Morgunblaðið - 01.07.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
TENNIS / WIMBLEDONMÓTIÐ
ft
Meistarinn úr leik
Pete Sampras sigraði landa sinn, Andre Agassi í átta manna
úrslitum. Boris Beckervann Michael Stich ílyrsta sinn á grasi
Sigurmark á
síðustu stundu
LEIFTUR færðist uppfyrir Blika á toppi 2. deildar þegar liðið sigr-
aði KA á heimavelli sínum í gærkvöldi 3:2. KA-menn voru tvö
eitt yfir er fimm mínútur voru eftir, en tvö mörk Leiftursmanna
undir lokin tryggðu þeim sigurinn.
Fyrri hálfleikur var fjörugur og
fengu bæði lið sín færi. Leift-
ursmenn voru þó heldur grimmari
í að skapa sér færi,
Benjamin en mikil barátt? var
Jósefsson í KA-mönnum. I síð-
skrifarfrá ari hálfleik harðnaði
Ólafsfirði leikurinn, Leifturs-
menn héldu áfram að skapa sér
færi og skoruðu fyrsta markið á
68. mínútu. Þar var að verki Gunn-
ar Már Másson með skalla eftir
hornspyrnu. Á 82. mínútu jafnaði
Halldór Kristinsson með skalla og
þremur mínútum síðar kom ívar
Bjarklind KA yfir eftir sendingu
Ormarrs Örlygssonar.
En Leiftursmenn voru ekki á því
að gefast upp. Á 88. mínútu tók
Páll Guðmundsson hornspymu inn
í teig þar sem Pétur Björn Jónsson
skallaði í markið. Sigurmarkið kom
mínútu síðar, Leiftursmenn skutu í
varnarmenn KA, þaðan hrökk bolt-
inn til Páls Guðmundssonar sem
skoraði. Hálfri mínútu síðar fékk
hann aftur dauðafæri en brást
bogalistin í það skiptið.
KA-menn börðust vel í leiknum
og áttu góða möguleika á sigri, en
Leiftursmenn rifu sig upp í restiria
og hirtu öll stigin. Einar Einarsson,
Gunnar Már Másson og Páll Guð-
mundsson voru bestir Leifturs-
manna en ívar Bjarklind og Ormarr
Örlygsson stóðu upp úr liði KA.
Reuter
Virding
ANDRE Agassi og Pete Sampras
hneigja sig fyrir hinum konungbornu
eftir leikinn í átta manna úrslitum.
Agassi tapaði fyrir Sampras í fimm
hrinu leik og nær því ekki að veija
titil sinn, en Boris Becker vann Mich-
ael Stich, einnig í fimm hrinu leik, en
Stich hafði til þessa alltaf unnið gras-
viðureignir þeirra.
ÚRSLIT
KR-Valur
KR-völiur, íslandsmótið í knattspymu, 1.
deild — 7. umferð, miðvikdaginn 30. júní
1993.
Aðstæður: Blautur völlur og háll, smá gjóla
og heldur kalt.
Mörk KR: Tómas Ingi Tómasson (19.),
Ómar Bendtsen (82.)
Gult spjald: Ómar Bendtsen (54.), Einar
Þór Daníelsson (61.), Þormóður Egilsson
(82.), allir KR, Þórður B. Bogason (67.) og
Jón S. Helgason (81.), báðir Val - allir fyr-
ir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Gylfi Orrason. Frábær; besti mað-
ur vallarins.
Línuverðir: Gunnar Ingvarsson og Gfsli
Björgvinsson.
Áhorfendur: 1.414.
KR: Ólafur Gottskálksson - Atli Eðvalds-
son, Þormóður Egilsson, Izudin Daði Dervic
- Bjarki Pétursson (Steinar Ingimundarson
75.), Gunnar Skúlason, Heimir Guðjónsson,
Rúnar Kristinsson, Einar Þór Daníelsson -
Ómar Bendtsen, Tómas Ingi Tómasson.
Valur: Bjami Sigurðsson - Jón Grétar Jóns-
son, Steinar Adolfsson, Jón S. Helgason -
Sigurbjöm Hreiðarsson, Sævar Jónsson,
Ágúst Gylfason, Hörður Már Magnússon,
Kristinn Lárasson (Þórður Birgir Bogason
62.) - Gunnar Gunnarsson (Amljótur Dav-
íðsson 69.), Antony Karl Gregory.
PP
Bjami Sigurðsson, Val.
m
Ólafur Gottskálksson, Þormóður Egilsson,
Atli Eðvaldsson, Einar Daníelsson, Tómas
Ingi Tómasson, Ómar Bendtsen, KR. Sævar
Jónsson, Val.
WIMBLEDONMEISTARINN íeinliðaleik karla frá þvi ífyrra mun
ekki verja titilinn íár; með öðrum orðum, hinn bandarfski Andre
Agassi tapaði í átta manna úrslitum fyrir landa sínum Pete Samp-
ras, í spennandi fimm hrinu leik. Boris Becker bar sigurorð af
landa sínum Michael Stich, einnig ífimm hrinu leik, en Sampras
og Becker munu mætast í undanúrslitunum á morgun. Stefan
Edberg sigraði andstæðing sinn Cedric Pioline auðveldlega og
sömu sögu er að segja af Jim Courier sem lék gegn Todd Mart-
in. Báðir sigruðu þeir 3:0 og mætast í hinum undanúrslitaleiknum.
Feðgar á toppnum
FEÐGARNIR Pétur Marteinsson leikmaður með Leiftri og Marteinn Geirsson
þjálfari félagsins eru nú á toppnum í annarri deild.
Stich var yfir eftir þijár hrinur,
1:2, en Becker vann tvær síðustu
hrinumar 6-2 og 6-4 og tryggði sér
þar með sæti í undanúrslitunum.
Sigur Becker á Stich var söguleg-
ur, því þótt ótrúlegt megi virðast
hefur Becker aldrei sigrað hann
áður á grasvelli. Stich sigraði t.a.m.
Becker í úrslitaleiknum á Wimble-
don fyrir tveimur árum. „Ég var
ekki að leita hefnda. Það er fyrir
fólk sem hatar og ég hata engan,“
sagði Becker eftir leikinn. „Þetta
er örugglega besti leikurinn minn
til þessa á Wimbledon, að minnsta
kosti sá lengsti. Hann vann mig
fyrir tveimur árum svo þetta var
nokkuð taugatrekkjandi,“ sagði
Becker. Stich sagði að þeir hefðu
líklega báðir leikið vel. „Hann [Bec-
ker] einbeitti sér mjög að því sem
hann var að gera. I úrslitunum
1991 var hann alltaf að öskra á
sjálfan sig. í dag sagði hann ekki
orð,“ sagði Stich.
Ómögulegt að spá
Ómögulegt er að segja til um
hvort Sampras eða Becker fari í
úrslitin, Sampras er efstur á heims-
listanum og á styrkleikalista móts-
ins og ætti samkvæmt því að vinna
Becker, sem aðeins er í fjórða sæti
á styrkleikalistanum. Becker hins
vegar virðist í ágætu formi og er
sérfræðingur á grasinu, og meiðslin
sem hafa verið að hijá Sampras
setja án efa strik í reikninginn.
Stefan Edberg, sem er númer tvö
á styrkleikalistanum, er líklegri en
andstæðingur hans Jim Courier til
að sigra í viðureign þeirra, þó eng-
in skyldi afskrifa Courier.
Agassi byijaði ákaflega illa á
móti Sampras, og tapaði
fyrstu hrinunum tveimur 6-2 og
6-2. Hann tók sig hins vegar á í
næstu tveimur hrinum og vann þær
3-6 og 3-6 en tapaði úrslitahrinunni
6-4. Báðir hafa átt við meiðsli að
stríða og áttu þau án efa sinn þátt
í slökum köflum beggja í leiknum.
Sampras meiddist reyndar í leiknum
og þurfti að leita aðhlynningar hjá
þjálfara sínum um stund, en náði
samt sigri. Agassi var ekki ánægð-
ur með frammistöðu sína og sagði
hana langt fyrir neðan það sem
hann hefði sýnt undanfarin ár. „Ég
er alls ekki ánægður með leik minn
í fyrstu tveimur hrinunum. Það
gekk allt illa, ég var mjög ragur.“
En Agassi sagðist ekki vera að
öllu leyti óánægður. „Þetta hefði
verið miklu verra hefði ég tapað
þriðju hrinunni jafn illa og tveimur
fyrstu. Hann [Sampras] hins vegar
náði upp það góðum leik á réttum
tíma að ég átti ekkert svar. Það
er málið og auðvelt að viðurkenna
það,“ sagði Agassi.
Rafmögnuð spenna
Hinn toppleikurinn, leikur Þjóð-
veijanna Beckers og Stich, var jafn-
vel enn meira spennandi en leikur
Barbara Strelsand flaug sérstak-
lega til London til að fylgjast með
vini sínum Agassi. Ekki er enn komið
á hreint hvers kyns form af vináttu
er á milli þeirra Streisand, sem er 51
árs gömul, og hins unga Agassi.
Bandaríkjamannanna. Becker, sem
þrisvar hefur unnið á Wimbledon
og fimm sinnum leikið til úrslita á
síðustu sex árum, þurfti á allri sinni
reynslu að halda til að sigra Stich,
í ótrúlegum baráttu- og tauga-
trekkjandi leik sem stóð í fjórar
klukkustundir og fjórtán mínútur.
KNATTSPYRNA
Húsrannsókn hjá Marseille
ÓVÆNT húsrannsókn var framkvæmd í höfuðstöðvum franska
knattspyrnufélagsins Marseille ígær af lögreglu og var hún
í sjö klukkustundir að fara í gegnum ýmis skjöl sem varpað
gætu Ijósi á þær ásakanir sem félagið hefur verið borið varð-
andi mútugreiðslur. Lögreglan hafði á brott með sér nokkur
skjöl, en eftir á að koma i ijós hvor þau skýri málið eitthvað.
Jorge Burruchaga, leikmaður
með Valenciennes, kom frá
Argentfnu í gær til Parísar, en
hann er einn af þremur leikmönn-
um félagsins sem halda því fram
að Marseille hafi boðið sér greiðsl-
ur fyrir að sjá til að Marseille sigr-
aði í leik iiðanna í frönsku deilda-
keppninni í vor. Leikmennimir
segja að Jean-Jacques Eydelie,
miðvallarleikmaður hjá Marseille,
hafi ásamt stjórnarformanni Mar-
seille boðið þeim fé fyrir að tapa
leiknum. Eydelie er enn í varða-
haldi í Vaienciennes þar sem hann
er yfirheyrður um þátt sinn í
málinu.
Silvio Berlusconi, forseti ítalska
knattspymufélagsins AC Milan,
sem tapaði fyrir Marseille f úr-
slitaleik Evrópukeppni meistara-
liða í vor með einu marki gegn
engu, sagði að ef þetta mál leiddi
til þess að bikarinn yrði tekinn
af Marseille, myndu þeir aldrei
samþykkja að taka við honum,
heldur fara fram á að nýr úrslita-
leikur færi fram, milli þeirra og
Glasgow Rangers, sem tapaði fyr-
ir Marseille í undanúrslitum
keppninnar.
2. DEILD KARLA
ÍR - UBK .....................0: 1
TINDASTÓLL- STJARNAN .........3: 5
LEIRUR- KA....................3:2
ÞRÓTTURN,- GRINDAVfK .........2: 1
Bi- ÞRÓTTUR R.................2: 2
Fj. leíkja u J T Mörk Stig
LEiFTUR 7 5 1 1 18: 9 16
UBK 7 5 1 1 11:2 16
STJARNAN 7 4 2 1 15: 8 14
ÍR 7 3 1 3 12: 12 10
GRINDAVÍK 7 3 1 3 8: 9 10
ÞRÓTTURN. 7 3 1 3 10:16 10
ÞRÓTTURR. 7 2 3 2 10: 11 9
TINDASTÓLL 7 1 2 4 13: 17 5
KA 7 1 1 5 8: 14 4
Bí 7 0 3 4 6: 13 3