Morgunblaðið - 14.07.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 14.07.1993, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 Vinna leyfð um helgar ÞÝSKA stjómin samþykkti í gær fjárlög næsta árs. Gripið verður til ýmissa ráðstafana til að hleypa krafti í efnahaginn, m.a. verður nú snúið við blaðinu og fólki leyft að vinna á sunnu- dögum í Þýskalandi. Díana og Raine perlu- vinir? FRANSKUR greifi, Jean- Francois de Chambrun, vísaði í gær harðlega á bug orðrómi þess efnis að Díana prinsessa af Wales hefði afneitað stjúp- móður sinni. Stjúpan, Raine Spencer, giftist nýlega de Chambrun en faðir Díönu, Spencer jarl, lést í fyrra. Vopnahlé í augsýn STRÍÐANDI aðilar í Líberíu hafa náð samkomulagi um drög að vopnahléi og er vonast til að það verði undirritað í næstu viku. Samningaumleitanir hafa staðið í fjóra daga í Genf. Njósnari ákærður YFIRVÖLD í Þýskalandi hafa borið fram ákæru um njósnir á hendur 46 ára gömlum karl- manni sem starfaði fýrir banda- ríska setuliðið og stjómarerind- reka í Berlín. Maðurinn er sagð- ur hafa verið erindreki Stasi, a-þýsku öryggislögreglunnar, frá 1978 til 1989. Kúbverjar flýja KÚBVERSKUR hafnabolta- maður, sem tók þátt í heims- leikum stúdenta i Bandaríkjun- um, hefur yfirgefið landsliðið og hyggst ekki snúa heim á ný. Aður höfðu tveir úr liðinu gert slíkt hið sama. Sjálfstæður seðlabanki SAMÞYKKT vom endanlega í gær ný lög í Frakklandi þar sem kveðið er á um stóraukið sjálf- stæði seðlabankans. Öldunga- deild þingsins samþykkti lögin með 223 atkvæðum gegn 89, í neðri deildinni vom samsvar- andi tölur 466 gegn 95. Abkhözum settir úrslita- kostir STJÓRN Georgíu hótaði alls- herjarstríði gegn aðskilnaðar- sinnum í Abkhazíu drægju þeir ekki sveitir sínar frá tveimur þorpum og hættu skotárásum á höfuðstaðinn Súkhumi fyrir miðnætti í kvöld. Hingað til hefur aðeins litlum hluta stjórn- arhersins verið beitt í átökun- um í Abkhazíu. Málsbætur í nauðgnnar- máli? ÁSTRALSKUR dómari kvað nýlega upp umdeildan úrskurð í nauðgunarmáli. Hann áleit að 16 ára piltur, sem nauðgaði 12 ára gamalli stúlku í borginni Darwin, skyldi hljóta vægari refsingu en ella þar sem hann hefði ekki fengið fullnægingu og stúlkan, sem var sofandi, ekki orðið vör við nauðgunina. Eldar í kjölfar landskjálfta SNARPIR landslqálftar sem riðu yfir norðurhluta Japans á mánudag ollu miklum eldsvoða í bænum Aonae á eyjunni Okushiri, þar sem þessi mynd var tekin. 340 af 600 húsum bæjarins eyðilögðust. Öflugasti jarðskjálfti í Japan í aldarfjórðung Sutsu í Japan. Reuter. FYRRI landskjálftinn sem reið yfir Japan í fyrradag var sá öflugasti í landinu í aldarfjórðung og sá mannskæðasti í áratug. Tugir manna fórust í eldsvoðum og flóðbylgjum sem fylgdu í kjölfarið og ollu miklu eignatjóni. Fyrri skjálftinn mældist 7,8 stig á Richters-kvarða og skjálfta- miðjan var undir hafinu norðvestur af eyjunni Ilokkaido. Hinn skjálftinn var 5,4 stig. Skjálftamir ollu miklum elds- voða í bænum Aonae á eyjunni Okushiri og 340 af 600 húsum bæjarins eyðilögðust. „Við vorum ekki viðbúin slíkum hamförum,“ sagði bæjarstjórinn Yukio Koshi- mori. „Okkur skortir matvæli, vatn og hjálpargögn.“ Gífurleg flóðbylgja Flóðbylgja sem fylgdi í kjölfarið varð allt að þriggja metra há og eyðilagði að minnsta kosti átta fískibáta og olíuleiðslu. Bátamir þeyttust eins og leikföng upp á ströndina. „Ég hef aldrei séð aðra eins flóðöldu," sagði Koshimori. „Hún kom og skall á þökum hús- anna.“ Koshimori kvaðst hafa séð hús sem virtist fljóta í heilu lagi í sjón- um. Hann sagði að eyjarskeggj- amir hefðu verið með mikinn við- búnað vegna flóðbylgjunnar eftir skjálftann en það hefði ekki nægt. Skriða féll á hótel á Okushiri og fregnir hermdu að um 30 manns hefðu grafíst undir rústun- um. Rússneska fréttastofan Inter- fax skýrði frá því að flóðbylgjan hefði einnig skollið á Asíuströnd Rússlands, handan Japanshafs. Þriggja manna er saknað þar, að sögn fréttastofunnar. Fyrri jarðskjálftinn á mánudag er sá öflugasti í Japan frá árinu 1968, þegar 7,9 stiga skjálfti reið yfír landið. Jarðskjálftar em mjög algengir í Japan og sá mannskæð- asti varð árið 1923, þegar 140.000 manns fórast í Tókýó og Yoko- hama. JARÐSKJALFTAR RIÐA YFIR JAPAN Tveir jarðskjálftar riðu yfir norðurhluta Japans á mánudag og ollu flóðbylgjum við ströndina Þannig valda jarðskjálftar flóðbylgjum: Gervihnattaupplýsingar um jarðvegshreyfingar í jarðskjálftum Gætu bætt spár um landskjálfta og eldgos Jarðvegshreyfingar ÞESSI tölvumynd, sem var birt í breska dagblaðinu The Independent, er byggð á upplýsingum frá gervihnetti um jarðvegs- hreyfingar á 100 ferkm svæði í tveimur snörpum landskjálftum í Kaliforníu í fyrra. Myndin er sambærileg við hæðarlínukort; hver Iína sýnir 28 millimetra jarðvegshreyf- ingu. Þar sem línurnar eru þéttastar var hreyfingin mest. TÍMARITIÐ Nature hefur birt tölvumynd- ir, byggðar á upplýsingum frá gervihnetti, sem sýna hreyfíngar jarðvegs á stóru svæði í tveimur jarðskjálftum í Kaliforníu í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn sem vísindamenn geta notað upplýsingar úr geimnum til að rannsaka slíkar jarðvegshreyfingar. Vís- indamenn telja að rannsóknin geti orðið til þess að hægt verði að gefa út nákvæm- ari jarðskjálftaspár og þeir beita nú sömu tækni við rannsóknir á eldgosum og jökl- um. Notuð var sérstök Ijósopsratsjá í gervi- hnetti til að mæla jarðvegshreyfíngar vegna landskjálfta í suðurhluta Kalifomíu í júní í fyrra, en hann mældist 7,3 stig á Richters- kvarða, og vegna minni skjálfta þremur klukkustundum síðar. Ratsjármyndir sem teknar voru fyrir og eftir jarðskjálftana sýna að jarðvegurinn hreyfðist allt að sjö metra frá misgengislínunni. Eldfjöll og jöklar kannaðir Vísindamenn við Geimvísindamiðstöðina í Toulouse í Frakklandi unnu tölvumyndir sem byggðar voru á upplýsingunum frá gervihnett- inum. Yfírmaður þeirra, Didier Massonet, sagði að rannsóknin gæti orðið til þess að hægt yrði að gefa út nákvæmari jarðskjálfta- spár og einnig spár um eldgos og skriðuhlaup jökla. „Við eram núna að fylgjast með eldfjöll- um og jöklum með þessari tækni,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.