Morgunblaðið - 14.07.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
19
Doktorsritgerð á
sviði ónæmisfræði
o g gigtsjúkdóma
Sveinn Guðmundsson læknir
varði nýverið doktorsritgerð á
sviði gigtsjúkdóma og ónæmis-
fræði við Uppsalaháskóla. Rit-
gerðin sem ber heitið „Pathoge-
netic and therapeutic aspects of
rheumatoid arthritis, with refer-
ence to T cell activation and
mode of action of sulphasalzine",
fjallar um ónæmisfræðilega
áhrifavalda í tilurð og meðferð
gigtsjúkdóma, með sérstöku til-
liti til iktsýki (rheumatoid arth-
ritis).
í doktorsritgerðinni er fjallað um
virkni T eitilfruma í blóði, liðvökva
og liðhimnu sjúklinga með iktsýki,
og þá þætti sem liggja að baki og
reka áfram ónæmiskerfíð í iktsýki.
Skilningur á þessum þáttum er
nauðsynlegur svo hægt sé að grípa
inn í atburðarásina í meðferð sjúk-
dómsins. Ákveðnir undirflokkar T
eitilfruma virðast örvast í iktsýki á
svipaðan hátt og í öðrum sjálf-
ónæmissjúkdómum (autoimmune
sjúkdómum). Á síðari árum hafa
opnast möguleikar til að grípa inn
í ónæmisfræðilega þætti í ýmsum
sjálfónæmissjúkdómum, og rann-
sóknir doktorsritgerðarinnar leitast
við að meta einstaka þætti ónæmis-
svarsins, með sértæka (selctive)
í fréttatilkynningu frá Heims-
klúbbnum segir: „Ítalíuferðin, sem
er afurðavinsæl, er uppseld, en ver-
ið er að reyna að bæta nokkrum
sætum við 13. ágúst vegna mikillar
eftirspurnar. Ferðin þræðir helstu
listaslóðir Ítalíu frá Milano til Ver-
ona, Garda, Padua, Feneyja, Pisa,
Florens, Siena, Parma, Perugia,
Assisi til Rómar. Búið er á nokkrum
bestu hótelum Ítalíu og m.a. boðið
upp á óperusýningu í Verona með
Kristjáni Jóhannssyni í Aidu eftir
Verdi. Önnur styttri Ítalíuferð er í
uppsiglingu fyrir gullkorthafa Visa
26. ágúst, og er þegar farið að
panta í hana, áður en hún er aug-
lýst. Þáttakendur í þeirri ferð verða
viðstaddir síðustu sýningu sumars-
ins með Kristjáni i Verona. Ferðin
stendur í 9 daga.“
Þá segir í fréttatilkynningunni:
„Eitt mesta ferðaævintýri ársins er
Kínaferð Heimsklúbbsins undir
stjórn Ingólfs Guðbrandssonar, þ.e.
„Kína að hætti keisaranna", þar
sem þekktustu staðir landsins fræg-
ir fyrir náttúrutöfra og lands-
lagsfegurð, eru skoðaðir, ásamt
Kínamúrnum og borgunum Kanton,
Guilin, Xian, Shanghai, Hangzhou
og lýkur í höfuðborginni Peking
(Beijing) með dvöl á Grand Hotel,
keisarahöllinni fyrrverandi, sem nú
er í tölu bestu hótela heimsins,
uppgerð með öllum nútímaþægind-
ónæmismeðferð sem takmark í
meðferð iktsýki.
í öðrum hluta doktorsritgerðar-
innar hefur Sveinn rannsakað
hvaða hætti ónæmiskerfi melting-
arvegarins er áhrifavaldur í tilurð
og viðhaldi liðhimnubólgu í iktsýki
og öðrum gigtsjúkdómum. Ónæmis-
kerfi meltingarvegarins er geysi-
öflugt en að sama skapi flókið að
allri gerð og starfsemi. Það er mikil-
vægt í vörnum gegn ýmsum sýking-
um á slímhúðum líkamans og virð-
ist gegna mikilvægu hlutverki í til-
urð og viðhaldi bólgu í gigtsjúkdóm-
um. I rannsóknum sínum hefur
Sveinn notað aðferð sem mælir
mótefnaframleiðslu í einstökum B
eitilfrumum og þannig virkni
ónæmissvarsins við mismunandi
örvun og meðferð. B-eitilfrumur
meltingarvegarins eru sérlega hæf-
ar til framleiðslu svonefndra IgA-
mótefna, þar sem B-eitilfrumur
annars staðar í líkamanum nýta sér
fyrst og fremst IgG-mótefni í sínu
ónæmissvari. í doktorsritgerðinni
er lýst nýjum aðferðum til að greina
milli hins slímhúðartengda ónæmis-
svars og hins almenna (systemiska)
ónæmissvars, og með hvaða hætti
meðferð með gigtarlyfinu sulpha-
salzine hefur áhrif á þessa mismun-
um en fjölda muna og yfirbragði
frá keisaratímanum. Dvalist er í 4
daga í Hong Kong og að lokum er
5 daga hvíldardvöl við bestu að-
stæður í Thailandi. Ferðin er upp-
pöntuð, en verið er að reyna að
bæta við 5 sætum 9. september í
þijár vikur.
Suðaustur-Asía hefur náð
óhemju vinsældum hjá ferðamönn-
um alls staðar úr heiminum. Eftir-
sóttustu staðirnir eru Singapore,
Kuala Lumpur og eyjan Penang í
Malasíu, en í Thailandi Bankok og
Chiang Mai, ásamt „Gullna þríhyrn-
ingnum" í Norður-Thailandi. Hótel-
menning ber af í þessum löndum
og verðlag er lágt. Aðeins örfá
sæti eru enn laus í ferð Heims-
klúbbsins í þennan heimshluta, sem
hefst 7. október og stendur í 3-4
vikur.
Hnattreisa Heimsklúbbsins, sem
hefst 2. nóvember nk. og stendur
í rúman mánuð er íjölbreyttasta og
litríkasta hópferð, sem boðist hefur
frá íslandi til þessa. Helstu við-
komustaðir eru Bankok, Bali,
Melbourne, Sydney og Cairns í
Ástralíu, Aukland og Rotorua á
Nýja Sjálandi, Fiji og Hawaii á
suður og norður Kyrrahafi, Los
Angeles og New York. Ferðin seld-
ist strax upp, en nöfn eru tekin á
biðlista.11, segir í fréttatilkynning-
unni frá Heimsklúbbi Ingólfs.
Dr. Sveinn Guðmundsson
andi þætti ónæmissvarsins. Sulpha-
salazine er lyf sem upphaflega var
byijað að nota kringum 1940 við
meðferð iktsýki, féll í ónáð aftur,
en hefur í vaxandi mæli verið notað
síðastliðin 15-20 ár hjá ákveðnum
sjúklingahópum sem ekki svara
venjulegri gigtarmeðferð. Hefur
það sýnt sig hafa mjög jákvæð
áhrif hjá ákveðnum hluta sjúklinga.
Með hvaða hætti sulphasalzine
hefur sín jákvæðu áhrif í meðferð
gigtsjúkdóma er að miklu leyti
óþekkt, en ýmislegt hefur bent til
sértækra áhrifa á þessa þætti í
meltingarveginum. Niðurstöður
doktorsritgerðarinnar benda hins
vegar til þess að lyfið hafi víðtæk-
ari áhrif en svo og hafi ennfremur
áhrif á almenna ónæmiskerfið (sy-
stemiskt ónæmissvar). Þessar nið-
urstöður geta haft mikil áhrif á
víðtækari notkun lyfsins í fleiri sjál-
fónæmissjúkdómum og er höfund-
urinn þátttakandi í rannsóknum til
að meta þá tilgátu. Ennfremur
verður haldið áfram rannsóknum
með því að bera saman áhrif sulpha-
salazine og annarra gigtarlyfja og
fara þær rannsóknir meðal annars
fram hjá íslenskum gigtarsjúkling-
um.
Rannsóknir doktorsritgerðarinn-
ar fóru fram við Háskólasjúkrahús-
ið í Uppsölum (Uppsala Akadem-
iska sjukhus), undir leiðsögn pró-
fessors Lars Klareskog, sem er pró-
fessor í gigtarsjúkdómum við Karol-
inska sjúkrahúsið í Stokkhólmi.
Andmælandi við doktorsvörnina var
prófessor Auli Toivanen, frá Lyf-
lækningadeild háskólasjúkrahúss-
ins í Ábo (Turkuj í Finnlandi.
Sveinn hefur starfað við Há-
skólasjúkrahúsið í Uppsölum frá
árinu 1986 og er sérfræðingur í
klínískri ónæmisfræði, auk þess að
vera sérfræðingur í blóðgjafa- og
blóðónæmisfræði (Transfusion
medicine, blóðbankafræði). Við
þessa deild er sinnt allri þjónustu
af ónæmisfræðilegum toga hvað
varðar líffæraígræðslur og bein-
mergsígræðslur, auk greiningar og
meðferðar sjálfónæmissjúkdóma. I
blóðbanka deildarinnar er sinnt allri
sérhæfðri þjónustu hvað varðar
blóðhlutameðferð, sérlega tengt
flókinni krabbameinsmeðferð og
beinmergsígræðslum, auk lifrar- og
hjartaígræðslna.
I rannsóknum sínum hefur
Sveinn hlotið margvíslega styrki frá
Uppsalaháskóla og öðrum norræn-
um aðilum. Hann hefur nýverið
fengið styrk úr Vísindaráði til
áframhaldandi rannsókna hér á
landi á sviði ónæmisfræði gigtsjúk-
dóma. Sveinn hefur fengi aðstöðu
til þessara rannsókna á ónæmis-
fræðideild Landspítalans frá og með
október 1993.
Sveinn Guðmundsson er fæddur
1957 á Siglufirði, sonur hjónanna
Guðmundar Sveinssonar og Elísa-
betar Kristinsdóttur. Hann útskrif-
aðist frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1976, lauk læknanámi
frá Háskóla íslands 1982, fékk al-
mennt íslenskt lækningaleyfi árið
1984. Sveinn er kvæntur Hjördísi
Ásberg, forstöðumanni hjá Eim-
skip, og eiga þau 2 börn, Guðmund
Gauta og Elísu Björgu.
Bílar til sölu
Mazda 323 Lx 1300, árg. '90,
sjálfsk., 3 d., grár, ek. 38 þús.
Verð 710 þús.
Lada Lux 1600, árg. '91, 5 g., 4 d.,
rauður, ek. 30 þús.
Verð 380 þús.
Lada Safir 1200, árg. ’92, 4 g„ 4
d„ hvítur, ek. 10 þús.
Verð 390 þús.
Lada Samara 1500, árg. '92, 5 g„
4 d„ grár, ek. 7 þús.
Verð 580 þús.
VW Golf CL 1600, árg. '91, 5 g„ 5
d„ grár, ek. 46 þús.
Verð 870 þús.
MMC Lancer 1500, árg. ’89, 5 g„
4 d„ blár, ek. 40 þús.
Verð 730 þús.
MMC Pajero, árg. '88, grár, ek. 106
þús.
Verð 1.100 þús.
Renault Clio RT, árg. 93, 5 g„ 5 d„
Kvítur, ek. 3 þús.
Verð 1.000 þús.
BIFREIÐAR & LAHDBÚNAOARVÉLAR HF.
Suðurlandsbraut 14,
s. 681200, beinns. 814060.
Suzuki
JLX
árg. '91,4ra dyra,
svartur, sjálfsk., ek-
inn 52 þ. km. ABS
bremsur, rafm. í
rúðum, álfelgur o.fl.
Sem nýr.
Verð 1.690 þús.
BÍLAMARKAÐURINN
v/REYKJANESBRAUT
-SMIÐJUVEGI 46 E, KÓPAVOGI-
^ 67 18 00
Hlaut trjágróður í verðlaun
ÁRLEG áskriftarverðlaun tímaritsins Arkitektúr verktækni og skipulag
voru veitt síðastliðinn föstudag. Áskriftarverðlaunin, sem skilvís áskrif-
andi hlýtur, voru að þessu sinni tijágróður að verðmæti 100.000 kr. frá
Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Formaður Tæknifræðingafélags íslands,
Gunnar Sæmundsson, dró úr nöfnum skilvísra áskrifenda nafn Runólfs
K. Maack verkfræðings, sem er til hægri á myndinni ásamt konu sinni
Stefaníu Kjartansdóttur. Með þeim á myndinni er Vilhjálmur Sigtryggs-
son, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, sem veitti viður-
kenningu.
Styrkir til ms
verkfræúi og raunvísinilm
Stjóm Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar, kaupmanns, aug-
lýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum.
Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verk-
fræði- og raunvísindagreinum og hafa þeir
einkum verið veittir þeim, sem lagt hafa
' stund á framhaldsnám í þessum greinum.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sam-
skiptasviðs Háskóla íslands og ber jafnframt
að skila umsóknum þangað.
Umsóknarfrestur er til 10. september nk.
og er fyrirhugað að tilkynna úthlutun fyrir lok
mánaðarins.
V
I
Góð aðsókn að ferðum
Heimsklúbbs Ingólfs
UNDIRTEKTIR hafa verið góðar við ferðir Heimsklúbbs Ingólfs og
er nú nánast uppselt í haustferðirnar, að sögn Ingólfs Guðbrandsson-
ar forstjóra. Ferðirnar eru gerðar út undir vörumerkinu „Það besta,
sem heimurinn hefur að bjóða“.