fedlegir salir og mjiig góð [ijónusUL Upplýsingar í sínia 2 23 22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.