Morgunblaðið - 14.07.1993, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 14.07.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 7 Ágreiningur kom upp í borgarráði um Bústaðaveginn Fallið frá breikkun BORGARRÁÐ hefur samþykkt með þremur atkvæðum full- trúa Sjálfstæðisflokksins gegn tveimur atkvæðum minnihlut- ans að falla frá breikkun Bústaðavegar frá Háaleitisbraut að Sogavegi. Fulltrúar minnihlutans, Sigrún dóttir og Ólína Þorvarðardóttir, Magnúsdóttir, Guðrún Ögmunds- lögðu fram sameiginlega bókun Nýr leikvöllur við Bogahlíð BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu að leikvelli á auðu svæði við Boga- hlíð 1. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður skipulagsnefndar segir að íbúar hafi óskað eftir þessum velli og er gert ráð fyrir spark- og körfu- boltavelli á svæðinu. Framkvæmdir munu hefjast í sumar. vegaríns og vísuðu til bókunar Guðrúnar Jónsdóttur í skipulagsnefnd. Þar segir m.a. að nauðsynlegt sé að fyrir liggi úttekt sérfræðinga á hvaða afleiðingar þessi breyting hafi á gatnakerfi Reykjavíkur. Lýst er áhyggjum yfír að bindandi ákvörðun sé tekin á jafn óljósum grunni. í bókun Siguijóns Péturssonar kemur fram, að hann telji ákaflega heimskulegt að útiloka um alla framtíð mögulega breikkun Bú- staðavegar. Engin knýjandi skipu- lagsþörf kalli á slíka ákvörðun nú. Fossvogsbraut í göng í bókun borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins segir, að ákvörðun um að falla frá breikkun Bústaða- vegar milli Háaleitisbrautar og Sogavegar sé byggð á þeim for- sendum að gert sé ráð fyrir að Fossvogsbraut verði í göngum samkvæmt Aðalskipulagi Reykja- víkur og Aðalskipulagi Kópavogs. Nálægð byggðar á báða vegu við Bústaðaveg og vegna gatnamóta á götunni, geri það að verkum að Bústaðavegur sé illa til þess fallinn að taka við mikilli aukningu um- ferðar. Auk þess yrði við breikkun götunnar aukin hætta á hávaða- og loftmengun fyrir íbúa í næsta nágrenni. Þá segir að þar til Foss- vogsbraut verði lögð í göngum sé gert ráð fyrir að Miklabraut taki við aukningu á austur-vestur um- ferð í borginni. Sunnudagsblaöi Morgunblabsins, 25. júlí nk., fylgir blabauki um Golf. í þessu blabi veröur fjallab um golfíþróttina sem stöbugt á meiri vinsældum að fagna hér á landi. Spjallað verður við kylfinga bæði byrjendur og þá sem lengra eru komnir í íþróttinni. Fjallað verður um golfvelli og öra uppbyggingu þeirra víða um land, golfkennslu, klæðnað á golfvöllum og fleira. íslandsmótið í golfi hefst á vegum Golfklúbbs Suðurnesja á Hólmsvelli í Leiru útgáfudag blaðaukans, 25. júlí, og verður efni um mótið og undirbúning þess. Þeim, sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 19. júlí. Nánari upplýsingar veita Dóra Gubný Sigurbardóttir og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 69 11 11 eða símbréf 69 11 10. > kjarni málsins! Morgunblaðið/Ingvar Númer gerð upptæk LÖGREGLUMENN taka númer af bíl sem reyndist vera óskráður. Yíxluðu númerum á bifreiðum sínum TVEIR bíleigendur í Reykjavík urðu uppvísir að því að víxla núm- erum milli bíla. Lögregla tók númerin af bifreiðunum og verða mennirnir sektaðir fyrir athæfið. Eigandi sendiferðabíls varð uppvís að því á laugardag að hafa víxlað númerum milli tveggja samskonar bíla sem hann á. Ótrygg réttarstaða Að sögn lögreglu er um alvarlegt brot að ræða þar sem réttarstaða þess er verður fyrir tjóni, sem bíll á röngu númeri veldur, er ótrygg. Númerin voru tekin af bílnum og verður eigandinn sektaður. Annað hliðstætt mál kom upp um helgina og var það afgreitt með sama hætti. Að sögn lögreglu er númerum stundum víxlað þar sem bíleigandi veit að viðkomandi bifreið stæðist ekki skoðun. Eins getur virst hag- kvæmt að hafa tvo bíla til skiptana en greiða aðeins gjöld af öðrum. fCffiJA „að hætti keisaranna“ Hvers vegna skyldu nú yfir 30 manns hafa tryggt sér KÍNAFERÐ í september með HEIMSKLÚBBI INGÓLFS? Svarið er einfalt: KfNAFERÐ HEIMSKLÚBBSINS BER AF, er farin á besta árstíma í Kína, en í lok október/nóvember er kominn vetur í Norður-Kína og ferðamannatímabilið liðið. TRAUST ER LYKILORÐ í viðskiptum Heimsklúbbsins, byggt á langri reynslu Ingólfs Guðbrandssonar, kunnáttu í öllu sem lýtur að ferðamálum, rómaðri smekkvísi og gæðatilfinningu. Ferðin er farin undir leiðsögn hans sjálfs. Til alls er vandað eins og best verður á kosið, hæfileg blanda af skoðun, fræðslu og skemmtun og dvölin á bestu hótelum Kína hreinn unaður. Samt er ferðin ódýrari pr. dag en hversdagsferðir á miðlungshótelum. Sjálf Kínadvölin stendur í nærri tvær vikur, þar sem skoðaðir eru allir frægustu staðir landsins og kennileiti. Henni lýkur í höfuðborginni BEIJING á sjálfu GRAND HOTEL með „keisaralegum" búnaði og þjónustu. Aðrir viðkomustaðir eru: GUANGZHOU, GUILIN, XIAN, SHANGHAI, HANGZHOU, BEIJING. Auk þess eru 4 dagar í HONG KONG og 5 í THAILANDI í ferðalok. Tryggið ykkur sæti núna í þessa einstöku upplifun! Aðeins 4 sæti laus. Svona tækifæri kemur aðeins einu sinni! Perlur Suðaustur Asfu Síðustu sætin í glæsilegri ferð um litrík og fögur lönd Suðaustur-Asíu. Spennandi menningarheimur. Bestu hótel heimsins með öllum þægindum á ótrúlegu verði og jafnvel ódýrari en einföld, þægindalaus dreifbýlishótel í Evrópu. Ódýr matur og listvarningur. „Þessi ferð á skilin gullverðlaun" sagði faþegi í fyrra. □valarstaöir: KUALA LUMPUR - „perlueyjan“ PENANG, SINGAPORE, BANGKOK, CHIANG MAl, „GULLNI ÞRÍHYRNINGURINN", JOMTIEN í THAILANDI. Brottfor 7. október - 83 dagar AUSTURSTR&TI 17,4. hæi 101 REYKJAVÍK«SÍMI 620400-FAX 626564

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.