Morgunblaðið - 14.07.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 1993
5
Tilraun gerð til að hemja lúpínu í þjóðgarðinum í Skaftafelli
Tilætlaður árangur
FYRSTU helgina í júlí voru 16 sjálfboðaliðar í þjóðgarðinum í Skafta-
felli við að klippa lúpínu. Það var framhald af tilraun, sem hófst í
fyrra og bar þá tilætlaðan árangur að sögn Stefáns Benediktssonar
þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli. Stefán segir að menn geri því skóna að
nauðsynlegt sé að halda aftur af lúpínunni eigi þjóðgarðurinn að öðl-
ast evrópska viðurkenningu sem þjóðgarður. Sú viðurkenning gerir
strangar kröfur til þess að i garðinum sé einungis náttúrulegur gróð-
ur, sem lúpínan er ekki.
Þeir sem unnu að heftun út-
breiðslu lúpínunnar voru allt Islend-
ingar, en í Skaftafelli verða einnig í
sumar eins og mörg undanfarin ár
enskir sjálfboðaliðar að leggja stíga
í þjóðgarðinum. I júní voru í Skafta-
felli tveir slíkir tólf manna hópar, sem
hvor um sig voru í tvær vikur og
gáfu um 120 vinnudaga.
Tímasetning mikilvæg
Til að drepa lúpínuna verður að
klippa hana á ákveðnum tíma rétt
áður en hún lætur frá sér fræin því
þá hefur hún ekki nægan forða í
rótinni til að vaxa aftur næsta sum-
ar. Stefán segir að lúpínan sé frek
við náttúrulegan gróður í þjóðgarð-
inum eins og t.d. eyrarrós og bauna-
gras, sem séu fallegar íslenskar
plöntur í íslensku umhverfi. Núna
sé aðeins reynt að halda aftur af
lúpínunni en ekki útrýma henni.
Stefán segir að lúpínunni hafi ver-
ið sáð á afmörkuðu svæði innan þjóð-
garðsins á sjötta áratugnum til að
koma í veg fyrir uppblástur. Hún
hafi þjónað þeim tilgangi vel og geri
enn. Hann segir að lúpínan hafi hald-
ist á þessu svæði innan girðingar
þangað til beit var létt af garðinum
fyrir utan girðinguna á áttunda ára-
tugnum. Síðan þá hafi engar hömiur
verið á útbreiðslu hennar en lúpína
er jurt, sem breiðist mjög hratt út.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vandamál með lúpínu
í ÞJÓÐGARÐINUM í Skaftafelli stendur nú yfir framhald af til-
raun, sem hófst i fyrra, til að halda aftur af útbreiðslu lúpínu.
Stakkafell
hf. átti
lægsta boð
STAKKAFELL hf. á Patreksfirði
átti lægsta tilboð í vegafram-
kvæmdir í Skápadal á Vestfjörð-
um en Vegagerð ríkisins bauð
þar út lagningu 1,3 km kafla á
Órlygshafnarvegi. Tilboð
Stakkafells var 6.070.000 krónur
eða 90% af kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun var 6.758.500
kr. Alls buðu sex fyrirtæki í verkið.
Næstlægsta tilboð átti Borgar Þór-
isson, Patreksfírði, 6.697.349 kr.
♦ ♦ ♦
Nýir full-
trúar ráðn-
ir til RLR
EINAR Baldvin Stefánsson, lög-
fræðingur, hefur verið skipaður
fulltrúi hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins. Þá hefur Sigríður Frið-
jónsdóttir, lögfræðingur, verið
ráðin fulltrúi til næstu áramóta.
Einar Baldvin og Sigríður luku
bæði námi frá lagadeild Háskóla
íslands árið 1986. Einar stundaði
framhaldsnám erlendis um tíma að
loknu námi hér. Hann hefur síðan
starfað hjá Landsbanka íslands og
Seðlabanka.
Sigríður Friðjónsdóttir hefur
lengst af starfað sem fulltrúi hjá
sýslumanninum á Sauðárkróki en
hefur undanfarið starfað á lög-
mannsstofu í Reykjavík.
------♦ ♦ ♦-----
Pilturinn
allsgáður
UMFERÐARSLYS varð hinn 26.
júní síðastliðinn rétt sunnan við
Straumsvík, er Trabant-bifreið
rakst utan í aðra bifreið og valt.
Ökumaður Trabantsins slasaðist
talsvert, en grunur lá á að hann
hefði verið undir áhrifum áfengis.
Nú hefur blóðprufa komið úr rann-
sókn og sýnir hún að pilturinn var
allsgáður.
Bjöm Stefáns-
son lægstur
BJÖRN Stefánsson, Höfn, var
með lægsta boð í lagningu 6,6
km kafla á Austurlandsvegi í
Lóni, 15.197.700 krónur sem er
61% af kostnaðaráætlun. Sex
verktakar buðu í verkið.
Kostnaðaráætlun Vegagerðar rík-
isins var 24.820.000 kr. Næstlægsta
boð áttu Fjarðarnesbræður sf.
Síðast voru
46S80.000kr.
í ti/öföldum
er
tvöfaldur
aftur!
vtte®