Morgunblaðið - 14.07.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
Óbreytt afstaða hjá Þorsteini Pálssyni sjávarátvegsráðheira
Leyfir ekki háhyminga-
veiðar fyrir dýragarða
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segir sína afstöðu óbreytta
gagnvart háhyrningaveiðum til að selja í dýragarða. Hann leyfir ekki
slíkar veiðar. Nú liggja fyrir tvær slíkar umsóknir í hans ráðuneyti.
í gær sendi Samband dýravemd-
arfélaga íslands Þorsteini Pálsyni
sjávarútvegsráðherra bréf. í tilskrifi
samtakanna er sagt, að það sé orðinn
árviss viðburður, að innlendir og er-
lendir aðilar sæki um leyfi til háhym-
ingaveiða í þeim tilgangi að selja
dýrin í erlenda dýragarða. í bréfí
Sambands dýravemdarfélaga kemur
fram að samkvæmt símtali við Jón
B. Jónasson skrifstofustjóra í sjávar-
útvegsráðuneytinu liggi tvær um-
sóknir fyrir í ráðuneytinu.
Vísað til fordæma
Samband dýravemdarfélaga Is-
lands kveðst treysta því eindregið
að öllum umsóknum til veiða á há-
hymingum verði hafnað með þeim
sömu rökum og umsókn var hafnað
árið 1991.
í byijun október 1991 tók Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
þá ákvörðun að hafna umsókn frá
félaginu Fánu í Hafnarfirði um leyfi
til að veiða fjóra háhyminga til sölu
í dýragarða erlendis. Sjávarútvegs-
ráðherra tók þá afstöðu að þetta
mál væri dýravemdarmál. Sjávarút-
vegsráðherra sagði í Morgunblaðinu
5. október 1991: „Við teljum að þetta
tiltekna mál lúti ekki hvalveiðimálum
sem slíkum, heldur dýravemdarmál-
um og sendum því þetta erindi til
umhverfisráðuneytis til umsagnar.
Umsögn þess ráðuneytis var neikvæð
og því var ákveðið að hafna þessari
beiðni. Það væri alveg óhætt að taka
þessa hvali úr stofninum, en málið
snýst bara ekki um það í þessu til-
viki.“
Óbreytt afstaða
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði í samtali við Morgun-
blaðíð í gær að hann hefði fljótlega
eftir að hann hefði komið í ráðuneyt-
ið tekið þá afstöðu að leyfa ekki
veiðar fyrir dýragarða og sú afstaða
væri óbreytt.
Jón B. Jónasson skrifstofustjóri í
sjávarútvegráðuneyti staðfesti að
tveir aðilar hefðu sótt um leyfi til
háhymingaveiða. Jón sagði að leyfí
til háhymingaveiða til flutnings í
dýragarða erlendis hefðu ekkpverið
veitt síðan 1987. Á undanfömum
ámm hefðu nokkrar umsóknir borist
en þeim jafnan verið hafnað.
Rúnar Brynjólfsson stjómarmaður
í Fánu sagði Morgunblaðinu að það
væri venjan að sækja'um leyfi til
veiða á 3-4 háhymingum. Rúnar
varð að greina Morgunblaðinu frá
því að hann hefði ekki miklar vonir
um jákvæðar undirtektir.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að isl. tíma
hitl veóur
Akureyri 10 léttskýjað
Reykjavík 10 skýjað
BJörgvin 11 súld
Helslnki 19 skýjað
Kaupmannahöfn 14 rigning
Narssarssuaq 13 léttskýjað
Nuuk 7 þoka
Ósló 18 akýjað
Stokkhólmur 18 rígning
Þórshöfn 8 alskýjað
Algarve 27 heiðskírt
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 22 hálfskýjað
Berlín 11 skúr
Chicago 26 alskýjað
Feneyjar 21 léttskýjað
Frankfurt 18 skýjað
Glasgow 17 rígning
Hamborg 16 léttskýjað
London 15 rigning
LosAngeles 24 skýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Madrid 32 . heiðskfrt
Malaga 26 heiðskírt
Mallorca 24 iéttskýjað
Montreal 24 hálfskýjað
NewYork 31 léttskýjað
Orlando 33 skýjað
París 16 rigning
Madeira 21 léttskýjað
Róm 22 skýjað
Vín 15 skýjað
Washington 36 mistur
Winnipeg 17 skýjað
Morgunblaðið/Reynir Ragnarsson
Furðuský yfir Mýrdalnum
UM SÍÐUSTU helgi hefur verið bjart og gott veður í Vík og nánast
logn. Þó hefur verið stutt í vindinn, því beggja vegna Mýrdalsjökuls
hefur verið hvasst á norðvestan. Til dæmis vom 7-9 vindstig í Vest-
mannaeyjum og Mýrdalssandur hefur lokast öðm hvetju um helgina
vegna sandfoks. Getum við þakkað Mýrdalsjökli og þá Kötlu gömlu það
skjól sem jökullinn veitir í norðlægum áttum.
Við veðurlag eins og verið hefur um helgina myndast oft sérkennileg
fjallabylgjuský yfir jöklinum og suður af honum, stundum eins og kyrr-
stæðir fljúgandi diskar eða furðuhlutir.
Undirritaður var aðeins með polaroid-myndavél nærri þegar þessi risa-
stóri fljúgandi hringur hékk yfir Mýrdalnum á föstudagskvöldið.
- R.R.
Deiliskipulag samþykkt að Fossvogsdal
Yfirvöld gera ekki
upp á milli tillagna
BORGARRÁÐ hefur samþykkt samhljóða tillögu skipulagsnefndar
að deiliskipulagi í Fossvogsdal og getur fyrir sitt leyti bæði fallist
á tillögu A og B. í tillögu A er gert ráð fyrir 9 holu golfvelli með
stígum og trjágróðri í dalnum en í tillögu B er lögð áhersla á opið
svæði með stígum, trjágróðri og Ijörn.
Gert er ráð fyrir að áfram verði
unnið að deiliskipulagi í dalnum í
samráði við sameiginleg skipulags-
drög Borgarskipulags og Bæjar-
skipulags Kópavogs. Fram kemur
að báðar tillögumar samræmast
markmiðum um fjölbreytt útivistar-
svæði í dalnum en áhersla er lögð
á að í skipulagsvinnunni verði tekið
fullt tillit til staðfests skipulags
sveitarfélaganna varðandi Foss-
vogsbraut.
Vilja ekki golfvöll
í bókun minnihlutans í borgar-
ráði segir, að loks hafi náðst sam-
komulag milli Kópavogs og Reykja-
víkur um skipulag í Fossvogsdal og
endanlega fallið frá lagningu Foss-
vogsbrautar eftir dalnum. „Hins
vegar erum við hlynntari tillögu B
en tillögu sem gerir ráð fyrir golf-
velli, þar sem tillaga B fellur betur
að þörfum almenningsútivistar."
Morgunblaðið/Ingvar
Þvrlan lent
ÞYRLAN lent við Borgarspitalann með slösuðu konuna.
Kona slasaðist er hún
féll af baki í reiðtúr
KONA féll af hestbaki við Hítarvatn í Hítardal eftir hádegi í gær
og mjaðmagrindarbrotnaði. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konuna
og kom með hana á Borgarspítala um kl. 16.30. Líðan hennar er
eftir atvikum.
Konan var í reiðtúr ásamt nokkr-
um öðrum uiphverfís Hítarvatn.
Hún féll af baki og reyndist
mjaðmagrindar- og úlnliðsbrotin.
Ekki bílfært
Einn úr hópnum fór niður að
bænum Hítardal og hafði samband
við lögregluna í Borgamesi. Ekki
er fært að slysstaðnum á bíl og var
þyrla Landhelgisgæslunnár þegar
kölluð til. Þyrlan var á eftirlitsflugi
yfir Breiðafirði tiltölulega skammt
frá og sótti konuna. Komið var með
hana að Borgarspítalanum um kl.
16.30.