Morgunblaðið - 14.07.1993, Side 30

Morgunblaðið - 14.07.1993, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 -f Sveinbjöm Hafsteinn Pálsson vélsmíða- meistari - Minning Fæddur 20. október 1910 Dáinn 5. júlí 1993 Sumir lifa þrátt fyrir að þeir deyi. Minningin um afa mun alltaf hfa með mér um ókomna tíð. Minning um mann sem mér þótti svo afar vænt um, göfugan, stoltan og sterk- an. Það er erfitt að minnast afa í _|tuttu máli þar sem hann hefur haft svo mikil áhrif í mínu lífi. Ég var beinlínis alin upp í faðmi hans. Hann var alla tíð minn styrkur, mitt traust og mín blessun. Afí var alltaf nánast yfímáttúrulegur fyrir mér, svo mikið var álit mitt á honum. Það var ekk- ert sem hann gat ekki gert og aldrei féll honum verk úr hendi. Húsið hans afa og hennar ömmu á Langholtsveginum var besti staður í heimi. Hús.eru oft sögð hafa sál, en sálina fá þau frá fólkinu sem býr í þeim. Afa og ömmu hús hafði góða sál. Það var ætíð gestkvæmt og öllum leið vel þar, enda vildi ég hvergi annars staðar vera. Ef slíta átti mig frá afa kostaði það ætíð mikinn grát og gnístran tanna. Það var erfítt 'xyrir litla stúlku að vera tekin úr faðmi fullum ástúðar og hlýju. Afí hafði alltaf tíma og las ógrynnin öll af sögum og ævintýrum fyrir mig. Uppáhaldssagan var um Heiðu, en alltaf varð að sleppa kaflanum þegar Heiða var tekin frá afa. Sá kafli var allt of sorglegur. Afí var svo heppinn að kynnast henni ömmu, Guðríði Guðinundsdótt- ur úr Vestmannaeyjum, þegar hann var ungur. Hann beið í tólf ár eftir að hún giftist honum, en uppskar -^þó laun erfiðis síns, því að hann fékk ' bestu eiginkonu sem hann hefði get- að óskað sér. Þau eignuðust þijú böm, Guðlaugu, Erlu og Kára og sex barnaböm. Aldrei var nein efasemd til í mínum huga um þeirra kær- leika. Afa þótti svo afskaplega vænt um ömmu og í veikindum sínum kvartaði hann aldrei eða hafði áhyggjur af sjálfum sér, aðeins henni. Hinn 5. júlí sl. kvaddi hann svo þennan heim á heimili sínu á sama hátt og hann hafði alltaf borið sig í lífinu, með virðuleika, ró og trúfestu í faðmi eiginkonunnar sem hann elskaði svo. Það hefur án efa verið besti dauðdagi sem hann gat kosið sér. Ymsir sjúkdómar höfðu heijað á áfa í gegnum hans daga. Honum tókst að vinna bug á þeim öllum með sínu baráttuþreki og viljastyrk. Hans síðasti sjúkdómur var þó ósigrandi, enda líkaminn orðinn lúinn. Ef þetta líf er undirbúningur fyrir eitthvað æðra og meira er afi vel undirbúinn. Hann var góður, heiðarlegur og rétt- sýnn. Hann var traustur og reyndist öllum þeim sem til hans þekktu, bæði fjölskyldu og vinum, vel. Mikill missir er að afa fyrir okkur fjölskylduna, en mestur þó fyrir ömmu, sem kynntist honum aðeins átján ára gömul. Þó lifir stór hluti afa_ ennþá í henni, akkerinu mínu. Ég kveð afa með eftirfarandi ljóði; Ó, hve heitt ég unni þér! Allt hið bezta í hjarta mér vaktir þú og vermdir þinni ást. Æskubjart um öll mín spor aftur glóði sól og vor, og traust þitt var það athvarf, sem mér aldrei brást. Eitt ég hræðist, ef svo fer, að ég kunni að gleyma þér, þér, sem gafst mér lífsins týndu trú. Allt hið bezta, er á ég geymt, allt, sem mig hefur ljúfast dreymt, það er gleymt og týnt um leið, því það varst þú. (Tómas Guðmundsson) Erla. Mjög sérstakur mannkostamaður er genginn að afloknu miklu og giftu- dijúgu dagsverki. Það var mikið lán fyrir ungan mann, nýkominn úr námi, sem var að fara að takast á við nýtt og krefj- andi starf, að kynnast og starfa með manni eins og Sveinbimi Hafsteini Pálssyni. Okkar kynni hófust í janúar 1979 er ég réðst til Fasteignamats ríkisins sem umdæmistæknifræðingur fyrir Vesturlandsumdæmi sem þá spann- aði bæði Vesturland og stóran hluta Vestfjarða. Fyrstu daga mína í mats- störfum í Reykjavík var ég undir handleiðslu Sveinbjöms eins og flest- ir samstarfsmenn mínir höfðu verið, þar sem Sveinbjörn var, manna reyndastur í matsúttektum á stofn- uninni. Síðan var mér boðið af Gutt- ormi, forstjóra FMR, að njóta starfs- krafta Sveinbjöms áfram við þau umfangsmiklu endurmatsverkefni sem fyrir lágu í Vesturlandsum- dæmi, meðal annars endurmat allra húsa í Stykkishólmi og Grundarfírði. Þetta varð til þess að við vorum vik- um og mánuðum saman við mats- störf næstu tvö árin og oft eftir það. Það voru forréttindi að eiga Svein- bjöm að vinnufélaga og vini. Hann var bæði traustur og heiðvirður, og vinnusamari manni hef ég ekki kynnst. Hann byijaði jafnan vinnu- t STEFANÍA SIGURÐARDÓTTIR (TONA), Fellsmúla 4, lést á Droplaugarstöðum þann 12. júlí sl. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. júlí kl. 13.30. Systkini og aðrir vandamenn. Ástkaer eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, JÓHANNA SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Meistaravöllum 21, lést í Landakotsspítala að morgni 13. júlí. Hafsteinn Þorsteinsson, börn, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengafaðir, afi og langafi, JÓHANN S. JÓHANNSSON, Eyrargötu 28, Siglufirði, andaðist í Sjúkrahúsi Siglufjarðar að morgni 13. júlí. Páll Þorsteinn Jóhannsson, Guðrún María Ingvarsdóttir, Helgi Jóhannsson, Svandís Óskarsdóttir, Már Jóhannsson, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Oddur Guðmundur Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabarn. dag sinn fyrr en flestir gera og lauk honum einnig seinna en flestir án þess nokkum tíma að hugsa um nokkuð annað en að sinna starfi sínu sem best hann mátti. Hann var aufú- sugestur á heimili mínu og ég og fjölskylda mín nutum ailtaf frábærr- ar gestrisni á heimili hans. Þar sem við störfuðum mikið sam- an og deildum saman aðstæðum í starfi og utan þess vikum og mánuð- um saman kynntumst við mjög náið og aldrei bar skugga á samskipti okkar. Þrátt fyrir áföll, slys og oft mikla vanheilsu barðist hann til hinstu stundar af sömu reisn og ein- kenndi allt hans líf. Hann var mikill gæfumaður í einkalífí sínu, kvæntur einstakri sómakonu, Guðríði Guðmundsdóttur frá Vestmannaeyjum, og áttu þau saman mikil mannkostaböm, þau Guðlaugu, Erlu og Kára Hafstein. Einnig var Erla dóttir Guðlaugar löngum stundum hjá afa sínum og ömmu. Sveinbimi var fjölskyldan afar kær, maki, böm, tengdabörn og barnabörnin, og hann minntist þeirra oft með mikilli hlýju. Sveinbjöm var alltaf stór af sjálf- um sér hvar sem hann fór, hann var greindur, hógvær og háttvís í besta lagi og gjörsamlega laus við alla yfír- borðsmennsku, og allir jafnt háir sem lágir voru jafnir fyrir honum og gátu treyst því að fá sama viðmót þegar á reyndi. Ég kveð þig, Sveinbjörn, sem varst mér og öðrum samferðamönnum þín- um til eftirbreytni í lífi og starfí. Með þér var gott að vera, ferðast, starfa og einnig þegja. Ég hefði í dag viljað óska þess að samveru- stundir okkar hefðu orðið ennþá fleiri. Ég bið Gauju og fjölskyldunni allr- ar blessunar á þessari erfíðu stund. Henrý Þór. Hinn fímmta júlí sl. lést á heimili sínu Sveinbjöm Hafsteinn Pálsson, frændi, eins og við kölluðum hann systkinin. Við fráfall hans koma margar ljúfar minningar í huga okk- ar. Sveinbjörn fæddist í Reykjavík árið 1910, sonur hjónanna Páls Níels- sonar og Elínar Þorsteinsdóttur. Systkinin voru tólf og eru nú þijú á lífi. Frændi var giftur Guðríði Guð- mundsdóttur og var það traust og farsælt hjónaband. Eignuðust þau þijú yndisleg börn, Guðlaugu, Érlu og Kára sem eru búin að stofna sín heimili og bamabörnin orðin sex. " Faðir okkar og frændi vom bræð- ur og vom þeir giftir systmm. Tengsl miili heimilanna voru því mikil og náin. Á heimili þeima hjóna var afar gestkvæmt og mikil gestrisni í fyrir- rúmi. Heiðarleiki, atorka og einstök samviskusemi einkenndi frænda okk- ar. Hann var vélsmíðameistari og við þá grein vann hann lengst af. Hér á árum áður sá hann um húsflutninga og flutti mörg húsin milli bæjar- hluta. Þótti undravert hvað vel tókst til og að húsin skyldu komast eins heil á áfangastað og raun bar vitni um, jafnvel svo að brotnuðu ekki einu sinni rúður í þeim. Vomm við systkinin afar stolt þegar frændi kom með þessi líka stóm hús inn í Klepps- holt þar sem við bjuggum í þá daga og fylgdumst með. Aldrei sat hann auðum höndum. Síðustu árin vann hann mikið við bókband. Barngóður var hann og hændust böm mjög að honum. Okk- ur systkinunum var hann afar kær. Ekki vom fáar ferðirnar sem frændi kom með sína fjölskyldu og kippti okkar fjölskyldu með í beijamó eða í bílferð niður að höfn svo að eitt- hvað sé nefnt. Móðir okkar og við þökkum af alhug hvað hann var okkur góður frændi. Elsku Gauja, böm, tengdaböm og barnaböm. Við sendum ykkur inni- legar samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Mitt kærasta yndi, við kveðjum þig nú með klökkvandi saknaðar tári, með þökk fyrir allt, sem okkur varst þú, og ennþá skalt okkur verða, þótt líkaminn ljúfí sé nár. (Hannes Hafstein) Pálína, Elín og Þórarinn. Mig langar til þess að kveðja afa með uppáhaldsljóðinu mínu sem ég lærði í leikskólanum. Snert hörpu mína, himinboma dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég íjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. (Davíð Stefánsson) Með fáum orðum langar mig að minnast tengdaföður míns Svein- bjöms Hafsteins Pálssonar sem lést hinn 5. júlí síðastliðinn eftir stutta en harða baráttu við þann sjúkdóm sem enginn fær ráðið við. Sveinbjörn fæddist 20. okt. 1910. Hann var fímmti í röð 12 barna hjón- anna Elínar Guðrúnar Þorsteinsdótt- ur og Páls Ingva Níelssonar vél- stjóra. Hann ólst að mestu leyti upp í Reykjavík og bjó þar lengst af. Sveinbjörn gekk í Miðbæjarskól- ann. Hann lærði síðan vélsmíði í Iðn- skólanum og Héðni, en fjárhagurinn leyfði ekkí frekara nám eins og hann hefði kosið. I þá daga var unninn fullur vinnudagur og síðan sest á skólabekk á kvöldin. Þá var ekkert sem hét „löglegur hvíldartími". Sveinbjörn setti á stofn vélsmiðju sem hann rak í eigin nafni til ársins 1962. Hann var virtur og vel látinn í starfí og eftirsóttur til verka. Jafn- framt var hann brautryðjandi í hús- flutningum og eru húsin mörg, bæði í Reykjavík og úti á landi, sem hann hefur flutt, eins og Laugavegur 13, Lækjargata 10 og bankahúsið á ísafírði. Áður en Sveinbjöm setti á stofn sína eigin vélsmiðju í Reykja- vík hafði hann farið út til Vest- mannaeyja og tekið við vélsmiðju Einars Magnússonar ásamt Kára bróður sínum, en hann fórst í svip- legu slysi þar. Þá kom Óskar bróðir hans til hans en þeir bræður vom alla tíð mjög nánir vinir. Sveinbjörn var mikill hagleiksmað- ur sem allt lék í höndunum á hvort sem það var járn eða tré og em hlut- ir á heimili þeirra hjóna sem bera vönduðum vinnubrögðum hans vitni. Sveinbjörn var mjög vinnusamur maður sem gat aldrei iðjulaus verið, árrisull og byijaði að starfa fyrir allar aldir. Til Vestmannaeyja sótti Svein- bjöm konuefni sitt Guðríði Guð- mundsdóttur frá Viðey í Vestmanna- eyjum. Guðríður eða Gauja eins og hún er alltaf kölluð er dóttir Pálínu Jónsdóttur og Guðmundar Einars- sonar útvegsbónda í Viðey. Þau gengu í hjónaband 30. júní 1945 og eignuðust þijú börn, en þau em: Guðlaug Steinþóra, gift undirrituð- um, Guðmunda Eria, gift Gerart Vautey, og Kári Hafsteinn, kvæntur írisi Bjömæs Þór. Barnabörnin eru sex og vom þau afa og ömmu mjög kær. Erla, elsta bamabarnið, ólst að miklu leyti upp hjá þeim þegar hún var barn og voru þau henni alltaf sem aðrir foreldrar. Hagur heimilisins, eiginkonu og barna var alltaf í fyrirrúmi og vildi hann allt fyrir þau gera. Minnugur þess að sjálfur hafði hann ekki að- stæður til að ganga menntaveginn, hvatti hann bömin sín til náms og nutu þau góðs atlætis í foreldrahús- um. Árið 1962 varð Sveinbjöm fyrir miklu áfalli. Þá hafði hann staðið í miklum stórræðum, jafnframt því að hafa byggt íbúðarhúsnæði að Rauða- læk 3, hafði hann ásamt Guðmundi Hjartarsyni vini sínum byggt stórt atvinnuhúsnæði í Skipholti 35 þar sem hann ætlaði að hafa vélsmiðju, en það fór á annan veg. Hann fékk heilablæðingu og lamaðist alveg öðru megin og missti málið. Má nærri geta þvílíkt áfall þetta hefur verið svo vinnusömum manni. Hann sýndi þá eins og alltaf síðan ótrúlegan vilja- styrk. Hann ætlaði sér að komast á fætur aftur og það gerði hann þótt hann fengi aldrei fullan mátt. í fjög- Erlidnkkjur Glæsileg kaffi- lilaðborð fídlegir Síilir og mjög góð þjónustíL Upplýsingar ísíma22322 m FLUGLEIDIR HÖTEL LOFTlElím Tómas Þór. t Móðursystir mín, GUÐRÚN ÁSA ÓLAFSDÓTTIR, Grænuvöllum 6, Selfossi, andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands þann 11. júlí sl. Ástríður Sigurðardóttir. t Ástkær eiginkona mín MARÍA ÓLAFSDÓTTIR, Tangagötu 15a, Isafírði, lést í Fjórðungssjúkrahúsi ísafjarðar föstudaginn 9. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Guðmundur Halldórsson og synir. t Minningarathöfn um móður okkar, JÓNU VILHJÁLMSDÓTTUR frá Vestmannaeyjum, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. júlí kl. 15.00. Útförin fer fram frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 17. júlí kl. 14.00. Ásta Vigfúsdóttir, Lára Vigfúsdóttir. 4 ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.