Morgunblaðið - 14.07.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
21
Ágreiningur um nýj-
ar kosningar í Nígeríu
^Abuja. Reuter.
ÓVISSA jókst enn í Nígeríu í gær þegar ljóst varð að flokk-
arnir tveir, sem herforingjasljórn Ibrahims Babangidas
forseta setti á laggirnar, eru ósammála um framhaldið
eftir að stjórnvöld lýstu nýafstaðnar kosningar ógildar.
Babangida, sem enn segist reiðubúinn að láta af völdum í
lok ágúst, vill að kosningarnar verði endurteknar, segir
að svik hafi verið í tafli. Flokkur hægfara jafnaðarmanna,
SDP, hafnaði þesu boði enda sigurvegari kosninganna en
hinn flokkurinn, NRC, sem er sagður lengra til hægri, vill
nýjar kosningar.
Nígería er fjölmennasta ríki Afr-
íku, íbúar eru taldir vera um 100
milljónir. Kosið var 12. júní sl. og
telja erlendir heimildarmenn að allt
hafi farið fram með eðlilegum
hætti, hvergi kom til ofbeldis á kjör-
stöðum. Forsetaframbjóðandi SDP,
Moshood Abiola, hafði fengið mun
fleiri atkvæði en keppinauturinn,
Bashir Tofa, þegar hætt var að
telja. Báðir eru mennirnir múslimar
og milljónamæringar. Til óeirða
kom í stærstu borg landsins, La-
gos, er herforingjastjórnin lýsti úr-
slitin ógild og féllu a.m.k. 100
manns.
Herforingjar hafa stjórnað Níg-
eríu í áratug og margir efast um
að Babangida og menn hans séu
allir einlægir í lýðræðisást sinni.
NRC segist nú vilja fá nánari upp-
lýsingar um tilboð stjórnvalda, seg-
ist vilja nýjar kosningar en jafn-
framt að haldið verði fast við að
herforingjamir afsali sér völdum á
tilsettum tíma, 27. ágúst.
Talsmaður SDP sagði að mark-
mið herforingjanna væri að þæfa
málið. Þeir vonuðu að flokkarnir
tveir sættust á að seinka lýðræðis-
tökunni þar sem tíminn væri of
naumur til að halda nýjar kosning-
ar. Stjórnvöld hafa þegar hafnað
boði flokkanna um að þeir myndi
samsteypustjórn til bráðabirgða
meðan leitað sé lausna á deilunum.
Nýr söngleikur Webbers
fær misjafnar viðtökur
London. Reuter.
. • ivcuuci
Gestir a frumsýnmgu
BRESKI leikarinn Roger Moore, sem kannski er þekktastur fyrir
túlkun sína á James Bond, mætir hér ásamt konu sinni, Louise, til
frumsýningar á söngleiknum Sunset Boulevard, eftir Andrew Lloyd
Webber. Fræg andlit af leiksviði, breiðtjaldi og sjónvarpsskjánum,
flykktust á frumsýninguna, sem var hin glæsilegasta, en gagnrýnend-
ur voru ekki alveg sammála um ágæti verksins.
GAGNRYNENDUR voru
ekki alveg sammála um
ágæti nýs söngleiks Sir
Andrews Lloyds Webbers,
Sunset Boulevard, sem var
frumsýndur með mikilli við-
höfn í London í fyrrakvöld.
Söngleikurinn er byggður á sí-
gildri kvikmynd Billys Wilders frá
sjötta áratugnum, um tilraun
hnignandi stjörnu úr þöglu kvik-
myndunum, til að öðlast viðurkenn-
ingu á ný. Uppfærslan á söngleikn-
um, sem er sá 12. úr smiðju Web-
bers, kostaði sem svarar rúmum
300 milljónum íslenskra króna, og
þrátt fyrir töfrandi sviðsmynd og
búninga voru gagnrýnendur ekki
alveg sannfærðir.
í dagblaðinu The Times sagði að
leikurinn væri „stórkostlegur á að
horfa, stundum heillandi á að hlýða,
og á framar öðrum verkum [Web-
bers] skilið þær aldarlöngu vinsæld-
ir sem hann mun ef til vill njóta.“
En gagnrýnandi The Daily Tele-
graph var ekki hrifinn af því að
bitið sem var í kvikmyndinni hafi
verið slævt, með áherslu á tilfinn-
ingasemi, og segir tónlistina, sér-
staklega í fyrsta þætti, lítt minnis-
verða. „Væri þessi söngleikur eftir
einhvern annan en Lloyd Webber
myndi ég ekki telja möguleikana
mikla. Eins og málum er háttað,
þá kemst hann að líkindum upp
með þetta, en hér er teflt á afskap-
lega tæpt vað.“
Hver svo sem hinn endanlegi
dómur verður, þá hefur Sunset
Boulevard nú þegar slegið met hvað
varðar forsölu aðgöngumiða. Þegar
eru seldir miðar fyrir sem svarar
rúmlega 40 milljónum íslenskra
króna.
Sex óháðir meiin taka
sæti í stjórn Gonzalez
Madrid. Reuter.
FELIPE Gonzalez, forsætisráð-
herra Spánar, kynnti í gær nýja
stjórn, skipaða 18 ráðherrum,
þar af sex óháðum mönnum.
Þar sem Gonzalez tókst ekki að
fá helstu flokka Baska og Katalóna
til að mynda samsteypustjóm verð-
ur forsætisráðherrann aðallega að
reiða sig á félaga sína í Sósíalista-
flokknum og þá sem eru í nánum
tengslum við flokkinn. Hann efndi
kosningaloforð sitt um að skipa
óháða menn og þijár konur í ráð-
herraembætti. Þrír valdamiklir ráð-
herrar í gömlu stjórninni, aðstoðar-
forsætisráðherrann, innanríkisráð-
herrann og utanríkisráðherrann,
héldu hins vegar embættum sínum.
í nýju stjórninni er enginn full-
trúi vinstriarmsins innan Sósíalista-
flokksins. Varaformaður flokksins,
Alfonso Guerra, sem vill náin tengsl
við verkalýðshreyfinguna, virðist
því ekki hafa þar neinn málsvara.
„Hér er engin af þeim breyting-
um sem Gonzalez lofaði okkur og
þetta sýnir að hann hefur ekki getu
til að endurlífga spænska þjóðfélag-
Fjögurra ára dómur yfir Jean-
Pierre Allain, _ fyrrum yfirmanni
blóðgjafarannsókna, var einnig
staðfestur.
Dómstóllinn tók einnig afstöðu
til dóma í málum tveggja embættis-
manna til viðbótar. Robert Netter,
fyrrum yfirmaður opinberrar rann-
ið,“ sagði Javier Arenas, fram-
kvæmdastjóri stærsta stjórnarand-
stöðuflokksins, Þjóðarflokksins.
sóknarstofu á sviði heilbrigðismála,
var dæmdur í árs skilorðsbundið
fangelsi en hann hafði verið sýknað-
ur á lægra dómsstigi. Þá var fjög-
urra ára fangelsisdómur yfir Jacqu-
es Roux fyrrum yfirmanni heil-
brigðisþjónustunnar styttur í þijú
ár skilorðsbundið.
Blóðbankahneykslið í Frakklandi
Dómar staðfestir
París. Reuter.
FRANSKUR áfrýjunardómstóll staðfesti í gær fjögurra ára fangelsis-
dóm yfir Michel Garretta, fyrrum yfirmanni franska blóðbankans.
Garretta var á sínum tima dæmdur fyrir að hafa vísvitandi látið
gefa dreyrasjúklingum blóð sem smitað var af alnæmisveirunni.
Blaðamaður slapp naumlega í Mogadishu
■■w^t;v.w.v^v.v^v.v.v.w.v.v.v.^.>- .
Slapp lifandi
Mohamed Shaffi sem er sjónvarpsmyndatökumaður fyrir Reuters
er nú á batavegi eftir að hafa orðið fyrir miklum barsmíðum og
byssuskoti af æstum múg í Mogadishu á mánudag. Fjórir frétta-
menn voru barðir til bana.
SÞ gangast undir
hefð blóðhefnda
Mogadishu. The Daily Telegraph.
„FORÐAÐU þér, það er of hættulegt að vera hérna,“ öskraði
bandaríski liðsforinginn, augu hans voru blóðsprengd af
hræðslu og fyrir ofan þrumuðu bandarískar árásarþyrlur. Á
bak við steig reykurinn upp úr nýjasta skotmarki „friðar-
gæslu“ Sameinuðu þjóðanna, einni af stjórnstöðvum stríðs-
herrans Mohameds Farahs Aideeds. í þetta skipti hafði árás-
in verið gerð um hábjartan dag innan um fjölda fólks. Þann-
ig var aðkoman er Scott Peterson, blaðamann The Daily
Telegraph, bar að garði. Hann var einn þeirra sem tókst að
flýja frá æstum múgnum er leitaði hefnda og lýsir hér því
sem gerðist, en fjórir fréttamenn voru myrtir skömmu seinna.
Bandarísku hermennirnir flýttu
sér í burtu um leið og þeir höfðu
varað mig við og ég gekk einn upp
að brennandi byggingunni. Þá sló
þögn á allt. Slík kyrrð er nánast
óþekkt fyrirbæri i þessu landi og
ég fylltist þegar í stað miklum ótta.
Skyndilega hlupu Sómalarnir að
mér niður malarveginn. Þeir voru
greinilega æflr af reiði eftir að
hafa horft upp á enn eina ofbeldis-
aðgerðina gegn landi þeirra, gerða
með leyfí SÞ og framkvæmda af
bandarískum hermönnum. Hefnd
þeirra átti að bitna á mér sem út-
lendingi.
Múgurinn umkringdi mig, togaði
í myndavélarnar mínar og tösku
og hóf að lumbra á mér með kylf-
um, sveðjum og löngum hnífum.
Ég gerði mér grein fyrir að engrar
undankomu væri auðið. Allt of oft
hafði ég séð hve fúsir Sómalir geta
verið að grípa til ofbeldis sé þeim
ögrað. Myndavélarnar hurfu og ég
var búinn að gefa allt sem hægt
var að gefa. Kylfa eða sveðja skall
á hnakkanum á mér með miklum
krafti og blóðið fór að fossa.
Björgun
Aðrir Sómalir komu mér til
hjálpar, drógu mig burt og báðust
afsökunar á framferði þjóðbræðra
sinna. „Hvaðan kemurðu?,“ spurðu
þeir, líkt og það væri síðasti próf-
steinninn á það hvort rétt væ'ri að
bjarga mér. „Ég er breskur," svar-
aði ég og mér var ýtt inn í bíl. Ég
var heppinn. Nokkrir fréttamenn
til viðbótar komu á staðinn
skömmu eftir að mér hafði verið
forðað í burtu. Þeir áttu að vera
undir verndarvæng manna úr röð-
um Aideeds og fréttamenn eru yfir-
leitt ekki lengi að hugsa sig um
þegar slík vernd býðst. Sómalir
þekkja Sómali og vita hvernig
hægt er að halda þeim í skefjum.
Þegar blaðamannahópurinn kom
að húsinu virtist fólkið vera rólegt,
að sögn þeirra tveggja sem sluppu
lifandi. Ljósmyndararnir fóru úr
bílunum og hlupu að byggingunni
en voru skyndilega umkringdir
Sómölum. Allt í einu breyttist
mannfjöldinn í blóðþyrstan, æstan
múg. Skotum var hleypt af og
steinum rigndi yfir bílana. Blóðbað-
ið sem fylgdi í kjölfarið sýndi álíka
djúpstæða reiði og kom i ljós er
pakistanskir hermenn voru dregnir
inn í mannhaf og rifnir í sundur.
Þrír ljósmyndarar og hljóðmaður
voru drepnir og myndatökumaður
fékk alvarleg skotsár. Það tókst
þó að henda honum inn í bíl sem
ók með hann á brott.
Þegar ég sat á hótelherberginu
mínu að kvöldi þess dags sem ör-
lögin ákváðu að ég ætti ekki að
deyja sagði sómalski túlkurinn
minn að maðurinn sem sveiflaði
sveðjunni og skar í handlegginn á
mér hefði verið sá sami og hálftíma
síðar drap vin minn, Reuters-lps,-
myndarann.
Nýtt skref í ofbeldisátt
I hinu litla samfélagi frétta-
manna í Mogadishu ríkir sorg.
Andlát félaga okkar eru hins vegar
enn eitt skrefið á þeirri braut of-
beldis sem háð hefur starfsemi
Sameinuðu þjóðanna í Sómalíu allt
frá því að einræðisherrann Siad
Barre hrökklaðist frá völdum í jan-
úarmánuði árið 1991. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir hefur Banda-
ríkjamönnunum, sem komu til
landsins í desember í fyrra, ekki
tekist að bijóta á bak aftur vald
stríðsherranna.
Aideed hershöfðingi fagnaði
Bandaríkjamönnunum í fyrstu þar
sem hann taldi að koma þeirra
myndi styrkja pólitíska stöðu hans.
Hann uppgötvaði hins vegar fljót-
lega að þeir myndu grafa undan
vígi hans í Suður-Sómalíu sem
hann hafði náð undir sig með
ómældu erfíði. Aideed og menn
hans geta nú einvörðungu haldið
uppi skyndiárásum á einhveija
þeirra 22 þúsund friðargæsluliða,
sem er að finna í Sómalíu, og von-
að að með því muni þeir sannfæra
heiminn um að þessi fyrsta tilraun
SÞ til að koma á friði í stað þess
að gæta hans einvörðungu, sé
dæmd til að mistakast.
Fulltrúar SÞ halda því fram að
Aideed starfi á sama hátt og
hryðjuverkamaður. Hann hefst við
á felustöðum í borginni og kemur
skipunum áleiðis til ofstækisfullra
stuðningsmanna.
Blóðhefndir eru ríkur þáttur í
hefðum Sómala og þegar tveir deila
verða báðir að hefna sín. Sveitir
Sameinuðu þjóðanna, með Banda-
ríkjamenn í broddi fylkingar, telja
sig geta haft betur í þeim leik. Þær
munu fylgja lögum Móse: Auga
fyrir auga, tönn fyrir tönn, og
bregðast við árásum með enn harð-
ari gagnrárás. Þyrluárás mánu-
dagsins var liður í þessu ferli.