Morgunblaðið - 14.07.1993, Page 18

Morgunblaðið - 14.07.1993, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 Togarasj ómenn á knattspyrnumóti ^ Ólafsfírði. ÁHÖFNIN á togaranum Sigurbjörgu ÓF 1 stendur fyrir knatt- spyrnumóti, svokölluðu Nikulásarmóti, í 7. flokki drengja og 3. og 4. flokki stúlkna, í Ólafsfirði um næstu helgi. Alls verða þátttakendur um 300 af svæðinu frá Borgarfirði til Húsavíkur. í áhöfninni á Sigurbjörgu er Stuðningsmannafélagið Nikulás, sem hefur stutt við bak knatt- spymumanna í Ólafsfírði um nokkurra ára skeið. Fleiri dæmi eru um að sjómenn á hafí úti styðji tryggilega við bakið á íþróttafólki í Ólafsfírði. Má þar nefna Stuðn- ingsmannafélagið Ketilás á togar- anum Mánabergi ÓF 42 og Stuðn- ingsmannafélag trillubátasjó- manna. Einstakt framtak sjómanna Að sögn Friðriks Einarssonar, talsmanns knattspyrnudeildar Leifturs í Ólafsfírði, er stuðningur sjómannánna afskaplega kærkom- inn og mikilvægur og kvað hann einsdæmi í íslenskri íþróttasögu að áhöfn á togara á hafí úti stæði að fullu og öllu fyrir eins fjöl- mennu og miklu íþróttamóti og Nikulásarmótið væri. Þeir hefðu byijað að undirbúa mótið um miðj- an desember og stæðu undir öllum kostnaði við það. Knarttspyrnu- deild Leifturs og foreldrafélagið sæju að vísu um framkvæmdina, enda alls ekki á vísan að róa að skipið væri nærri landi þegar mót- ið fer fram. Nikulásarmótið í knattspymu verður í Ólafsfirði dagana 17. og 18. júlí og sagði Friðrik að þá yrði margt um manninn í bænum því 300 bama keppnishópi fylgdi mikill fjöldi foreldra, þjálfara og aðstoðarmanna. Nýr eigandi ÞÓRA Óskarsdóttir hefur tekið við rekstri Heilsuhomsins við Skipagötu 6. Heilsuhomið hefur til sölu heilsuvörur af margvíslegu tagi, náttúrleg vítamín, baunir, kom hrísgijón í iausu og fjölbreytt kryddúrval. Þá er hnetubarinn vinsæll og eins hefur verið lögð áhersla á að bjóða ódýrar austurlenskar vörar í versluninni. Kvaddur Steingrím- ur frá Litlu-Strönd Björk, Mývatnssveit. NYLÁTINN er hér í sveitinni Steingrímur Kristjánsson, fyrr- um bóndi á Litlu-Strönd. Stein- grímur fæddist 27. nóvember 1917. Foreldrar hans voru Guð- rún Friðfinnsdóttir og Kristján Jónsson. Eftirlifandi kona Stein- gríms er Þóra Ásgeirsdóttir frá Akureyri. Þau eignuðust fjóra syni, Birgi, Finn, Kristján og Egil. Birgir býr nú á Litlu- Strönd. Árið 1945 keypti Steingrímur ásamt foreldram sínum jörðina og hófu þau þar búskap. Strax var byijað að byggja íbúðarhús og rækta. Á síðasta ári keyptu Stein- grímur og Þóra íbúð á Ákureyri og fluttu þangað. Þau vora stödd heima á Litlu-Strönd þegar kallið kom skyndilega 30. júní. Steingrímur var vel látinn af öll- um sem honum kynntust, hann hafði mikla ánægju af tónlist og var virkur og góður félagi í mörgum kóram og hafði ágæta og bjarta tenórrödd. Hann var drengur hinn bestl Útför Steingríms var gerð frá Skútustöðum laugardaginn 10. júlí að viðstöddu miklu fjölmenni. Séra Öm Friðriksson flutti útfararræðu og jarðsöng. Blessuð sé minning Steingríms frá Litlu-Strönd. Kristján Niðurstaða nefndar um framtíð skinnaiðnaðar á íslandi væntanleg Starfsmenn óþreyjufullir STARFSMENN Rekstrarfélags ÍSI á Akur- eyri, sem áður var íslenskur skinnaiðnaður hf., bíða með óþreyju ákvarðana um framtíð fyrirtækisins. Þeir segja lítil viðbrögð hafa orðið við erindi þeirra til bæjaryfirvalda á Akureyri nýlega. I dag vænta þeir niðurstöðu af fundi nefndar á vegum forsætisráðuneytis- ins um framtíð skinnaiðnaðar á Islandi, en óttast afleiðingarnar ef lausn skinnaiðnaðar- mála dregst á langinn. Að sögn Aðalsteins Ámasonar, fulltrúa starfs- manna Rekstrarfélags ÍSI hafa viðbrögð bæjar- yfirvalda við beiðni starfsmanna um að leita leiða til að tryggja framtíð fagþekkingar starfs- manna hér á Akureyri verið þau að bæjarstjórn muni fylgjast með málinu en engar tímasetning- ar eða fastir punktar hafí komið þar fram. Starfsmenn bíði spenntir niðurstöðu fundar í nefnd á vegum forsætisráðuneytisins, sem hald- inn var í gær, um framtíð skinnaiðnaðar á ís- landi. Þeir óttist hins vegar að kerfíð geti reynst þungt í vöfum og ef ákvarðanir dragist á lang- inn geti það haft geigvænlegar afleiðingar. Ekki megi draga öllu lengur að ákveða stefnu í þess- um málum, þó ekki væri af öðram sökum en þeim að ákveða verði mjög fljótlega hvort gærur frá komandi haustslátran verði teknar til vinnslu innanlands eða seldar á erlendan markað, sem gera þurfi ef ekki verði séð fram á að unnt verði að vinna skinn hér á landi. Dýrt spaug ef skinnaiðnaður leggst niður Aðalsteinn sagði að ef skinnaiðnaði á íslandi yrði ekki bjargað nú væri hann búinn að vera. Gífurleg verkþekking glataðist og hana yrði ekki auðvelt að byggja upp á ný. Hann sagði skoðun starfsmannanna að verksmiðja skinniðn- aðarins á Akureyri hlyti að vera rekstrarhæf ef henni yrðu skapaðar viðunandi rekstraraðstæð- ur. Til þess þyrfti utanaðkomandi aðstoð í ein- hveiju formi. Að sögn Aðalsteins hefur Landsbankinn á sínum höndum rekstur verksmiðju ISI á Akur- eyri til septemberloka, en ekki mun fyrirsjáan- legt að hann haldi rekstrinum lengur áfram, annað þurfí að koma til. í dag sé um að ræða störf 130 manna og meðan allt hafi verið í blóma hafí um 200 manns haft þama fullt starf. Miðað við að hvert starf í iðnaði skapi tvö í þjónustu sé ljóst hver áhrif það hefði ef skinnaiðnaðurinn leggðist af. Ekki væri á bætandi þá blóðtöku sem orðið hefði á undanfömum árum í iðnaðar- bænum Akureyri. Byggðasamlag stofnað um sorpeyðingu við Eyjafjörð Morgunblaðið/Golli * Ahaugunum SORP verður enn um sinn urðað á Glerárdal en Sorpeyðing Eyjafjarðar BS vinnur nú að endurbót- um í sorpförgunarmálum. Á Glerárdal er ekki alltaf fagurt umhorfs og fuglagerið á urðunarstaðn- um er ekki til þrifa. Sorphirðingin áfram hjá sveitarfélögunum HÉRAÐSNEFND Eyjafjarðar samþykkti um síðustu mánaðamót samning um að stofna byggðasamlag um sorp- förgun. Samningurinn hefur þegar verið samþykktur hjá bæjarstjórn Akureyrar og þess er vænst að önnur sveitarfé- lög sem að Sorpeyðingu Eyjafjarðar BS standa gangi frá afgreiðslu málsins á allranæstu dögum. Byggðasamlagið mun fyrst og fremst fást við sorpförgun en sorphirðing verður áfram á vegum sveitarfélaganna. í tengslum við þetta mál verða verulegar breytingar til bóta á sorpförg- un á Eyjafjarðarsvæðinu. Að byggðasamlaginu Sorpeyð- ingu Eyjafjarðar standa l4 sveit- arfélög sem eiga aðild að Héraðs- nefnd Eyjafjarðar, þar á meðal kaupstaðimir Akureyri, Dalvík og Ólafsfjörður. Að sögn Sigríðar Stefánsdóttur formanns bæjar- ráðs Akureyrar hefur starfshópur unnið að undirbúningi og gerð stofnsamnings um sorpeyðing- una. Hún sagði að starfsemi hins nýja byggðasamlags myndi fram- an af einskorðast við að taka á móti sorpi og farga því en sveitar- félögin myndu sjálf annast sorp- hirðuna, enda væri hún með ýmsu móti, ýmist á vegum sveitarfélag- anna sjálfra eða verktaka. Verkefni byggðasamlagsins I stofnsamningi um Sorpeyð- ingu Eyjafjarðar BS kemur fram að verkefnin séu í fyrsta lagi að reka sorpurðunarstað á Glerárdal, sjá um daglegan rekstur og frá- gang. í því sambandi sagði Sigríð- ur að framkvæmdir væra hafnar á Glerárdal. í öðru lagi er hlutverk byggða- samlagsins að reka móttökustaði fyrir brotamálma, en þar er fyrir- hugað að semja við Akureyrarbæ og Ólafsfjarðarbæ um móttöku- og geymslustaði auk þess sem samlagið mun sjá um daglegan rekstur þeirra og semja frekar um förgun málmanna. Förgun spilliefna í þriðja lagi verður starfsemin í því fólgin að setja upp og reka móttökustöðvar fyrir spilliefni. í því sambandi á samlagið að afla sér spillefnagáma, semja við sveit- arfélög um móttökustöðvar, sjá um rekstur þeirra og semja við Sorpu í Reykjavík um förgun efn- anna. Sigríður sagði að verið væri að vinna að þessu máli og kvaðst vonast til að starfsemin mætti hefjast að einhveiju leyti á þessu ári, enda vær hér um knýj- andi þörf að ræða. Framtíðin að endumýta og minnka sorp Sigríður sagði að framundan væra miklar breytingar í sorpmál- um á svæðinu og á stefnuskránni væri að stuðla sem mest að því, eins og tíðkast orðið suður um Evrópu, að minnka sorp og endur- nýta það. Því hefði undirbúnings- nefnd um sorpeyðingarmál fylgst náið með þeirri endurvinnslu sem Úrvinnslan á Akureyri er að fara af stað með í endurnýtingu papp- írs og plasts.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.