Morgunblaðið - 14.07.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
Sala á úthafskarfa til Japans hefur margfaldast
Forstjóri ÁTVR áætlar um 10% af áfengisneyslu vera brugg
Skilar 800 milljónum til
ríkisins ef keypt í ÁTVR
^ Morgunblaðið/J6n Stefánsson
A slysstað
SJÚKRALIÐAR hlúa að drengnum um borð í hraðbátnum
Lenti í skrúfu á báti
og slasaðist alvarlega
NÍU ára gamall drengur slasaðist alvarlega í gær þegar hann féll
útbyrðis af hraðbáti við mynni smábátahafnarinnar í Kópavogi og
lenti í skrúfu bátsins. Drengurinn náðist fljótt úr sjónum og var flutt-
ur á slysadeild Borgarspítala.
Slysið varð þegar hraðbátur frá
siglingaklúbbnum Ými í Kópavogi
tók krappa beygju við minni smá-
bátahafnarinnar þar, laust fyrir
hádegi í gær.
Alvarlegir áverkar
Drengurinn féll þá útbyrðis, fór
undir bátinn og lenti í skrúfunni.
Hann náðist fljótt úr sjónum og var
þegar siglt með hann í land. Lög-
regla og sjúkralið var kallað til og
drengurinn fluttur á slysadeild
Borgarspítala. Hann reyndist hafa
hlotið alvarlega áverka á höfði og
mjaðmagrind.
HÖSKULDUR Jónsson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins, segist telja að milli 9 og 10% af því áfengi sem neytt sé í land-
inu, talið í hreinum vínanda, sé framleitt í bruggverksmiðjum. Hann
segir að ef þetta áfengismagn væri keypt í verslunum ÁTVR væru
líkur á að tekjur rikisins ykjust um 800 til 900 milljónir króna.
Hann segir þó ólíklegt að þessi eftirspurn kæmi öll fram hjá Áfeng-
is- og tóbaksverslun ríkisins.
„Ef öll þessi eftirspum kæmi uninni gæti verið um að ræða fjár-
fram hjá Áfengis- og tóbaksversl- hæð upp á 800 til 900 milljónir
Afkastamikil brugg’-
tæki gerð upptæk
Selfossi.
AFKASTAMIKIL bruggtæki voru gerð upptæk á bæ í Austur-Eyja-
fjallahreppi um hádegisbilið í gær. Tveir menn um þrítugt voru
handteknir og játuðu að hafa starfrækt bruggverksmiðju í útihúsi
frá áramótum.
Auk tækjanna, sem voru fullkomin
til brugggerðar, tók lögreglan nokk-
uð af bruggefnum og ílátum. Um
var að ræða fjórar 200 lítra tunnur
og suðutæki. Tækin voru tóm þegar
lögreglan tók þau en bruggaramir
viðurkenndu að hafa framleitt úr
2.400 lítrum frá áramótum.
Það voru lögreglumenn úr Breið-
holtslögreglunni sem fóru á staðinn
ásamt lögreglumönnum frá Hvols-
velli. Mennimir sem voru handteknir
voru færðir á lögreglustöðina á
Hvolsvelli og yfírheyrðir þar.
Sig. Jóns.
króna. Það má hins vegar gefa sér
að eftirspurnin myndi ekki birtast
hjá okkur í þessum mæli," segir
Höskuldur. „Þetta áfengi er í fyrsta
lagi selt á mun lægra verði en
áfengi í ÁTVR og er þar að auki
selt til fólks með mjög takmörkuð
Qárráð, unglinga og jafnvel bama.
.Það em viðskiptavinir sem væntan-
lega kæmu ekki til okkar. Reyndar
er sú hlið á þessu máli jafnvel alvar-
legri en tekjutapið," segir hann.
Höskuldur segist ekki vita hvort
umrætt áfengi sé selt í veitingahús-
um. „Ég hef enga möguleika á að
meta það raunhæft hvort svo sé en
í ársskýrslu Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins fyrir árið 1992
kemur fram að hlutfall af heildar-
sölu áfengis hefur farið lækkandi
undanfarin ár þrátt fyrir gríðarlega
fjölgun veitingastaða," segir Hös-
kuldur.
Skoða þarf lögin
Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð-
herra, segist telja að dómar í bmgg-
málum séu í samræmi við giidandi
lög um þessi efni. Hann segir á
hinn bóginn að skoða þurfi hvort
breyta beri lögunum séu refsingar
taldar of vægar.
Morgunblaöið/bigurður Jónsson.
Tækin könnuð
GOLS Jóhannsson lögreglumaður kannar tækjabúnað bruggaranna.
Verðbreytingar
v. genglslækkunarinnar
ilHHlili
íIXííÍíSE
Verðtð Verðið hækkar
Egils varkr. ernúkr. um
malt
í flösku 80 85 6,3%
Maltöl hækk-
ar um 5 kr.
MALTÖL í flösku frá Agli Skalla-
grímssyni, sem úr verslun kostaði
áður 80 krónur, kostar nú 85 krónur
og samsvarar það um 6,3% hækkun.
Það verð felur ekki í sér flöskuna,
en hún kostar 15 krónur.
fttgy&iiroMafrifr
í dag
Jóhanna situr hjá___________
Jóhanna Sigurðardóttir segist
styðja tillögu um að Alþýðuflokks-
konur sitji hjá í varaformannskjör-
inu 23
Evrópumótin ________________
/ dag verða dregin saman lið í
fyrstu umferð Evrópumótanna í
knattspymu 43
Skipulag endurskoðað________
Drög að deiliskipulagi fyrir Laug-
amesið verða endurskoðuð 23
Leiöari_____________________
Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar
22
Verðið hefur fallið
um 22% frá í apríl
SALA á úthafskarfa frá íslandi til Japans hefur margfald-
ast á þessu ári miðað við árið í fyrra. Sökum þessa, og
mikils framboðs frá öðrum þjóðum, hefur verðið á karfan-
um fallið um 22% frá því í apríl. Helgi Þórhallsson forstöðu-
maður söluskrifstofu SH í Japan segir að birgðir séu farn-
ar að safnast upp og hætta á offramboði á markaðinum.
Sem dæmi um aukna sölu út-
hafskarfans í Japan segir Helgi
að allt árið í fyrra hafi skrifstofan
selt um 300 tonn af karfanum en
það sem af er þessu ári nemi salan
um 2.000 tonnum. „Þegar vertíðin
á úthafskarfanum hófst í ár var
verð hans um 230 jen á kílóið en
er nú fallið í 180 jen eða um 22%,“
segir Helgi. „Á móti þessu hefur
vegið hagstæð gengisþróun jens-
ins gagnvart krónunni. Fyrr í ár
gátum við selt allt jafnóðum en
nú er svo komið að birgðir eru að
byija að safnast og hætta á of-
framboði. Ef það gerist eru allar
líkur á að verð falli enn frekar.“
Úr verinu
► Mjög góð aflabrögð frá
Reykjanesi - Barentshafið fullt
af þorski og öðrum fiski - sóknar-
færi í sútun fiskroðs
sett upp á Þórshöfn
Myndosögur
► Drátthagi blýanturinn -
Myndir ungra listamanna -
Brandarar - Skemmtilegar
Flæðilína þrautir - Pennavinir - Leikhorn-
ið - Perluhænan - Vatnsúr
Markaðurinn I lægð
Aðspurður um fiskmarkaðinn í
Japan í heild segir Helgi að árið
í ár sé erfitt efnahagslega í Japan
og verð á afurðum því lækkað frá
í fyrra. Hins vegar sé enn hag-
stætt fyrir íslendinga að selja
þangað þar sem jenið hafí hækkað
um 40% á móti krónunni frá í
fyrra. „Þetta ástand hefur mikil
áhrif á fiskverð því dregið hefur
úr neyslu einkum á dýrari tegund-
um,“ segir Helgi. „Verð á flestum
tegundum hefur lækkað mjög mik-
ið og sem dæmi má taka lax sem
Japanir borða um 300.000 tonn
af á ári. Verð á rauðum bandarísk-
um laxi sem er í hæsta verðfiokki
og gjaman er tekið mið af við að
meta stöðu markaðarins hefur
þannig fallið úr 1.100 jenum kílóið
niður í 600 jen á einu ári.“
Hvað varðar íslenska fiskinn
hefur verð á honum lækkað um
10-11% frá því í fyrra. Þannig
hefur meðalstór karfi lækkað úr
480 jenum niður í 430 jen kílóið
og grálúðan úr 440 jenum niður
í 390 jen.
Veður fer hlýnandi
HUNDADAGAR byrjuðu í gær, 13. júlí, en sagt hefur verið að
jafnan breyti um veður með þeim, þannig að ef þurrt er á undan
hundadögum verður votviðri þegar þeir ganga í garð og öfugt.
Samkvæmt nútímalegri spám Veðurstofu Islands er gert ráð fyr-
ir að nú taki loksins að hlýna fyrir norðan en nokkuð fór hlýnandi
í gær. Um næstu helgi er gert ráð fyrir austlægum áttum og þá
hlýnar um allt land. Gert er ráð fyrir sólríku veðri á Vestur-
landi, Vestfjörðum og inn til landsins á Norðurlandi.
Einar Sveinbjömsson veður-
fræðingur hjá Veðurstofu íslands
sagði að einhverrar úrkomu væri
að vænta á fimmtudag, föstudag
og laugardag á Suð-austurlandi
og við austurströndina, en víðast
annars* staðar yrði þurrt. Gert er
ráð fyrir skýjuðu á Suðurlandi og
að e.t.v. verði einhveijar skúra-
leiðingar eða síðdegisskúrir fram
á föstudag.
„í sumar hefur sáralítið verið
af lægðum sem koma upp að
Suð-vesturströndinni sem bera
með sér hlýtt loft úr suðri með
15-20 stiga hita fyrir norðan og
vætutíð fyrir sunnan, en slíkar
lægðir eru einmitt nokkuð algeng-
ar að sumri til.
Ekki óyggjandi hlýindi fyrir
norðan
„Það sem við erum að fá núna
er hlýtt loft austur undan sem
berst til okkar með kyrrstæðri
lægð sem verður skammt fyrir
sunnan Iandið. Það er því ekki
kominn sú staðan sem gefur hvað
besta veðrið fyrir norðan og engin
teikn eru um að lægðimár ætli
að taka þá stefnu að vera fyrir
vestan land en ekki fyrir sunnan
og austan," sagði Einar.