Morgunblaðið - 14.07.1993, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
Blómlegt fyrirtæki
Nú bjóðum við uppá einstaklega blómlegt fyrir-
tæki, blómabúð í stóru íbúðarhverfi. Nýjar hillur,
Ijósabúnaður og ný pressa í blómakæliklefa.
Og rúsínan í pulsuendanum: Frí húsaleiga í 16
mánuði, ótrúlegt en satt. Þessu fylgir einnig góð
meðalvelta og verðið, það kemur þér á óvart.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
{KsmnmmvM
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
BORGAREIGIM
fasteignasala - Suðurlandsbraut 14
678221 fax: 678289
Garðabær - einbýli. Gott ca 190 fm einbýli á einni hæð auk ca
48 fm nýlegs bílsk. Húsið hefur verið mikiö endurn. og er í góðu ástandi. Friðsæll
staður. Góður garður. Eignaskipti möguleg. Áhv. ca 4,2 millj.
Grasarimi — 0Ínb. Ca160fmhúsáeinnihæðmeöinnb. bílskúr.
Húsið afh. fullb. að utan, rúmlega fokh. að innan. Til afh. strax. Eignaskipti mögu-
leg. Teikningar á skrifstofu. Áhv. húsbréf ca 5,0 millj. Verð 9150 þús.
Völvufell - raðh. Gott ca 130 fm raðh. á einni hæð auk ca 25 fm
bílsk. 4 svefnh., góðar stofur. Suðurgarður. Áhv. góð lán ca 2750 þús. Verð 10,3 millj.
Hlíðarvegur - Kóp. - sérh. Glæsil. ca 146 fm efri sérh.
í nýl. tvíbhúsi. Góðar stofur. 3-4 svefnh. Tvennar svalir. Allt fullfrág. og vandað.
Gott útsýni. Áhv. ca 2,4 millj. Laus fljótl. Verð 12,9 millj.
Sólheimar - sérh. Ca 130 fm neðri sérh. auk ca 25 fm bflsk. Góðar
stofur. 4-5 svefnh. Góð eign á vinsælum stað. Getur losnaö fljótl. Verð 11,3 millj.
Norðurás.
3ja-4ra herb. glæsil. lúxusíb. ca 120 fm á tveimur hæðum auk
ca 30 fm bílsk. Góðar stofur. Arinn. Suðursvalir. Útsýni. Sjón er sögu ríkari. Áhv.
2,7 millj. Verð 10,3 millj.
Krummahólar.
4ra herb. íb. með bílsk. ca 92 fm endaíb. ásamt góð-
um ca 25 fm bílsk. Glæsil. útsýni. Blokk og sameign í góðu ástandi. Áhv. góð lán ca
4,1 millj. Verð 7,5 millj.
Hraunteigur - 3ja-4ra. Glæsil. ca 125 fm íb. á jarðh. Vandað-
ar innr. Parket og flísar. íb. hefur öll verið endurn. og er í toppástandi. Sérinng.
Áhv. húsbréf ca 2,9 millj.
Hamraborg - 3ja herb. Góð ca 77 fm íb. á 2. hæð. M.a.
nýl. eldhús og bað. Suðursvalir. Áhv. hagst. lán ca 3,7 millj. Verð 6,9 millj.
Kríuhólar - 3ja. Nýstands. falleg ca 79 fm íb. á góðum kjörum.
Laus strax. Áhv. veðd. 2,4 millj. Verð 6,8 millj.
Rauðarárstígur - 3ja. Falleg ca 60 fm vel skipul. íb. á 1.
hæð. Mikið endurn. Áhv. 2,4 millj. Verð 5,3 millj.
Vallargerði - Kóp. 2ja herb. sérbýli, ca 65 fm á jarðh. Sérinng. íb.
er mikið endurn. Fallegur garður. Friðsæll staður. Verð 5,9 millj.
Alhliða ráðgjöf - ábyrg þjónusta
Karl Gunnarsson, sölustjóri, Kjartan Ragnars hrl.
011 KA 01 07 A LARUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmdastjori
(m I I wv'k I W I V KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.lóggilturfasteignasali
Nýjar á söluskrá - eignir sem vekja athygli:
Vinsæll staður - gott verð
4ra herbergja rishæð við Nökkvavog. Samþykkt, sólrík, vel með farin,
trjágarður. Verð aðeins 5,8 millj.
Glæsileg íbúð - gott lán
Með útsýni við Súluhóla 3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Parket. Öll sam-
eign eins og ný. 40 ára húsnæðislán kr. 3,3 millj.
Sérhæðir - Hvassaleiti - Rauðagerði
Glæsil. efri hæðir 6 herbergja á þessum vinsælu stöðum. Góður bil-
skúr fylgir hvorri hæð. Eignaskipti til umræðu. Frábært útsýni.
í enda - sér þvottahús - bílskúr
Mjög góð 5 herbergja endaibúð við Stelkshóla, 116,1 fm á 2. hæð.
Sér þvhús. Góður bílskúr. Skipti mögul. á 3ja herb. íbúð í nágrenninu.
Safamýri - endaíbúð - bílskúr
Sólrík og vel með farin 4ra herbergja íbúð á 1. hæð. Tvennar svalir.
Geymsla í kjallara. Mikið endurnýjuð sameign. Vinsæll staður.
Háaleitisbraut - suðurendi - bflskúr
5 herbergja íbúð á 4. hæð, 108 fm. Mikið endurnýjuð. Svalir. Mikið
endurbætt sameign. Frábært útsýni.
í gamla góða Vesturbænum
Parhús við Ránargötu með 5-6 herbergja íbúð á tveimur hæðum.
Nýtt eldhús. Nýtt bað o.fl. I kjallara m.m. sér eins herbergis íbúð.
Glæsilegur blóma og trjágarður.
Selfoss - Reykjavik - eignaskipti
Leitum að litlu sérbýli á Selfossi með bílskúr, í skiptum fyrir fjögurra
herbergja rishæð á vinsælum stað i Vogunum í Reykjavík.
• • •
Hlíðar - Vesturbær
óskast 3ja-4ra herb.íb.
Opið á laugardögum.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAH
LAUGÁvÉGn8 SÍMAR 21150 - 21370
Orgeltónleikar
_________Tónlist "
Jón Ásgeirsson
Björn Steinar Sólbergsson or-
gelleikari við Akureyrarkirkju lék
á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju
sl. sunnudagskvöld. Á efnis-
skránni voru aðallega frönsk org-
elverk auk verka eftir Pál ísólfs-
son og Þorkel Sigurbjörnsson.
Fyrstu þrjú verkefni tónleik-
anna eru eftir franska tónskáldið
Jean Alain (1911-1940), sem
ásamt mörgum hæfileikamönnum
féll í síðari heimsstýijöldinni. Ala-
in lærði tónsmíði hjá Dukas og
bera tónsmíðar hans mörg ein-
kenni lærimeistarans. Fyrsta
verkið, Tilbrigði um stef eftir
Jannequin, er fallegt verk og var
það mjög vel flutt af Birni Stein-
ari. Númer tvö var Jardin su-
spendu (hengigarðar), ákaflega
viðburðalítið og langdregið verk
og algjör andstæða við þriðja
verkið eftir Alain, Litanies (Þula),
sem er runa af tónmyndum, er
minna meira á undirleiksfígúrur,
byggðar á brotnum hljómum en
sjálfstæð stef. Þess háttar vinnu-
brögð einkenna mikinn hluta af
nýrri franskri orgeltónlist og er
þetta leiðigjarnt til lengdar og í
raun ákaflega viðburðalítið, þó
hljómanin sé á köflum rismikil.
Bjöm Steinar lék þuluna mjög
vel og sama má segja um tvo
sálmforleiki og Ostinato og fúg-
hetta, eftir Pál ísólfsson. Snertur
fyrir Hörð, heitir nýlegt verk
(1992) eftir Þorkel Sigurbjörns-
son og lék Björn Steinar 1., 2.
og 5. snertuna. Síðasta snertan
(nr. 5) er skemmtilegt verk og
minnir nokkuð á franskar leikað-
ferðir og auðheyrt að þar kunni
Björn Steinar vel til verka.
Hjarðljóð eftir César Franck er
fallegt verk og tónleikunum lauk
með Prelúdíu og fúgu eftir
Maurice Duruflé (1902-1986) en
hann lærði tónsmíðar hjá Dukas,
eins og Alain og spinnur reyndar
fúguna yfir nafn Alains. Prelúdían
er ákaflega laus í formi og fúguna
skortir kontrapunktísk átök.
Hljómbundin vinnubrögð og leit
að blæbrigðum vilja oft draga úr
þeirri raddferlisspennu, sem fúga
getur búið yfir og þá er oft leitað
fanga í leik með styrk og hraðar
tónmyndir, svo að útkoman verður
í raun heldur innihaldslítill og yfir-
borðslegur fingraleikur og átökin
oft aðeins fólgin í því að nýta sér
hljómstyrk orgelsins.
Hvað sem þessu líður var leikur
Björn Steinar Sólbergsson
Björns Steinars Sólbergssonar
mjög góður og tækni hans og
kunnátta í raddskipan naut sín
mjög vel í Þulunni eftir Alain,
öllum verkum Páis, 5. snertunni,
eftir Þorkel Sigurbjömsson og í
síðasta verkinu, eftir Duruflé, þar
sem Björn Steinar fór á kostum.
Bonner Rundschau
Bandamannasögu hrósað
ÞÝSKA blaðið Bonner Rundsc-
hau segir í nýlegum dómi um
leikritið Bandamannasögu, sem
sett var upp í tengslum við þá
reykvísku menningardaga, sem
haldnir voru í Bonn í síðasta
mánuði, að það hafi „slegið í
gegn“.
Blaðið segir hina kímnifullu upp-
setningu leikstjórans Sveins Einars-
sonar hafa stuðlað að því að sú
klukkustund, sem leikritið varði,
hafi verið hin besta skemmtun fyrir
alla þá sem fylgdust með í leik-
skránni.
Gagnrýnandi Bonner Rundschau,
Felicitas Zink, fer lofsamlegum orð-
um um verkið sjálft og segir sögu-
þráðinn vera mjög fjölbreyttan. Þá
hafi það verið vel til fundið að nota
einnig leikbrúður við hlið leikar-
anna.
Hann segir einnig að hin skýra
og góða tjáning íslenska leikhópsins
hafi komið verkinu til skila á grein-
ÚT ER komin ljóðabókin „Aust-
ur“ eftir Valgarð Bragason.
Bókin inniheldur prósaljóð, og er
þetta önnur ljóðabók höfundar á
argóðan hátt þannig að það hafí
verið vel skiljanlegt þýskum áhorf-
endum þó að það væri flutt á ís-
lensku.
þéssu ári. „Austur“ er unnt að nálg-
ast í Bókavörðunni, Hafnarstræti,
og kostar eintakið 1.009 kr. Ein-
takafjöldi er takmarkaður.
Nýjar bækur
Austur eftir Val-
garð Bragason
Atli Ingólfsson o g
Caput-hópurinn
________Tónlist___________
Ragnar Björnsson
„Nútímatónlist að Kjarvals-
stöðum" var yfirskrift tónleika á
Kjarvalsstöðum sunnudaginn 11.
júlí. Aðeins eitt verk, sem tók 30
mínútur að flytja, var á efnisskrá,
Rapsódía í fimm þáttum eða
„fimm rótarskotum" eins og Atli
segir í efnisskrá. Þættirnir eru
samdir á nokkurra ára tímabili
og líklega ekki hugsaðir sem ein
heild í upphafi, enda áður fluttir
hver í sínu lagi, utan sá síðasti
sem skrifaður var og „settur sam-
an af tilefninu", eins og Atli seg-
ir. Þrátt fyrir sex eða sjö ára
meðgöngu þessara fimm þátta
geta þeir vel staðið saman undir
heitinu Rapsódía, a.m.k. sam-
kvæmt sumum útleggingum þess
orðs. I fyrsta þættinum Largo,
þeim eina sem var frumfluttur,
voru „pólyfónísk" vinnubrögð
Atla auðheyrð og eðlileg, Guð-
mundur Óli Gunnarsson stjórnaði
fyrsta þættinum og þeim síðasta
og mér er spurn, þegar svo ágæt-
ir tónlistarmenn eiga í hlut sem
Caput-hópurinn er, hvort stjórn-
andi eigi að koma þar nærri ef
annað er hægt. Þetta er sagt með
fullri virðingu fyrir stjórnendum,
en einnig fyrir ágætum hljóðfæra-
leikurum sem geta orðið, og
verða, bundnir af slagi stjórnand-
ans og verða að hemja sitt eigið
hugmyndaflug. A.m.k. fannst mér
vanta nokkuð mótun og flug í
flutning þessa fyrsta þáttar. Úr
fyrsta þætti leiddi beint yfír í
annan þátt sem Atli nefnir Bagat-
ellu - Vivace - og er skrifuð fyr-
ir einleiksklarinett með liggjandi
orgelpunkti. Þarna lifnaði yfir
Músunum og Iék Guðni Fransson
þáttinn sérlega skemmtilega á
klarinettið. Þriðja þáttinn nefnir
Atli Scherzo - Vink - og mátti
vel greina klassískt yfírbragð
skersósins. Þeir Kolbeinn Bjama-
son og Guðni eru ekki óvanir í
samleik, náðu enda vel saman í
þættinum. Rapido e vigoroso
nefnir Atli fjórða þáttinn og stend-
ur sá sannarlega undir nafni.
Þátturinn er skrifaður fyrir píanó-
ið eitt sér og skilaði Snorri Sigfús
Birgisson erfiðum píanóhlut lista-
vel, enda virðist Snorri sem fædd-
ur fyrir þessa tegund tónlistar.
Einleiksfiðla leiðir yfir í síðasta
Atli Ingólfsson
þáttinn, Allegro e preciso (Les
pas, les pentes). Verk Atla em
yfirleitt nákvæmt og skilgreini-
lega unnin, lífshlaupið ákveður
framtíðin. Flytjendur úr Caput-
hópnum, aðrir en þeir sem nefnd-
ir hafa verið, voru að þessu sinni
Auður Hafsteinsdóttir, Hildigunn-
ur Halldórsdóttir, Guðmundur
Kristinsson, Bryndís Halla Gylfa-
dóttir og Valur Pálsson.